Morgunblaðið - 14.08.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
If# 7 k
■én
Þórarinn Björnsson að Vallargerði 4.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kópavogur:
Viðurkenningar fyrir
snyrtilegt umhverfí
Hulda K. Brynjólfdóttir og Þröstur Helgason að Hófgerði 12.
Afhending viðurkenninga
fyrir snyrtilegt umhverfi íbúð-
arhúsa og atvinnufyrirtækja í
Kópavogi, árið 1990, fór fram
í Félagsheimili Kópavogs föstu-
daginn 10. ágúst. Veittar voru
sex viðurkenningar, tvær á veg-
um umhverfisráðs Kópavogs,
en fjórar að vegum félagasam-
taka í bænum.
Athöfnin hófst með því að
Haukur Ingibergsson, formaður
Umhverfisráðs Kópavogs, bauð
gesti velkomna. Á eftir var boðið
upp á veitingar og fulltrúar af-
hentu viðurkenningamar. Fyrir
hönd Kiwanisklúbbsins Eldeyjar
afhenti Guðmundur Eýjólfsson
Þórami Bjömssyni viðurkenningu
fyrir garðinn að Vallargerði 4.
Magnús Ingmundarsson afhenti
Ólöfu Jóhannesdóttur og Guð-
mundi Sigurðssyni viðurkenningu
fyrir garðinn að Hlíðarvegi 3 fyrir
hönd Rotaryklúbbsins í Kópavogi.
Haukur Ingibergsson afhenti Unni
Magnúsdóttur og Hauki Hlíðberg
viðurkenningu fyrir garðinn að
Álfhólsvegi 31 fyrir hönd Lions-
sanna að Sæbólsbraut 26, 28 og
30 viðurkenningu fyrir snyrtilegt
umhverfi fyölbýlishúsa og Sigurður
Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi,
afhenti Jóni Helga Guðmundsyni,
forstjóra BYKO, viðurkenningu
fyrir snyrtilegt umhverfi atvinnu-
húsnæðis. Eftir afhendingu viður-
kenninganna var ekið með gesti á
milli lóðanna.
Þórarinn Bjömsson sagðist, í
samtali við Morgunblaðið, eyða
töluverðum tíma í garðinum.
Helstu einkenni hans sagði Þórar-
inn vera margs konar tijátegund-
ur. „Ég er með flest annað en
greni,“ sagði Þórarinn en auk þess
er töluvert af blómum í garðinum.
Má þar nefna begóníur. Af garðin-
um sagðist Þórarinn hafa mikla
ánægju.
Ólöf Jóhannsdóttir og Guð-
mundur Sigurðsson sögðust næst-
um eiga of stóran garð. „Frítíminn
fer meira og minna í þetta,“ sagði
Guðmundur en hann vinnur ekki
á sumrin og getur því eytt meiri
tíma í garðinu en ðlöf. „Annars
reynum við að skipta þessu á milli
Að Sæbólsbraut.
klúbbs Kópavogs og Ingimar Sig-
urðsson afhenti Huldu K. Biynj-
ólfsdóttur og Þresti Helgasyni við-
urkenningu fyrir garðinn að Hófa-
gerði 12 fyrir hönd Lionsklúbbsins
Munins.
Umhverfisráð Kópavogs veitt
tvær viðurkenningar. Guðni Stef-
ánsson afhenti íbúum fjölbýlishú-
okkar,“ sagði Ólöf. „Hann slær
en ég klippi og snyrti.“ í garðinum
eru meðal annars sólbeijatréj rifs-
beijatré og fjölærar plöntur. I einu
hominu er matjurtargarður þar
sem hjónin rækta grænkál, raba-
bara, gulrætur og kartöflur með
ágætum árangri.
Unnur Magnúsdóttir sagðist
BYKO í breiddinni.
eiga garð „til að vera“. „Við vinn-
um ekki mikið í garðinum enda
er hann mjög þægilegur, mikið af
fjölærum plöntum og trárn," sagði
hún og bætti við að uppáhaldstréð
hennar væri gulltoppur. í garðin-
um er hraunkantur og fjörustein-
ar.
Þegar Hulda K. Brynjólfsdóttir
og Þröstur Helgason fluttu að
Hófgerði fyrir 12 árum var fjárhús
og tún fyrir aftan húsið en nú er
þar fallegur skrúðgarður. Framan
við húsið er gamall tijágarður og
í miðjum garðinum er lítil tjöm.
Lóðin er stór en hjónin sögðu að
í bígerð væri að stækka húsið út
í garðinn.
Jón Helgi Guðmundsson sagðist
fyrir hönd BYKO í breiddinni vera
afar montinn með viðurkenning-
una sem fyrirtækið fékk fyrir góða
umgengni á lóðinni í kringum fyr-
irtækið. „Eg sé að tekið hefur
verið tillit til þeirrar starfsemi sem
fram fer á lóðinni, en við þurfum
að losa okkur við á annað þúsund
tonn af hefilspónum og alls kyns
rusli á ári,“ sagði Jón Helgi og
bætti við að viðurkenningin væri
auðvitað hvatning til fyrirtækisins
að gera enn betur.
Eydís Daníelsdóttir og Sigfríð
Hallgrímsdóttir, sem búa að Sæ-
bólsbraut 26, sögðu að íbúar í
blokkunum þremur að Sæbóls-
braut 26, 28 og 30 væm langflest-
ir viljugir að taka til hendinni á
lóðinni. Á lóðinni er sandkassi fyr-
ir bömin í húsunum og stór flöt
þar sem þau geta leikið sér. Ekki
er þó talið æskilegt að þau fari í
fótbolta á lóðinni.