Morgunblaðið - 14.08.1990, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
Kristín Ottós-'
dóttir - Minning
Fædd 7. apríl 1929
Dáin 3. ágúst 1990
Stína er dáin. Mig setti hljóða
þegar mér var. sagt það, þó vissi ég
að það kæmi að þessu fyrr eða síðar.
Hún var hetja í sínum veikindum.
Margs er að minnast og margt er
að þakka. Ég get sagt að aldrei hef-
ur borið skugga á okkar kynni frá
bamæsku til fullorðinsára. Þegar við
vorum litlar telpur ólumst við upp í
litla þorpinu okkar, Eyrarbakka. Oft
vorum við lengi úr skólanum því
ijaran á Bakkanum var svo freist-
andi fyrir okkur. Þá komum við
stundum seint heim, það voru oft
Blómastofa
FriÖfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
m
fallegar skeljar og glerbrot sem við
fundum í búið okkar, en þegar heim
kom sýndum við mæðrum okkar
hvað við vorum með, ljómandi af
ánægju.
Stína var góð við.þá sem áttu
bágt eða voru lasnir. Ég var oft las-
in, lítil telpa og þá koma Stíná mín
í heimsókn og sat hjá mér heldur en
að hlaupa úti með hinum telpunum
og spurði: „Ertu mikið lasin, elsk-
an?“ Svona var hún Stína alltaf ljúf
og góð. Við lékum okkur mikið sam-
an. Oft var henni kalt á höndunum
og þá skipti ég við hana á vettling-
um, ég var svo heit á höndunum.
Blíðan og þakklætið sem ég fékk
gleymist aldrei. Svona var Stína mín,
ætíð þakklát.
Við vorum fimm vinkonur sem
hittumst alltaf einu sinni á ári eftir
að við eignuðumst okkar fjölskyldur
og þá var kátt og hlegið dátt. Tíminn
flaug frá okkur áður en við vissum
af. Það var brosað að okkur stelpun-
um þegar við komum með upphróp-
un, „stelpur", á eldri árunum, auðvit-
að vorum við að rifja upp gamla
daga á Bakkanum. En nú eru þær
Inga og Stína báðar farnar frá okkur
hinum stelpunum og er það mikið
skarð í hópinn okkar. Stína og Inga
eru fæddar í sama mánuði sinn dag-
inn hvor og ekki var lengra á milli
þeirra en 23 dagar þegar kallið kom.
Ég þakka þessum vinkonum mínum
fyrir liðna tíð.
Guð geymi þær og blessi. Guð
styrki þig og þína fjölskyldu, Haukur
minn.
Hinstu kveðjur,
Palla
Ég vildi óska þess að ég gæti
þakkað ömmu minni fyrir hversu
mikið ljúf og góð hún var við mig
og frænku mína. Amma var alltaf
svo glöð þegar hún tók á móti okkur
þegar við komum í heimsókn. Heima
hjá ömmu og afa var eins og annað
heimili okkar. Ég vona að ömmu líði
vel hjá guði. Ég mun aldrei gleyma
ömmu svo lengi sem ég lifi.
Ilaukur og Kristín
Mig langar til að minnast í örfáum
orðum tengdamóður minnar, Kristín-
ar Ottósdóttur. Hún fæddist á Eyrar-
bakka í Stíghúsi og var dóttir Maríu
Halldórsdóttur, saumakonuj og Ottós
Guðjónssonar, klæðskera. I Stíghúsi
ólst hún upp hjá móður sinni og
móðurbróður, Guðmundi Halldórs-
syni, úrsmið. Þar átti hún góða æsku-
daga, þar sem hún kynntist söng og
tónlist hjá móður sinni og frænda.
Sjálf var hún mjög tónelsk og tók
virkan þátt í tónlistarlífi bæjarins. Á
Eyrarbakka kynntist hún fyrri eigin-
manni sínum, Sigurði Pálssyni, og
saman eignuðust þau eina dóttur,
Maríu. Þau slitu samvistum og
Kristín fluttist til Reykjavíkur þar
sem hún fór í Húsmæðraskóla
Reykjavíkur.
I Reykjavík giftist Kristín seinni
manni sínum, Hauki Þorsteinssyni,
rafvirkjameistara, og saman eignuð-
ust þau Þorstein og Valgerði. Kristín
og Haukur byggðu tvíbýlishús með
æskuvinkonu Kristínar, Ingibjörgu
Sigvaldadóttur, sem er nýlátin, og
manni hennar, Einari Þoi-varðarsyni,
á Bjarnhólastíg 17, Kópavogi, þar
sem þau bjuggu í sautján ár. Þá
reistu Kristín og Haukur sér einbýlis-
hús í Vogalandi 7 í Fossvogi, þar sem
hún bjó til æviloka. Heimili þeirra
Kristínar og Hauks var alltaf opið
þeim sem þangað leituðu. Hlýjan sem
þaðan stafaði var einkennandi fyrir
þau bæði. Framan af var Kristín
heimavinnandi húsmóðir, en síðari
árin vann hún við verslunarstörf hjá
tískuversluninni Faco og ritfanga-
versluninni Griffli. Hún sinnti störf-
um sínum utan heimilis sem innan
af mikilli alúð og hlýju.
Ég á Kristínu margt að þakka,
þar á meðal konuna mína, Maríu.
Kristín var mér ávallt sem besta
móðir og vinur. Við áttum margar
góðar stundir saman vegna sameig-
inlegra áhugamála, en þó er mér
sérstaklega minnisstætt hversu
skilningsrík og góður hlustandi hún
ætíð var. Hún gat alltaf sett sig inn
í áhugamál og aðstæður annarra.
Kristín var einstaklega gjafmild og
fómfús. Hún gaf öðrum styrk alveg
til síðustu stundar.
Fyrir þremur árum, þegar sjúk-
dómur Kristínar uppgötvaðist,
kynntist ég enn betur styrk og þolin-
mæði hennar. Hun gerði allt sem í
hennar valdi stóð til að ná aftur
heilsu. Þegar henni varð ljóst að
hveiju stefndi þá sýndi hún einstakt
hugrekki og kjark við undirbúning
kveðjustundarinnar.
Það er mikil gjöf að hafa fengið
að kynnast Kristínu og að hafa þeg-
ið það veganesti sem mun endast
mér ævilangt.
Steinar Guðsteinsson
Það er ekki oft sem fólk kemur
manni á óvart með því að vera til,
en á þann hátt tókst Kristínu Ottós-
dóttur að koma mér á óvart. í fyrsta
skipti sem ég hitti þessa fallegu og
fáguðu konu varð mér starsýnna á
hana en góðu hófi gegndi og ég
undraðist hvað hún hafði fágætlega
milt og viðkunnanlegt fas. Og þetta
yfirborð lýsti vel því sem inni fyrir
þjó.
Kristín hélt áfram að koma á óvart
við meiri kynni. Það kom fram í stóru
og smáu að hún var engin hversdags-
manneskja. Húri bar sterka persónu
og var einstaklega vönduð til orðs
og æðis. Það var gott að vera ná-
lægt henni, því frá henni streymdi
skilningur og hlýja. Hún var ávallt
gefandi, jafnvel í hörðu veikind-
astríði sem hún háði með aðdáunar-
verðum viljastyrk ogþolgæði. Aðeins
hálfum mánuði áður en hún dó reis
hún af sjúkrabeði til þess að vera
við jarðarför bestu vinkonu sinnar
og var það átak óskiljanlegt, svo
veik sem hún var þá orðin.
Það var sérstök lífsreynsla að sjá
mann Kristínar og börn annast hana
heima af stakri elskusemi þar til
yfir lauk. Sálarþrekið sem þau eiga
í svo ríkum mæli og sem svo mjög
reyndi á í þessum þrengingum sækja
þau að nokkru leyti til Kristínar eins
og svo margt fleira. Þótt hún sé far-
in, allt of snemma, þá er það góða
sem hún gerði eftir hjá þeim sem
voru svo lánsamir að eiga hana að.
Steinunn Sigurðardóttir
Macintosh fyrir byrjendur
Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á
15 klst námskeiöi fyrir byrjendur! Fáiö senda námskrá. íó-
Gr, ^'*
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Grensásvegi 16 - fjögur ár í forystu
4
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
F É I. A G S S T A R F
Opinn
stjórnmálafundur
Heimdallur, félag
ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavjk,
og Baldur, félag
ungra sjálfstæðis-
manna á Seltjarnar-
nesi, efna til opins
stjórnmálafundar
með alþingismönn-
unum Inga Birni Al-
bertssyni og Hregg-
viði Jónssyni, næstkomandi þriðjudagskvöld. M.a. verður rætt eftir-
farandi:
1. Störf stjórnarandstöðunnar síðasta vetur.
2. Innganga frjálslyndra hægrimanna í Sjálfstæðisflokkinn.
3. Hvað er framundan í íslenskum stjórnmálum. Þraukar ríkisstjórn-
in út kjörtímabilið?
Fundurinn verður haldinn í kjallara Valhallar, Háaleitisbraut 1, og
hefst kl. 20.30 stundvislega. Allir velkomnir.
IIFIMIJAIIUR
F ■ U S
| HÚSNÆÐIÓSKAST
3ja herbergja íbúð
Óska eftir að taka stóra, rúmgóða 3ja her-
bergja íbúð á leigu sem fyrst. Meðmæli ef
óskað er.
Upplýsingar í síma 18052.
TIL SÖLU
Fjölbýiishúsalóð
Til sölu lóð undir fjölbýlishús í Smárahvammi
í Kópavogi. Leyfilegt er að byggja 17 íbúðir
á lóðinni. Lóðin verður byggingarhæf í haust.
Hagstæð greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 82300.
TILKYNNINGAR
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á
því, að eindagi launaskatts fyrir júlí er 15.
ágúst nk.
Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal
greiða dráttarvexti til viðbótar því sem van-
greitt er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll-
stjóra, og afhenda um leið launaskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Péiagslíf
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÓTU 3 S: 11798 19533
Síðustu sumarleyfis-
ferðir Ferðafélagsins
1. „Laugavegurinn" Göngu-
leiðin vinsæla milli Landmanna-
lauga og Þórsmerkur. Gist í skál-
um F.í. í Laugum, Hrafntinnu-
skeri, Álftavatni, Emstrum og í
Þórsmörk. Gönguferðirnar hefj-
ast á miðvikudagsmorgnum (5
daga gerðir) og föstudagskvöid-
um (6 daga ferðir) frá 6. júlí til
24. ágúst. Gönguleið sem allir
ættu að kynnast. Veljið ykkur
ferð táimanlega, margar eru að
fyllast nú þegar.
Næstu ferðir:
a. 15.-19. ágúst (5 dagar)
Þórsmörk - Landmannalaugar.
b. 17.-22. ágúst (6 dagar)
Landmannalaugar - Þórsmörk.
c. 22.-26. ágúst (5 dagar)
Landmannalaugar - Þórsmörk.
d. 24.-29. ágúst (6 dagar)
Landmannalaugar - Þórsmörk.
2. 17.-19. ágúst (3 dagar).
Núpsstaðarskógar. Tjaldað við
skóganna. Gönguferðir um þetta
margrómaöa svæði m.a. að
Tvílitahyl, Súlutindurn og viðar.
3. 23.-26. ágúst (4 dagar).
Þingvellir - Hlöðuvellir - Haga-
vatn. Gengið á þremur dögum
frá Þingvöllum um Skjaldþreið
og Hlöðuvelli að Hagavatni. Bak-
pokaferð.
4. 30,ág.-2. sept. (4 dagar)
Milli Hvítár og Þjórsár. Ökuferð
með gönguferðum um afrétti
Gnúpverja- og Hrunamanna.
Leppistungur, Kerlingargljúfur,
Gljúfurleit. Nýjar og spennandi
leiðir. Svefnpokagisting. Farar-
stjóri: Kristján M. Baldursson.
Upplýsingar og farmiðar á skrif-
stofunni, Öldugötu 3, símar:
19533 og 11798. Pantið tíman-
lega. Verið velkomin!
Missið ekki af sumrinu í
Þórsmörk!
Sumardvöl í Langadal svíkur
engann.
Kynnið ykkur tilboðsverð á dvöl
I Skagfjörðskála t.d. frá sunnu-
degi til miðvikudags eða föstu-
dags, frá miðvikudegi til föstu-
dags eða sunnudags. Gistiað-
staðan er hvergi betri. Pantið
tímanlega.
Ferðafélag íslands.
Þar sem jökulinn ber við loft
2. skoðunarferð helgina
17.-19. ágúst.
Snæfellsnes
Fjölbreytt ferð um áhugaverða
staði undir Jökli. M.a. skoðaðir
hellar, eldstöðvar og fornar og
nýjar verstöðvar. Staðkunnugur
leiðsögumaður. Einstakt tæki-
færi til að fræðast um þið fjöl-
breytta og mikilfengna umhverfi
á Snæfellsnesi.
Upplýsingar og pantanir í síma
93-66825.
Gistih. Gimli, Veitingast. Sjólist,
Hellíssandi.
FERÐAFELAG
(# ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Dagsferðir Ferðafélags-
ins miðvikudag 15/8
Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð.
Ath. að ferðir á miðvikudögum
verða út ágúst. Ath. verð á dvöl
og ferðatilhögun. Sumarleyfi hjá
Ferðafélaginu í Þórsmörk er
mörgum eftirminnilegt.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin.
Kl. 20.00 - Viðey - kvöldferð.
Gönguferð um eyjuna.
Brottför frá Sundahöfn.
Ferðafélag íslands.
ÝMISLEGT
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund
þriðjudaginn 14. ágúst kl. 20.30
í Skútunni, Dalshrauni 14, Hafn-
arfirði. Húsið opnað kl. 19.30.
Miðar seldir við innganginn.
Hugvitsmaður
með stórt mál, innanlands og til
útflutnings, óskar eftir 1-2 fé-
lögum með nokkra peninga.
Samnorræntfyrirtæki I sjónmáli.
Bréf sendist auglýsingadeild
Mbl. merkt: „Tækifæri - 4151