Morgunblaðið - 05.07.1990, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990
43
jÞessir hringdu . . .
Týndur köttur
Níu mánaða grá og hvít læða tap-
aðist 15. júní frá Öldugranda 7.
Þeir sem vita um köttinn hringi
í síma 626934.
Kettlingur
Hvítan kettling með svart skott
og svartar doppur vantar gott
heimili. Upplýsingar í síma
685693.
Kvenúr fannst
Gullkvenúr með hvítri leðuról
fannst í Hjallabrekku í Kópavogi.
Eigandi getur hringt í síma
42117.
Sýna vandaða
framhaldsþætti örar
Kona hringdi:
„Ég er sammála Víkveija sem
skrifar í laugardagsblaðinu um
spennumyndina Holskeflu sem
Sjónvarpið er nú að sýna í þrettán
þáttum. Sumarmánuðirnir eru
ekki rétti tíminn til að vera með
svo langar framhaldsmyndir þeg-
ar flestir fara ýmist út fyrir land-
steinana eða eru að ferðast hér
innanlands og missa þar af leið-
andi af söguþræðinum. Mig lang-
ar til að beina því til Sjónvarpsins
hvort ekki sé hægt að sýna svo
vandaða þætti sem þessa örar,
helst kvöld eftir kvöld, líkt og
Stöð 2 hefur gert með sínar fram-
haldsmyndir að undanförnu.“
Fann kross
Það fannst kross af hálsmeni í
suðurbæjarlauginni í Hafnarfirði
á þriðjudagsmorgun. Eigandi get-
ur hringt í síma 53970.
Tapaði Armani sólgleraugum
Armani karlmannasólgleraugu
töpuðust á Hótel Borg eða í
Tunglinu sl. laugardagskvöld.
Þetta eru brún hringlaga gler-
augu með grænu gleri og eru
vegleg fundarlaun í boði. Finnandi
vinsamlega hringi í síma 27467
eða 14434.
Páfagaukurinn Óskar týndur
Páfagaukurinn Óskar fór frá
heimili sínu í Njarðvík á föstu-
dagskvöld. Óskar er stærri en
venjulegir páfagaukar, ljósgrár
með stóran gulan topp upp úr
höfðinu og appelsínugula bletti í
kinnum. Eigandi biður fólk í
Njarðvík og Keflavík vinsamleg-
ast að svipast um í görðum sínum.
Ef einhver veit um afdrif Óskars
er hann beðinn að hringja í síma
92-12576. Fundariaun eru í boði.
Köttur í óskilum
Svartur kettlingur sem er ómerkt-
ur er í óskilum. Eigandi getur
vitjað hans í síma 624702.
SvangSr íslendingarí
Takió ykkur frí frá mafseld
TOURIST MENU
\^eitingastaóir víóa um land innan Sambands
veitinga- og gistihúsa bjóóa ísumar sérstakan
matseðil, Sumarrétti SVG, þar sem áhersla er lögð
á staógóðan mat ágóðu mði.
Sumarréttamatseðillinn
gildir frá I. júní til 15. september.
Hádegisv. Kvöldverður
Forréttur eða supa, kjöt- eða fiskréttur, kaffi. kr. 750- 900 kr. 1000- 1500
Börn 0 til 5 ára: Ókeypis Börn 6 til 12 ára: 50% afsláttur
Góða og ráðvanda fólkið regl-
óráðvanda undantekning’
an
Til Velvakanda.
Nú við upphaf ferðatímabilsins
langar mig til að segja eftirfarandi
sögu, því að allt sem er gott og heið-
arlegt verðskuldar að vera skráð. Sl.
sumar var ég á ferð í Kaupmanna-
höfn. Dag nokkurn kom ég ásamt
dóttur minni í Den Danske Bank í
miðborginni. í innanávösum jakka
míns var öðrum megin peningaveski,
en hinum megin ferðaskrifstofu-
veski. Þegar heim kom varð ljóst að
það síðarnefnda var týnt. Við höfðum
komið á Aðaljárnbrautarstöðina, á
kaffistofu og víðar, en farið síðan
heim í strætisvagni.
Þegar var tilkynnt um hvarfið og
síðan farið á þá staði, sem veskið
gat hafa tapast á. Þegar komið var
í Den Danske Bank kom í ljós að
viðskiptavinur þar hafði fundið vesk-
ið á gólfínu í afgreiðslusalnum og
afhent það sama gjaldkera og ég
hafði skipt við. í veskinu var tölu-
vert af erlendum peningum, vega-
bréf, farmiðar og önnur skilríki. Allt
var það ósnert svo að léttirinn varð
mikill, þegar ófarirnar enduðu svo
vel fyrir góðra manna tilverknað.
Sannaðist hér sem oftast að góða
og ráðvanda fólkið er reglan, það
óráðvanda undantekning — ekki
síður í þeirri ágætu heimsborg Kaup-
mannahöfn en hér heima á Fróni.
Ferðalangur
i •" j Charmglow model 01450 Charmglow model 01310
VERÐ KR.19.800.- m/kút stgr. | VERÐ KR. 14.900.- m/kút stgr.
OPIÐALLA VIRKADAGA NEMA MANUDAGA FRA KL.10- 18.
FÖSTUDAGA FRÁ KL. 10- 19.
LAUGARDAGA FRÁ KL.10 - 14.
ATH. LOKAÐ MÁNUDAGA.
Upplýsingabæklingurfæst á ferðaskrifstofum og
upplýsingamiðstöð í Ingólfsstræti 5.
Sjá þátttakendalista í Morgunblaðinu
laugardaginn 30. júní.
Auglýsing
Sumarstemning á markaðstorgi:
Útlendingar upp-
götva Kolaportið
í Kolaportinu er alltaf gott vcður
og þar gengur markaðstorgið
sinn vanagang hvað sem árst-
íðunum líður. Það cr þá helst
að flciri tungumál heyrist þar
nú um hásumarið, því crlcndu
ferðamcnnirnir eru búnir að upp-
götva þennan aðal skemmtistað
Reykjavíkur á lau'gardögum.
„Aðsókn gesta hefur haldist
ágæt þetta árið“ segir Helga
Mogcnsen, forsprakki Kolap-
ortsins. „þegar líður á sumarið
fækkar kannski eitthvað borg-
arbúum, en erlendir ferðamenn
og fólk utan af landi bæta það
vel upp. Útlendingarnir virðast
spenntir fyrir þessu en okkur
vantar tilfinnanlega meira af
seljendunt með vörur sem hæfa
þessum viðskiptavinum."
Ferðavörur
á Kolaportsverði
Vöruúrvalið fylgir árstíðum í
Kolaportinu sem annarsstaðar
og þar er nú hægt að gera góð
kaup á hvers kyns ferðavörum.
í einum sölubásnum var mikill
áhugi fyrir tjöldum, sem seld
eru með helmings afslætti, að
sögn sölukonunnar. „Ég verð
hérna nokkra laugardaga í við-
bót, en svo er ég sjálf farin í
tjaldferó," tilkynnti hún við-
skiptavinunum.
I öðrurn básum var verið að
selja allt fyrir veiðiferðina,
óbleiktan salernispappír fyrir
sumarbú staði. ferðagrill. úti-
leikföng, sumarfatnað og svo
ntá lengi tclja.
Virðisaukaskatturinn
gott mál
„Það bar nokkuð á hræðslu
hérna gagnvart virðisaukaskatt-
inum fyrst í stað“ segir Helga,
„en reynslan hefur sýnt, að slíkt
er algjör óþarfi. Mér finnast
reglurnar einfaldari en áður og
nú þurfa seljendur, sem selja
fyrir minna en 155.000 krónur,
ekkert að hugsa um virðisauka-
skattinn og sömuleiðis þeir, sem
eru að selja notaða muni frá
sér. Líknarfélög og önnur fé-
lagasamtök geta einnig fengið
undanþágur, svo þeir eru til-
tölulega fáir sem þurfa að hugsa
um þetta."
Skópússarar óskast
„Við erum sífellt að þróa mark-
aðs-
torgið og bæta aðstöðuna. í vet-
ur settum við t.d. upp mikið
hitakerfi og nú erum við að
huga að öðrum góðum endur-
bótum, sem koma vonandi með
haustinu. Nú erum við að gera
átak til að lífga enn frekar upp
á Kolaportið og ég auglýsi hér
með eftir trúbadorum, skópúss-
urum spákonum, söngvurum,
teiknurum og öðrurn listamönn-
um, sem vilja taka þátt í þessu
með okkur. Allar góðar hug-
myndir eru vel þegnar, “ segir
Helga að lokum.