Morgunblaðið - 14.08.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
31
Geirftiður Jóelsdóttir,
Siglufirði - Minning
Fædd 1. september 1905
Dáin 7. ágúst 1990
í gær, mánudaginn 13. ágúst, var
til moldar borin frá Húsavíkurkirkju
Geirfríður Jóelsdóttir, sem lengi bjó
á Siglufirði, en hin síðri ár hjá dótt-
ur sinni og tengdasyni í Breiðumýri
í Reykjadal í S-Þingeyjarsýslu.
Geirfríður, eða Gilla eins og hún
var jafnan kölluð, var fædd og uppal-
in í Betri-Bæ á Húsavík. Móðir henn-
ar var Friðrikka Þorgrímsdóttir, ætt-
uð frá Nesi í Aðaldal, en faðir henn-
ar var Jóel Magnússon, útvegsbóndi
frá Hvalsnesfirði í Fjörðum. Börn
þeirra hjóna urðu fjögur og komust
öll til fullorðinsára, eftir lifa ástkær-
ar systur, Fjóla og Magnea, en
Þorgrímur er látinn.
Eins og títt var með unglinga
þessa tíma þurfti Gilla ung að fara
að_ vinna fyrir sér, fyrst heima á
Husavík en síðar á Akureyri, í Vest-
mannaeyjum og á Siglufirði. Rúm-
lega tvítug fer hún sem ráðskona
við útgerð Einars Malmquist á
Siglufirði og starfaði þar nokkur
sumur og haust. Þá hófu skapanorn-
irnar að vefa hennar örlagavef því
samtímis henni starfaði hjá Malmqu-
ist útgerðinni ungur og glæsilegur
skipstjóri, Arnþór Jóhannsson frá
Selá á Árskógsströnd í Eyjafirði, sem
varð einn af aflasælustu skipstjórum
landsins.
Samband þeirra Gillu og Arnþórs
þróaðist og dafnaði — þau urðu ást-
fangin og sú ást náði út yfir gröf
og dauða. Þegar vertíð lauk haustið
1929 og þau héldu hvort til síns
heima höfðu þau bundist tryggðar-
böndum og 2. mars 1930 gengu þau
í hjónaband á Húsavík. Þau fluttu
til Siglufjarðar og reistu sér þar
heimili, fyrst á Suðurgötu 22 en síðar
á Norðurgötu 11. Yfir þessu heimili
var menningar- og myndarblær og
þar var alveg sérstakur ilmur sem
aðeins finnst þar sem hver krókur
og kimi er tandurhreinn.
Arnþór og Gilla eignuðust þrjú '
börn, Björgu, fædd 1932 gift Sig-
tryggi Jósepssyni, Hörður, fæddur
1939, kvæntur Grétu Guðmundsdótt-
ur og Öm, fæddur 1945, kvæntur
Svanborgu Dahlmann.
Árið 1933 veiktist Gilla af hinum
mikla ógnvaldi, berklum, og þurfti
að yfirgefa eiginmann og 9 mánaða
gamla dóttur sína til að leggjast inn
á Kristneshæli sér til heilsubótar.
Moðir hennar og systur, Fjóla og
Magna, fóstruðu Björgu og eftir 18
mánuði gat hún snúið heim nokkurn
veginn heil heilsu. En þessi
lífsreynsla markaði djúp spor á sál
hennar og eitt sinn tjáði hún mér
að hún hefði ekki átt von á því að
eiga afturkvæmt af „hæiinu" frekar
en margur sem þessi vágestur hetj-
aðiá.
Árið 1931 byrjaði Arnþór skip-
stjórn á síldveiðiskipi með herpinót
og reyndist hann með afbrigðum
fengsæll og farsæll skipstjóri, og í
hugum þeirra sem muna síldarárin
á Siglufirði og unna sjómennsku er
nafn Arnþórs og ms. Dagný SI 7
samofin. Þegar athafnamaðurinn
Helgi Benediktsson í Vestmannaeyj-
um hafði látið smíða hið glæsilega
skip Helga Helgason tók Arnþór þar
við skipstjóm. Eftir áramótin 1950
tók hann sér far til síns skips frá
Reykjavík til Vestamannaeyja með
vélbátnum Helga VE. Sú sjóferð
varð hans helför því skipið fórst við
Faxasker 7. janúar og með því öll
áhöfn og farþegar.
Gilla var á fertugasta og fimmta
aldursári þegar hún varð ein með
börnin sín, Björgu 17 ára, Hörð 10
ára og örn 4ra ára, en með ráðdeild
og dugnaði kom hún þeim til mann-
dóms. Hún hélt út í atvinnulífið, sait-
aði síld á surnrum, leigði út herbergi
og seldi fæði, tók að sér alls kyns
saumaskap og var í áraraðir eftirlits-
riiaðui' í frystihúsi SR á Siglufirði. Á
hjúskaparárum okkar Harðar á Si-
glufirði var hún alltaf nærtæk, fóstr-
aði dætur okkar og uppfræddi; var
jafnan gefandi og við öll þakklátir
þiggjendur. Er við fluttumst burt
árið 1970 lögðum við hart að henni
að fylgja okkur en svo varð ekki.
Árið 1981 þegar hún var búin að
vera ein svo lengi bauðst henni að
flytjast til Bjargar og Sigtryggs í
Breiðumýri og átti hún þar góð og
friðsæl ár þar til hún veiktist snemma
á þessu ári og varð að leggjast á
sjúkrahús á Húsavík og á Landspítal-
ann þar .sem hún gekkst undir að-
gerð sem ekki bar árangur. Henni
auðnaðist að eiga nokkra daga heima
á Breiðumýri áður en yfir lauk, en
hún andaðist á sjúkrahúsi Húsavíkur
að morgni 7. ágúst sl.
Þegar ég nú lít yfir lífshlaup
tengdamóður minnar hrannast upp
minningarnar.
Gilla var ákveðin og ákaflega föst
fyrir í skoðunum sínum en var jafnan
reiðubúin til að leggja mat á menn
og málefni líðandi stundar, ekki til
að rífa niður heldur til að rökræða
sjónarhorn annarra og byggja upp.
Gilla var myndvirk; dugnaðarfork-
ur sem geymdi aldrei neitt til morg-
uns sem hún gat gert í dag. I tóm-
stundum sínum hafði hún mesta
ánægju af handavinnu og einstök
handverk hennar prýða heimili henn-
ar nánustu sem annarra.
Gilla var trúhneigð og ljóðelsk og
nutu dætur okkar Harðar óspart af
þeim brunni. Öll hennar mannlegu
samskipti voru eins og hýbýli henn-
ar, hrein og flekklaus. Hún óttaðist
ekki dauðann og uppgjör við skapara
sinn, viss um að fyrir handan biðu
engir ógreiddir reikningar sem hún
gæti ekki staðið skil á, sannfærð um
að lok þessa jarðlífs væru ekki enda-
lokin.
Ég kveð og þakka tengdamóður
sem ég hef verið samstíga í meira
en aldarfjórðung og aldrei orðið
sundurorða við. Hún kenndi mér svo
margt. Af henni lærði ég að leggja
mat á ýmsar hliðar tilverunnar sem
annars væru mér lokuð bók.
Ég kveð og þakka einstakri konu
sem alla tíð lét hag bai-na sinna og
sinna nánustu ganga fyrir eigin hag.
Ég kveð Gillu í þetta sinn með
broti úr. kvæði eftir Kristján Jónsson
Fjallaskáld:
Þar er hún sæl, er sælu jók
syrgjendum, þeim er eftir þreyja.
Guði sé lof, sem gaf og tók!
Gott er að lifa vel og deyja.
Gréta Guðmundsdóttir
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR G. JÓHANNSSON
pipulagningarmeistari,
Hátúni 13, Reykjavik,
lést 11. ágúst i Borgarspítalanum.
Sigrún Benediktsdóttir,
Erla Sigurðardóttir,
Jóhann E. Sigurðsson,
Benedikt E. Sigurðsson,
Kolbrún Sigurðardóttir,
Hrefna Sigurðardóttir,
Laufey Bjarnadóttir,
Auður Lella Eirfksdóttir,
Höskuldur Elfasson,
. Ólafur Björn Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn,
LÁRUS Á. ÁRSÆLSSON,
Kirkjuvegi 43,
Vestmannaeyjum,
lést á Landspítalanum 13. ágúst.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bergþóra Þórðardóttir.
Okkar ástkæra, +
SIGRÚN Á. EIRÍKSDÓTTIR,
Laufásvegi 34,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 15. ágúst
kl. 13.30.
Hjördís Dúrr, Ólafur F. Bjarnason,
Erla Durr, Þórhallur Halldórsson,
Hildegard Dúrr, Böðvar Guðmundsson,
Anna S. Pálsdóttir,
Þuríður Pálsdóttir,
Einar Pálsson, Birgitta Laxdal,
Jón N. Pálsson Jóhanna Ólafsdóttir,
börn og barnabörn.
t
SERA OSKAR J. ÞORLÁKSSON
fyrrum dómprófastur,
Aragötu 15,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16. ágúst
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á líknarsjóð
Dómkirkjunnar.
Elísabet Árnadóttir,
Árni Óskarsson, Heiðdfs Gunnarsdóttir,
Helga Pálmadóttir, Helgi G. Samúelsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma okkar,
ÞRÚÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 15. ágúst
kl. 15.00.
Helga Einarsdóttir, Ólafur Davíðsson,
Davíð Ólafsson, Kjartan Ólafsson.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
LÁRU HALLDÓRSDÓTTUR,
Furugerði 1,
Reykjavík.
Halldór Hjartarsson, Bára Þórðardóttir
Hörður Hjartarsson, Erla Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
*.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts
KRISTÍNAR Þ. ÁSGEIRSDÓTTUR
frá Fróðá.
Útför hennar fór fram 8. ágúst í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Einar Stefánsson, Halla Jónatansdóttir,
Soffía Stefánsdóttir Carlanddöplke Carlander,
Ólafur Stefánsson, Vilhelmína Baldvinsdóttir,
börn og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ÞÓRUNNAR ELÍASDÓTTUR,
Arnartanga 4,
Mosfellsbæ.
Kristín Baldvinsdóttir,
Elías Baldvinsson,
Baldur Þór Baldvinsson,
Kristinn S. Baldvinsson,
Ragnar Þór Baldvinsson,
Birgir Þór Baidvinsson,
Hrefna Baidvinsdóttir,
Baldvin Skæringsson
Hörður Runólfsson,
Halla Guðmundsdóttir,
Arndís Steinþórsdóttir,
Sigríður Mfnerva Jensdóttir,
Anna Jóhannsdóttir,
Halidóra Björnsdóttir,
Snorri Þ. Rútsson,
Baldvin Gústaf Baldvinsson, Anna Gunnlaugsdóttir,
Hörður Baldvinsson, Bjarney Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR P. GUÐMUNDSSONAR
frá Stóra-Nýjabæ,
Krísuvík.
Guð blessi ykkur öll,
Esther Finnbogadóttir,
Gylfi A. Pálsson,
Guðmundur Kr. Sigurðsson, Gróa Hreinsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
HARALDAR HANNESSONAR,
Bakkagerði 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til borgarstjórnar Reykjavíkur, Starfsmannafélags
Reykjavikurborgar og BSRB.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sveinbjörg Georgsdóttir.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS ÞORKELSSONAR,
Grenimel 8.
Kristín Jónsdóttir,
Einar Jónsson,
Þorkell Jónsson,
Óskar Jónsson,
Þór Jónsson,
Örn Jónsson,
Svanborg Jónsdóttir,
Guðmundur Ingi Jónsson,
Ásgeir Jónsson,
Þorgerður Egilsdóttir,
Lilja Ólafsdóttir,
Kerstin Jónsson,
Elísabet Pétursdóttir,
Kristfn Jónsdóttir,
Júlíus Skúlason,
Guðrún Sigþórsdóttir,
Birna Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.