Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPl’EMBER 1990
7
Lífríki Mývatns og Láxár:
Örar breytingar á
lifríkinu í sumar
SUMARIÐ 1990 hefiir á margan hátt verið óvenjulegt að því er
lífríki Mývatns og Laxár varðar. I fréttabréfi Rannsóknarsstöðvarinn-
ar við Mývatn kemur fram að ýmsir átu- og fuglastofnar hafa tekið
við sér svo um munar, aðrir standa í stað, en í enn öðrum stofnum
hefur fækkað. Segir að þetta sumar hafi á heildina litið verið
tímabil örra breytinga.
Mikið af stóru-toppflugu, sem er
rykmýstegund, kviknaði strax og ísa
leysti en fjöldi þessarar tegundar
hefur verið í lágmarki undanfarin
tvö ár. Afkoma á lirfum þessarar
tegundar mun hafa verið mjög góð
í sumar og eru nú á milli 7 og 15
lirfur á hveijum fersentimetra botns
í Syðriflóa og á Strandarbolum.
Aðrar rykmýstegundir voru flestar
í fremur iitlum mæli í sumar.
Fjöldi anda jókst um 9% um vorið
ef miðað er við sama tíma í fyrra
en þá voru fuglastofnar í lágmarki
eftir hrun átustofna árin 1983 og
1988. Einstakar andategundir hafa
þó tekið misjafnlega vel við sér, seg-
ir í fréttabréfi Rannsóknarstöðv-
arinnar. Þannig fjölgaði hrafnsönd
um 45%, húsönd um 25%, duggönd
um 16% og skúfönd um 10%. Stofn
rauðhöfða og straumandar stendur
í stað en litlu gráönd, hávellu og
toppönd fækkaði.
Engin þörungablómi var í Syðri-
flóa í sumar. Svipað ástand skapað-
ist á árunum 1978-1982 og var
bitmý með minnsta móti á því tíma-
bili enda alast lirfur þess upp í Laxá
Borgaraflokkurinn
í Reykjavík:
Formaður fé-
lagsins segir
sig úr flokknum
AUÐUR Jacobsen, formaður
Kjördæmisfélags Borgaraflokks-
ins í Reykjavík, hefur sagt af sér
embætti sínu og gengið úr Borg-
araflokknum. Segist hún nú ætla
að ganga til liðs við Sjálfstæðis-
flokkinn. í gær sendi hún for-
manni Borgaraflokksins og skrif-
stofu bréf þar sem hún greinir
frá þessari ákvörðun sinni.
Auður var fyrst varaformaður
Kjördæmisfélagsins í tvö ár og síðan
formaður eftir að Þórir Lárusson,
sem hafði gegnt embætti formanns,
gekk úr Borgaraflokknum árið
1989. „Ég hef verið að hugsa þetta
mál í langan tíma,“ sagði Auður
þegar hún var spurð um ástæðurnar
fyrir þessari ákvörðun. „Mér finnst
að ekki hafí verið starfað lýðræðis-
lega í flokknum og einnig hafa ýms-
ir forystumenn haft óeðlileg afskipti
af starfi félagsins sem ég hef ekki
verið ánægð með. Ég ætla nú að
ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn
- fara aftur heim.“
------------------
og nærast á þörungum sem þær sía
úr árvatninu. í kjölfarið fylgdi fækk-
un húsandar og léleg afkoma hú-
sandar- og straumandarunga. Þá
dróst urriðaveiðin ' aman.. Kemur
fram í fréttabréfinu að nú sjáist
sömu einkenni og á þessu tímabili.
Talningu á kaföndum í sárum er
nýlega lokið og hefur öndum fækkað
miðað við sama tíma í fyrra. Fækk-
unin er að meðaltali 29%. Þrátt fyr-
ir þessa miklu fækkun fullorðinna
anda í sárum var mikið af fugli í
vatninu. Munaði mest um unga sum-
arsins en afkoma flestra andarunga
var góð.
Frá Mývatni.
í fangageymslur
fyrir hraðakstur
ÖKUMAÐUR bifhjóls var á tólfta
tímanum í fyrrakvöld kærður fyr-
ir að aka á 130 kílómetra hraða
á klukkustund um Suðurlandsveg.
Tveir félagar hans komust undan
lögreglu. Talið er að þessir menn
hafí skömmu áður sloppið undan
lögreglunni á Selfossi með því að
aka hjóluin sínum á meira en 150
kílómetra hraða. Ökumaðurinn
gisti fangageymslur lögreglu
vegna rannsóknar málsins.
Lögreglan í Reykjavík mætti
mönnnunum skammt ofan Lög-
bergsbrekku og mældi þar hraðann
130 kílómetra. Einn stöðvaði en óku
á brott. Sá sem lögregla ræddi við
kvaðst aðeins hafa ekið á 100 kíló-
metra hraða og engin deili vita á
samferðamönnum sínum. Hann var 1
færður í fangageymslur og til yfir-
heyrslu í gærmorgun.
Áskriftareiningar - Lífeyriseiningar
Þeir
sem
búa vel
fylgja
fastri reglu
Smágerðir vinir okkar
flétta sér og sínum
trausta hreiðurkörfu
með þolinmæði og elju
og einu strái í nefi í hverri ferð.
Með Áskriftareiningum Kaupþings
getur þú einnig smám saman
hyggl upp trausta umgjörð um
framtíð þína og þinna nánustu.
Aðferðin er einföld og fyrirhafnar-
lítil. Þú gerir samning við Kaup-
þing um að leggja fyrir mánaðar-
lega tiltekna fjárhæð sem ræðst
að öllu leyti af efnum þínum og
aðstæðuin. Fé, sem þú sparar
þannig, er varið til kaupa á
Einingabréfum 1, 2 eða 3. Kaup-
þing býður þér örugga hámarks-
ávöxtun og þú eignast smám sam-
an þinn eigin sjóð, aflar þér fjár til
framkvæmda eða leggur grunn að
fjárhagslegu öryggi á efri árum.
Jafnhliða sparnaðinum gefst þér
kostur á tryggingum sem greiða
umsaminn reglubundinn sparnað
þegar veikindi eða slys draga úr
möguleikum lil tekjuöflunar um
lengri eða skemmri tíma.
Kynntu þér Áskriftar- og Lífeyris-
einingar Kaupþings og búðu þér og
þínum örugga framtíð.
KAUPÞING HF
Löggilt verdbréfafyrirta'ki
Kringluntii 5, 103 Reykjavík
Sttni 91-689080