Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 „Ég ueitaf hi/equ þú Skrifar ata/rei. þú ert otuþþtelánn af þu!þessi rirans gá'ngJ " t i " 1 Vildi óska þess ég væri á Hefurðu eld? eyðiey. Trúir þú rétt? Til Velvakanda. Bronko Haralds skrifaði hér í þætti Velvakanda og gagnrýndi grein mína um bæn Jesú, Faðirvor- ið, og notaði tækifærið til að hafna enn á ný guðdómi Jesú og viðra að nýju allt það, sem Bronko þessi hefur á móti kaþólsku kirkjunni. Ég hlýt því.að leiðrétta mistúlkanir hans og veija hina kristnu trú okk- ar. Bronko heldur því fram, að Jesús Kristur sé ekki Guð, aðeins maður, og beinir spjótum sínum að kristn- um mönnum fyrir að tilbiðja Jesúm sem Guð; en aðeins megi tilbiðja Guð. Af þessu er ljóst, að Bronko lítur svo á, að allir kristnir menn — Tneira en einn milljarður — séu hjá- guðadýrkendur. Reyndar játa lút- herskir íslendingar líka guðdóm Jesú. Hvers vegna fer þá Bronko ekki burt af landi hjáguðadýrkenda til Mekka, þar sem hægt væri að vera hjá arabískum íslamsjátend- um? — En ég vil nú svara ýmsum ásökunum Bronkos. 1) Jesús kennir okkur með há- leitri bæn sinni að biðja, — en hann amast þar ekki við því, að við biðj- um um fyrirbæn vina okkar á himn- um. 2) Langan texta (Róm. 1, 18-23) um menn, sem „kefja sannleikann með rangsleitni“, er ekki hægt að heimfæra upp á okkur, einn millj- arð kristinna manna, heldur lenda þau orð miklu fremur á Bronko sjálfum, sem afneitar guðdómi Jesú. 3) Þegar Jesú segir: „Enginn hefur stigið upp til himins nema sá, Frábær ferð Til Velvakanda. Ég fór fyrir skömmu með Pétri Ólafssyni í fjögurra daga hópferð eldri borgara. Farið var um Syðri og Nyrðri-Fjallabaksleið, til Kirkju- bæjarklausturs, Skaftafells að Breiðamerkurlóni, Lakagígum, Eldgjá og Landmannalaugum. Fyrir þessa frábæru ferð vil ég þakka Pétri, lipurð hans, skipulagningu alla, fróðleik og hjálpsemi. Óska vildi ég að fleiri eldri borgar mættu njóta ferða hans og fjölga þannig björtum minningum á haustdögum lífsins. Hjartans þakkir Pétur. • Einn af þeim gömlu er niður sté af himnum,“ þá endur- tekur hann það, sem segir í Orðs- kviðunum 30,4: „Hver hefur stigið upp til himna og komið niður? Hver hefur safnað vindinum í greipar sér?“ Textinn þýðir auðvitað: Eng- inn maður getur það. Hér er því verið að ræða um vanmátt manns- ins. En svo er hér líka um að ræða fullyrðingu Jesú um að hann sé ekki vanmáttugur eins og aðrir menn. Hann vekur hér einmitt at- hygli á guðdómi sínum. Hins vegar segir textinn ekkert um það, hvort heilagir séu á himnum, eins og Bronko virðist halda. 4) Bronko segir, að enginn sé á himnum, því að „hin fyrsta upprisa hefur ekki ennþá átt sér stað“. En Jesús talar hér (Mt. 24, 39-41) um komu sína við endalok'heimsins. — Að maðurinn, þ.e. sál hans, geti farið strax í dauðanum til himna, það sýna þessi orð Jesú: „í dag (ekki eftir tíu þúsund ár) skaltu vera með mér í Paradís." Þetta sýnir okkur einnig, að móðir Jesú og allir réttlátir menn séu nú þegar hjá honum. 5) Um bæn rósakranzins er það að segja, að þegar við biðjum hann, hugleiðum við líf Jesú, þ.e. æsku hans, þjáningar og dauða, upprisu, uppstigninguna og komu Heilags Anda og þann heiður, sem Jesú veitir móður sinni. 6) „Þér skuluð eigi kalla neinn föður yðar á jörðinni.“ Þetta telur Bronko mæla á móti kaþólskunni. En Páll postuli, sem sagði: „Bók- stafurinn deyðir, en andinn lífgar,“ hann kallar sjálfan sig föður Kor- intumanna, af því að hann hefur fætt þá í Kristi. 7) „Enginn maður getur fyrir- gefið öðrum manni syndir hans,“ segir Bronko. Er Jesús þá lygari? Hann segir þó við lærisveina sína: „Meðtakið Heilagan Anda. Ef þér fyrirgefið einhveijum syndimar, eru þær fyrirgefnar.“ 8) Jesús segir: „Um þann dag eða stund veit enginn, ekki einu sinni englarnir á himnum, né sonur- ' inn, heldur aðeins faðirinn." „Þá getur Jesús ekki verið Guð,“ segir Bronko. Reyndar er svarið auðvelt: Jesús er maður og Guð. Sem maður „þroskaðist hann að vizku og vexti og náð hjá Guði og mönnum,“ (Lk. 2, 52). Páll postuli segir: „Hann svipti sig öllu (líka þekkingu Guðs, innsk. JH) og varð mönnum líkur. Hann kom fram sem maður, lægðí sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða,“ (Fil. 2, 7-8). Jesús notaði guðdóm sinn ekkert umfram það, sem nauðsynlegt var fyrir fagnað- arerindið. 9) Jesús sagði við postulana: „Allt vald er mér gefíð á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóð- ir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og Heilags Anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hefi boðið yður. Sjá! ég er með yður alla daga allt til enda verald- ar,“ (Mt. 28, 19-20). — Samkvæmt túlkun Bronkos er Jesús falsspá- maður úr því að hann er ekki leng- ur með kirkju sinni, eða eins og Bronko segir: „Eftir komu páfans hætti kirkjan að vera frumkirkjan." Veit þá Bronko ekki, að röð páf- anna hefst með Pétri? Pétur, Linus, Kletus, Klemens, Evaristus (ár 100). Er kennivald páfans nauðsyn- legt? Bronko sannar það og sýnir með mistúlkunum sínum á Bibl- íunni, t.d. að því er varðar guðdóm Jesú. 10) En Bronko nægir ekki trúin eins og Páli postula eða okkur hin- um. Nei, hann fer á svig við trúna, hann er „hættur að trúa, hann veit“. Og hvernig veit svo Bronko að hann veit? Hann les það úr Jóh. 8, 32: „Ef þér eruð stöðugir í orði mínu, eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleik- ann.“ En þá mætti spyija Bronko: Ert þú í orði Jesú? Trúir þú rétt? Jóhannes segir (I. Jóh. 2, 22-23): „Hver er lygari, ef ekki sá, sem neitar, að Jesús sé Kristur? Sá er andkristurinn, sem afneitar synin- um og föðumum. Hver sem afneitar syninum hefur heldur ekki fundið föðurinn." Jesús segir líka: „Ég og faðirinn erum eitt,“ (Jóh. 10, 30). Bronko neitar þessu. En þegar Jes- ús hélt þessu fram, tóku Gyðingarn- ir upp steina til þess að grýta hann, „því að þú, sem ert maður, gjörir sjálfan þig að Guði,“ (Jóh. 10, 31-33). Fyrst þú nú afneitar guð- dómi Jesú, skipar þú þér í sveit þeirra, sem vildu grýta Jesúm. Einn milljarður kristinna manna svarar þér: Þú ert ekki „í orði Jesú“. 11) Bronko segir við mig: „Hrind þú ekki með mati þínu í glötun þeim manni, sem Kristur er dáinn fyrir.“ Má ég þá spyija enn á ný: Trúum við því ekki, að Jesús hafi endurleyst okkur, einmitt vegna þess að hann er Guð og maður? En þú vilt ekki trúa þessu. Hrindi ég þér í glötun? Nei, Bronko minn. Það er starf prestsins og sérhvers kristins manns að biðja fyrir þér, og það geri ég. Því endurtek ég nú: Ætli það hafi tekizt að sannfæra Bronko? Við skulum bara vona. Sr. Jón Habets HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar að vakti töluverðan pirring með Víkveija á blaðamannafund inum sem FranQois Mitterrand, Frakklandsforseti, hélt í síðustu viku að fundurinn fór fram á tveim- ur tungumálum, frönsku og ensku. Að franska skuli hafa verið annað málið er vel skiljanlegt, enda á fundinum staddir auk forsetans og franska aðstoðarutanríkisráðherr- ans á fjórða tug franskra blaða- manna. En þó að íslenski forsætis- ráðherrann, utanríkisráðherrann og fulltrúar allra helstu íslensku fjöl- miðlanna hafi verið á fundinum og hann þar að auki haldinn á íslandi var íslenskan bannfærð á fundinum. Eitt sinn reyndi ein blaðakonan að spyija íslenska forsætisráðherrann spurningar á íslensku en hann bað hana vinsamlegast um að spyija á ensku! xxx Skýringin á þessu er í sjálfu sér einföld. Fundurinn allur var túlkaður jafnóðum og var það franskur túlkur sem sá um þá hlið mála. Kunni hann væntanlega lítið fyrir sér í íslensku. Það vekur hins vegar upp spurningar um það af hveiju í ósköpunum við getum ekki haft metnað í að koma hlutunum þannig fyrir að á svæðinu sé túlkur sem geti túlkað frá íslensku yfir á frönsku og öfugt. Ráðamenn stagl- ast á mikilvægi íslenskrar tungu en banna svo íslenskum frétta- mönnum að spyrja sig spuminga á íslensku. Víkveiji telur víst að Frakkar, sem einnig leggja mikla áherslu á tungu sína, myndu seint láta bjóða sér upp á slíkt. XXX Oft er talað um að fólkið, sem tekur á móti gestum í af greiðslunni, sé andlit fyrirtækisins. Eins á við að segja að starfsmenn- irnir, sem svara í símann, séu rödd fyrirtækisins. Góð símaþjónusta skiptir miklu fyrir ímynd fyrirtækja og stofnana. Því miður er þar ákaf- lega víða misbrestur á. Víkveiji þarf starfs síns vegna að nota símann mikið og hringir oft tugi símtala á dag. Það kætir hann allt- af að mæta kurteislegu viðmóti og fá lipra símaþjónustu, en það getur farið jafnmikið í taugarnar á honum þegar hann hefur á tilfinningunni að starfsfólkið nenni varla að sitja við símann. Um þverbak keyrir þó þegar alls ekki er svarað í símann hjá stórum fyrirtækjum eða stofn- unum. Símaþjónustan hjá Háskóla íslands er í lakari kantinum og fyr- ir nokkrum dögum hringdi fjórum sinnum út áður en starfsfólkið svar- aði símanum í þeirri merku stofnun. x x x Víkveiji sá í nýju sérblaði Morg- unblaðsins um sjávarútvegs mál að til greina kæmi að framleiða „hafmeyjarboli" úr hlýraroði í út- landinu. Víkveiji veltir því fyrir sér, hvort þetta séu þá ekki hlýrabolir?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.