Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990
31
Bannað að ganga á grasinu!
eftir Jökul Jörgensen
Allir þeir sem alist hafa upp við
sjóinn, vita að fjaran með öllum
sínum leyndardómum hafði og hefur
mjög seiðandi aðdráttarafl, sem læt-
ur engan ósnortinn.
Menn tala um fjömna sína og láta
hugann reika aftur til áhyggjulausra
æskudaga, þegar allur heimurinn
átti sér stað í tærum fjörupollum og
dimmum klettagjótum fjörunnar.
Samt gerist það þó með flesta, að
eftir því sem þeir eldast og lífsbarátt-
an harðnar, er eins og þessi tilfinning
fyrir bernskuslóðunum dvíni og deyi
hjá mörgum. Þetta eru oft mennirnir
sem síðan hafa áhrif á útlit umhverf-
is síns með svokallaðri skipulagningu
og fegrun þess.
Sjálfur sleit ég bamsskónum að
miklu leyti í fjörunni við Sörlaskjól
í Reykjavík. Fjöru sem einkennist
af víðum grasigrónum bökkum,
nokkuð þýfðum. Síðan taka við ával-
ar og fjölbreyttar klappir í sjó fram.
„Bón mín er því sú:
Sýnið lit og tillitssemi
við þá sem vilja halda í
náttúruleg sérkenni,
lítil sem stór!“
Fyrir miðri fjöru blasir við gömlu
trilluvör. Þar voru gerðar út tvær
litlar trillur. Jöri og Gvendur áttu
þá grænu og Gísli þá hvítu. Þetta
voru karlar af þeirri gerðinni sem
brátt deyr út á íslandi. Þeir voru
þreknir með æðasprungnar kinnar
og geysistórar lúkur sem aldrei fundu
fyrir kulda. Þessir menn höfðu der-
húfur og bölvuðu stundum hressilega
en nægjusemin var aðdáunarverð.
Allt þetta finnur maður og skynjar
ef sest er á fjörukambinn við gamla
spilstæðið, sem nú er horfið en var
áður í hugum okkar strákanna tákn
þess sem alltaf yrði.
í næsta húsi við mig bjó gamall
og farsæll skipstjóri er Sigurður
Gíslason hét. Tók hann sig til á gam-
alsaldri og útbjó fótboltavöll ofan við
vörina, fyrir okkur krakkana í hverf-
inu. Sigurður vann þar mikið þrek-
virki er hann dró til og hagræddi
stærðar gijóti, jarðföstu. Að endingu
hafði hann fullgert fótboltavöll, af-
markaðan hlöðnu gijóti. Mörkin
smíðaði hann einnig ásamt áhorf-
endabekkjunum, síðan reið hann ne-
tið i mörkin.
Þessi völlur var geysilega mikið
notaður og Sigurður sá um að við-
halda öllu fyrir okkur. Eftir hans dag
varð viðhaldinu ábótavant og einn
góðan veðurdag komu bæjai’starfs-
menn, sem við krakkarnir álitum
óvini okkar númer eitt, og tóku niður
mörkin. Ég gekk til þeirra og spurði:
„Hvers vegna?“ Svörin voru þau að
gera ætti við mörkin. Sú viðgerð
hefur tekið mjög mörg ár og er ekki
lokið enn. Nú er gamli völlurinn að
mestu uppgróinn, en samt má heyra
einstaka húrrahróp og boltaspörk ef
grannt er hlustað!
Jökull Jörgensen
Klappirnar sitthvoru megin við
vörina gegndu mikilvægu hlutverki
í hugum okkar og flestir stæretu
steinarnir voru nafnkenndir. Á þess-
ar klappir hjuggum við nöfnin okkar
sem enn standa. I
Af öllu ofanrituðu geta menn séð
að það sem í fljótu bragði virðist
vera enn ein fjaran og það fjara sem
ekki hefur stórbrotna náttúrufegurð v
sér til fegrunar, þá skiptir þessi blett-
ur við sjóinn vestur í bæ mig miklu
máli.
Ofugt við þá sem töpuðu tengslum
sínum við bernskuslóðimar og gerð-
ust rök-kaldir reglustrikuþrælar,
vekur öll meiriháttar röskun á nátt-
úrulegu umhverfí mér ugg í brjósti.
Nú á sér stað mikið rask við Faxa-
skjól og Ægisíðu. Heita má að fjö-
runni við Faxaskjól hafi verið fómað
á borði framfaranna. Þar sem áður
voru óreglulegir, þýfðir grasbakkar
og ávalar klappir í sjó fram, kemur
óaðfinnanlega slétt tún, máð öllurh~
kennileitum. Fjaran verður stórgrýtt,
brött og aðdjúp. Að lokum verða
sett upp skilti þar sem á stendur:
„Bannað að ganga á grasinu!"
Bón mín er því sú: Sýnið lit og
tillitssemi við þá sem vilja halda í
náttúruleg sérkenni, lítil sem stór!
Ilöfundur cr hárskeri.
AUGLYSINGAR
ATVINNUHÚSNÆÐI
Eigendur atvinnu-
húsnæðis í Kópavogi
Þar sem margir hafa leitað til okkar í leit að
atvinnuhúsnæði til leigu eða sölu í Kópavogi,
ætlum við, hjá Iðnþróunarfélagi Kópavogs
að hefja starfsemi upplýsingamiðlunar.
Upplýsingamiðluninni er ætlað að auðvelda
fyrirtækjum og einstaklingum leit að atvinnu-
húsnæði.
Látið skrá húsnæðið hjá okkur
Iðnþróunarfélag Kópavogs,
Engihjalla 8,
200 Kópavogi,
sími 91-641015.
SJÁLFSTflEDISPLOKKURINN
F í: 1. A c; S S T A R F
Gróðursetning
Hin árlega, geisivinsæla gróðursetning sjálfstæðismanna i Kópavogi
fer fram laugardaginn 7. júlí kl. 15.00 (neðan við Kiwanishúsið í
Kópavogi).
Dagskrá.
1. Kl. 15.00-17.00: Gróðursetning.
2. Frá kl. 17.00 hefst grillveisla að hætti koníaksdeildar Týs. Grill-
meistari verður doktor Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs.
Skenkjari: Helgi Helgason, formaöur Týs.
3. Halldór Jónsson, formaður fulltrúaráðsins og Guðni Stefánsson,
forseti bæjarstjórnar spila á nikkur fram eftir kvöldi.
Sjáumst hress. Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi.
Kinnsla
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn s.28040.
Frá Félagi eldri borgara
Gönguhrólfar hittast nk. laugar-
dag kl. 10.00 i Nóatúni 17.
Skipholti 50b, 2. hæð
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Þú ert velkomin(n)!
I kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þribúðum, félagsmiðstöð
Samhjálpar, Hverfisgötu 42.
Fjölbreyttur söngur. Samhjálp-
arvinir vitna um reynslu sfna
af trú og kór þeirra syngur.
Allir velkomnir,
Samíijálp.
Ungt fólk
meó hlutverk
tftoSI YWAM - ísland
Almenn samkoma verður í
Grensáskirkju í kvöld kl. 20.30.
Séra Vigfús Ingvarsson talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30.
Flokksforingjarnir stjórna og
tala. Kveðjusamkoma sunnu-
dag kl. 20.30 fyrir Reinholdtsen
fjölskylduna. Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
@ ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
'HftHretiferJ
ÚTIVIST
GRÓFIMH11 • RPÍKJAVÍK • SÍMIAÍMSVMI 14606
Helgarferðir 6-8/7
Eiríksjökull - Eiríksnípa -
Víðgelmir
Bakpokaferð, göngutjöld. Tjald-
að í Torfabæli. Farið í Víðgelmi,
gengið á Eiríksjökul. Fararstjóri
Kristinn Kristjánsson.
Þórsmörk - Goðaland
Um hverja helgi. Básar eru sann-
kallaður sælureitur i óbyggðum,
náttúrufegurð og fjallakyrrð.
Skipulagöar gönguferðir við allra
hæfi. Fararstjóri Egill Pétursson.
Austfirðir
24/7-29/7. Bakpokaferð á nýjar
og fáfarnar slóðir. Miðfjörður -
Sandvík - Gerpir - Vaölavík.
Austfirðir bjóða upp á mikla nátt-
úrufegurö, friðsæld og veður-
bliðu. Þetta verður því örugglega
bakpokaferð sumarsins. Farar-
stjóri Óli Þór Hilmarsson.
Austurrisku Alparnir
Það er ólýsanleg upplifun að
ganga um Alpana. I samvinnu
við samstarfsaöila í Austurríki
er verið að skipuleggja tveggja
vikna bakpokaferð siðari hluta
ágúst um austum'sku og svisn-
esku Alpana. Hagstætt verð. Þeir,
sem hafa áhuga, eru beðnir að
hafa samband við skrifstofu.
Sjáumst.
Útivist.
Helgarferðir 6.-8. júlí
Þórsmörk-Langidalur
Viljirðu virkilega kynnast Þórs-
mörkinni ættirðu að koma með
í Ferðafélagsferð. Langidalur er
í hjarta Þórsmerkur. Gönguferðir
við allra hæfi. Afbragðs gistiað-
staða í Skagfjörösskála.
Fararstjóri Leifur Þorsteinsson.
Verð í helgarferö kr. 4.750 f.
félaga og kr. 5.350 f. aðra með
gistingu í skála. 500 kr. afsláttur
með tjaldgistingu. Kynnið ykkur
fjölskylduafslátt og afsláttar-
verð fyrir hópa. Innifalið i far-
miða eru ferðir, fararstjóm, gist-
ing o.fl. Dagsferðir á sunnudög-
um og miðvikudögum kl. 08.
Verð 2.000 kr. Munið sumar-
leyfi í Þórsmörk með F.í.
Fimmvörðuháls
Spennandi ganga sem flestir
ættu að reyna. Gengið verður
úr Mörkinni yfir hálsinn og síðan
niður með Skógá (fossaskoöun).
Bað í Seljavallalaug eftir
gönguna. Gist i Skagfjörðsskála
í Þórsmörk. Fararstj. Helgi Jó-
hannsson.
Landmannalaugar
Fyrsta helgarferðin i sumar. Góð
gistiaðstaða í sæluhúsinu.
Skipulagöar gönguferðir um
þetta litrikasta svæði landsins.
Þjórsárdalur (fossaskoðun) á
heimleið.
Upplýsingar og farmiðar á
skrifst. Öldugötu 3, simar
19533 og 11798. Gerist félagar
f Ferðafélaginu. Árgjaldið er kr.
2.500 og nýja árbókin er innifal-
in. Verið velkomin!
Ferðafélag íslands.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Kynnist eigin landi í
sumarleyfisferðum
Ferðafélagsins
1. 12.-17. júlí (6 dagar) Aðalvík.
Siglt á föstudegi að Sæbóli og
dvalið- til mánudags. Tjaldbæki-
stöð. Fjölbreyttar gönguleiðir,
m.a. á Rit, að Látrum og víðar.
2. 6.-11. júlí Laugar - Þórs-
mörk. Fyrsta „Laugavegsferðin"
í sumar. Fararstjóri: Hilmar Þór
Sigurösson. Gist í gönguhúsum
Fi.
3. 11.-15. júlí Laugar - Þórs-
mörk. Fararstj. Dagbjört
Óskarsdóttir. Gönguferðir um
„Laugaveginn" hefjast á mið-
vikudagsmorgnum (5 daga ferð-
ir) og föstudagskvöldum (6 daga
feröir) frá 6. júlí til 24. ágúst.
Gönguleið, sem allir ættu að
kynnast. Veljið ykkur ferð tíman-
lega.því margar eru að fyllast
nú þegar. Næstu feröir þar á
eftir. 13.-18. júlí (6 dagar); far-
arstj. Páll Ólafsson og 18. -22.
júli (5 dagar); fararstj. Leifur
Þorsteinsson.
4. 11.-15. júlí Hvítárnes - Þver-
brekknamúli - Hveravellir.
Mjög áhugaverð gönguleið á Kili,
sem vert er að kynnast ekki síður
en „Laugaveginu". Gist i skálum
Fl. Fararstjóri: Jóhannes I. Jóns-
son.
5. 16.-21. júlf Suðuriandsferð
(6 dagar). Fjölbreytt öku- og
skoðunarferð. Ýmsir merkis-
staðir skoðaðir á leiðinni t.d.
Pétursey, Systravatn, Vestra-
hom, Papós og Landmanna-
laugar. Gist í svefnpokaplássi.
Fararstj. Sigurður Kristinsson.
6. 20.-26. júlí (7 dagar) Nátt-
faravíkur - Flateyjardalur -
Fjörður. Góð bakpokaferð í sam-
vinnu við Ferðafélag Akureyrar
um svæði ekki síður spennandi
en Homstrandir.
7. 20.-28. júlí (9 dagar) Miðsum-
arsferð á hálendið. Þetta er
örugglega hálendisferð sumars-
ins. Megináhersla er lögð á
svæðið norðan Vatnajökuls með
Herðubreiðarlindum, Öskju,
Kverkfjöllum, Hvannalindum,
Snæfelli o.fl. Ekið norður um
Sprengisand og heim um Suður-
firðina. Einnig litið við í Jökuls-
árgljúfrum (Dettifoss), Fljótsdal
(Hengifoss) og Hallormsstað.
Gist í svefnpokaplássi. Farar-
stjóii: Jón Viðar Sigurðsson.
8. 1.-6. ágúst (6 dagar) Græn-
land. Ný og óvænt ferð á slóðir
Eiriks rauða á Suður-Grænlandi
er í undirbúningi.
9. 17.-26. ágúst (10 dagar)
Noregur - Jötunheimar. Pant-
anir óskast staðfestar í siðasta
lagi 10. júli í Noregsferðina. Pant-
ið tímanlega í sumarleyfisferð-
irnar. Upplýsingar og farmiðar á
skrifstofunni, Öldugötu 3. Hægt
er að greiða sumarieyfisferðirn-
ar með raðgreiðslum Visa, Euro
og Samkorts.
Árbók Ferðafélagsins 1990 er
komin út, glæsileg að vanda. Hún
nefnist „Fjalllendi Eyjafjarðar aö
vestanverðu". Árbókin fæst á
skrifstofunni gegn greiðslu ár-
gjalds kr. 2.500. Gerist félagar í
FÍ„ félagi allra landsmanna.
Árbókarferð veröur 9.-15. ágúst.
Farið um svæði sem tengist efni
árbókarinnar. Tveir möguleikar:
A. Öku- og skoðunarferð. Skaga-
fjörður, Siglufjörður. Sigling í Héð-
insfjörð. Olafsfjörður, Svarfaðar-
dalur og jafnvel Grímsey. B.
Gönguhópur. Dagsganga yfir
Heljardalsheiði. Bakpokaferð:
Siglufjöröur - Héðinsfjöröur -
Ólafsfjörður. Pantið timanlega.
Verið velkomin!
Ferðafélag Islands.
Qútivist
GRÓFINNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI 14606
Þijár stj'örnuferðir
í þessum ferðum fylgir rútan
hópnum allan tímann, en lögð
er áhersla á gönguferðir og nátt-
úruskoðun.
21/7.-26/7.: Norðurtand: Nátt-
faravik-Grimsey. Norður Kjöl.
Heimsóttir áhugaverðir og sögu-
frægir staðir á Norðurlandi,
gengið í Náttfaravík, sem er fög-
ur eyðibyggð við Skjálfandaflóa.
Hápunktur ferðarinnar verður
sigling í Grímsey. Svefnpoka-
gisting. Fararstjóri Kristinn
Kristjánsson.
25/7.-1/8. Norðausturiand:
Langanes-Hólmatungur-Vest-
urdalir. Farið um fagurt svæði,
Ásbyrgi, Hólmatungur, Jökuls-
árgljúfur, Dettifoss og Aldeyjar-
foss skoðaðir. Norður um Kjöl,
suður um Sprengisand. Tjöld og
hús. Fararstjóri Þorleifur Guð-
mundsson.
4/8.-11/8. Kynnist töfrum há-
lendisins: Góður hálendishring-
ur: Trölladynja-Snæfell
-Lagarfljótsgljúfur. Norður um
Sprengisand i Gæsavötn, til
baka um Suðurfirði. Hús og tjöld.
Fararstjóri Þorleifur Guðmunds-
son.
Sjáumst.
Útivist.
xr-
T-Toföar til
11 fólks í öllum
starfsgremum!
i