Morgunblaðið - 14.08.1990, Síða 40
Hryggbrotn-
aði í brotlend-
ingu í Keflavík
' 32 ÁRA Reykvíkingur hrygg-
brotnaði þegar hann brotlenti
svifflugu sinni á flugbraut við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar á
föstudaginn.
Svifflugan ofreistist í lending-
unni með þeim afleiðingum að mað-
urinn missti stjórn á henni og brot-
lenti á brautinni. Hann var fluttur
á Borgarspítalann.
Klifið á
Grænlandi
gengnr
áfallalaust
ÍSLENSKU íjallgöngumönnunuin
sex, sem nú eru á Grænlandi, líður
vel og hefur leiðangur þeirra
gengið áfallalaust. Aðstæður til
klifurs hafa verið þokkalegar.
Leiðangursmennirnir fóru með
flugvél til Meistaravíkur 21. júlí og
gengu þaðan um 40 kílómetra leið
að Bersækrebræ jökli. Þar settu
þeir upp búðir og var búnaði þeirra
og vistum kastað niður úr flugvél.
Morgunblaðinu bárust í gær skila-
boð frá leiðangrinum. Þar segir að
aðstæður til klifurs hafi verið þokka-
legar, en jöklar erfiðir vegna óvenju-
mikilla jökulsprungna. Bjart sé allan
sólarhringinn. Veður fari kólnandi
með hveijum degi, næturfrost sé en
hlýtt á daginn. Þá segir í skilaboðun-
um, að landslagið sé stórbrotið en
gróðursnautt og leiðangursmönnum
líði öllum vel.
Ólafur Örn Haraldsson, faðir eins
leiðangursmannanna, sagði að aðal-
búðir leiðangursins væru á Ber-
sækrebræ skriðjöklinum. „Þeir eru
með þrjú tjöld í aðalbúðunum og
ganga með létt tjöld í klifur,“ sagði
hann. „Þeir gerðu ráð fyrir að klifra
mest á nóttunni, til að losna við
sólbráð, og fara ýmist í dagsferðir
eða lengri ferðir, bæði í ís og kletta."
Leiðangurinn stendur í sex vikur
og munu sexmenningarnir snúa
heim um mánaðamótin.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vitjað um netin
Agnar Jóhannsson hampar þarna nýveiddri 8 punda bleikju úr Hvítár-
vatni á Kili. Agnar, bróðir hans Kjartan og Snorri Geir Guðjónsson, sem
einnig eru á myndinni, hafa ásamt fleirum haft vatnið á leigu og hafa
veitt vel í sumar. Ljósmyndari Morgunblaðsins var viðstaddur þegar þeir
vitjuðu um net sín við mynni Fróðár á dögunum og voru þá í þeim 30 kíló
af fiski, einn álíka og sá stóri á myndinni og talsvert af smærri fiski.
Grænlendingar auka þorskveiðar:
Reynt að veiða þorskinn áður
en hann gengur á Islandsmið
GRÆNLENDINGAR hafa ákveð-
ið að auka veiðar á 1984-þorskár-
ganginum, sem rak sem seiði til
Grænlands, til að ná honum áður
en hann gengur á Islandsmið, að
sögn Jóns B. Jónassonar skrif-
stofustjóra í sjávarútvegsráðu-
neytinu. Jón sagði að Grænlend-
ingar hefðu að eigin sögn ákveð-
ið að auka veiðarnar þegar
Fulltrúaráð HÍK mótmælir bráðabirgðalögunum:
i
Kennarar mótmæla lög-
unum með aðgerðum
- segir Eggert Lárusson, formaður HIK
FULLTRÚARÁÐ Hins íslenska kennarafélags samþykkti á fundi sínum
í gær harðorð mótmæli vegna bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar, sem
fela í sér frestun á launahækkunum lil félagsmanna HIK. Vinnubrögð
ríkisstjórnarinnar eru sögð gerræðisleg og er lýst ábyrgð á hennar
hendur fyrir að stefna skólastarfi í landinu í voða. Eru félagsmenn
jafnframt hvattir til að beita hverjum þeim löglegu aðgerðum, sem
að gajgni geti komið til að hnekkja lögunum. Eggert Lárusson, formað-
ur HIK, segir að ljóst sé, að svo mikil reiði sé meðal kennara vegna
setningar bráðabirgðalaganna, að þeir muni grípa til aðgerða til að
mótmæla þeim, hvort sem félagið komi þar nærri eða ekki.
Eggert segir að á næstu vikum
verði fundað með trúnaðarmönnum
félagsins um allt land, stofnaðar
aðgerðanefndir og ræddir möguleik-
ar á aðgerðum. „Við munum fara
yfir þau lög sem gilda um opinbera
starfsmenn og kennara-sérstaklega
og fara eftir þeim,“ segir hann. „Við
munum skoða í þessu sambandi lög
um aðbúnað og hollustuhætti á
vinnustöðum, auk þess sem rætt
hefur verið um að kennarar hætti
að taka verkefni með sér heim. Kenn-
arar munu sjálfsagt einnig verða
tregir til að taka að sér leiðsögn
kennaranema, en við höfum um skeið
átt í deiiu við fjármálaráðuneytið
vegna greiðslu fyrir þá vinnu. Það
er líka enn í .gildi samþykkt frá því
í sumar um að félagsmenn taki ekki
þátt í opinberum nefndum og ráðum
eða rannsóknai-verkefnum."
Hann segir að jafnframt sé ljóst,
að HIK beri skylda til að kynna
kjarasamningana og áhrif bráða-
birgðalaganna á þá fyrir félagsmönn-
um sínum. „Bráðabirgðalögin eru
alls ekki einföld og því getur þetta
tekið tíma. Þessi kynning fer fram,
þegar skólastarf verður hafið í
haust,“ segir Eggert Lárusson.
þorskurinn flutti sig sunnar og
austar frá Vestur-Grænlandi.
Veidd hefðu verið um II þúsund
tonn af þessum þorski frá ára-
mótum fram í maí og Vestur-
Þjóðverjar og Bretar hefðu aðal-
lega stundað þessar veiðar.
Uppistaðan í þorskstofninum við
Grænland er nánast þessi eini ár-
gangur frá 1984 og miklar veiðar
þar á þessu ári og því næsta myndu
stórlega draga úr sterkum Græn-
landsgöngum á Islandsmið árin
1991 og 1992, að sögn íslenskra
fiskifræðinga. Þeir hafa gert ráð
fyrir að samtals um 200 þúsund
tonn af þessum þorski komi til
hrygningar á Islandsmiðum árin
1991 og 1992 og lagt til að veidd
yrðu 50 þúsund tonn af honum á
næsta ári.
Evrópubandalagið gerði í fyrra
samning við Grænlendinga um að
kaupa af þeim 140 þúsund tonn af
þorski, loðnu, grálúðu, karfa og
fleiri tegundum á ári í fimm ár fyr-
ir 500 milljónir danskra króna á
ári, eða um 5 milljarða íslenskra
króna, að sögn Sveins Hjartar
Hjartarsonar hagfræðings Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna.
Jón B. Jónasson sagði að menn
hefðu kallað þetta pappírsfisk, þar
sem Evrópubandalagsskip hefðu
ekki veitt þá aflakvóta sem banda-
lagið hefði keypt af Grænlending-
um. Til dæmis hefðu Evrópubanda-
lagsskipin ekki veitt nema um 10
þúsund tonn af um 60 þúsund tonna
karfakvóta, sem bandalagið hefði
keypt af Grænlendingum á ári. Því
væru kvótakaupin í raun óbeinn
styrkur EB til Grænlendinga.
Borgarráð:
Rætt að opna
Austurstræti
fyrir umferð
BORGARRÁÐ Reykjavíkur
mun á næstunni taka afstöðu
til erindis frá samtökunum
„Gamla miðbænum" um að
Austurstræti verði aftur opnað
fyrir umferð.
í maí síðastliðnum sendu sam-
tökin borgaryfírvöldum bréf, þar
sem meðal annars var lagt tii að
Austurstræti milli Lækjargötu og
Pósthússtrætis yrði aftur opnað
fyrir bílaumferð.
Málið hefur að undanförnu ver-
ið til meðferðar í nefndum borgar-
innar og að sögn Davíðs Oddsson-
ar, borgarstjóra, mun borgarráð
væntanlega taka afstöðu til þess
á fundi í dag eða næstkomandi
þriðjudag.