Morgunblaðið - 14.08.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Flytja varð vagnstjórann á brott með sjúkrabil eftir árásina.
Á innfelldu myndinni er Pétur Hraunfjörð.
í DAG kl. 12.00
Heímild: Vefiurelola ístand$
(Byggt á vaeumpá Kl. 16.151 gœr)
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 14. ÁGÚST
YFIRLIT í GÆR: Fyrir austan land er lasgð og frá henni lægðar-
drag til suðvesturs, við suðurströnd landsíns.
SPÁ: Breytileg átt víðast fremur hæg. Dálitlar skúrir verða með
suöurströndinni, en þurrt og tiltölulega bjart veður á Vesturlandi
og sennilega einnig á suð-austanverðu landinu. Á Norðurlandí og
Norð-austurlandi má búast við súld, einkum við ströndina. Lítið
eitt kólnar í veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Austlæg eða breytileg átt. Þurrt vestan-
lands og I innsveitum norðanlands, en rigning eða súld í öðrum
landshlutum.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Vindur snýst til norðanáttar með vætu
á landinu norðanverðu, en þurrt og víöa léttskýjað á landinu sunnan-
verðu. Svalt í veðri báða dagana.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r t
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[~T Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl, 12:00 í gær að f$l. tíma
hiti veður
Akureyri Reykjavtk 11 14 súid skýjað
Bergen 16 skýjað
Helsiriki 21 léttskýjað
Kaupmannahöfn 22 skýjað
Narssarssuaq 10 léttskýjað
Nuuk 6 rigning
Ósló 19 skýjað
Stokkhólmur 22 skýjað
Þórshöfn 12 atskýjaö
Algarve 26 skýjað
Amsterdam 24 skýiað
Barcelona 29 léttskýjað
Berlin vantar
Chicago vantar
Feneyjar vantar
Frankfurt vantar
Qiasgow 18 skúr
Hamborg 26 skýjað
Las Palmas 27 léttskýjað
London 23 skýjað
Los Angeles 20 místur
Lúxemborg 18 skýjað
Madríd skýjað
Malaga 28 heiðskfrt
Mallorca 33 léttskýjað
Montreal 16 rigning
New York 26 mistur
Orlando 24 skýjað
Parfs 28 hálfskýjað
Róm 28 léttskýjað
Vín 30 hálfskýjað
Washington 24 mistur
Winnipeg 11 skýjað
Hópur unglinga réðist á strætisvagnstj óra:
Vagiistjórar aki ekki
í Breiðholtið eftir
miðnætti um helgar
TRÚNAÐARMENN vagnstjóra hjá Strætisvögnum Reykjavíkur beindu
í gær þeim tilmælum til vagnstjóra að þeir aki ekki síðustu áætluðu
ferðir eftir miðnætti í Breiðholt föstudags- og laugardagskvöld, nema
viðunandi gæzla fáist í vagnana þar til önnur lausn finnst á öryggismál-
um bílstjóranna. Fundur fulltrúanna í gærmorgun var haldinn í til-
efni alvarlegrar líkamsárásar á vagnstjóra, sem ók síðustu ferð á leið
12 aðfaranótt sunnudags.
Trúnaðarmennirnir mælast jafn-
framt til þess við vagnstjóra að þeir
aki ekki frá unglingasamkomum,
svo sem tónleikum eða skóladan-
sleikjum, þar sem ætla má að áfengi
sé haft um hönd, en árásin á vagn-
stjórann átti sér stað þegar síðasti
vagn var að leggja af stað frá Eddu-
felli. í Fellaskóla höfðu þá verið tón-
leikar, og margir unglingar voru á
heimleið.
Þyrmdi yfír mig og ég hné
niður
„Ég var kominn nokkrar bíllengd-
ir frá biðstöðinni við Fellaskóla þeg-
ar hópur unglinga hljóp fram fyrir
bílinn og stóð á götunni, þannig að
vagninn komst ekki leiðar sinnar.
Síðan kom annar eins mannsöfnuður
að dyrunum. Ég opnaði dymar til
að reyna að tala við fólkið og til-
kynnti því að ég vildi ekki fá það inn
í bílinn dauðadrukkið. Síðan reyndi
ég að ýta þeim út kurteislega og
rólega, en það endaði með því að
ráðizt var á mig,“ sagði Pétur
Hraunfjörð, vagnstjórinn, sem fyrir
árásinni varð, í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði að mikið af ungl-
ingum hefði verið á ferðinni þetta
kvöld, þar sem tónleikar voru í Fella-
skólanum. í ferðinni á undan hefði
hann einnig orðið fyrir árás, verið
barinn fyrirvaralaust í bakið af ein-
um farþeganum.
Pétur sagði að líklega hefðu það
verið um fímmtán manns, sem veitt-
ust að honum. Þeir hefðu slegið
hann í höfuðið hvað eftir annað og
hrint sér til og frá. Honum hefði þó
gengið furðuvel að vetjast þeim, og
tekizt að komast í talstöðina og
kalla á hjálp. Hann er illa marinn í
andliti og var í gær enn með mikil
höfuðþyngsli. Þá á hann erfítt með
að hreyfa aðra höndina, og hann
missti sjón fyrst eftir árásina.
„Ég vissi varla hvernig þetta fór,
atgangurinn var svo harður að ég
missti eiginlega rænuna. Ég veit
ekki hvort ég veitti svona mikla
mótspymu eða hvort flótti brast í
liðið af öðrum orsökum. Það þyrmdi
yfír mig, og ég hné niður á gólfíð í
vagninum. Lögreglan sá um mig
eftir það,“ sagði Pétur. Hann sagði
•að viðbrögð lögreglu hefðu verið til
fyrirmyndar, fjölmennt lið hefði
komið á svæðið og skakkað leikinn
á svipstundu.
Pétur hefur ekið strætisvagni í tíu
ár. „Ég hef aldrei lent í neinum úti-
stöðum við farþega og hef komizt
klakklaust í gegnum þetta hingað
til,“ sagði hann. „Ýmsir vinnufélagar
mínir hafa lent í því að á þá hefur
verið ráðizt, en ég held samt að
þetta sé ein fólskulegasta árásin.“
Áhættusamt að aka í
Breiðholtið
Hannes H. Garðarsson, fyrsti full-
trúi vagnstjóra hjá SVR, sagði í
samtali við Morgunblaðið að sér-
staklega áhættusamt væri að aka
leiðirnar upp í Breiðholt. í fyrra
hefði vagnstjóri á leið 14 orðið fyrir
alvarlegri árás í Flúðaseli. „Þetta
eru kannski ekki endilega krakkar
úr Breiðholtinu sem standa fyrir
slíku, en þar eiga árásimar sér stað,“
sagði Hannes.
Hann sagði að ástandið í öryggis-
málum vagnstjóra væri ekki nógu
gott. „Menn verða fyrir áreitni um
hveija einustu helgi. Menn hafa
sloppið ef þeir bara kúra sig niður
í sætið og láta sem þeir hvorki sjá
né heyri nokkum skapaðan hlut.“
Hannes sagði að strax þyrfti að
endurnýja fjarskiptakerfí strætis-
vagnanna og koma fyrir einhvers
konar neyðarhnappi, sem vagnstjór-
ar gætu kallað á hjálp með. Annar
kostur væri að setja í vagnana sér-
stakan klefa fyrir bílstjórann, en
hann væri ekki mjög fýsilegur.
Fulltrúar bílstjóranna afhentu
yfirmönnum SVR ályktun fundar
síns í gær. Hörður Gíslason, skrif-
stofustjóri SVR, sagði að yfirmenn
fyrirtækisins hefðu enn ekki tekið
ákvörðun um aðgerðir. Það væri þó
ljóst að sjá yrði til þess að fólk vissi
af því að umræddar ferðir yrðu ekki
farnar. Hann sagði að reynslan sýndi
að það væru nærri eingöngu ungl-
ingar, sem nýttu sér þær ferðir.
Hörður sagði að verið væri að
athuga möguleika á tæknilegum
umbótum til þess að auka öryggi
vagnstjóra. „Tæknilegar umbætur
duga þó ekki einar, það verður að
gera eitthvað, sem verður til þess
að fólk hætti svona hegðun," sagði
hann.
Hjá lögreglunni fengust þær upp-
lýsingar að ekki væri upplýst að
fullu, hveijir stóðu að árásinni. Vitað
væri að nokkrir unglingar, flestir á
aldrinum 17-18 ára, hefðu veitzt að
ökumanninum. Lögreglan hefur
vissu fyrir að einn piltur sló bílstjó-
rann svo sannað sé, en ekki er ljóst
hver var upphafsmaður að átökun-
um. Að sögn lögreglu hefur fjöldi
vitna verið yfírheyrður vegna máls-
ins.
Tölvukerfí fylgist
með viðhaldi skipa
VIÐHALDSVAKA, tölvukerfí sem skráir og fylgist með viðhaldi skipa,
hefur verið komið fyrir í strandferðaskipinu Esju og verið er að koma
slíku kerfí upp í tveimur öðrum skipum Ríkisskipa, Heklu og Oskju.
Tölvukerfið er hannað í samvinnu
Ríkisskipa og Fjarhönnunar hf. og
hefur það verið í Esjunni frá því
síðastliðið vor. Að sögn Hjartar
Emilssonar hjá Ríkisskipum hefur
það reynst mjög vel. Hann sagði að
í skipum væri svonefnt stýrt viðhald
líkt og í flugvélum. Hlutar skipsins
er samkvæmt þvi skoðaðir á ákveðn-
um fresti. Viðhaldsvakinn stjórnar
skoðuninni í gegnum tölvu sem sýn-
ir á skjá grafíska mynd af þeim hlut-
um skipsins sem óskað er eftir. Dag
hvern berst vélstjóra Esjunnar til
að mynda teikning af vél skipsins
þar sem fram kemur hvaða hlutir
hennar þarfnast viðhalds eða eftirlits
þann dag. Áður en viðhaldsvaka var
komið fyrir í skipinu var allt viðhald
þess handstýrt og sagði Hjörtur að
það hefði verið þungt í vöfum og
vinnusparnaður því aukist mikið með
tilkomu þessarar tækni. Þá hefði
rekstraröryggi skipsins aukist mikið
þar sem minni líkur væru á skyndi-
legum bilunum.