Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990 47 KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN en „Sanngjarnt einnig heppni - sagði Franz Beckenbauer um sigur Þjóðvetja á Englendingum ££ „ÞETTA var erfiður leikur, og fallegur," sagði Franz Becken- bauer að lokinni vítaspyrnu- keppni Vestur-Þjóðverja og Englendinga í Tórínó í gær. „Bæði liðin eiga heiður skilinn. Þau léku betur en vænta mátti og ofan í kaupið þurfti víta- spyrnukeppni. En mér er nær að haida, að sigurinn hafi verið verðskuldaður, vegna þess að á löngum köflum vorum við betri aðilinn. Þetta var sann- gjarnt, en einnig nokkur heppni." Fjögur mörk l'jóðvetja gegn þremur mörkum Englendinga í vítaspyrnukeppni fleyttu þeim þýsku í úrslitaleik HM í þriðja sinn í röð. Bodo Illgner varði vítaspyrnu frá Stuart Pierce og síðan sendi Chris Waddle knöttinn yfir markið. Þar með var sigurinn Þjóðveija. Þeir höfðu reyndar tekið foryst- una á 60. mínútu, þegar Andreas Brehme skoraði, með óvæntri hjálp frá Englendingum, beint úr auka- spyrnu. En á 81. mínútu var komið að Englendingum að fagna, þegar Gary Linneker varð þeim úti um framlengingu, með því að skora jöfnunarmark. En allt kom fyrir ekki. Bæði lið áttu stangarskot í framlengingunni, en urðu að sætta sig við vítaspyrnukeppni. „Þegar um er að ræða fjögur bestu knattspyrnuiið heims, er þess vart að vænta að á þeim sé mikill munur,“ sagði Bobby Robson, þjálf- ari Englendinga, inntur álits á þeirri harkalegu aðferð sem vítaspymu- keppni er. „Þá er þetta einungis spurning um hvaða einstaklingur nær að skara framúr.“ Robson reyndi ekki að halda því fram, að enska liðið hefði spilað vel frá upp- hafi til enda í þessari Heimsmeist- arakeppni, en hann var frá sér num- inn yfir frammistöðu liðsins gegn Þjóðveijunum. „Einhveijir hafa sagt að við séum aftan úr grárri fomeskju; gamaldags dínósárar,“ sagði hann. „Ég vona að þeir menn hafi verið kveðnir í kútinn í kvöld. Ég er stoltur af liðinu vegna þess að í raun og veru bar enginn sigur- orð af okkur hér á Ítalíu. Það var ekkert nema hrein óheppni sem kostaði okkur sigurinn." Og Robson bætti við: „Það féllu tár í búnings- klefanum. Sjálfur reyni ég að gráta ekki, heldur brosa breitt." Vítaspyrnukeppnin I England - V-Þýskaland Lineker 1:0 Brehme 1:1 Beardsley 2:1 Mattháus 2:2 Platt 3:2 Riedle 3:3 (Pearce) 3:3 Thon 3:4 (Waddle) 3:4 Markahæstir á HM 5 - Tomas Skuhravy (Tékkóslóvakíu), Sal- vatore Schillaci (Íialíu). 4 - Michel (Spáni), Roger Milla (Kamer- ún), Lothar Matthaus (V-Þýskalandi), Gacy Lineker (Englandi). Bodo lllnger markvörður Vestur-Þjóðveija ver vítaspyrnu Stuart Pearce. Reuter Reuter Allt er þá þrennt er! Andreas Brehme og Andreas Möller ráða sér vart af kæti og knúsa Illgner markmann innilega eftir að úrslitin réðust og ljóst var að V-Þjóðveijar lékju til úrslita þriðju heimsmeistarakeppnina í röð. SPJOTKAST Sigurður og Einar á Friðar- leikana? Spjótkösturunum Sigurði Einarssyni og Einari Vil- hjálmssyni hefur verið boðið að taka þátt í Friðarleikunum sem fara fram í Seattle, á vestur- strönd Bandaríkjanna, síðar í þessum mánuði. Fijálsíþróttasambandi ís- lands hefur fengið bréf frá bandaríska fijálsíþróttasam- bandinu þar að lútandi. Einar verður örugglega með á mótinu skv. upplýsingum FRÍ en í gær var ekki ljóst hvort þekktist boðið. Hann hefur verið meiddur en það ætti að skýrast í dag hvort hann keppir í Seattle eða ekki. DOMARAHORNIÐ Hver dæmir úrslitaleikinn? Markmið allra leikmanna sem leika í HM er að komast í úrslita- leikinn og sigra. En það er ekki minna mál hjá dómurum að fá að dæma sjálfan úrslitaleikinn. Það verður trúlega tilkynnt í kvöld eða í fyrramálið hver hrepp- ir hnossið; mörg nöfn hafa verið nefnd í því sambandi. Það verður að segjast eins og er að í gegnum tíðina hefur yfirleitt besti maður keppninnar ekki.dæ,mt úrslitaleik- inn! Að mínu mati er ljóst að svo verður heldur ekki nú, þar sem Júgóslavinn Petrovic er þegar far- inn heim. Það er ekki alltaf frammistaða dómaranna sem ræður úrslitum heldur hvort þeir teljist í hópi „gæðinga“ þeirra sem sitja í dómaranefnd FIFA. Ég er viss um það að Daninn ungi Mikkelsen dæmi leikinn um þriðja sætið. En úrslitaleikinn sjálfan tel ég líklegast að Mexí- kaninn Mendez dæmi; landi hans er í dómaranefndinni. Þó kæmi mér það ekki á óvart ef annar ítalinn sem dæmdi í keppninni fengi leikinn sem sárabót fyrir að Italía komst ekki í úrslit (ef ekki er búið að senda hann heima). Slíkt hefur gerst áður. Með dómarakveðju, Guðnuindur Haraldsson. URSLIT Meistaramót golfklúbba víða um land hófust í gær. Hér er staðan hjá nokkrum þeirra eftir fyrsta dag. Golfklúbbur Suðurnesja Meistarallokkur karla: Siguiður Sigurðsson..................78 Þröstur Ástþómson....................79 Páll Ketilsson.......................80 Kvennaflokkur: Karen Sævarsdóttir...................87 Rakel Þorsteinsdóttir................87 Gerða Halldórsdóttir.................94 SigurbjörgGunnarsdóttir..............94 Öldungaflokkur: Þorbjörn Kjærbo......................78 Jóhann R. Benediktsson...............80 Hólmgeir Guðmundsson.................88 Golfklúbbur Reykjavikur Meistaraflokkur karla: — Siguijón Arnai-son..................76 EinarL. Þórisson....................77 Gunnar S. Sigurðsson................79 Sigurður Pétursson...................80 Meistaraflokkur kveuna: Steinunn Sæmundsdóttir...............92 Svala Óskai-sdóttir................. 90 Golfklúbbur Akureyrar Meistaraflokkur karla: GuðmundurSiguijónsson................73 Kristján Gylfason....................74 Örn Arnai-son.......................75 Meistaraflokkur kvenna: Áslaug Óiöf Stefánsdóttir............88 Árný Arnadóttir......................90 Andrea Ásgrímsdóttir.................90 Golfklúbburinn Leynir Meistaraflokkur karla: Hjalti Nielsen.......................79 Rósanl Birgisson.....................80 ÞórðurE. Olafsson...................81 . 1. flokkur kveima (36 holur): Margrct Vilhjálmsdóttir.............198 Amheiður Jónsdóttir.................203 Sigriður IngvadóUir.................204 Golfklúbbur Vestmannaeyja Meistaraflokkur karla Haraldur Júlíusson...................75 Júlíus Hallgrímsson..................76 Sindri Óskai'sson................... 76 Mcistaraflokkur kvenna: Sjöfn Guðjónsdóttir.................86 Jakobína Guðlaugsdóttir..............87 Golfklúbburinn Keilir Meistaraflokkur karla: Guðmundur Sveinbjörnsson............74 Sveinn Sigurbergsson................75' Amar Már Ólafsson...................75 Úlfar Jónsson.......................75 Meistaraflokkur kveniia: Þórdís Geirsdóttir..:...............73 Kristín Þorvaldsdóttir..............79 Kristín Pálsdótlir..................80 Golfklúbbur Grindavíkur 1. flokkur karla: Húnbogi Jóhannsson..................74 GunnlaugurSaivai'sson................75 GuðmundurJónsson....................79 1. flokkur kveiina: Erla Adolfsdóttir...................88 Bylgja Guðmundsdóttir...............97 Fanney Erlingsdóttir................99 Golfklúbbur Selfoss 1. flokkur: Grímur Arnarson.....................80 Kjaitan Gunnarsson..................80 Vignir Bjarnason....................81 2. flokkur karla: Gunnar Marel Einarsson..............81 Eiríkur Guðmundsson.................83 Sveinn J. Sveinsson.................88 KNATTSPYRNA Rakarinn á Höfn önnum kafinn á morgun? Sextán liða úrslit mjólkurbikar- keppninnar í knattspyrnu hefjast í kvöld. Leikmenn Sindra á Horna- firði hafa ekki rakað sig síðan þeir unnu Þrótt, Nes- Frá Steinþórí kaupstað, 5:4 (3:3) Guöbjartssyni eftir framlengdan áHöfni leik í 2. umferð bik- Homafiroi . ■ . arkeppnmnar. Eftir sigurinn hétu þeir því að raka sig ekki fyrr en þeir féllu úr keppninni. í 3. umferð mættu þeir Einherja frá Vopnafirði og unnu 1:0, en í 1. umferð mátti Huginn, Seyðisfirði, sætta sig við 9:8-tap eftir víta- keppni. 1 I kvöld mæta þeir KR-ingum eystra og þó margir telji heima- menn ekki sigurstranglega, eni ekki allii- á sama máli. „Ég á ekki von á að Sindri tapi,“ sagði Ásbjörn Þórarinsson, rakari, við Morgun- blaðið. „Enda er eins gott að þeir sigri, því ég hef nóg að gera og sérstaklega á föstudögum. Tap þýð- ir sjálfsagt aukin viðskipti, en ég -anna ekki-fleirum á- föst«daginn;‘!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.