Morgunblaðið - 14.08.1990, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
STRIÐSASTAND VIÐ PERSAFLOA
Tyrkland:
Þingið veitir heim-
ild tíl stríðsrekstrar
Nikósíu. Reuter.
TYRKNESKA þingið veitti ríkisstjórn landsins heimild til þess á
sunnudag að helja stríð eða senda herlið úr landi. Heimildin var
þó bundin því skiiyrði að ráðist yrði á landið.
í síðustu viku bárust fréttir um
liðssafnað íraka á landamærunum
að Tyrklandi. Þegar Yildirim Ab-
kubulut, forsætisráðherra Tyrk-
lands, fór fram á heimild til
stríðsrekstrar sagði hann að um
nauðsynlega varúðarráðstöfun væri
að ræða: „Við getum ekki látið
Mikil gæsla
við landa-
*
mæri Iraks
og Jórdaníu
okkur á sama standa þegar einn
nágranna okkar er að undirbúa
stríð.“ Þingið hélt lokaðan fund í
tvær stundir áður en samþykkt var
að veita heimildina með 216 at-
kvæðum gegn 151. Stjómarand-
staðan fékk því framgengt að heim-
ildin var bundin því skilyrði að hún
yrði notuð gegn írak.
írösk stjórnvöld neituðu því í gær
að þau hefðu í hyggju að ráðast á
Tyrkland og sögðu að fréttir um
það væru hluti af alþjóðlegu sam-
særi. „Við leggjum áherslu á sögu-
legt tengsl við nágranna okkar
Tyrkland og íbúa þess, hina vin-
veittu múslíma. Við sjáum ekki
neitt sem gæti réttlætt slíka árás,“
sagði Latif Nassif al-Jassem, upp-
lýsingamálaráðherra Íraks.
Reuter
Þingmaður tyrknesku sljórnarandstöðunnar veitist að stjórnarþingmanni á meðan verið er að ræða
hvort ríkisstjórnin fái heimild til stríðsrekstrar.
Kúvæt ekkitil umræðu fyrr
en aðrar deiiur eru leystar
- segir Saddam Hussein og hvetur íraskar konur til að spara matvæli og fatnað
Nikosíu. Reuter. Amman. Frá Jóhönnu Krisijónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
IRASKT OLIUSKIP REYNIR AÐ TAKA OLIU
Miöiaröar-
haf
ÍSRAEL V</' - XjÓRDANÍ^
., *Mu’ajjiz olíuhöfnin
EGYPTAL. — "
Saudi-Arabar ;
vísa burt ír- ‘
aska olíuskipinu
Al Qadisiyah,-.-
SUDAN
EÞIOPIA
Arabiuhat
Eisenhower
og fimm
fylgdarskip
REUTER
Amman, Jórdaníu. Frá Jóhönnu Kristjóns-
dóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
ALLSTÓR hópur fólks af ýmsu
þjóðerni kom yfir landamærin
frá Irak til Jórdaníu á sunnu-
dagskvöld. Irakar sögðu að
landamærin væru öllum opin en
það er ekki að sjá þegar þangað
er komið. Gæsia er mjög öflug
og hermenn á hveiju strái. Ef
einhverjir furðufuglar vilja fara
yfir til íraks, fá þeir ekki leyfi.
íraska sendiráðið í Amman hefur
ekki gefið blaðamanni Morgun-
blaðsins afsvar um að hann komist
til íraks. Starfsmennirnir segja að
þeir verði að afla leyfís frá Bagdad.
Þar hafa menn hins vegar greini-
lega öðrum hnöppum að hneppa
þessa daga.
í sendiráði Sýrlands á sunnudag
vakti athygli að starfsmaður sov-
éska sendiráðsins var þar að sækja
bunka af áritunum fyrir sovéska
diplómata. Bendir það greinilega til
að Sovétmemr vilji vera við öllu
búnir.
SADDAM Hussein Iraksforeti
flutti ræðu á sunnudag og kynnti
þar flóknar tillögur um frið í Mið-
Austurlöndum. Hann bauðst til að
semja um hernám Kúvæts gegn
því að öllum refsiaðgerðum gegn
Irökum yrði hætt og öll ríki hyrfu
með her sinn á brott frá yfirráða-
svæðum annarra þjóða í Mið-Aust-
urlöndum, þ. á m. Israelar af landi
Palestínumanna. Einnig yrðu
Bandaríkjamenn og Egyptar að
flytja heri sína frá Saudi-Arabíu.
Bandaríkjastjórn vísaði tillögun-
um þegar á bug. Marlin Fitzwat-
er, talsmaður stjórnarinnar,
skýrði frá því að furstinn af Kú-
væt hefði beðið Bandaríkjamenn
að sjá til þess að efnahagslegum
refsiaðgerðum Sameinuðu þjóð-
anna gegn Irak yrði framfylgt.
Orðið yrði við beiðninni, að sögn
Fitzwaters. Fyrr á sunnudag
hvatti Saddam Hussein landa sína
til að herða sultarólina. Hann
beindi máli sínu einkum til
kvenna, bað þær að gefa fjölskyld-
um sinum helmingi minni mat en
tíðkast hefur og láta fötin duga
lengur; þannig yrði hægt að lifa
af efnahagslegar refsiaðgerðir.
Hann hét landsmönnum sigri. „III-
mennin munu iðrast gerða sinna
þegar búið verður að reka þá á
brott og bölvun Guðs mun leggja
þá í einelti."
Hussein sagði í ræðu sinni, þar
sem hann kynnti friðartillögumar,
að Bandaríkjamenn hefðu tapað ráði
og rænu er Irakar og Kúvætar hefðu
ákveðið að lagfæra það sem breska
nýlendustjórnin hefði skaðað; Kúvæt
hefði verið hluti íraks fyrir fyrri
heimsstyrjöld. Irakar hefðu aldrei
sætt sig við glæpi nýlenduveldanna.
„Vegna þess að neistinn, sem
kveikir stríðsbálið, mun brenna
marga og valda miklum hörmungum
.. . einnig til að heimsbyggðin og
einkum Vesturlandabúar megi vita
staðreyndir málsins, til að fletta ofan
af falsáróðri Bandaríkjamanna er
segjast vera að beijast fyrir réttind-
um þjóðanna og friði, legg ég til að
öll hernámsmál, eða atburðir sem
kallaðir eru hemám, verði leyst á
þeim grundvelii sem öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna hefur samþykkt.
1. Gerðar verði ráðstafanir, í sam-
ræmi við ákveðnar grundvallarregl-
ur, til skilyrðislauss brottflutnings
herja, Israels frá hernumdu svæðun-
um í Palestínu, Sýrlandi og Líbanon,
brottflutnings sýrlenskra herja frá
Líbanon, gagnkvæman brottflutning
íraskra og íranskra heija frá löndun-
um tveim, auk þess sem samið verði
um lausn á Kúvæt-málinu.
Brottflutningur herjanna fari fram
eftir samræmdum reglum og sam-
kvæmt áætlun er taki tillit til sögu-
legs réttar íraka til lands síns og
ákvörðunar kúvæsku þjóðarinnar.“
Byrjað verði á ísrael
Hussein hélt áfram: „Heljast skal
handa þar sem fyrst var um hernám
að ræða ... og jafnframt hrinda í
framkvæmd öllum samþykktum ör-
yggisráðsins og Sameinuðu þjóðanna
um áðurnefnd mál þar til komið er
að hinu síðasta [innlimun Kúvæts í
írak]. Beita skal þau ríki, er ekki
hlíta skilmálunum, sömu refsingum
og öryggisráðið samþykkti gegn ír-
ak.
2. Til þess að heimsbyggðin geti
sjálf dæmt um málavexti... án
þrýstings af hálfu Bandaríkjamanna,
hvetjum við ti) þess að þegar í stað
verði herlið Bandaríkjamanna og
annarra ríkja, er tekið hafa þátt í
samsæri ráðamanna í Saudi-Arabíu,
kvatt frá landinu. í staðinn komi
herlið arabaríkja og verði stærð þess,
þjóðemi liðsmanna, verkefni og stað-
setning milli íraks og Saudi-Arabíu
ákveðin af öryggisráðinu og fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna
í sameiningu. Engir hermenn verði
frá Egyptalandi af því að Bandaríkja-
menn hafa notað það ríki eins og
hækju í samsæri sínu gegn þjóð
araba.
3. Þegar í stað verði allar sam-
þykktir um refsiaðgerðir og við-
skiptabann á írak afturkallaðar og
eðlileg samskipti hafin á ný. Slíkum
aðgerðum verði aðeins beitt gegn
þeim sem bijóta í bága við áður-
nefndar tillögur."
Viðbrögð í Jórdaníu
„Þið getið afgreitt þetta sem rugl
og vitleysu en fyrir okkur er þetta
eins og draumur, að okkar dómi er
þetta hin endanlega og eina við-
sættanlega lausn á málefnum þessa
heimshluta." Þetta virtust á mánu-
dagsmorgun vera fyrstu viðbrögð í
Jórdaníu við ræðu Saddams Husseins
íraksforseta á sunnudagskvöld. Svo
getur farið að sum arabaríki, sem
hugleiddu að senda hersveitir til
Saudi-Arabíu, haldi að sér höndum
til að byjja með.
Hvað sem líður neikvæðum við-
brögðum Bandaríkjastjórnar eru
margir Jórdanir á því að þetta út-
spil Saddams hafi verið klókindalegt
og setji t.d. Egypta í erfiða stoðu.
Það fór raunar eins og eldur í sinu
um höfuðborg Jórdaníu, Amman, í
gær að Hosni Mubarak Egyptalands-
forseti hefði verið myríur. „Æ, þetta
er áreiðanlega of gott til að geta
verið satt,“ sagði embættismaður í
ráðuneyti, „enda veit ég ekki til ann-
ars en Mubarak sé í fullu fjöri.“
Fjöldi útlendinga fær
að yfirgefa Kúvæt
Ruweished, Jórdaníu. Reuter.
UNDANFARNA daga liafa inörg [ . ...juwb ■■■> I
þúsund útlendingar fengið að fara
frá Kúvæt í gegnum Irak til Jórd-
aníu. Stjórnvöld í Irak sögðu á
sunnudag að allir útlendingar i
Irak og Kúvæt væru vel á sig
komnir. Allir útlendingar i Kúvæt
gætu yfirgefið landið ef þeir vildu.
Ekki var minnst á útlendinga í
írak. I gær stöðvuðu írakar
straum Kúvæta yfir til Saudi-
Arabíu.
Á laugardag komu 11 Bandaríkja-
menn sem verið höfðu í sendiráðinu
í Bagdad, 144 japanskir ferðamenn,
50 Filippseyingar, fímm austur-
þýskir stjómarerindrekar og nokkrir
aðrir af ýmsu þjóðerni til Jórdaníu
frájrak.
Á sunnudag komu 83 Filippsey-
ingar, 44 Júgóslavar, 22 Indverjar,
20 Pakistanar, 22 Chilebúar, 16
Brasilíumenn, 15 Tyrkir, 15 Thai-
lendingar, 11 Kenýubúar, níu Sri
Lankabúar, einn Indónesi, einn
Suður-Afríkumaður, einn Ghana-
maður, einn Pólverji, einn Argentínu-
maður og einn Japani til Jórdaníu
frá írak.
í gær komu um það bil 3.000 ara-
bar og 77 aðrir útlendingar til Jórd-
aníu frá Irak. Þar af voru 49 Filipps-
eyingar, 15 Indvetjar og 13 Pólvetj-
ar. Búist var við 493 Filippseyingum
seinna í gær. Þar var einkum um
að ræða eiginkonur og börn manna
sem starfa í Kúvæt.
Vesturlandabúar sem flúðu frá
Kúvæt til Saudi-Arabaíu á laugardag
sögðu að Breti sem var með þeitþ í j
Reuter
Penelope Nabokov, tíu ára gömul
stúlka frá Bandaríkjunum, fékk
að fara frá írak til Jórdaníu um
helgina. Hún hafði orðið innlyksa
í Kúvæt og írak frá því innrásin
var gerð 2. ágúst. Foreldra sína
hitti Penelope ekki fyrr en í
París og urðu þar að vonum mikl-
ir fagnaðarfundir,
för hefði verið skotinn nærri landa-
mærunum. Ekki er ljóst hvort hann
iifði af. Bresk stjórnvöld hafa sent
írökum harðorð mótmæli vegna skot-
árásarinnar.