Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.07.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990 ATVINNUA UGL YSINGAR Skrifstofutæknir óskar eftir áhugaverðri atvinnu. Er lærður málarameistari. Reynsla í verslunarstörfum fyrir hendi. Margt kemur til greina hvort sem er í Reykjavík eða úti á landi. Vinsamlegast hringið í síma 16179. Verkstjóri Verkstjóra með matsréttindi vantar í fisk- vinnslu á Vestfirði. Upplýsingar í síma 94-6280. Ritari Opinber stofnun í miðborginni vill ráða ritara til afgreiðslustarfa og tölvuinnsláttar. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Ritari - 8703“ fyrir kl. 12.00 á föstudag. Þjjónn - matsveinn Óskum að ráða þjón og matsvein. Eiginhandarumsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf og meðmælum, ef fyrir liggja, sendist til FLUG HÓTELS, Hafnargötu 57, 230 Keflavík, sími 92-15222. Blönduvirkjun - vaktavinna Óskum að ráða ýtustjóra og hefilstjóra við virkjunarframkvæmdir okkar við Blöndu. Upplýsingar í síma 95-30250. Fossvirki sf. Veitingahús Nú er verið að opna nýtt kaffi- og veitinga- hús í Austurstræti 22, þar sem áður var Hressó. Okkur vantar gott starfsfólk í eftirtalin störf: Matreiðslumann. Starfsfólk í sal. Smurbrauð. Uppvask. Aðstoð í eldhús. Upplýsingar í Skeifunni 19, Brauð hf., milli kl. 15.00 og 17.00 á skrifstofunni (Guðmundur Viðarsson). Umbpðsmaður - Ólafsvík Óskum eftir umboðsmanni til að sjá um dreif- ingu blaðsins í Ólafsvík. Einnig kæmi til greina að blaðberi sæi um starfið. Upplýsingar í síma 691201 frá kl. 9.00-17.00 virka daga. Skrifstofustarf Útflutningsfyrirtæki á Stór-Reykjavíkursvæð- inu óskar eftir að ráða starfskraft til skrif- stofustarfa. Starfið felur í sér gerð útflutn- ingspappíra, reikninga og annarra tilfallandi skrifstofustarfa. Krafist er að viðkomandi geti unnið sjálfstætt. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „KÞ - 28“. Vélvirki - stutt verkefni Óskum að ráða vanan vélvirkja til suðuvinnu í 6-8 vikur í sumar. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar gefur verksmiðjustjóri í síma 687766. Ewos hf., Korngörðum 12, Reykjavík. SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA Framkvæmdastjóri Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra sambandsins og samstarfsfyrirtækja þess, Lánasjóðs sveitarfélaga og Bjargráðasjóðs. Umsóknir, er greini upplýsingar um menntun og fyrri störf, sendist formanni, Sigurgeiri Sigurðssyni, bæjarstjóra, Austurströnd 2, Seltjarnarnesi, fyrir 26. júlí nk. Samband íslenskra sveitarfélaga. Hafnarfjörður — blaðberar Blaðbera vantar í Suðurbæ til sumarafleysinga. Upplýsingar í síma 652880. Sunnuhlíð Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi Afleysingafólk Afleysingafólk vantar í 11/2 mánuð í eldhús. Upplýsingar gefur Sigurgeir í síma 604167. Æskulýðs- og tómstundafulltrúi Auglýst er eftir æskulýðs- og tómstundafull- trúa hjá Keflavíkurbæ. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hafi aðsetur í Holtaskóla og kenni þar 25-50% úr stöðu en sinni æsku- lýðsstarfi síðari hluta dags. Upplýsingar gefa skólastjóri Holtaskóla í síma 92-15597 og bæjarstjórinn í Keflavík í síma 92-11555. Á lager Óskum eftir duglegum og ábyggilegum starfskrafti til starfa strax á lager í verslun okkar. Vinnutími frá kl. 8.00-18.30. Æskilegur aldur 20-40 ára. Starfið felst í vörumóttöku, umsjón með lager og annað sem til fellur. Upplýsingar gefur Kári Tryggvason á staðn- um fimmtudaginn 5. júlí milli kl. 14.00 og 18.00. Kringlunni 7. KENNSLA Námskeið í flugumferðarstjórn Ákveðið hefur verið að velja nemendur til náms í flugumferðarstjórn, sem væntanlega hefst í byrjun vetrar 1990. Stöðupróf í íslensku, ensku, stærðfræði'og eðlisfræði verða haldin í september nk. Umsækjendur skulu vera á' aldrinum 20-27 ára, tala skýrt mál, rita greinilega hönd, standast tilskyldar heilbrigðiskröfur og hafa lokið stúd- entsprófi. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Flug- umferðarstjórn á fyrstu hæð flugturnsbygg- ingar á Reykjavíkurflugvelli og ber að skila umsóknum þangað fyrir 1. september, ásamt staðfestu afriti af stúdentsprófskírteini og sakavottorði. Flugmálastjóri. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Gamlir Dalbúar Tökum þátt í landsmóti skáta á Úlfljóts- vatni. Hittumst í fjölskylduþúðym laugardag- inn 7. júlí. Tökum með okkur grill og mat. Gamlir Dalbúar. Húnvetningar í Reykjavík Húnvetningafélagið í Reykjavík fyrirhugar ferð dagana 20., 21. og 22. júlí um Sprengi- sand, í Skagafjörð og fyrir Skaga. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 14. júlí í síma 681941 eða 19863. HÚSNÆÐIÓSKAST Leiguíbúð óskast Vantar rúmgóða leiguíbúð fyrir umbjóðanda minn, stóra íbúð eða raðhús. Allar upplýsingar eru veittar á skrifstofu minni í síma 688622. Gunnar Jóhann Birgisson, hdl., Skipholti 50b. A TVINNUHÚSNÆÐI í Skeifunni er til leigu 114 fm húsnæði sem skipt er í skrifstofu- og lagerpláss. Bjart og gott hús- næði á góðum stað. Upplýsingar í síma 22344 (Ágúst).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.