Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990 5 Kristinn Morthens í veðurblíðunni við Fjallakofann sem stendur við Meðalfellsvatn. Morgunblaðið/Sverrir Sigurbjörg Helga, Sigríður og Guðlaug leika við tíkina Birtu á Langasandi. Brynjólfur Einarsson og Hilmar Páll Jóhannsson hressa upp á vínrauða ljósastaurana á Akra- nesi. Níu manná hópur úr vinnuskóla Akraness var í matarhlé og sólaði sig þar sem skjól var að hafa. Krakkarnir voru sammála um að í slíku veðri væri gott að vinna en þau höfðu nýlokið við að slá og hirða á bletti þar skammt frá. „Það er freistandi að leggjast í sólbað en við látum það ekki eftir okkur,“ sögðu krakkarnir en kvörtuðu þó ekki yfir því að þau væru ekki úti- tekin enda hefði veðrið verið gott nær allan júnímánuð. Og skammt þar frá sat grunn- skólakennarinn Rögnvaldur Einars- son og bar fúavörn á grindverk. „Þetta er veðrið til að dytta að, ég reyni að vinna dálítið heimavið á sumrin, milli þess sem ég skrepp á sjó,“ sagði hann. Að síðustu lá leiðin niður á Langasand þar sem nokkrar stúlkur gættu barna á meðan stöllur þeirra léku sér í sjónum og þurrkuðu sig í sólinni þess á milli. Þær Lára Gísladóttir, 12 ára, Heiðrún Mar- teinsdóttir og Guðrún Gísladóttir, 11 ára sögðust oft bregða sér niður í fjöruna í góðu veðri. Þær yrðu þó að gæta barnanna sérstaklega vel þar sem þau hlypu annars út í sjó. „Við förum svo oft með þau í sund að þau halda að sjórinn sé sundlaug,“ En það var enginn sem hindraði tíkina Birtu í að fara í sjóbað. Hún göslaðist alsæl um í sjávarmálinu, með spýtu sem eigandi hennar kast- aði til hennar. Og ekki minnkaði gleðin þegar ein stelpnanna sem legið hafði í sólinni brá sér út í kaldann sjóinn til að leika við hana. LISTA' OG ÓPERUKLÚBBURINN O 0 TOFRAR ITALIU 2ja vikna listskodun og lífsnautn í fegurstu héruðum og borgum Italíu. Brottför 24. ágúst. Vinsamlega staðfestið pantanir strax FERÐAMÁTl: Flug til Milano og til baka frá Róm. Akstur um Ítalíu í glæsilegustu gerð farþegavagna. GISTIIMG: Alls staðar á 4-5 stjörnu hótelum, sérvöldum með tilliti til staðsetningar og gæða HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: 1. Milano, m.a. La Scala óperan og síðasta kvöldmáltíð Leonardo da Vinci. 2. Stórfengleg óperusýning með bestu söngvurum heimsins í Arenunni í Verona, hinni einstæðu miðaldaborg Rómeós og Júlíu. 3. Heillandi fegurð Gardavatns: Sirmione, Bardolino, Garda, Torbole, Riva og Limone. 4. Listir og líf í Feneyjum, þar sem gist verður á Hótel Splendide Suisse við Canal Grande og skammt frá Markúsartorgi, til að upplifa töfra borgarinnar á nóttu sem degi. 5. Hjarta Ítalíu - listaborgin Flórens - þar sem gist er í 3 daga í hjarta borgarinnar til að sjá með eigin augum snilld renaiss- ansins, mestu listfjársjóði veraldar. 6. Pisa, Siena og Assisi, borgirnar, sem eru sjálfar eins og undur- fagurt safn, ótrúlegri en orð fá lýst. 7. Borgin eilífa, RÓM, fyrrum miðpunktur heimsins, hefur engu tapað af þeim segulmagnaða krafti, sem dregið hefur að ferða- menn frá öllum heimshornum í 2000 ár. Ef listir, saga og fegurð höfða til þín, er þetta ferð, sem þú mátt ekki missa af. Allur viðurgjörningur, matur og vín eins og best gerist í gósen- landi sælkera. Skipulag og fararstjórn: Ingólfur Guðbrandsson Okkar mat: Óviðjafnanleg ferð með ákveðinn gæðastimpil, þar sem lífsnautn og listnautn sameinast í góðum félagsskap. FERÐIN ER AÐ FYLIAST „Þetta er ferðin sem ég hef lengi beðið eftirsegja margir AUSTURSTRÆT117, 101 REYKJAVIK , SÍMI: (91) 622 011 & 62 22 00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.