Morgunblaðið - 05.07.1990, Side 38

Morgunblaðið - 05.07.1990, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JUU 1990 38 Þvottavélar Uppþvottavélar Örbylgjuofnar Gœfiatœki fyrir þig og þína! SMrTH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! ffclK í fióltuni i\\ii\i;ki ihk;i\ íhugunartækni Maharishi, INNHVERF ÍHUGUN, er stunduð af um 3 milljónum manna um allan heim. Engin önnur aðferð hefur verið rannsökuð jafn itarlega. Iðkun hennar vinnur gegn streitu og stuðlar að heilbrigði og ánægju í daglegu lífi. Kynningarfyrirlestur í kvöld, fimmtudag, í ÁSMUNDARSAL v/ Freyjugötu kl. 20.30. Aðgangur ókeypis. Upplýsingar í síma 16662. islenska íhugunarfélagið HEIMSOKN Heim í gamla hóp- inn minn Heim í gamla hópinn minn, heim á fornar slóðir,“ gáeti þessi mynd heitið en hér er Lúðvík Kristjánsson, fræðimaður og rit- höfundur, í stuttri heimsókn til Stykkishólms. Hann skoðaði nýju kirkjuna ásamt vini sínum, Jó- hanni Rafnssyni. Lúðvík er fæddur hér í Stykkishólmi. - Árni Morgunblaðið/Björn Blöndal Birgir H. Pálmason og starfsmenn hans á sprautuverkstæðinu af- henda firamkæmdastjóra SBK bifreiðina Ö-109 eftir meiriháttar end- urnýjun sem tók 4 mánuði. Á myndinni eru frá hægri til vinstri: Steindór Sigurðsson framkvæmdastjóri, Elís Guðmundsson, Birgir H. Pálmason og Kristinn ísaksen. BÆTT UTLIT Maharishi Mahesh Yogi Lúðvík Kristjánsson og Jóhann Rafnsson. Sérleyfisbifreiðarn- ar endumýjaðar Morgunblaðið/Árni Helgason Bifreiðafloti sérleyfisbifreiða Keflavíkur hefur tekið miklum útlitsbreytingum á liðnu ári eftir að fyrirtæki Styindórs Sigurðssonar og SBK voru sameinuð. Stöðugt hefur verið unnið að bættu útliti bifreiðanna sem flestar eru orðnar nokkurra ára gamlar. Nú háfa 6 bílar verið heilsprautaðir og er flotinn að verða hinn glæsilegasti. Fyrir nokkram dögum kom Ö-109 sem er af tegundinni Scania Vabis árgerð 1981 útaf sprautuverkstæðinu eftir 4 mánaða yfirhalningu. Vél, girkassi og drif voru yfirfarin svo og undirvagn, en mesta vinnan var við yfirbyggingu sem var orðin ansi illa farin. Verkið var unnið á bifreiðaverkstæði bæjarins sem sér um viðhald á bifreiðum SBK. BB Einar Madsen yfirforingi HJALRÆÐIS- HERINN Yfirforingi lætur af störfiim Einar Madsen, foringi í Hjálp- ræðishernum, sem er yfir- maður hersins í Færeyjum, ís- landi og Noregi, lætur af störfum í haust. Eva Burrows hershöfð- ingi í höfuðstöðvunum í London skipar mann í hans stað. Madsen hefur verið æðsti mað- ur Hjálpræðishersins í þessum hluta heims síðan 1. nóvember 1985. Eins og segir í norska blað- inu Aftenposten njóta samtökin sem hann stjórnar mikillar virð- ingar. Þúsundir manna fá á ári hveiju hjálp frá hernum, bæði andlega og líkamlega. Hinum fráfarandi foringja er lýst sem lágmætlum og auðmjúk- um. Hann er fæddur inn í hreyf- inguna og ólst upp innan henn- ar. Foreldrar hans voru bæði virk í Hjálpræðishernum í Björgvin í Noregi. Konu sína Bergljot fann hann einnig í röðum hermanna og eiga þau son og dóttur. Er sonurinn virkur í hernum, kona hans og tvö börn, þannig að í fjóra ættliði hefur fjölskylda Madsens látið þar að sér kveða og ræktað anda sinn í kristilegu starfí. Samstarfsmenn Madsens bera góðan hug til hans og sjálfur hefur hann helgað hernum alla krafta sína og á sér engin áhuga- mál utan hans. Hann er í forystu fyrir mikilli starfsemi en fær ekki sömu veraldlegu umbun og þeir sem stjórna stórrekstri í at- vinnulífinu. Hann og kona hans hafa samtals 170.000 NKR í árslaun eða tæplega 1,7 milljónir IKR. Madsen er æðsti yfirmaður 600 foringja, 10.000 hermanna og 40.000 félagsmanna. Félags- lega þjónustan ein veltir um 2Ö0 milljónum NKR á ári eða tveimur milljörðum ÍKR. KONGALIF Prinsar njóta móður- ástar Ensku prinsarnir Vilhjálmur og Harrý hafa eflaust fengið að reyna að það getur verið erfitt að eiga mömmu sem þarf að sinna tímafrekum skyldustörfum. En þegar hún kemur heim eftir langar fjarvistir er hver stund dýrmæt og gott að hjúfra sig að henni. » -v' A

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.