Morgunblaðið - 05.07.1990, Síða 2

Morgunblaðið - 05.07.1990, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JULI 1990 Sex öryggis- verðir ráðn- ir í Leifsstöð SEX hús- og öryggisverðir verða ráðnir í flugstöð Leifs Eiríksson- ar seinna í þessum mánuði. Eng- ir slíkir verðir eru nú á svæðinu en starf öryggisvarðanna mun felast í gæslu innan húss, sem og á bílastæðum og flugbrautum. Hafa stöðurnar verið auglýstar og á milli 80 og 100 manns sótt um þær. „Þetta hefur staðið lengi til og það hefur sýnt sig að full þörf er á vörslu. Eitthvað hefur verið um að brotist hafí verið inn í bfla og svo er nauðsynlegt að hafa eftirlit með tölvubúnaði hússins sem er mjög fiókinn. Þá munu verðirnir sjá til þess að reykingabanni verði framfylgt," sagði Pétur Guðmunds- son, flugvallarstjóri í Leifsstöð. Sagði hann ætlunina að öryggis- gæslan yrði áþekk gæslunni í Kringlunni nema hvað verðirnir munu vinna á sólarhringsvöktum. Þotukaup Atlanta; Samningar um flármögn- un í sjónmáli ÞOTAN sem flugfélagið Atlanta hf. keypti af ríkisábyrgðarsjóði gæti flogið af landi brott næst- komandi miðvikudag. Að sögn Arngríms Jóhannssonar eiganda Atlanta koma fulltrúar Qármögn- unaríyrirtækis þotunnar til landsins um helgina. Tekist hefúr að vinna gögn um viðhald henn- ar, sem talið er að íúllnægi skil- yrðum sem sett voru um veðhæfi. Ríkisábyrgðarsjóður leysti til sín þotuna, sem er af gerðinni Boeing 737-200, frá Arnarflugi á síðasta ári. Vélin var mánuðum saman á söluskrá og gekk undir nafninu „þjóðarþotan" áður en yfír lauk. Snemma á þessu ári samdi Arn- grímur Jóhannsson við fjármálaráð- herra um kaup á þotunni. Eftir að samningar náðust kom babb í bátinn, því bandarískt fjár- mögnunarfyrirtæki sem Atlanta átti viðskipti við krafðist gagna um viðhald þotunnar sem fundust ekki. Nú er annað íjármögnunarfyrirtæki komið til skjalanna sem gerir aðrar kröfur en bandaríska flugmála- stjórnin. Vonast Arngrímur því til að samningar náist um helgina með þeim gögnum sem fyrir hendi eru. Gangi allt að óskum verður vél- inni flogið tii Manchester á Eng- iandi. Þar fer fram endumýjum á hnoðum í byrðingi hennar. Þessi viðgerð hefur verið gerð að skiiyrði á þotum þessarar tegundar eftir að gat rifnaði á bol farþegavélar frá Aloha-flugfélaginu á Hawaii fyrir þremur árum. Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Skautahjólá Ijarnarbakka Stigin hjólabretti eru nýjasta fyrirbærið á sviði hjólabretta og þar með eru gömlu pedalarnir aftur komnir í notkun með nýju sniði. llnga fólkið lætur ekki sitt eftir liggja við að reyna nýjun- garnar. Skrífstofiivélar - Gísli J. Johnsen gjaldþrota HLUTAFÉLAGIÐ Skrifstofúvélar-Gísli J. Johnsen var tekið til gjaldþrotaskipta síðdegis í gær, að ósk aðaleigenda þess, Erlings Asgeirssonar og Gunnars Olafssonar. Fyrirtækið, sem hefúr um 70 starfsmenn og hafði einkasöluleyfi fyrir IBM/PS tölvur, auk fjölda annarra umboða á sviði skrifstofú- og skrifvélatækni, verður rekið áfram um sinn á ábyrgð þrotabúsins, sem Sigurmar K. Al- bertsson hrl, veitir forstöðu til bráðabirgða. Ekki náðist í eigendur og fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins í gær og bústjóri hafði ekki handbærar upplýsingar um afkomu og efna- hagsstöðu fyrirtækisins á síðasta uppgjörstímabili eða helstu lánar- drottna, að þvi undanskildu að meðal þeirra munu vera fyrri eig- endur Skrifstofuvéla, vegna kaup- samnings aðilanna. Fyrirtækið mun hafa staðið skil á launa- greiðslum. Gísli J. Johnsen sf. keypti Skrif- stofuvélar hf. í október 1987 og skömmu síðar var rekstur fyrir- tækjanna sameinaður. Fyrirtækið hefur verið meðal umsvifamestu fyrirtækja á sínu sviði og auk sölu og þjónustu fyrir IBM notendur, hefur það haft umboð fyrir Silver Reed, Rank-Xerox, Microsoft og fleiri þekkt vörumerki. Þessi er- lendu viðskiptasambönd telur Sig- urmar K. Albertsson bústjóri með- al helstu eigna þrotabúsins og að hans sögn byggist ákvörðun um að reka fyrirtækið áfram á því að með því að selja rekstur þess í heilu lagi sé hagsmunum lánar- drottna best borgið. Landsmót hestamanna á Vindheimamelum: Dimma o g Rúna í efsta sæti í B-flokki DIMMA 6545 frá Gunnarsholti hlaut einkunnina 8,92 og er efst í B-flokki gæðinga á Landsmót- inu á Vindheimamelum. Knapi á Dimmu er Rúna Einarsdóttir, Hestamannafélaginu Geysi en eigandi er Sveinn Runólfsson í Gunnarsholti. Dimma var þriðja síðust í dóm af 78 hestum. í öðru sæti með 8,84 varð Kjarni frá Egilsstöðum, knapi Sævar Haraldsson, þriðji með 8,81 Kraki frá Helgastöðum I, knapi Unn Kroghen. í fjórða sæti með 8,67 urðu Pjakkur frá Torfunesi og Ragnar Ólafsson. Jafnir í 5.-6. 25% umsókna í húsbréfa- kerfi leiðir til íbúðakaupa UM helmingur af útgefinni Qár- hæð fasteignaveðbréfa hefiir ekki leitað út á markaðinn. Húsbréf hafa með öðrum orðum verið notuð til að greiða skamm- tímalán í bönkum og lán lífeyris- sjóða og þannig aukið ráðstöf- unarfé banka og lífeyrissjóða. 25% af umsóknum Ieiða til íbúðakaupa. Þetta kemur fram í skýrslu nefndar sem félags- málaráðherra skipaði í mars síðastliðnum til að gera úttekt á stöðu Byggingarsjóðs ríkisins. Húsbréfadeild hefur borist rúm- lega 2.000 umsóknir og hafa 1203 umsóknir hlotið umsögn. 345 íbúð- ir hafa verið seldar í húsbréfakerf- inu og hefur fasteignaveðbréfum Virkjanaframkvæmdir vegna álvers: Býst við undirbúningi vegna Fljótsdalsvirkjunar í sumar - segir Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra IÐNAÐARRÁÐHERRA segist eiga von á, að undirbúningur virkjana- framkvæmda vegna raforkusölu til álvers Atlantsálfyrirtækjanna hefiist í sumar og haust. Er það í samræmi við heimild Alþingis um að verja allt að 300 milljónum króna á árinu í því skyni. Að sögn iðnaðarráðherra var gengið frá ýmsum tæknilegum at- riðum og afhendingarskilmálum varðandi raforkukaup til álvers í þeim viðræðum, sem áttu sér stað í lok júní. Hins vegar eigi eftir að ná samningum um raforkuverðið sjálft og afslátt í 'upphafi. Niður- staða hvað það varðar muni ekki liggja fyrir fyrr en í haust. Alþingi samþykkti í vor almenna heimild til að veija í ár allt að 300 milljónum króna til undirbúnings- framkvæmda vegna virkjana. Iðn- aðarráðherra segir, að hann hafí nýlega gert Landsvirkjun grein fyr- ir stöðu viðræðnanna og stofnunin sé nú að meta í ljósi þess, hvaða framkvæmdir séu nauðsynlegar á næstu mánuðum. Segist hann eiga von á að þessar framkvæmdir hefj- ist í sumar og haust, fyrst og fremst við Fljótsdalsvirkjun. Hins vegar verði ekki meira fé varið til þeirra en nauðsyn beri til þannig að hægt verði að afhenda orku til álvers á tilsettum tíma, ef af samningum verður. fyrir um 800 milljónir kr. verið skipt fyrir húsbréf af þeim tveimur milljörðum sem hleypt var af stað í þessum lánaflokki. í skýrslunni segir að um 25% af umsóknum hafi leitt af sér íbúðakaup en aðrir umsækjendur séu að fá greiðslugetu sína metna. Um helmingur af útgefínni fjár- hæð fasteignaveðbréfa hefur ekki leitað út á markaðinn og hafa húsbréf verið notuð til að greiða skammtímalán í bönkum og lán lífeyrissjóða. Útistandandi skammtímalán í bönkum til íbúð- arkaupenda eru um 10 milljarðar króna og lán lífeyrissjóða til sjóðs- félaga sinna sem að mestu eru til húsnæðismála eru um 27 milljarð- ar króna. Með húsbréfakerfinu hafa íbúðarkaupendur fengið svigrúm til að grynnka á skammtímaskuldum. Afföll í húsbréfakerfinu eru um 9,6%, sem er svipað eða minna en ávallt hefur tíðkast af útborgun í lánakerfmu frá 1986. í skýrslu nefndarinnar er borin saman greiðslubyrði í húsbréfa- kerfinu annars vegar og í lána- kerfinu frá 1986 hins vegar. Tekið er dæmi um íbúðarkaup fyrir 7 milljónir kr. og eigið fé kaupanda upp á tvær milljónir kr. Mánaðar- leg greiðslubyrði 1.-5. árið er í húsbréfakerfinu um' 39.000 kr. en fyrir 1. ibúð í gamla kerfinu um 55.000 kr. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dimma og Rúna Einarsdóttir skutust í efsta sætið á síðustu stundu í forkeppninni í gær. sæti með 8,61 urðu Frúar-Jarpur frá Grund, knapi Halldór Svansson og Ögri frá Strönd, knapi Þorvald- ur Sveinsson. Vignir frá Hala sem Sigurbjörn Bárðarson sat og Gola frá Gerðum, knapi Örn Karlsson urðu jöfn í 7.-8. sæti með 8,56. Háleggur frá_ Kjartansstaðakoti, knapi Jens Óli Jespersen, varð níundi með 8,54. Tíundi með 8,52 varð Bylur frá Bringu, knapi Birg- ir Ámason. Kynbótahross voru dæmd á nýjum velli sem byggður var fyrir mótið. Voru tjörutíu stóðhestar leiddir fyrir dómnefndina og tutt- ugu hryssur. í gær voru um 4.000 manns á Vindheimamelum í fremur köldu veðri og strekkingi. í dag fer fram keppni í A-flokki gæðinga, eldri flokki unglinga og úrvalstöltara. Auk þess verða kyn- bótahryssur dæmdar. Verðlækkun á blómum ÍSLENSKIR blómaframleiðend- ur standa nú fyrir verðlækkun á tilbúnum blómvöndum í sam- ráði við blómakaupmenn um land allt, og nemur lækkunin allt að 35% frá smásöluverði. Blómaframleiðsla er nú í hám- arki, óg er þetta er annað árið í röð sem Blómamiðstöðin hf., dreif- ingarmiðstöð blómaframleiðenda, stendur fyrir söluátaki af þessu tagi. Verðlækkunin tekur til ýmissa gerða afskorinna blóma í tilbúnum neytendapakkningum, og er reiknað með að hún standi í um það bil þrjá mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.