Morgunblaðið - 14.08.1990, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
dóu eftir að við höfðum gef-
ið þeim þetta nýja duft, en
þær virtust glaðbeittar ...
Það skiptir ekki máli, en þú
gjörir svo vel að galdra
mömmu hingað heim aftur
— á stundinni.
Stúlkurnar eiga minn-
ingar um lítið ævintýri
t
Til Velvakanda.
Eg get nú ekki orða bundist
yfir því hneykslunarfári sem varð
þegar ítalska skipið San Giorgio
lagði hér við Reykjavíkurhöfn. Eg
skil ekkert í þessu fólki sem
hneykslast á ungum íslenskum
stúlkum sem heillast af ítölskum
myndarlegum dátum, eins og mað-
ur hefur heyrt í útvarpinu og séð
í sjónvarpinu síðustu daga. Svo
var verið að tala um að íslensku
piltarnir væru sármóðgaðir. Hvað
myndu þeir nú gera ef hingað til
lands kæmi „húsmæðraskólaskip“
fullt af fallegum útlenskum stúlk-
um. Ætli þeir myndu ekki skvera
sig upp, fara í sparifötin og niður
í bæ. Hver myndi þá hneykslast,
fussa og sveija og minnast á laus-
læti. Jafnréttið er bara ekki komið
lengra en þetta.
Mér þykir það ekkert undrunar-
efni þó stúlkurnar heillist af þess-
Þessir hringdu . .
Hvetja fólk til að Iæsa
útidyrum
Björg hringdi:
„Mér finnst rétt að hvetja fólk
á höfuðborgarsvæðinu til að læsa
útidyrum á heimilum sínum. Hér
áður fyrr þótti ekkert tiltökumál
að skilja útidyrnar eftir opnar en
með breyttum lífsháttum borg-
arbúa og aukinni glæpatíðni virð-
ist sem þurfi að brýna fyrir fólki
að læsa dyrum sínum. Þetta sann-
ast á atburðum sem átt hafa sér
stað að undanförnu.“
Fann sundtösku
Hvít og blá sundtaska fannst í
Húsafelli í lok júlí. Eigandi getur
hringt í síma 71196.
um ungu mönnum, þeir koma vel
fyrir og eru hinir huggulegustu
að sjá. Islensku piltarnir ættu að
taka þessa ungu ítölsku pilta sér
til fyrirmyndar, og eins og kom
fram í viðtali við tvo þeirra í sjón-
varpinu eitt kvöldið ráðlögðu þeir
íslenskum piltum að veita stúlkun-
um meiri athygli og vera betri við
þær. En í þessari umfjöllun þar
sem rætt var við tvo ítalska pilta,
lögreglumann og vaktmann, allt
karlmenn, var ekki haft fyrir því
að ræða við stúlkurnar. Hvar var
álit þeirra, af hveiju var ekki rætt
við þær? Þetta kallast ekki hlut-
laus umfjöllun, stúlkurnar svertar
en enginn til að svara fyrir það.
Og þegar hugsað er til ástands-
áranna hér á árum áður held ég
að engan undri þó íslensku mey-
jarnar hafi þá heillast af fallegu
búningunum og kurteislegri fram-
komu þegar „bærinn var fullur af
Köttur í óskilum
Ógeltur fressköttur er í óskilum
neðst í Teigahverfinu. Hann er
bröndóttur á bakinu, hvítur að
neðan og upp á háls og með hvítan
þríhyrning í framan. Þeir sem
kannast við köttinn eru beðnir að
hringja í síma 37671.
Jósefína týnd
Sjö ára gömul síamslæða sem
heitir Jósefína týndist frá heimili
sínu á Grettisgötu. Þetta er heim-
ilisköttur sem aldrei hefur farið
út fyrir hússins dyr, er mannfæl-
inn og stygg við fólk. Læðan er
drapplituð með brún eyru, nef,
skott og fætur. Þeir sem hafa
orðið hennar varir eru beðnir að
hringja í Hrafnhildi í síma 29156
eða 636410.
Vantar heimili fyrir kött
Heimili vantar fyrir hvítan 9
mánaða fresskött. Upplýsingar í
síma 72247 eða 676958.
útlendum her“. Einnig þá urðu
hérlendir sármóðgaðir yfir því að
útlendingarnir fengu meiri athygli
en þeir sjálfir. íslenskir karlmenn
hafa nú aldrei haft á sér það orð-
spor að þeir séu „séntilmenn“ en
slíkt heillar allar stúlkur, hvort
sem þær eru á unga aldri eða
komnar á efri ár.
Smá kossar og leiðast hönd í
hönd getur varla talist alvarlegt.
Þegar svo skipið siglir úr höfn eiga
stúlkurnar minningar um lítið
ævintýri þegar þær kynntust
myndarlegum dáta í stuttan tíma.
Guðrún J.
Þakkir fyrir
vinsamlegt
viðmót
Til Velvakanda.
Mig langar til að koma á fram-
færi þakklæti og kveðjum til fólks-
ins sem starfar hjá skrifstofum
Reykjavíkurborgar fyrir frábæra
hjálp og vinsamlegt viðmót. Ég
átti erindi þangað en ég er eldri
kona sem sé lítið og var fólkið
mjög vinsamlegt og hjálplegt.
Guðný Jónsdóttir Bieltvedt.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkveiji skrifar
Fyrir nokkru var að því vikið hér
í Víkveija, að viðmót þjón
ustuaðila á landsbyggðinni við
ferðamenn væri afar mismunandi.
Sums staðar er þjónusta frábær,
annars staðar afleit. Víkveiji var á
ferð um verzlunarmannahelgi í
Þjórsárdal og kom að benzín- og
sælgætissölu á þeirri leið um kl.
21.00. Þá brá svo við, að búið var
að loka þessari þjónustumiðstöð svo
snemma kvölds um mestu ferða-
heigi ársins! Afgreiðslumaðurinn
var að vísu enn á staðnum en þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir starfs-
stúlkna á nærliggjandi veitingastað
var hann ófáanlegur til þess að
veita ferðamanni smávægiiega
þjónustu, sem hefði tekið hann
nokkrar mínútur. Þeir, sem þannig
standa að rekstri þurfa ekki á við-
skiptamönnum að halda!
xxx
Þeir, sem unna óbyggðum lands-
ins hafa lengi haft áhyggjur
. mUMUIMktltlllftlflltllllllf
af vaxandi ferðamannastraumi um
þær slóðir. Víkveiji var fyrir
skömmu á ferð í Landmannalaug-
um. Þar var mikill fjöldi fólks, fyrst
og fremst erlendir ferðamenn í hóp-
ferðum á vegum ferðaskrifstofa.
Það fer ekkert á milli mála, að of
mikið af fólki fer um þetta svæði.
Það er byijað að bera þess merki,
að þola ekki þennan mikla ágang.
Nú er svo komið, að umhverfi sælu-
húss og tjaldstæða er orðið heldur
leiðinlegt, þótt alls ekki sé um sóða-
skap að ræða. Það er einfaldlega
of margt fólk þarna á ferð. Veruleg
hætta er á, að vinsælustu áfanga-
staðir í óbyggðum verði fyrir spjöll-
umaf þessum sökum á næstu árum.
Hér þarf að grípa til varnarað-
gerða: í fyrsta lagi á alls ekki að
gera óbyggðir landsins aðgengilegri
fólki en þær eru nú t.d. með brú-
arsmíði. Þvert á móti er full ástæða
til, að þeir, sem ferðast vilja um
þessi svæði þurfi töluvert fyrir því
að hafa. í annan stað má spyrja,
ÍlllltiillStlllllÍCIIIIIIIIIIiðlS
hvort það sé sjálfsagt mál, að inn-
lendar og erlendar ferðaskrifstofur
flytji erlenda ferðamenn inn í landið
í stórum stíl og valdi slíkum ágangi
um þessi stórkostlegu landsvæði,
að landspjöll hljótist af. Loks er
ástæða til að benda forráðamönnum
ferðamála á, að það er full ástæða
til að dreifa ferðamannastraumnum
meira um landið, svo að álagið verði
jafnara og minni hætta á spjöllum.
x x x
Um helgina lenti bandarísk far-
þegaflugvél með tæpa eitt
hundrað farþega á Keflavíkurflug-
velli eftir að bilun hafði orðið í öðr-
um hreyfli vélarinnar á leið yfir
Atlantsbafið. Oneitanlega vekja at-
burðir af þessu tagi upp spurningar
hjá hinum almenna flugfarþega um
öryggi í flugi á þessari leið með
tveggja hreyfla vélum - hvað svo
sem sérfræðingar segja um það.