Morgunblaðið - 05.07.1990, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990
Tónleikar fastnr liður í
þrem kirkjum í sumar
A
Kolbeinn Bjarnason og Guðrún Oskars-
dóttir á fyrstu tónleikunum
SUMARTÓNLEIKAR í þremur kirkjum á Norðurlandi eru nú að
hefjast, en þetta er í Ijórða sinn sem efnt er til slíkra tónleika í kirkj-
unum. Tónleikarnir verða í Húsavíkurkirkju á föstudagskvöldum,
Reykjahlíðarkirkju á laugardagskvöldum og í Akureyrarkirkju á
sunnudögum. Haldnir verða sex tónleikar í hverri kirkju, þeir fyrstu
nú um helgina.
Á fyrstu tónleikunum sem verða
í Húsavíkurkirkju annað kvöld,
föstudagskvöld kl. 20.30 leika þau
Kolbeinn_ Bjarnason á flautui og
Guðrún Óskarsdóttir á sembal. Þau
leika í Reykjahlíðarkirkju á laugar-
dagskvöld og í Akureyrarkirkju kl.
17 á sunnudag. Á efnisskránni eru
verk eftir Blavet, Couperin, Tele-
man og Handel. Guðrún lauk píanó-
kennaraprófi vorið 1986, og stund-
aði síðan nám í semballeik hjá
Helgu Ingólfsdóttur. Frá því í jan-
úar hefur hún stundað sembalnám
í Sweeiink tónlistarháskólanum í
Amsterdam. Kolbein lauk burtfar-
arprófi í flautuleik 1979 og nam
síðan hjá Manuelu Wiesler í tvö ár.
Síðan dvaldist hann í Kanada, Sviss
og Bandaríkjunum við flautunám.
Dagskráin í sumar verður að
vanda fjölbreytt, um aðra helgi leik-
ur Kristinn Árnason gítarleikari á
sumartónleikunum, þá verða tón-
leikar Lauféyjar Sigurðardóttur,
fiðluleikara, og Elísabetar Waage,
hörpuleikara, síðan Carola Bischoff,
sópransöngkonu, Margrétar Bóas-
dóttur, sópransöngkonu, og Prof.
Heinz Markus Göttsche, orgelleik-
ara. Á síðustu sumartónleikunum,
sem verða um verslunarmannahelg-
ina verður sönghópurinn Hljómeyki
á ferðinni, en stjórnandi er Hjálmar
H. Ragnarsson. Aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ægir í slipp
Varðskipið Ægir verður tilbúið um næstu helgi, en síðustu vik-
ur hefiir skipið verið sandblásið, málað og minniháttar viðgerð-
ir gerðar á því hjá Slippstöðinni. Fyrir skömmu var Týr í slipp
í samskonar viðhaldi og Óðinn var tekinn á síðasta ári, þannig
að öll varðskipin þrjú eru nýmáluð og sandblásin.
MENOR:
Grófargil verði
að listagili
Menningarsamtök Norðlend-
inga hafa lýst yfír stuðningi við
þá hugmynd að gera Grófargilið
að listagili.
Á aðalfundi MENOR sem haldinn
var á Kópaskeri sunnudaginn 1.
júlí sl. var samþykkt ályktun þar
sem samtökin lýsa yfir stuðningi
sínum við framkomnar hugmyndir
um að gera Grófargilið að listagili.
Fagnar fundurinn því að í málefna-
samningi meirihlutans í bæjarstjórn
Akureyrar sé því heitið að styðja
þessar hugmyndir.
Þá telur fundurinn fullvíst að slík
starfsemi á Akureyri yrði menning-
armálum á Norðurlandi til fram-
dráttar. Því skorar fundurinn á
bæjaryfirvöld að hrinda þessari
hugmynd í framkvæmd í samvinnu
við leikmenn og lærða á sviði lista
og menningarmála á Akureyri og á
Norðurlandi.
Atvinnuleysisbætur Trésmíðafélagsins:
greiddar fyrir hálflt
á öllu síðasta ári
Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson
Miklar framkvæmdir eru að hefjast við Dalvíkurhöfn, en áætlað er
að vinna þar að ýmsum verkefnum fyrir um 30 milljónir króna. Með
þessum framkvæmdum er stigið fyrsta skrefið í mikilli uppbyggingu
hafnarinnar.
FLEST verkalýðsfélög á Akur-
eyri hafa greiti hærri upphæðir
í atvinnuleysisbætur á fyrri helm-
ingi þessa árs, en greiddar voru
allt síðasta ár. Á siðasta ári, 1989
voru samt greiddar umtalsvert
hærri bætur en var á árinu þar
á undan.
Iðja, félag verksmiðjufólks hefur
greitt 9,5 milljónir króna í atvinnu-
leysisbætur til sinna félaga á fyrstu
Umfangsmiklar framkvæmdir við Dalvíkurhöfíi:
Uppbygging á hafiiarsvæð-
inu vegna aukinna umsvifa
MIKLAR framkvæmdir eru nú að hefjast við Dalvíkurhöfn, en fyrir-
hugað er að um 30 milljónum króna verði varið til framkvæmda á
árinu. Áætlað er að byggja upp grjótvörn við norðurgarð og fylla
upp allstórt svæði og auka þannig athafnarými við höfnina.
Á fjárlögum þessa árs eru áætl-
aðar 3 milljónir króna til verksins
og mun hafnarsjóður greíða mis-
muninn. Hluti verðurtekinn að láni,
en 10 milljónir króna, sem hafnar-
sjóður fær frá ríkinu vegna upp-
gjörs fyrri verkefna, renna til fram-
kvæmdanna. Gijótvörnin hefur ver-
ið boðin út og var tilboði Jarðverks
og Bifreiðastöðvar Dalvíkur tekið,
en það hljóðaði upp á tæpar 26
milljónir króná.
Með þessari framkvæmd er
fyrsta skrefið stigið í mikilli upp-
byggingu hafnarinnar á Dalvík.
Nauðsynlegt er orðið að bæta að-
stöðu við höfnina en á síðustu árum
hefur umferð vöruflutningaskipa
aukist og eru skipakomur um 40
fleiri en á sama tíma og í fyrra. Á
síðasta ári samþykkti bæjarstjórn
erindi hafnarstjórnar þess efnis að
Óskum eftir að ráða skrifstofustjóra á skrifstofu Hríseyj-
arhrepps.
Starfssvið:
★ Staðgengill sveitarstjóra.
★ Umsjón með bókhaldi hreppsins.
★ Reikningsgerð og innheimtustjórnun.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi viðskiptamenntun
og/eða reynslu í bókhaldi.
Upplýsingar aðeins á skrifstofu okkar.
Ráðningar
Endurskoðun Akureyri hf.,
Glerárgötu 24, sími 96-26600.
óska eftir því við fjármálaráðuney-
tið að Dalvíkurhöfn verði gerð að
tollhöfn, en ekki hefur enn fengist
svar við þeirri ósk bæjaryfii’valda.
Nú hafa bæði Eimskip og Skipa-
deild Sambandsins ákveðið að auka
umsvif sín á Dalvík og hefur Útibú
Kaupfélags Eyfirðinga tekið að sér
að annast skipaafgreiðslu fyrir
Sambandið og Ríkisskip, en unnið
er að því að lagfæra húsnæði Fóður-
stöðvarinnar hf. fyrir afgreiðsluna.
Þá hefur Eimskip sótt um 2.000m-
lóð til hafnarstjórnar undir kæli-
geymslu og mun félaginu verða
ætlaður staður á væntanlegri upp-
fyllingu norðan norðurgarðs. Með
nýrri feiju milli Hríseyjar og
Grímseyjar er einnig ljóst mikilvægi
Dalvíkurhafnar eykst, en rætt héfur
verið um að Dalvíkurhöfn verði
fastur viðkomustaður feijunnar.
Á síðasta ári áttu fulltrúar Ólafs-
ijarðar viðræður við hafnarstjórn
Dalvíkur um samstarf og samvinnu
í uppbyggingu hafna með tilliti til
breyttra og bættra samgangna.
Ýmsar hugmyndir voru þar reifaðar
og ákveðið að halda viðræðum
áfram. Svo virðist að milli þessara
tveggja sveitarfélaga sé sátt um
að Dalvíkurhöfn sé byggð upp sem
umskipunarhöfn fyrir utanverðan
Eyjafjörð.
Fréttaritari
sex mánuðum þessa árs, en á sama
tíma í fyrra var búið að greiða rúm-
ar 7 milljónir króna. Allt síðasta
ár voru greiddar 12,6 milljónir
króna í atvinnuleysisbætur hjá fé-
laginu.
Kristín Hjálmarsdóttir formaður
Iðju sagði að á síðasta ári hefði
atvinnuleysi verið mikið og áfall
hefði verið hversu mikið var greitt
í atvinnuleysisbætur, en útlit væri
fyrir að upphæðin yrði talsvert
hærri á þessu ári. Hún sagði að
bæði kæmi til meira atvinnuleysi
og að gripið hefði verið til vinn-
utímaskerðingar hjá Álafossi, þann-
ig að starfsfólk vann hluta úr viku
og var á bótum hluta. Um 50 Iðjufé-
lagar eru nú án atvinnu.
Hjá Félagi verslunar- og skrif-
stofufólks hafa verið greiddar rúm-
ar 12 milljónir króna í atvinnuleys-
isbætur á fyrri helmingi ársins, en
á öllu síðasta ári greiddi félagið
11,6 milljónir króna í bætur. Asa
Helgadóttir hjá félaginu sagði að
ástandið væri engan vegin nógu
gott, en þó hefði verslunar- og skrif-.
stofumönnum fækkað talsvert á
skrá frá því mest var í maí.
Trésmíðafélag Akureyrar hefur
greitt 5,7 milljónir króna í atvinnu-
leysisbætur á fyrstu sex mánuðum
ársins, sem er töluvert meira en
greitt var út fyrir allt síðasta ári,
en þá voru greiddar út um 3,3 millj-
ónir króna. Guðmundur Ómar Guð-
mundsson formaður Trésmíðafé-
lagsins sagði að sjá mætti hvert
stefndi, en á árinu 1987 voru
greiddar tæplega 900 þúsund krón-
ur í bætur, 1,1 milljón ári síðar og
síðan 3,3 milljónir í fyrra. Nú þegar
einungis væri hálft árið liðið væru
bótagreiðslur orðnar umtalsvert
hærri.
Hjá félaginu er greiddar út bætur
til trésmiða og rafvirkja og sagði
Guðmundur að á miðju fram-
kvæmdatímabili væru enn nokkrir
trésmiðir atvinnulausir, en það hefði
aldrei áður gerst í sögunni og þá
væru einnig 8 rafvirkjar án at-
vinnu, en rafvirkjar hefðu ekki ver-
ið skráðir atvinnulausir á Akureyri
í áraraðir.
Morgunblaðið/Einar Falur
Einn fluttur á sjúkrahús
Einn var fluttur á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bifreiða á
Strandgötu í gær. Areksturinn varð um kl. 14 og var öðrum
bílnum ekið austur götuna og hinum vestur. Ökumaður bifreiðar-
innar sem ók í austur stöðvaði og ætlaði að beyja norður Hjalt-
eyrargötu, en ók síðan fyrirvaralaust af stað og inn í hlið bílsins
sem var á leið vestur og var ökumaður hennar fluttur á sjúkra-
hús. Hann fékk höfuðhögg, að sögn lögreglu en var óbrotinn
og meiðsl hans voru minni en talið var í fyrstu. Báðir bílarnir
eru mikið skemmdir.