Morgunblaðið - 14.08.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
27
Ráðstefna um bók og bílæti
DAGANA 13.-17. ágúst nk. verður
haldið í Reykjavík norrænt mynd-
fræðilegt málþing, hið 12. í röð-
inni.
Frá árinu 1968 hafa myndfræði-
leg málþing verið haldin annað hvert
ár til skiptis á Norðurlöndum utan
Islands. Nú þótti hinsvegar æskilegt
að þingið yrði haldið hér á landi,
enda hafa Íslendingar upp á ýmis-
legt forvitnilegt að bjóða á þessu
sviði, þar sem er íslensku handritin
í Stofnun Árna Magnússonar og
merkir kirkjugripir, íslenskir og er-
lendir, í Þjóðminjasafni íslands og
íslenskum kirkjum. Með þetta í huga
var málþinginu valið nafnið Bók og
bílæti.
Þátttaka í málþingum. þessum
hefur frá upphafi verið takmörkuð
og þá einvörðungu við sérfræðinga
sem fást við myndfræðilegar rann-
sóknir og rannsóknir er tengjast
þeim. Svo er einnig að þessu sinni.
En þar eð ástæða er til að ætla að
fleiri en tök voru á að bjóða til ráð-
stefnunnar hefðu áhuga á að hlýða
á fyrirlestra þá sem fluttir verða,
hefur verið ákveðið að þeir verði
opnir almenningi til áheyrnar. Mál-
þingið verður haldið í stofu 101 í
Odda, húsi félagsvísindadeildar Há-
skóla íslands. Fyrirlestrarnir ei-u alls
fimmtán og verða fluttir ýmist á
dönsku, norsku eða sænsku.
(Frcttatilkyiming)
■ HELGINA 25.-26. ágúst
áformar Hið íslenska náttúru-
fræðifélag að efna til ferðar upp
að Húsafelli og gista þar eina nótt.
Á Húsafelli verða skoðaðar jarð-
myndanir í Húsafellseldstöðinni.
Margt fleira er þar markvert að sjá.
Aðalleiðsögumaður verður Kristján
Sæmundsson, jarðfræðingur sem
gjörþekkir þessi svæði. Lagt verður
af stað frá Reykjavík klukkan 9 á
laugardag og ekið um Hvalíjörð og
Borgarfjörð, en síðdegis á sunnu-
dag haldið heim um Kaldadal og
Þingvelli. Fjöldi þátttakenda er tak-
markaður við hundrað manns. Öllum
er heimil þátttaka, en nauðsynlegt
er að skrá sig í ferðina fyrir 21.
ágúst. _______ ■
Leiðrétting-
í greininni „Gott framboð af nýju
íslensku grænmeti", sem birtist í
blaðinu sl. föstudag, var ranglega
haft eftir mér hvernig geyma ætti
kryddjurtir. Þar stóð: „Kryddjurtir
má geyma í litlum krukkum í kæli-
skáp og bæta örlitlu rotvarnarefni
saman við.“ Þarna átti að standa:
„Kryddjurtir má geyma í olíu í litlum
krukkum í kæliskáp. Bæta þarf ör-
litlu rotvamarefni saman við.“ Þetta
á einkar vel við dill.
.Kristín Gestsdóttir.
ATVINNU AUGL YSINGAR
Rafmagns-
tæknifræðingur
Rafmagnstæknifræðingur af sterkstraums-
braut óskar eftir framtíðarstarfi. Hefur
sveinspróf í rafvirkjun og haldgóða reynslu.
Nánari upplýsingar í síma 31741.
Stýrimaður
1. stýrimann vantar á 200 lesta línubát frá
Vestfjörðum.
Upplýsingar í síma 94-1200.
Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Stundakennara vantar í dönsku og líffræði
við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Upplýsingar á skrifstofu skólans í síma
75600.
Skólameistari.
Frá Æfingaskóla KHÍ
Umsjónarkennara vantar í 8. bekk með
áherslu á stærðfræði og líffræði. Einnig vant-
ar sérkennara í fullt starf.
Upplýsingar í símum 91-84566 og 92-46519.
Skólastjóri.
Holtaskóli, Keflavík
Kennara vantar næsta skólaár. Kennslu-
greinar: Líffræði, stærðfræði, sérkennsla.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
92-15597.
Skólastjóri.
Dönskukennarar
Dönskukennara vantar að Garðaskóla næsta
vetur í hálft til heilt starf.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans
í síma 44466.
Skólafulltrúi Garðabæjar.
Lagerstörf
Hagkaup vill ráða starfsfólk til almennra
lagerstarfa á eftirtöldum stöðum:
Matvörulager, Suðurhrauni 1, Garðabæ.
Upplýsingar um starfið veitir lagerstjóri í
síma 652640.
Sérvörulager, Skeifunni 15.
Upplýsingar um starfið veitir lagerstjóri á
staðnum.
HAGKAUP
Kennarar
Kennara vantar að Hafralækjarskóla í Aðal-
dal. Almenn kennsla og kennsla yngri barna.
Ódýrt húsnæði á staðnum.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma
96-43581.
Barnapössun
Óskum eftir eldri manneskju til að koma
heim og gæta tveggja barna og vinna létt
heimilisstörf á morgnana í vetur.
Upplýsingar í síma 18458.
Hjúkrunarfræðingar
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa
á komandi hausti. Annars vegar í vaktavinnu,
hins vegar til sérverkefna á sviði fræðslu og
ráðgjafar. Mikilvægt að viðkomandi hafi áhuga
á náttúrulækningum. Framhaldsmenntun
æskileg. Heilsufæði og gott húsnæði á
staðnum.
Upplýsingar gefur Hrönn Jónsdóttir hjúkrunar-
forstjóri alla virka daga, nema mánudaga, frá
kl. 08.00-18.00 í síma 98-30333.
Á Þingeyri við Dýrafjörð
vantar okkur kennara
Ef þú, sem lest þessa auglýsingu, hefur
áhuga á að setjast að úti á landi, á snyrtileg-
um stað í fallegu umhverfi, þá ættir þú að
hafa samband við okkur.
Staðurinn hefur upp á margt að bjóða: Næga
atvinnu, fjörugt félagslíf, gott dagvistarheim-
ili og vinalegt fólk.
Við leitum að þremur kennurum við almenna
kennslu. Mjög gott húsnæði til staðar. Flutn-
ingskostnaður greiddur. Þetta með húsaleig-
una, henni stillum við í hóf.
Því ekki að hafa samband.
Hallgrímur Sveinsson, skólastjóri, sími
94-8260 og J. Andrés Guðmundsson, skóla-
nefndarformaður, símar 94-8272 og
94-8200.
Kennarar
Kennara vantar við Grunnskólann á Hellu.
Aðalkennslugrein íslenska.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 98-75943
og formaður skólanefndar í síma 98-78452.
Trésmiðir
Fyrirtækið er umsvifamikill og rótgróinn
byggingaverktaki í Reykjavík.
Störfin eru aðallega uppsteypuverkefni.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með
húsasmiðaréttindi.
Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst nk.
Viðkomandi þyrftu að geta hafið störf sem
allra fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Atleysmga- og ráðnmgaþjónusta
Liósauki hf. tg£
^kólavördustig /a — 101 Reykjavik — Simi 6213
Sölufólk
Áhugasamt og vandvirkt sölufólk óskast til
starfa fyrir bókina íslensk fyrirtæki frá 20.08
til 31.10. 1990.
Upplýsingar um starfið veitir Hanna Eyvinds-
dóttir dagana 14., 15. og 16. ágúst í síma
82300.
FRÓÐI
BÓKA & BLAOAÚTGÁFA
Aðalskrifstofur: Ármúla 18, 108 Reykjavík,
sími 82300.
Starfskraftur óskast tii starfa í þvottahús.
Upplýsingar í síma 26222 fyrir hádegi.
Þvottahús
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
4^
Kennarar athugið
Kennara vantar að Heppuskóla, Höfn. Aðal-
kennslugrein enska í 8.-10. bekk.
Ódýrt húsnæði, góðir tekjumöguleikar og
ýmiss hlunnindi.
Upplýsingar í síma 97-81321.
Skólastjóri.