Morgunblaðið - 05.07.1990, Síða 45

Morgunblaðið - 05.07.1990, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990 45 SIGLINGAR Svala náði besta tímanum - í keppni kjölbáta milli Reykjavíkurog Keflavíkur Svala með Jóhann Reynisson við stjórnvölinn sigraði í Lands- bankamóti kjölbáta, sem fram fór fyrir skömmu. Siglt var frá Reykjavík til Keflavíkur og til baka á tveimur dögum. Þetta var í fyrsta sinn sem slíkt mót er haldið. Svala var aðeins 3,15 klukku- stundir á leiðinni frá Reykjavík til Keflavíkur enda góður byr á þeirri leið en á bakaleiðinni var mótvindur og tók ferðin þá rúmlega fjóra klukkutíma. Pía hafnaði í öðru sæti, en Haf- steinn Matthíasson stórnaði heinni og Eva undir stjórn Áskels Agnars- sonar í þriðja sæti. Alls tóku 12 skútur þátt í mótinu sem þótti heppnast mjög vel. PÍLUKAST Landslið íslands í pílukasti. Aftari röð frá vinstri: Óðinn Helgi Jónsson, þjálfari, Emil Þór Emilsson, Friðrik Jakobsson, Guðjón Hauksson og Ægir Ágústsson. Fremfri röð frá vinstri: Friðrik Diego, Kristinn Þ. Kristinsson, Oli Sigurðsson og Kristinn Magnússon. íslendingar komu á óvart - á Norðulandamóti pílukastara í Stokkhólmi KARLALANDSLIÐ íslands í pílukasti hafnaði í fjórða sæti á Norðurlandamótinu sem ný- lega var haldið í Stokkhólmi. Það voru Danir sem fóru með sigur af hólmi, Svíar lentu í öðru sæti; Finnar í því þriðja og á eftir Islendingum komu Norðmenn í fimmta sæti. Það ertil marks um styrkleika mótsins, að landslið Svía er talið vera þriðja besta liðið í heiminum. Strákarnir stóðu sig flestir mjög vel,“ sagði Óðinn Helgi Jóns- son, þjálfari landsliðsins. „Það sem helst háði þeim var reynsluleysið, en við lærðum gífurlega mikið á þessu, ekki bara hvað varðar spila- mennskuna, heldur einnig um það hvernig best er að byggja upp þessa íþróttagrein hér á landi.“ Á Norðulandamóti pílukastara er háð einstaklings- og tvímenn- ingskeppni og keppni þar sem hver þjóð á tvö fjögrurra manna lið. Á lokadegi er síðan Opna Norður- landamótið, einmenningur. Allar þjóðirnar senda karla- og kvenna- landslið, nema íslendingar, sem ekki sendu kvennalið þetta árið, en meiningin er að svo verði á næsta ári. Af helstu tíðindum af mótinu má nefna, að í einstakiingskeppn- inni lenti Friðrik Diego, nýliði í landsliði íslands, á móti meistaran- um frá í fyrra, Finnanum Harri Spora. Friðrik gerði sér lítið fyrir og vann, 4-3. í Opna Norðulanda- mótinu dróst Friðrik aftur gegn Spora. Og enn sigraði Friðrik, 3-0, og gerði að engu vonir Finnans um að veija titilinn. „Það er mikilvægt fyrir okkur að byggja upp sterkt íslenskt lið á næstu árum og mæta tvíefldir til leiks þegar Norðurlandamótið verð- ur háð hér á landi árið 1995,“ sagði Oðinn Helgi landsliðsþjálfari. TENNIS Tennisnámskeið hefjast við Kópavogsskóla 2. júlífrá kl. 9.00-10.30 og 10.30 til 12.00 og standa þau í 3 vikur. Erlendur þjálfari. Frá 9. júlí kl. 12.30-14.00 og 14.00-15.30, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Þjálfari verður íslandsmeistarinn Einar Sigurgeirsson. Innritun á staðnum eða í síma 45389. T.Í.K. SÍ9IÍII9U Morgunblaðið/Benedikt Guðmundsson Siglingamót í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ fór fram á vegum Siglingasambands íslands um síðustu helgi. í keppn optimist báta sigraði Ragnar Már Steinsen úr Ými. Hér er hann mikilli siglingu en fast á eftir kemur félagi hans ú Ými, Guðni Dagur Kristjánsson, sem hafnaði í öðru sæti. Kópavogsvöllur ■ ^ ^ . ... 2. deild Breiðablik - Þór Akureyri í kvöld kl.20:00 BYKO AUK/SlA kl0d11-l56 ■ I II ■ I ||

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.