Morgunblaðið - 14.08.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
17
Hafliði í Skálholti
Hafliði Hallgrímsson
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Um síðustu helgi (11. og 12.
ágúst) var Sumartónleikunum fram
haldið í Skálholti og voru fyrri tón-
leikarnir byggðir upp á tónverkum
eftir Hafliða Hailgrímsson. Flytj-
endur voru sönghópurinn Hljóm-
eyki, Helga Ingólfsdóttir, sembal-
leikari, Kolbeinn Bjarnason, flautu-
leikari, og höfundurinn, Hafliði
Hallgrímsson, sellóleikari og tón-
skáld. Tónieikarnir hófust á frum-
flutningi sembalverks, sem höfund-
urinn nefnir Strönd og er verkið
^mpsírerað'1 af útsýni til hafsins frá
Álftanesi og eins og höfundurinn
segir í efnisskrá er tónlistinni „ætl-
að að laða fram hljómrænan sam-
runa ljósbrigða hafsins, hljóði og
hinum óvenjulega klið sembalsins".
Verkið er byggt á tónhugmynd sem
unnið er úr sem þrástefi og ber það
í sér blæbrigði sólbliks, nið hafsins,
ásamt kvaksteíjum fuglanna í fjör-
unni. Strönd er fallegt verk, einfalt
í gerð eins og náttúrustemmning
og lék Helga Ingólfsdóttir verkið
af innileik.
Annað verk tónleikanna var sam-
leiksverk fyrir selló og flautu, sem
höfundurinn og Kolbeinn Bjarnason
fluttu með glæsibrag. Vers 1 er
verðlaunaverk, samið 1975, ogeins
og Strönd stemmningsverk frá veru
Hafliða í Aldeburgh. Verk þetta er
mjög vel unnið, skemmtilega leik-
andi og áhrifamikið. Þriðja verkið,
Flug Icarusar, er samið fyrir ein-
leiksflautu sem Kolbeinn lék frá-
bærlega vel en hann er sérlega
góður í flutningi nútímaverka og
nær þar oft að skálda mjög falleg
blæbrigði á flautuna sína.
Sönghópurinn Hljómeyki setti
endapunktinn á þessa tónleika með
því að flytja fjórar raddsetningar á
íslenskum þjóðlögum og kórverkið
Triptych, verk í þremur þáttum við
ljóðabrot eftir Salvatore Quasimodo
og tileinkað þeirri ágætu konu,
Mary Miller, sem íslenskir náms-
menn í London þáðu af margan
greiða og húsaskjól. Þjóðlagaradd-
setningarnar eru frábærlega fallega
unnar og sérstaklega skemmtileg
útfærslan á Veröld fláa. Nú vil ég
enn í nafni þínu er ekta kórall og
í Hættu að gráta hringaná er leikið
skemmtilega með textann. Útfærsl-
an á vögguvísunni Sof þú blíðust
barnakind mín er einstaklega við-
kvæmnisleg og trúlega má vænta
þess að útsetningar þessar verði
vinsæl viðfangsefni kóra, enda frá-
bærlega fallega smíðaðar. Loka-
verkið var Triptych, sem er alvar-
legt verk með þungum undirtóni
íhugunar um dulmyrk rök til-
verunnar, þar sem sérhver einmani
hjarta og jarðar, nístur af geislum
syndar, lifir náttmál lífs síns og að
Guð hefði ekki átt að rífa líkingu
sína frá mönnunum og taka frá
þeim viðmiðun fegurðarinnar.
Hljómeyki flutti þessi verk undir
stjórn höfundar á mjög sannfær-
andi máta. í heild voru þessir tón-
leikar góðir og gáfu gott sýnishorn
af tónhugsun Hafliða, sem auk þess
að leika sér með ýmis nútímatækni-
leg atriði, svo sem lærðu tónskáldi
ber, gefur af sjálfum sér og hugleið-
ir opinskátt um sínar eigin tilfinn-
ingar og upplifaðar stemmningar,
er skáld í dýpstu merkingu orðsins,
opnar af einlægni hugheim sinn
þeim er á vegferð sinni eiga leið hjá.
Hraölestrarnámskeið
Viltu margfalda lestrarhraða þinn?
Viltu lesa meira af góðum bókum?
Vilt þú ná góðum árangri í skólanum í vetur?
Á hraðlestrarnámskeiðum lærir þú að margfalda
lestrarhraðann með bættri eftirtekt.
Næsta námskeið hefst 29. ágúst.
Skráning er í sfma 641091.__
00 HRAÐLESTRARSKOLINN
10ÁRA
FAXAFENI 14,
símar 68 74 80 68 75 80
ék Innritun á námskeið
ímj Módelsamtakanna hefst
y ekki fyrr en
1 mánudaginn
v 27. ágúst.
30-40%
AFSLÁTTUR
Opið frá kl. 9-18 og 10-14 laugardaga
HÖRPUDEILDIN LEIKUR Á AL.S ODDI
er im
HÖRPUSKJÓL er akrýlbundin, vatnsþynnanleg málning,
sérstaklega ætluð fyrir múr og steinsteypta fleti utanhúss.
Hún er afar auðveld í meðförum, tryggir góöa öndun,
hefur góða viðloðun, þekur mjög vel og síðast en ekki síst
býður upp á skemmtilega litríkan leik.
Einstakt samspil allra þátta.
HARPA lífinu lit.
?
I
Z3
<
ÞEGAR Á HEILDINA ER LITIÐ ÞARF EKKI AÐ SPYRJA AÐ LEIKSLOKUM