Morgunblaðið - 06.09.1990, Page 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
201. tbl. 78. árg.
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sameining Þýskalands:
Deilt um brottflutn-
ing sovéska heraflans
Bonn. Tlie Daily Telegraph.
ÁGREININGUR um brottflutning sovéskra hermanna frá Austur-
Þýskalandi og afnám sérréttinda og skuldbindinga fjórveldanna úr
síðari heimsstyrjöldinni, í Þýskalandi hefur, að sögn embættismanna
í Vestur-Þýskalandi, tafið fyrir svokölluðum „4+2-samningaviðræð-
um“ um sameiningu Þýskalands.
Samkomulag hefur náðst um
flest mál í viðræðum háttsettra
embættismanna fjórveldanna;
Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk-
lands og Sovétríkjanna, sem fram
fara í Bérlín. Embættismenn frá
Austur- og Vestur-Þýskalandi
bættust í viðræðurnar á þriðja degi
þeirra í gær. í samningnum, sem
undirrita á i Moskvu 12. þ.m., verða
landamæri Þýskalands ákvörðuð og
hernaðarleg staða sameinaðs
Þýskalands í NATO staðfest.
Austurríki:
Herlið heftir
flóttamanna-
strauminn
Vínarbor^. Reuter.
FIMMTAN hundruð aust-
urrískir hermenn voru í gær
fluttir að ungversku landa-
mærunum til að koma í veg
fyrir að fólk frá hinum ný-
frjálsu ríkjum Austur-Evr-
ópu færi yfir landamærin í
leyfisleysi.
Stjórnvöld skýrðu frá því í
gær að flóttamannastraumur-
inn frá Austur-Evrópu væri
orðinn óviðráðanlegur auk
þess sem glæpalýður að austan
hefði nýtt sér frelsið og tekið
upp fyrri iðju í Austurríki. Á
þriðjudag tilkynntu yfirvöld að
framvegis þyrftu pólskir ríkis-
borgarar að fá vegabréfsáritun
til Austurríkis og vakti sú yfir-
lýsing hörð viðbrögð í Pól-
landi. Þá hafa þúsundir Rúm-
ena flúið heimaland sitt og
sest að í Austurríki og hefur
víða komið til mótmæla sökum
þessa.
Sovétmenn hafa neitað að sam-
þykkja afnám sérréttinda fjórveld-
anna í Þýskalandi, sem fyrirhuguð
voru á sama degi og sameining
þýsku ríkjanna eða 3. október. Þeir
krefjast þess að samkomulag liggi
þá fyrir um hvernig starfi sovéskra
hermanna í Austur-Þýskalandi
verði háttað á þeim fjórum árum
sem á að taka að flytja þá heim.
Þá eru Sovétmenn ósáttir við þá
kröfu Vestur-Þjóðveija að öll starf-
semi sovéska flughersins í Þýska-
landi leggist af eftir 3. október.
Sovéski herinn hefur einnig mót-
mælt því að hætt verði að fæða
sovéska hermenn í Austur-Þýska-
landi á kostnað Þjóðverja.
Heimildamaður, kunnugur við-
ræðunum í Berlín, sagðist efast um
að hægt yrði að undirrita samning-
inn 12. október nk.
Flóttamenn berjast um vatnið
Reuter
Tveir flóttamenn, sem bíða þess að komast frá írak
til Jórdaníu, slást um vatnsflösku. Mennirnir eru í
hópi tugþúsunda verkamanna frá Asíulöndum sem
hafast nú við á einskismannslandi í eyðimörkinni
við landamærin. Jórdanir reyna að hefta fólks-
strauminn þar sem ekki eru til nægar birgðir af
mat, vatni og öðrum hjálpargögnum handa fólkinu.
Líðan flóttamannanna, ekki síst barna, versnar stöð-
ugt og óttast margir að farsóttir brjótist út enda
hreinlætisaðstaða nánast engin.
Saddam Hussein segir hersveitir sínar baráttuglaðar og sigurvissar:
Þetta er heilög styijöld
rnilli Allali og djöfulsins
Níkósíu. Reuter, The Daily Telegraph.
SADDAM Hussein, forseti Iraks, lýsti yfir því í gær að fimm milljón-
ir íraka væru tilbúnar til að heyja heilagt stríð í nafni Múhameðs
spámanns og að vígamenn forsetans væru öldungis sannfærðir um
að þeim átökum myndi lykta með fulluin sigri þeirra. Utanríkisráð-
herra íraks, Tariq Aziz, átti í gær fund með Mikhail S. Gorbatsjov,
leiðtoga sovéskra kommúnista, í Moskvu og þótti tilkynning sem sov-
éska TASS-fréttastoí'an birti af því tilefni gefa til kynna að Sovétleið-
toginn hefði ítrekað þá afdráttarlausu kröfu ráðamanna þar eystra
að herlið íraka yrði kallað heim frá Kúvæt.
í yfirlýsingu Saddams forseta sem
var lesin í sjónvarpi sagði að múham-
eðstrúarmönnum bæri að bcijast í
nafni spámannsins gegn hersveitum
Bandaríkjamanna við Persaflóa.
Forsetinn sagði Persaflóadeiluna
vera „heilaga styrjöld milli Allah og
djöfulsins“. „Alþýðu manna í írak
er ljóst hlutverk sitt. Hún viðurkenn-
ir aðeins sigur í nafni almættisins,"
sagði forsetinn. Þá hvatti Saddam
til þess að þeim Fahd, konungi
Saudi-Arabíu, og Hosni Mubarak,
Egyptalandsforseta, yrði steypt af
stóli. Forsetinn gerði viðskiptabann
Sameinuðu þjóðanna gagnvart Irak
að umtalsefni og lýsti yfír því að
írösk börn dæju sökum skorts á
mjólk, matvælum og lyfjum. Banda-
Gróðafíkn bænda get-
ur af sér brauðskort
Moskvu. Reuter.
DAGBLÖÐ í Sovétríkjuuum
skýrðu frá því í gær að skortur
á brauði í fjölmörgum stórborg-
uni væri tilkominn sökuin þess
að bændur stæðu ekki í skilum
við ríkið og seldu þess í stað
korn sitt á frjálsum markaði þar
sem mun hærra verð fengist.
í fréttum blaða sagði að bændur
i Úkraínu og Kazakhstan hefðu
ekki skilað þeim 6,4 milljónum
tonna af hveiti sem samningar
þeirra við stjórnvöld hefðu kveðið
á um. Bændur vildu fremur greiða
sektir en selja framleiðslu sína á
því verði sem ríkið væri tilbúið að
greiða. Dagblaðið Rabotsaja
Tríbúna sagði að bændur vildu
þess í stað selja korn sitt hæstbjóð-
anda og fylgdi fréttinni að sam-
vinnufyrirtæki í Eystrasaltsríkjun-
um væru tilbúin til að greiða fimm
sinnum hærra verð en stjórnvöld
í Moskvu. Brauð hefur nú um
nokkurt skeið verið nánast ófáan-
legt í höfuðborg Sovétríkjanna,
Moskvu, auk þess sem skortur á
öðrum nauðsynjum er sagður fara
vaxandi.
Reuter
Sovéskir neytendur mynda biðröð í bakaríi einn í höfuðborginni
í gær.
ríkjamenn og ísraela sagði forsetinn
ábyrga fyrir þessu ástandi.
Tariq Aziz, utanríkisráðherra ír-
aks, hitti Míkhaíl S. Gorbatsjov að
máli í Moskvu í gær. í tilkynningu
TASS-fréttastofunnar kom fram að
Sovétmenn hygðust í engu hvika frá
fyrri kröfum sínum í Persaflóadeil-
unni sem eru í samræmi við sam-
þykktir Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Gorbatsjov átti fyrr um
daginn fund með bandarískum þing-
mönnum og tjáði hann þeim að hann
myndi gera George Bush Banda-
ríkjaforseta grein fyrir niðurstöðu
fundarins með Aziz.
Edúard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, átti í gær
fundi með ráðamönnum í Japan. Við
lok fundar hans og starfsbróður
hans frá Japan, Taro Nykayama, var
birt sameiginleg yfirlýsing í nafni
ríkisstjórna Japans og Sovétríkjanna
þar sem innrás Iraka í Kúvæt var
fordæmd og þess krafist að öllum
erlendum gíslum í írak og Kúvæt
yrði sleppt úr haldi. Er þetta í fyrsta
skipti frá lokum síðari heimsstyijald-
arinnar sem ríkin birta sameiginlega
ályktun á vettvangi utanríkismála.
í gær veittu yfirvöld í írak 157
vestrænum konum og börnum þeirra
leyfi til að haida frá Bagdad, höfuð-
borg Iraks, til Jórdaníu. Hafa Irakar
þá sleppt rúmlega 1.100 konum .og
börnum úr gíslingu.
Sjá fréttir á bls. 24