Morgunblaðið - 14.08.1990, Síða 39
Skotveiðifélag
Suðurnesja;
Námskeið um
gæsaveiðar
Vogar.
SKOTVEIÐIFÉLAG Suðurnesja
var nýlega með námskeið um
gæsaveiði, en gæsaveiðitíminn
hefst 20. ágúst næstkomandi.
Hannes Gilbert formaður félags-
ins segir námskeiðið haldið til að
byggja upp þekkingu veiðimanna
til að geta stundað gæsaveiðar á
hættulausan hátt, fyrir alla aðila.
Á námskeiðinu flutti Agnar Guð-
jónsson byssusmiður erindi um
umhirðu á skotvopnum og upp-
byggingu haglabyssu. Arnór Sig-
fússon talaði um iífvistfræði gæsa-
stofnsins og kynnti væntanlega
bráð fyrir veiðimönnum frá líffræði-
legu sjónarmiði. Hannes Gilbert
kynnti lagalegan rétt landeigenda
og skyldur veiðimanna. Haukur
Sigurðsson kynnti notkun veiðibún-
inga og gervigæsa og Herbert Guð-
mundsson flutti varnarorð um notk-
un riffla við gæsaveiðar.
Að sögn Hannesar er markmið
skotveiðifélagsins að stuðla að betri
meðferð skotvopna, kynna náttúru
landsins og vinna að hagsmunamál-
um skotveiðimanna og að eiga góða
samvinnu við landeigendur og nátt-
úruverndarfólk.
Hannes segir það stefnu félags-
ins að vera á móti notkun riffla á
gæsaveiðum vegna hættusviðs
riffla og bendir gæsaveiðimönnum
á að nota heldur haglabyssu.
- EG.
ptagmt"*
XiXatíit*
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG A RÁDHÚSTORGI
lyfti-
vctgnar
Eigum ávallt fyrirliggjandi
|i; hinavelþekktuBV-hand-
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 16 SÍML6724 44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
39
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson.
Þátttakendur á námskeiði Skotveiðifélags Suðurnesja um gæsa-
veiðar.
Skinnaiðnaður Sambandsins
Akureyri
Nýtt símanúmer
96-21710
Hér með tilkynnist að Iðnaðardeild Sambandsins,
skinnaiðnaður, mun frá og með miðvikudeginum
15. ágúst taka upp nýtt símanúmer, 96-21710.
Við sem unnum ekki í lottóinu
getum líka eignast okkar eigin fjársjóð...
það tekur bara dálítið lengri tíma
Þú þarft ekki endilega að vinna í lottóinu
því reglulegur sparnaður getur líka orðið
að digrum fjársjóði.
Verðbréf í áskrift hjá VIB er þjónusta fyrir
þá sem vilja leggja fyrir reglulega á þægi-
legan hátt og fá góða ávöxtun á sparifé
sitt.
Þægindi
Áskrifendur ákveða hvaða upphæð þeir
vilja leggja fyrir, þó að lágmarki 10.000
krónur í hvert skipti. VÍB sendir út gíró-
seðla mánaðarlega til áskrifenda sem geta
greittþá þegar þeim hentar. Áskrifendur
geta einnig látið skuldfæra greiðslukort
sín mánaðarlega.
Þjónusta
Starfsmenn VÍB sjá um að kaupa verð-
bréfin og geyma þau ásamt kvittunum. I
janúar ár hvert er sent yfirlit yflr allar
hreyfmgar á áskriftarreikningnum á árinu
og yfirlit yfir eign í árslok. Einnig má á
hverjum gíróseðli sjá uppsafnað nafnverð
þeirra verðbréfa sem keypt hafa verið í
áskrift.
Fjölbreytni
Áskrifendur geta valið á milli ávöxtunar í
5 verðbréfasjóðum, allteftir þörfum hvers
og eins.
Hvað þarf að gera til að
verða áskrifandi?
Best er að koma'við hjá okkur í Armúla
13a og ganga ffá áskriftarblaði, þar sem
fram kemur hvaða tegund verðbréfa þú
vilt kaupa, hvað mikið þú vilt spara á
mánuði og hvemig þú vilt greiða. Einnig
er hægt að hringja og fá áskriftarblaðið
sent heim.
VIB sér svo um framhaldið. Ráðgjafar
VIB kaupa verðbréf þegar greiðslur berast,
geyma öll gögn og sendayfirlit einu sinni
á ári um hreyfingar á árinu og verðmæti
sjóðsins sem þú hefur eignast.
Það er aldrei of snemmt að
byija að spara!
Tökum dæmi um 10.000 króna mánaðar-
legan spamað og gemm ráð fyrir að vextír
haldist 7%.
Sparað í Uppsafnaður fjársjóður
10 ár 1.700.000 kr.
20 ár 5.000.000 kr.
30 ár 11.700.000 kr.
Helstu kostir verðbréfa í
áskrift hjá VÍB:
• Einföld og þægileg leið til spamaðar
• Góð ávöxtun sparifjárins
• Oll varsla verðmæta hjá VIB
• Yfirlit frá VIB yfir innborganir og
stöðu eigna
• Hægt er að velja á milli 5 ávöxtunar-
leiða
• Ráðgjöf um hvaða ávöxtunarleiðir
eru bestar fyrir áskrifendur
Allar nánari upplýsingar
um verðbréf í áskrift veita ráðgjafar VIB í
afgreiðslunni að Ármúía 13a og í síma
91-681530.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26.
.'-THuy/öA