Morgunblaðið - 31.05.1990, Page 60
SAGA CLASS
Ferðafrelsi
FLUGLEIDIR
FIMMTUDAGUR 31. MAI 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Morgnnblaðið/Einar Falur
Sigur í fyrsta leiknum
Islendingar sigruðu Albani, 2:0, í fyrsta leiknum í 1. riðli undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Arnór Guðjohnsen gerði fyrra mark íslendinga undir lok fyrri hálfleiks
en Atli Eðvaldsson það síðara, fjórum mínútum fyrir leikslok. Á myndinni fagnar Bo Johansson, þjálfari
íslenska landsliðsins, Atla en þetta var fyrsti „alvöruleikur" Johanssons sem þjálfari íslenska liðsins.
Félagsfímdur Æskulýðsfylkingarinnar;
Vantraust samþykkt
-4 stjórnina og nýr
aðalfimdur boðaður
Á FÉLAGSFUNDI í Æskulýðsfylkingunni í gærkveldi var samþykkt
vantraust á stjórn félagsins og þess krafist að hún léti þegar af störf-
um. Kosin var þriggja manna uppstillingarnefnd til að boða nýjan
aðalfúnd félagsins 14. júní næstkomandi. Þá voru einnig samþykktar
ályktanir þar sem það er harmað hvernig staðið hafi verið að fram-
boðsmálum í Reykjavík og krafa um að stofnað verði kjördæmisráð í
Reykjavík er dregin til baka. Mælst er til þess að landsfundur flokks-
ins verði haldinn á hausti komanda og þar verði afmarkað betur hvern-
ig staðið verði að framboðum á vegum flokksins, þar sem núverandi
reglur hafi ekki reynst nógu skýrar. Milli 50 og 60 manns voru mættir
á fundinum og voru þessar tillögur samþykktar með þorra atkvæða,
samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
í ályktun fundarins sem Ástráður
Haraldsson, frambjóðandi á G-list-
anum, stóð að ásamt mörgum öðr-
um, segir að ein meginniðurstaða
sveitarstjórnakosninganna sé að
sameiningartilraunir sem formenn
Alþýðuflokks og Alþýðubandalags
hafí staðið fyrir hafi misheppnast
og veruleg hætta sé á að þetta geti
orðið til þess að teija fyrir samein-
ingartilraunum á vinstra kanti
stjórnmálanna.
Síðan segir að á undanförnum
-^ikum hafi ÆFR blandast með afar
"'neikvæðum hætti inn í framboðsmál
í Reykjavík. Á fundi 30. mars hafi
verið samþykkt að ganga til Iiðs við
framboð Nýs vettvangs, en í auglýs-
ingum um fundinn hafi þess ekki
verið getið að slík tillaga yrði til
afgreiðslu. Með þessu hafi ÆFR
verið komið í framboð gegn lög-
mætu og flokkslega ákvörðuðu
framboði Alþýðubandalagsins og
Tómatar á
útsöluverði
kröfu 23 félaga ÆFR um að annar
fundur yrði haldinn hafi ekki verið
sinnt af stjórninni.
Þá segir: „Æskulýðsfylkingin í
Reykjavík harmar það hvernig stað-
ið hefur verið að framboðsmálum
hér í Reykjavík af hálfu stjórnar
ÆFR. Vinnubrögð stjórnarinnar í
framboðsmálum hafa dregið úr tiltrú
á Æskulýðsfylkingunni og veikt
stöðu Alþýðubandalagsins í heild.“
Síðan er áréttað að Alþýðubandalag-
ið sé hér eftir sem hingað til eina
marktæka andstöðuaflið gegn ofur-
valdi íhaldsins í Reykjavík.
Kristján Torfason bæjarfógeti í Vestmannaeyjum:
Stöðvar ekki ísfiskútflutn-
ing nema fyrirmæli berist
Mun hærra verð fæst vegna stýringar útflutnings, segir Kristján Ragnarsson
KRISTJÁN Torfason, bæjarfógeti í Vestmannaeyjum og yfirmaður
tollgæslumála þar, segist ekki hafa fengið nein fyrirmæli um það hvern-
ig staðið skuli að tollafgreiðslu á isfiski til útflutnings, sem er umfram
heimildir frá Aflamiðlun. Hann sagðist ekkert mundu aðhafast nema
hann fengi fyrirmæli þar að lútandi. Á fundi sjómanna og skipstjóra
Eyjabáta í fyrrakvöld var ákveðið að flytja út ísfisk i gámum á morg-
un, föstudag, þrátt fyrir að Aflamiðlun hafi ekki gefið heimild til út-
flutningsins. Jafnframt var skorað á sjávarútvegs- og utanríkisráð-
herra að gefa þennan útflutning fijálsan. Samkvæmt upplýsingum
Aflamiðlunar hafa sex aðilar, einkum í Vestmannaeyjum, flutt út rúm
1.200 tonn af ísfiski umfram heimildir á markað í Englandi á fimm
vikna timabili í apríl og maí.
.VERÐ á tómötum hefur lækkað
að undanfornu vegna mikillar
uppskeru í gróðurhúsum.
Skráð heildsöluverð hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna er 150 krónur en
mikil samkeppni er á markaðnum
og heildsöluverð í mörgum tilvikum
mun lægra þannig að algengt útsölu-
verð er á bilinu 123 til 190 krónur
kílóið. Tómatarnir kostuðu 123
krónur í Miklagarði í gær og 149 í
Hagkaup.
Fyrsta heildsöluverð tómata hjá
Sölufélaginu í vor var 399 krónur
kílóið, sem þýddi 630-640 króna
útsöluverð. Algengt útsöluverð nú
er því aðeins 20-30% af verðinu þá.
Kristján Ragnarsson, formaður I
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir að 44% hærra verð
hafi fengist fyrir þorsk á mörkuðum I
í Bretlandi á þessu ári en í fyrra
vegna þess að framboðinu hafi ver-
ið stýrt betur eftir að Aflamiðlun
tók við stjórn útflutningsins af ut-
anríkisráðuneytinu.
Kristján sagði að kæmust Vest-
manneyingarnir upp með að flytja
út ísfisk á morgun án leyfa frá
Aflamiðlun, þá þjónaði engum tíl-
gangi að vera myndast við að
stjórna útflutningnum. Hólmgeir
Jónasson, framkvæmdastjóri Sjó-
mannasambands íslands, sagði að
menn yrðu að hlíta ákvörðunum
Aflamiðlunar um heimildir til út-
flutnings. Þar ættu sjómenn sinn
fulltrúa. Menn yrðu að hlíta þeim
reglum sem í gildi væru.
Kristján sagði að það myndi vera
mjög misráðið ef framseljanlegur
útflutningskvóti yrði settur á hvert
skip, eins og Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríkisráðherra, hefur sagt
að ætti að gera í haust. Hólmgeir
sagði að útflutningskvóti á hvert
skip kæmi ekki til greina að mati
Sjómannasambandsins.
Sjá ennfremur viðtöl á bls. 34.
Endurtalning í Eyjum:
D-listmn fékk
eitt atkvæði
til viðbótar
Vestmannaeyjum.
ENDURTALNINGU lauk í Vest-
mannaeyjum laust eftir mið-
nætti, en hún var gerð að kröfu
Andrésar Sigmundssonar efsta
manns Framsóknar. Kjörstjórn
ályktaði fyrr í kvöld að trauðla
væri ástæða til að verða við
beiðninni en það skyldi þó gert.
Niðurstaðan varð sú að fulltrúa-
fjöldi er óbreyttur frá fyrri taln-
ingu. Einn seðill, sem áður hafði
verið úrskurðaður ógildur, var nú
úrskurðaður gildur og féll í hlut
Sjálfstæðisflokksins. Hann hlaut
því 1463 atkvæði en hafði 1462.
Kristján Torfason formaður kjör-
stjórnar lýsti því yfir að lokinni taln-
ingu, að störfum hennar væri þar
með lokið. Ovíst er hvort Andrés
kærir niðurstöður kjörstjórnar til
æðri staða.
V erðlagsráð Qallar um
fíölda hækkanabeiðna í dag
Dagsbrún krefst þess að verðhækkanir séu hindraðar
Á FUNDI Verðlagsráðs í dag
verður fjallað um beiðnir sem
borist hafa um verðhækkanir,
en þar á meðal eru beiðnir um
hækkun á sementi og bensíni,
en gert er ráð fyrir að um ein-
hverja lækkun á öðrum olívör-
um verði að ræða. Þá hefur
Verðlagsráði borist hækkunar-
beiðni frá ýmsum samgöngu-
fyrirtækjum. Að sögn Georgs
Olafssonar verðlagsstjóra verð-
ur veitt mikið aðhald að þessum
hækkunum og sagði hann þær
verða mjög litlar. Stjórn Dags-
brúnar hefur skorað á Verð-
lagsráð að leyfa ekki verð-
hækkanir, og krefst jafnframt
að verðgæsla í landinu verði
virkari en verið hefúr til þessa.
I kjarasamningunum í vetur var
gengið frá því að sement hækkaði
um 10% í áföngum á árinu. 1.
apríl síðastliðinn var leyfð 6%
hækkun, en samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins hefur verið
farið fram á 4% hækkun nú. Á
fundi Verðlagsráðs í dag verður
einnig fjallað um verð á landbún-
aðarvörum, en að sögn verðlags-
stjóra verður ekki um neina hækk-
un á þeim vörum að ræða sam-
kvæmt loforði ríkisstjórnarinnar,
sem gefið var í tengslum við
kjarasamningana.
Stjórn Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar hefur sent frá sér
ályktun þar sem segir að alvarleg
hætta sé á því að verðlag í landinu
fari yfir þau mörk, sem gert var
ráð fyrir í kjarasamningunum, og
hefur stjórnin skorað á Verðlags-
ráð að leyfa ekki verðhækkanir.
í ályktun stjórnarfundar Dags-
brúnar er bent á að hver verð-
hækkun sé kjaraskerðing fyrir
fólkið í landinu, og ef ný verð-
hækkunaralda verði ekki stöðvuð,
þá blasi við að mistekist hafi að
lækka verðbólguna í þeim mæli
sem samið var um.
Grímur