Morgunblaðið - 14.08.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
Morgunblaðið/Hallur Þorsteinsson
Bústaður brann
Sumarbústaður við Flekkuvík á Vatnsleysuströnd brann til kaldra kola
á sunnudagsmorgun. Bústaðurinn var mannlaus þegar eldurinn kom
upp og var hann brunninn til kaldra kola áður en lögregla og slökkvi-
lið komu á staðinn.
Afstýrði árekstri en velti
bíl sínum og stórslasaðist
Níu meiddust í íjórum slysum á sunnudag
Bundið slit-
lag á flugvöll-
inn á Isafirði
Flugvöllurinn á ísafirði hefur
verið lokaður frá 7. ágúst þegar
framkvæmdir við bundið slitlag
á völlinn hófust. Flugvöllurinn
verður lokaður fram yfír næstu
helgi. Framkvæmdir við bundið
slitlag á Vestmannaeyjaflug-
velli heQast á fimmtudaginn.
Að sögn Jóhanns H. Jónssonar,
framkvæmdastjóra flugvalladeild-
ar, hefur verið flogið með farþega,
á leið til Ísaíjarðar, til Þingeyrar
en þaðan er þeim ekið endurgjalds-
laust til ísafjarðar.
Jóhann sagði að verið væri að
auka burðarþol brautarinnar og
bera á hana bundið slitlag. Kostn-
aður við viðgerðina er á bilinu 25
til 26 milljónir króna.
Vestmannaeyjaflugvelli verður
lokað á fimmtudaginn en þá verð-
ur hafist handa við að leggja bund-
ið slitlag á völlinn.
Næsta sumar, eða í síðasta lagi
vorið 1992, verður Egilsstaðaflug-
völlur malbikaður. Ráðgert er að
bundið slitlag verði komið á alla
áætlunarflugvelli á landinu árið
1998.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Báðar bifreiðarnar voru óökufærar og jafnvel taldar ónýtar eftir
áreksturinn.
Grindavík;
Fimm flutt á sjúkra-
hús eftir árekstur
Grindavík.
MJOG harður árekstur varð miili tveggja fólksbifreiða í Grindavík
sl. sunnudag á gatnamótum Hraunbrautar og Staðarhrauns. Fimm
manns voru flutt á sjúkrahús og fengu tveir að fara heim að lok-
inni tæknisskoðun en þrennt var lagt inn til nánari skoðunar.
Áreksturinn var mjög harður og bifreiðarnar voru óökufærar og
önnur bifreiðin endaði í húsgarði jafnvel taldar ónýtar eftir árekstur-
nærliggjandi húss og brotnaði jnn og mikil mildi að ekki fór ver.
grindverk og tré skemmdust. Báðar FÓ
NÍU manns slösuðust í fjórum umferðarslysum í Reykjavík á sunnu-
dag. Ungur maður hryggbrotnaði er Lada jeppi sem hann ók valt
á mótum Grensásvegar og Breiðagerðis Iaust eftir hádegi á sunnu-
dag. Að sögn vitna varð óhappið þegar ökumaðurinn sveigði upp á
umferðareyju til að forðast árekstur við lítinn japanskan bíl sem
ekið var í veg fyrir hann. Ökumaður þess bíls nam ekki staðar held-
ur ók á brott. Er skorað á hann, sem og vitni að óhappinu, að gefa
sig fram við Slysarannsóknadeild lögreglunnar í Reykjavík.
Útgerðin um aðsteðjandi olíuhækkanir;
Engar ákveðnar spamað-
araðgerðir fyrirhugaðar
ENGAR ákveðnar sparnaðaraðgerðir eru fyrirhugaðar hjá mörgum
stærstu útgerðarfyrirtækjum landsins vegna aðsteðjandi olíuhækk-
ana. Forsvarsmenn ýmissa stórra útgerðarfyrirtækja gáfu í samtali
við Morgunblaðið í skyn að boðorðið væri að bíða og sjá, og taka á
vandanum ef og þegar hann kemur.
Fjórir voru fluttir á slysadeild
eftir að fólksbifreið var ekið norður
Smiðjustíg og í veg fyrir bifhjól á
leið austur Hverfisgötu, klukkan
tæplega 18 á sunnudag. Ökumaður
Vöruskipti
hagstæö um
2,3 milljarða
VERÐMÆTI vöruútflutnings ís-
lendinga var 4% meira fyrstu 6
mánuði ársins en á sama tima í
fyrra, miðað við fast gengi. Verð-
mæti vöruinnflutnings jókst um
9%. Flutt var út fyrir 46,4 millj-
arða króna en inn fyrir rúmlega
44 milljarða króna og er vöru-
skiptajöfnuðurinn því hagstæður
um rúma 2,3 milljarða króna á
fyrri hluta ársins. Fyrri hluta árs-
ins 1989 var hann hagstæður um
4,2 milljarða króna á sama gengi.
Á tímabilinu hafa sjávarafurðir
verið 79% útflutningsins og hafði
útflutningur þeirra aukist um 12%
frá sama tíma í fyrra. Útflutningur
á áli dróst saman um 24% og kísil-
járns um 32%.
í aukningu innflutnings munar
mest um að 42% aukning varð á inn-
flutningi til stóriðju og verðmæti inn-
fluttra skipa og flugvéla jókst um
50%.
Trygginga-
bætur hækk-
aðar í ágúst
SAMKVÆMT reglugerð sem
sett var í síðasta mánuði um
hækkun bóta almannatrygg-
inga verður greiddur sér-
stakur 15% tekjutryggingar-
auki á tekjutryggingu, heim-
iiisuppbót og sérstaka heim-
ilisuppbót í ágústmánuði.
Tekjutrygging sem var í júlí
20.572 kr. verður í ágúst
23.658 krónur, 8.042 krónur
verða greiddar í heimilisuppbót
og 5.532 kr. í sérstaka heimilis-
uppbót. Þetta eru nokkurs kon-
ar oriofsgreiðslur til þeirra er
njóta bóta almannatrygginga.
og farþegi af bifhjólinu, ungir
menn, voru fluttir á sjúkrahús, svo
og ökumaður og farþegi úr bifreið-
inni. Meiðsli þeirra voru ekki talin
lífshættuleg.
Ökumaður bifhjóls var fluttur á
slysadeild eftir árekstur í Eskihlíð.
Bfl á leið vestur Eskihlíð var beygt
inn á bifreiðastæði við hús númer
16 í sama mund og ökumaður bif-
hjólsins hugðist aka fram úr bflnum.
Ökumaður Mitsubishi-fólksbíls á
leið um Vesturlandsveg við Blika-
staði um klukkan hálftíu á sunnu-
dagskvöld, hemlaði þegar hann varð
var við önd á miðjum veginum.
Ökumaður sendibfls sem á eftir kom
var ekki viðbúinn slíku og ók aftan
á fólksbflinn, sem stórskemmdist.
Farþegi úr fólksbflnum og ökumað-
ur og farþegi úr sendibflnum voru
fluttir á slysadeild. Öndin varð und-
ir öðrum bflnum og var aflífuð.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
opinberar viðskiptaviðræður íslend-
inga og Sovétmanna um viðskipti
þjóðanna hefjast en rammasamning-
ur þeirra gildir til næstu áramóta.
Rammasamningar, eða viðskiptabók-
anir, þjóðanna hafa gilt til fímm ára
í senn en Sovétmenn hafa rætt um
að næsti rammasamningur gildi í tvö
ár en verði hugsanlega framlengdur
um þijú ár.
Gylfi Þór Magnússon fram-
kvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Benedikt Sveins-
son, framkvæmdastjóri sjávaraf-
urðadeildar Sambandsins, fóru til
Moskvu síðastliðinn laugardag til að
Jón Rúnar Kristjánsson, fjár-
málastjóri Granda hf., sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að eng-
ar spamaðaraðgerðir hefðu verið
ræddar þar innanhúss vegna hækk-
andi olíuverðs. „Við erum ekkert
farnir að hugsa þetta ennþá,“ sagði
Jón Rúnar. „Við höfum þegar lagt
einu skipi, og ég á bágt með að sjá
að við gætum gengið lengra í þeim
efnum. Vissulega mun olíuverðs-
hækkun, ef hún verður, leiða til
þess að menn reikna sín dæmi upp
á nýtt, skipti um vélar í eyðslufrek-
ræða við Sovétmenn um freðfiskkaup
þeirra. Samkvæmt samningum eiga
Sovétmenn að kaupa um 9 þúsund
tonn af frystum fiski héðan í ár og
eftir er að afskipa 3.200 tonnum af
því magni.
Hjalti Einarsson framkvæmda-
stjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna og Halldór Þorsteinsson hjá
sjávarafurðadeild Sambandsins
sögðu að frystihúsin réðu því núna
hvort þau framleiddu fyrir Sovét-
menn eða ekki en þeir hafa aðallega
keypt karfa héðan. „Við bendum
húsunum hins vegar á að þau taki
áhættu með því að framleiða fyrir
Sovétmenn," sagði Hjalti. Hann
um skipum og þar fram eftir götun-
um,“ sagði hann ennfremur.
Einar Óskarsson hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa sagði að hugsan-
legar aðgerðir hefðu ekki verið
teknar fyrir hjá félaginu. Tveir tog-
arar þess eru nú að taka út stopp-
daga vegna sumarveiða á sóknar-
marki. „Ég fæ ekki séð að við
gætum haldið vinnslunni gangandi
með færri skipum en við höfum
ætlað okkur að hafa á sjó,“ sagði
Einar.
Sveinn Ingólfsson hjá Skag-
sagði að hægt væri að selja ufsann
og karfann til dæmis til Þýskalands
og Frakklands. „Það er það mikill
fískskortur núna að ég held að verð
á karfa og ufsa muni ekki lækka í
þessum löndum, enda þótt þessi fisk-
ur verði seldur þar.“
Garðar Sverrisson, framkvæmda-
stjóri Sölusamtaka lagmetis, sagðist
vera í daglegu sambandi við Sovét-
menn vegna greiðslustöðvunar þeirra
og þeir segðu að unnið væri í því
máli á æðstu stöðum. „Rússlandsvið-
skiptin hafa verið allt að 75% af
heildarsölu okkar en þau voru um
20% í fyrra og verða trúlega um 15%
í ár. Við viljum hins vegar auka þessi
viðskipti og myndum samþykkja
vöraskipti ef það yrði til að auka
þau. Sovétmenn segjast hafa mikinn
áhuga á að skipta áfram við okkur,
hvort sem það yrði á grundvelli við-
skiptabókunar eða fijálsum grund-
velli.“
Síldarútvegsnefnd vill að samning-
ár við Sovétmenn takist áður en
síldveiðarnar hefjast í október en
strendingi sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fyrirtækið ætti kvóta
sem félli vel saman við veiðigetu
skipa þess, og því væri varla inn í
myndinni að fækka skipum. „Við
höfum nú sífellt verið að spara, í
oh'u jafnt og öðru. Skip okkar ganga
eingöngu fyrir svartolíu, og við
munum hafa augun opin fyrir frek-
ari spamaði. Fyrst er hins vegar
að bíða og fylgjast með framvindu
mála.“
Svipað hljóð var að heyra á for-
ráðamönnum útgerðarfélagsins
Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum.
Þar hefur ekki verið rætt um hugs-
anlegar aðgerðir vegna þeirra
hækkana sem orðið gætu á olíu-
verði.
síðustu tvö ár hafa viðræður við þá
dregist á langinn. „Gengið er frá
sovésku fjárlögunum í nóvember,
þannig að Sovrybflot, sem heyrir
undir sovéska sjávarútvegsráðuneyt-
ið, hefur þurft að fá sérstaka undan-
þágu til saltsíldarkaupa héðan áður
en fjárveitingin er ákveðin. Það hefur
hins vegar verið æ erfiðara að fá
slíka undanþágu vegna þess að völd-
in hafa flust frá ráðuneytinu til sov-
éska þingsins," sagði Einar Bene-
diktsson framkvæmdastjóri Síldarút-
vegsnefndar.
Hann sagði að íslendingar væru
langstærstu útflytjendur á saltsíld í
heiminum og Sovétmenn hefðu keypt
um 60% af saltsíldarframleiðslu okk-
ar síðustu ár. Einar sagði að Sovét-
menn hefðu dregið greiðslur fyrir
saltsfld héðan í vor en það væri í
fyrsta skipti sem slíkt hefði gerst.
Hann sagði að oft hefði verið erfitt
að ná samkomulagi við Sovétmenn
en þeir hefðu staðið fullkomlega við
gerða samninga.
Hálfur milTjarður króna gjaldfallinn á Sovétmenn fyrir ftystan físk og lagmeti:
Enginn saltsíldarmarkaður
kemur í stað Rússlandsmarkaðar
- segir Einar Benediktsson framkvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar
UM HÁLFUR milljarður króna er gjaldfallinn á Sovétmenn fyrir fryst-
an físk og lagmeti, sem þeir hafa keypt héðan. „Enginn annar saltsíldar-
markaður getur komið í stað Rússlandsmarkaðar, þar sem hann er
stærri markaður en öll önnur lönd í heiminum til samans,“ sagði Ein-
ar Benediktsson framkvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar en Sovétmenn
keyptu saltsíld héðan fyrir um einn milljarð á síðustu vertíð. Einar
sagði að ekki væri búið að ákveða hvenær viðræður við Sovétmenn
um saltsíldarkaup þeirra á næstu vertíð hæfust.