Morgunblaðið - 14.08.1990, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
Yinna hófst í gærmorgun hjá
JHraðfrystihúsi Eskifjarðar
Eskifirði.
VINNA hófst í gærmorgun í
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf.
en því var lokað 13. júlí sl. vegna
sumarleyfa starfsfólks. Ekki lá
þó öll vinnan niðri hjá Hrað-
frystihúsinu. Tekið var við afla
af trillum hjá saltfiskverkun og
eins var unnið á vöktum í rækju-
verksmiðju hraðfrystihússins.
Annar togari Hraðfrystihússins,
Hólmatindur, var málaður í stopp-
inu, það varð til þess að skólafólk
sem illa mátti við því að taka sér
frí á þessum tíma fékk vinnu.
Aflinn sem byijað var að vinna
í morgun er af Hólmanesi SU 1,
en það kom með 180 tonn eftir 9
daga veiðiferð. Af aflanum voru
120 tonn þorskur en afgangurinn
karfi og ufsi.
Fram kom hjá Benedikt Jóhann-
essyni verkstjóra í Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar að það vantaði fólk til
starfa í snyrtingu og pökkun. Þar
sem verbúð Hraðfrystihússins er
lokuð verður aðkomufólk sem
kemur til vinnu að útvega sér
húsnæði sjálft.
Samkvæmt upplýsingum Emils
Thorarensen útgerðarstjóra þá er
farið að ganga á kvóta skipa Hrað-
frystihússins. Togararnir eru á
sóknarmarki, en með kvóta á
þorski, grálúðu og karfa.
Hólmanes á eftir 330 tonn af
þorski, 489 tonn af karfa og 209
tonn af grálúðu.
Hómatindur á eftir 337 tonn
af þorski, 372 tonn af karfa og
218 tonn af grálúðu.
Jón Kjartansson kom til hafnar
um helgina eftir 12 daga veiðiferð
með 28 tonn af heilfrystum karfa
og grálúðu, þrátt fyrir trega veiði
í þessum túr þá mun skipið halda
áfram á sömu veiðum.
Hólmaborgin sem hélt til loðnu-
veiða 8. ágúst kom til hafnar á
sunnudagsmorgun án þess að hafa
fundið nokkra veiðanlega loðnu.
Skipið fer nú til rækjuveiða.
Guðrún Þorkelsdóttir sem verið
hefur á rækjuveiðum fer í slipp í
endaðann ágúst.
- HAJ
Kynningarfundur um
brunatækni á sjó
NORRÆN nefnd um brunapróf-
anir, „Nordtest brand“, heldur
fund sinn á íslandi dagana 16.
og 17. ágúst nk. í tengslum við
fundinn verður haldinn opinn
kynningarfundur þar sem sér-
staklega verður fjallað um
brunaprófanir og öryggiskröf-
ur vegna bruna í skipum og
mannvirkjum á hafinu.
Fyrirspurnir og umræður.
Fundurinn verður haldinn í ráð-
stefnusal rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins á Keldnaholti
og hefst fimmtudaginn 16. ágúst
klukkan 15. Reiknað er með að
fundurinn standi til klukkan 18.
(Fréttatilkynning)
Vitni óskast
Sl. sunnudagskvöld var ekið á
bifreið af gerðinni Audi 80 árg.
1987, þar sem hún stóð á bíla-
stæði við Sigtún á móts við safn
Asmundar Sveinssonar.
. Bifreiðin er nokkuð mikið
skemmd að aftan. Sá eða þeir sem
urðu valdir að tjóninu stungu af,
en grunur er um að bifreið af Dai-
hatsu-gerð, blá að lit, hafi valdið
tjóninu.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
eru beðnir að láta Slysarannsóknar-
deild lögreglunnar vita í síma
699000.
Dagskrá fundarins verður sem
hér segir: Guðni A. Jóhannesson,
prófessor við Tækniháskólann í
Stokkhólmi: Inngangur um nor-
ræna samvinnu á sviði brunapróf-
ana.
Ejnar Danö, yfirmaður bruna-
tæknideildar Dantest: Bruna-
tæknilegir eiginleikar byggingar-
hluta í skipum.
Ulf Wickström, prófessor og
yfirmaður brunatæknideildar
Statens Provningsanstalt í Borás:
Bruni í vélarrúmi.
Pentti Loikkanen, prófessor og
yfirmaður brunatæknideildar VTT
í Finnlandi: Brunatæknileg um-
fjöllun um efnisnotkun við innrétt-
ingar skipa.
Tónleikar
Ham í Duus
TÓNLEIKAR Hljómsveitarinn-
ar Ham, sem fyrirhugaðir voru
sl. fimmtudag féllu niður verða
veikinda. í kvöld verða tónleik-
arnir því haldnir í veitinga-
staðnum Duus í Fischerssundi
og verður húsið opnað kl. 22.00.
Auk Ham koma fram hljóm-
sveitirnar Sjálfsfróun og Sor-
oricide, líkt og fyrirhugað var sl.
fimmtudag, en að auki kemur
fram hljómsveitin Bootlegs.
ÚR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
10. -13. ágúst 1990.
Á laugardeginum um kl. 18:00
varð umferðarslys á Laugavegi
við Klapparstíg. Þar slasaðist
farþegi í bifreið. Á Tryggvagötu
við bensínstöð Esso var ekið á
umferðarmerki aðfaranótt
sunnudags og farþegi í bifreið-
inni slasaðist. Um hádegisbil á
sunnudeginum valt bifreið á
Grensásvegi við Breiðagerði.
Ökumaður hennar var fluttur á
slysadeild. Síðdegis sama dag
lenti ökumaður á bifhjóli í
árekstri á Reykjahlíð og Eskihlíð.
Hann var fluttur á slysadeild. Á
sunnudagskvöldið varð harður
árekstur á Vesturlandsvegi á
móts við Blikastaði. Þrennt var
flutt á slysadeild eftir það. Þar
að auki voru tilkynntir til lög-
reglunnar 22 árekstrar, en hafa
sjálfsagt verið fleiri.
5 ökumenn voru staðnir að
því að aka undir áhrifum áfeng-
is um helgina. Það eru nokkru
færra en venjulega og veit von-
andi á gott. Enn voru tveir öku-
menn staðnir að akstri þó öku-
réttindin vantaði.
í 95 skipti var lögreglan beðin
um aðstoð vegna ölvunar um
helgina. Þeir höfðu eitt og annað
til sakar unnið svo sem óspekt-
ir.áflog, líkamsmeiðingar,
skemmdarverk og nokkrir voru
ofurölvi. Af þessum 50 voru 5
leiddir fyrir dómara eftir veru í
fangageymslu og hlutu sektir.
18 manns báðu sjálfir um húsa-
skjól í Hverfisteini um helgina.
Skömmu eftir miðnætti á
laugardagskvöldið var ráðist á
bílstjóra á strætisvagni. Þetta
gerðist í Eddufelli í Breiðholti.
Nokkrir unglingar vildu komast
með strætisvagninum en var
meinað vegna óláta. Þá munu
þau hafa ráðist á hann. Bílstjór-
inn meiddist nokkuð og var flutt-
ur á slysadeild. Mál þetta er í
rannsókn hjá lögreglunni í
Reykjavik. Vitað er hveijir voru
þarna að verki og miðar rann-
sókninni vel.
13 innbrot voru framin um
helgina. Aðfaranótt laugardags
var brotist inn í þijú fyrirtæki á
Grandavegi, rótað til, skemmt
og stolið. Þá var brotist inn á
veitingastað á Seltjarnarnesi en
litlu eða engu stolið. Brotist var
inn í bifreið í Þingholtunum og
stolið hátölurum. Mjög mikið er
um að brotist sé inn í bifreiðar
til að stela útvörpum og slíku. Á
sunnudagsmorguninn var brotist
inn í kirkjuna á Seltjarnarnesi
og talsverðar skemmdir unnar.
Víðar komu þjófar við þó ekki
væri stolið eða skemmt.
Lögreglan lét flytja á brott 8
bifreiðar, sem hafði verið illa og
ólöglega lagt og sektaði eigendur
8 annarra fyrir sama.
49 ökumenn stóð lögreglan
að því að virða ekki reglur um
hámarkshraða og mega þeir bú-
ast við sektum, misháum eftir
hraða.
7 ökumenn virtu ekki rauða
ljósið á gatnamótum um helgina
og númer voru tekin af 10 bílum
vegna vanrækslu á aðalskoðun.
8 ökumenn fengu kærur fyrir
önnur umferðarlagabrot.
í 41 skipti hjálpaði lögreglan
fólki við að komast inn í læstar
bifreiðar og opnaði níu íbúðir.
Það er óþægilegt að gleyma lykl-
um að bílum eða íbúðum. Góður
siður að eiga tiltæka varalykla á
góðum stað.
Venjuleg helgi í Reykjavík
með umferðarslysum, árekstr-
um, innbrotum, þjófnuðum,
líkamsmeiðingum, skemmdar-
verkum, talsverðri ölvun og
fleiru miður góðu.
Hannes með stór-
meistaraáfanga
___________Skák
Margeir Pétursson
HANNES Hlífar Stefánsson
sigraði á opna alþjóðlega mót-
inu í Gausdal í Noregi sem lauk
á sunnudaginn og náði þar með
fyrsta áfanga sinum að stór-
meistaratitli. Hannes hlaut sjö
og hálfan vinning af níu mögu-
legum, hálfum vinningi meira
en gríski stórmeistarinn Kotr-
onias sem varð í öðru sæti. Sjö
vinninga þurfti til að ná áfanga
að stórmeistaratitli og hafði
Hannes þegar náð þeim fyrir
siðustu umferðina. Hann
tryggði sér síðan sigurinn á
mótinu með því að gera jafn-
tefli við sovézka stórmeistar-
ann Valery Cehov í síðustu
umferð.
Þetta er í fyrsta skipti síðan
1986 að íslenskur skákmaður nær
áfanga að stórmeistaratitli, að
stórmeisturunum sjálfum undan-
skildum. Þessi áfangi Hannesar
er sá eini sem alþjóðameistarar
okkar hafa náð. Til að verða stór-
meistari þarf að ná stórmeistara-
árangri á mótum sem eru samtals
24 skákir eða fleiri. Hannes á því
15 skákir eftir og verður að ná
a.m.k. einum áfanga á lokuðu
móti. Auk þess þarf hann að
hækka stigatölu sína upp í 2.500
stig.
Röð efstu manna varð þessi:
1. Hannes Hlífar Stefánsson 7 'A
v. 2. Kotronias, Grikklandi 7 v.
3.-6. Cehov, Kovalev og Juratsjev
(allir Sovétríkjunum) og Ernst
(Svíþjóð) 6 'k v. 7-16. Smirin og
Vladimirov (Sovétríkjunum),
Gausel og Östenstad (Noregi),
Reeh (V-Þýzkalandi), Lein
(Bandaríkjunum), Hector
(Svíþjóð), Jansa (Tékkóslóvakíu),
T. Kristensen (Danmörku) og
Kourkonakis (Grikklandi) 6 v.
Arnþór Sævar Einarsson, sem er
búsettur í Svíþjóð, hlaut 5 v. Þátt-
takendur á mótinu voru rúmlega
80 talsins, þar af sex stórmeistar-
ar og 21 aiþjóðlegur meistari.
Hannes tefldi á tveimur mótum
í röð í Gausdal. Á hinu fyrra gekk
honum illa, hann lenti í 23. sæti
með 5 v., en þeir Smirin, Vladim-
irov og Hector sigruðu með 7 v.
Seinna mótið fór heldur ekki
vel af stað. Hannes tapaði fyrstu
skákinni fyrir fremur lágt skrifuð-
um Svía, Carlhammar, með aðeins
2.260 stig, en vann síðan hvorki
meira né minna en sjö skákir í röð.
Það hefur lfklega ekki farið
fram hjá neinum sem fylgst hefur
með skák hér á landi undanfarin
þrjú til fjögur ár að Hannes hefur
sýnt að hann er til alls líklegur.
Hann hefur ekki sinnt öðru en
skákinni undanfarin misseri og
t.d. náð mjög góðum árángri í
keppnum Taflfélags Reykjavíkur
í Evrópukeppninni. Á hinu geysi-
sterka úrtökumóti stórmeistara-
sambandsins í Moskvu í fyrra var
hann mjög nálægt því að ná stór-
meistaraáfanga. Inn á milli hefur
Ilannes hins vegar verið mjög
mistækur, og eftir að hafa komist
upp í 2.480 stig á listanum 1.
júlí 1989 hefur hann lækkað um
60 stig. Fyrr í sumar gekk honum
líka fremur illa á tveimur mótum
sem haldin voru í Danmörku. En
þrátt fyrir þetta mótlæti hefur
hann engan bilbug látið á sér
finna.
Kyrrðin í fjallasalnum í Gaus-
dal er ekki við allra hæfi, flestir
jafnaldra Hannesar hefðu líklega
tekið gleði og glaum verzlunar-
mannahelgarinnar fram yfir. En
ef komast á áfram í skákinni þýð-
ir ekki að láta tvö aðgengileg
mót, sem gefa kost á stórmeist-
araáfanga, fram hjá sér fara.
Hannes hélt sínu striki og sér
ekki eftir því núna.
Það er sem fyrr Arnold J. Eikr-
em sem stendur fyrir opnu mótun-
um í Gausdal og heldur hann þar
yfirleitt fimm til sex alþjóðleg mót
á ári. Hann er íslenskum skák-
mönnum að góðu kunnur fyrir að
hafa verið skákstjóri á mörgum
alþjóðamótum hérlendis. Eikrem
sagði mér að árangur Hannesar
nú hefði minnt hann á framgöngu
Jóhanns Hjartarsonar í janúar
1984, en þá hafi Jóhann farið illa
á stað í fyrra mótinu, en fundið
sig vel í því seinna. Strax í fram-
haldi hafi hann síðan náð tveimur
stórmeistaraáföngum í röð á mót-
um heima á íslandi.
Þá sagði Eikrem að honum
hefði sýnst Arnþór Einarsson hafa
veitt Hannesi góðan stuðning á
seinna mótinu, stappað í hann
stálinu.
Við skulum nú líta á þá skák
sem Hannes taldi sína beztu á
mótinu. Þar á hann í höggi við
þaulreyndan búlgarskan stór-
meistara:
Hvítt: Ilannes Hlífar Stefáns-
son
Svart: Inkiov (Búlgaríu)
Slavnesk vörn
l.d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 -
d5 4. Rc3 — c6 5. Bg5 — dxc4
6. e4 - b5 7. e5 - h6 8. Bh4 -
g5 9. Rxg5
Hannes nýtur hér góðs af því
að margir íslenskir skákmenn
tefla þetta tvísýna afbrigði á
svart. Inkiov fer nú út á nokkuð
hálar brautir, algengast er 9. —
hxg5 10. Bxg5 — Rbd7, en hann
velur hið svonéfnda Alat-
ortsev-afbrigði.
10. - Rd5 10. Rxf7 - Dxh4 11.
Rxh8 - Bb4 12. a3!?
Þetta er nýr leikur í stöðunni,
en áður hefur hér verið leikið 12.
Dd2 og 12. Hcl. Það er hæpið
að leikurinn sé sterkari en þeir
gömlu, en hefur þann stóra kost
að andstæðingurinn verður strax
að fara að tefla frá eigin bijósti.
12. - Rxc3 13. Df3 - Dxd4 14.
Dh5+ - Kd8 15. axb4 - De4+?
Svartur sér fram á að vinna
riddarann á h8, en það reynist
of tímafrekt. Nauðsynlegt var 15.
— Rd5! því svartur getur svarað
16. Be2 með 16. — c3! og staðan
verður mjög óljós. Peðaflaumur
svarts á drottningarvæng ætti þá
að veita honum nægilegt mótvægi
fyrir skiptamuninn.
16. Be2 - Rxe2 17. Dxe2 - Dh7
18. Dd2+ - Kc7
Svartur varð að víkja kóngnum
undan því 18. — Rd7 og 18. —
Bd7 mátti báðum svara með 19.
Dxh6! 18. - Ke8 19. Dd6! -
Dxh8 20. Dc7 var greinilega engu
betra.
19. Dd6+ - Kb7 20. Hdl -
Dxh8 21. De7+ - Bd7 22. f4!
, Þetta var miklu sterkara en að
jafna liðsmuninn með því að leika
22. Hxd7+ - Rxd7 23. Dxd7+ -
Kb6 24. Dd4+ - Kb7. Eftir 25.
0-0 — Hd8 má svartur sæmilega
vel við una.
Þótt hvítur hafi nú aðeins hrók
fyrir biskup og riddara stendur
hann mjög vel að vígi, því menn
svarts á drottningarvængnum
flækjast fyrir hver öðrum.
22. - De8 23. Dg7 - Kc7 24.
0-0 - a5 25. f5! - axb4 26. fxe6
- Dxe6 27. Hd6 - De8 28. Hxh6
Nú hótar hvítur að vinna svörtu
drottninguna með 29. Hf8.
28. - c3 29. bxc3 - b3 30. e6
- b2 31. c4! - Ha2 32. cxb5 -
cxb5 33. De5+ og svartur gafst
upp því hann er að tapa miklu liði.