Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 SR kaupir hluta af vélum Krossaness SAMIÐ hefur verið við Síldarverksmiðjur ríkisins um kaup á hluta þeirra véla sem búið var að panta vegna enduruppbyggingar Krossa- nesverksmiðjunnar. Hólmsteinn Hólmsteinsson, for- maður stjórnar Krossanes hf., sagði að fulltrúar norska fyrirtækisins, þaðan sem vélarnar voru keyptar, væru væntanlegir til fundar á morgun, föstudag. Endanlega yrði þó gengið frá málinu úti í Bergen um miðjan þennan mánuð. Eftir að fallið var frá ákvörðun um að byggja Krossanesverksmiðj- una upp með 700 tonna afkasta- getu og ákveðið að reisa minni verk- smiðju, þarf stjórn Krossanes að losa sig við vélar sem búið var að panta í stærri verksmiðjuna. Þar er um að ræða Vélar fyrir um 85 milljónir króna. Síldarverksmiðjur ríkisins munu kaupa hluta úr þess- um vélapakka, en um miðjan mánuð ætti að liggja fyrir á hvern hátt öðrum vélum verður ráðstafað. Uppbygging verksmiðjunar gengur samkvæmt áætlun og sagði Hólmsteinn að enn væri stefnt að því að hefja rekstur hennar í nóvem- ber. Hótel KEA: Besta nýtíngin í sumar frá endurbyggingu FRÁ því Hótel KEA var endur- byggt fyrir nokkrum árum hef- ur nýting þar aldrei verið eins góð og í sumar. Mikill ferða- mannastraumur, stórar ráð- stefnur og beint flug til Akur- eyrar frá Sviss eru helstu ástæður þess að sumarið kom sérlega vel út. vetrarmánuðina væri nýtingin mikið í tengslum við atvinnu- og viðskiptalífíð, en því miður væri ekki mikið um að vera á þeim vettvangi um þessar mundir. Hlutoíjárútboð ÚA Morgunblaðið/Rúnar Þór Á haustgöngu. Akureyrarbær: Sala skulda- bréfa hefur verið lífleg SALA á skuldabréfum í skuldabréfaútboði Akur- eyrarbæjar hefur verið Ufleg, en um helmingur bréf- anna seldist á tveimur fyrstu dögunum. Halldór Jónsson bæjarstjóri greindi frá því á fundi bæjar- stjórnar í fyrradag, að frá því sala bréfanna hófst á mánudag og fram á þriðjudag væri búið að selja bréf fyrir meira en 100 milij- ónir. Skuldabréfaútboðið er að upphæð 200 milljónir króna. Landsbréf hf. sjá um sölu bréf- anna og sagði Halldór að sam- kvæmt samning við Akureyrarbæ ætti sölu bréfanna að vera lpkið 15 desember næstkomandi. Útlit væri hins vegar fyrir að salan gengi fljótt fyrir sig. Bréfin eru verðtryggð og bera 7,5% vexti, þau eru boðin með fjórum gjalddögum, hinum fyrsta árið 1995 og síðasta 1997 og verða þau seld með 7,5% ávöxtun- arkröfu. Slippstöðin nýtir ekki forkaupsrétt en aðrir stórir hluthafar að hluta Mikíl eftirspurn eftir bréfunum á almennum markaði SLIPPSTÖÐIN hf. ætlar ekki að nýta sér forkaupsrétt sinn að hlutabréfum í Utgerðarfélagi Akureyringa. Aðrir stórir hluthafar í ÚA ætla að nýta sér forkaupsrétt sinn að hluta, en samtals ætla þeir sem forkaupsrétt hafa að bréfunum að kaupa bréf fyrir tæplega 25 milljónir í 50 milljón króna hluta- fjárútboði. Akureyrarbær ætlar að nýta sér forkaupsrétt sinn að hluta og kaupa um helming þeirra bréfa sem hann á rétt á. Mikil eftirspurn er eftir hlutabréfunum, en þau fara í al- menna sölu í næstu viku. Gunnar Karlsson hótelstjóri sagði að ef frá væru taldar síðasta vika í júní og sú fyrsta í júlí, en nýting þann tíma var ekki góð, þá væri um að ræða bestu nýtingu á hótelinu frá því að var endur- byggt. Nýting var góð allt til ágústloka og sagðist Gunnar ekki muna eftir svo góðum ágústmán- uði alllengi. Skýringar á sérlega góðu sumri, sagði hann vera mikinn ferða- mannastraum, stórar ráðstefnur sem haldnar hefðu verið á hótelinu í ágúst og þá hefðu þeir hópar sem hingað koma í beinu flugi frá Sviss haft sitt að segja. „Ferðir Saga -'Reisen breytti miklu, því hópar á þeirra vegum nýttu þau herbergi sem pöntuð voru nánast 100% alla daga vikunnar,“ sagði Gunnar. Framundan eru nokkrir fundir og ráðstefnur á hótelinu og sagði Gunnar útlitið þokkalegt fram yfír miðjan október, en eftir þann tíma væri ekki mikið um að vera. Yfir Pétur Bjarnason formaður stjómar Útgerðarfélags Akur- eyringa sagði að hluthafar sem forkaupsrétt hefðu að bréfunum hefðu skráð sig fyrir kaupum á tæplega 25 milljónum króna. Stjórn ÚA hefur heimild aðalfund- ar til að auka hlutafé um 100 milljónir króna, en ákveðið var að bjóða helming þess til sölu nú. Pétur sagðist reikna með að sjóm- in myndi nýta sér heimildina að fullu mjög fljótlega, þannig að annað hlutaíjárútboð yrði væntan- lega komið í gang innan tíðar. Akureyrarbær á 70,78% hlut í Útgerðarfélagi Akureyringa og hafði forkaupsrétt að bréfum fyrir um 35 milljónir að nafnvirði. Bæjarstjóm Ákureyrar samþykkti á fundi í fyrradag að nýta sér helming þeirrar upphæðar og kaupa hlutabréfí fyrir tæpar 17,7 milljónir. Gengi bréfanna er 2,5 og kaupir Akureyrarbær því bréf fyrir rúmlega 44 milljónir. „Það var ákveðið að hafa þetta svona STARFSFÓLK vantar nú til starfa hjá Útgerðarfélagi Akur- eyringa, en skólafólk sem þar hefur unnið í sumar er að láta af störfum. Gunnar Ragnars framkvæmda- stjóri ÚA sagði að fyrirtækið hefði þegar auglýst eftir starfsfólki og einhver viðbrögð fengið. „Við vilj- til að gefa öðrum kost á að eign- ast hlut í félaginu,“ sagði Halldór Jónsson bæjarstjóri á fundi bæjar- stjórnar. Hann sagði einnig afar mikilvægt að fá gengi bréfanna skráð á almennum markaði, svo menn gætu séð hvers virði þau væru. Slippstöðin hf. sem er næst stærsti hluthafí í ÚA ætlar ekki að nýta sér forkaupsrétt sinn í hlutafjárútboðinu. Ottó Jakobsson formaður stjórnar Slippstöðvar- innar sagði að stjórnin hefði gefið heimild til að taka þátt í útboðinu ef hægt væri að fjármagna kaup- in. Lausafjárstaða fyrirtækisins væri því miður ekki betri en það að menn hefðu ekki treyst sér til að vera með og ekki hefði þótt fýsilegt að taka lán. Pétur sagði að þær 100 milljón- ir sem fengust í hlutafjárútboði félagins yrðu nýttar vegna kaupa á togaranum Aðalvík KE og þær myndu einnig bæta veltufjárhlut- fall fyrirtækisins. Jón Hallur Pétursson fram- kvæmdastjóri Kaupþings Norður- lands sagði að mjög mikið hefði verið spurst fyrir um bréfín, en fyrirtækið hefur tekið við beiðnum um gjarnan bæta við okkur starfs- fólki, skólafólkið er að tínast út þessa dagana og fram eftir þessum mánuði og því vantar fólk,“ sagði Gunnar. Næg atvinna hefur í frystihúsi ÚA að undanförnu og sagði Gunn- ar að útlit væri fyrir að svo yrði áfram. „Það er liðið á árið og kvót- ann, en við höfum ennþá nóg.“ vegna hlutafjáraukningarinnar. Hlutabréfin verða seld á almenn- um markaði eftir helgina. „Það hefur mjög mikið verið spurst fyr- ir um þessi bréf, bæði af almenn- ingi hér í bænum og einnig stærri kaupendum eins og lífeyrissjóðum og verðbréfafyrirtækjum, þannig að það er ekki ástæða til að ætla annað en að salan verði lífleg," sagði Jón Hallur. Fundurum umhverfismál OPINN fundur verður hald- inn um umhverfismál á Hótel KEA á morgun, fostudaginn 7. september og hefst hann kl. 9.30. Nefnd á vegum norrænu ráðherranefndarinnar sem fjallar um hreinni tækni, end- urvinnslu og sorp heldur fundi á Akureyri í dag og í tilefni þess hefur verið ákveðið í sam- ráði við Umhverfisráðuneytið að boða til opins fundar um nokkra þætti umhverfismála. Júlíus Sólnes, umhverfisráð- herra setur fundinn, en síðan verða flutt erindi. Stig Hirsbak flytur erindi um eiturefni á heimilum og heimilissorp, Björn Södermark um úrgang frá iðnaði, m.a. frá álverk- smiðjum og Carlotte Christens- en um aðgerðir til umhverfis- bóta í fiskiðnaði. Þá flytur Hannu Laaksonen erindi um efnahagshvata til umhverfisbóta, umhverfís- skatta, sjóntæki og einnota umbúðir. Að loknum erindum verða umræður og fyrirspurnir og farið verður í skoðunarferð í boði Akureyrarbæjar. Tamningar í Svíþjóð Tamningamann vantar nú þegar og út veturinn. Kunnátta í járningum er kostur. Mjöggóð aðstaða. Eingöngu íslenskir hestar. Kaup samkomulag. Upplýsingar í síma 96-27991 eÖa beint (Inger Thunsted, 9046-290-62043). Blaðberar óskast Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi: Strandgötu - Rimasíðu - Steinahlíð - Brekkusíðu - Spónsgerði - Jörfabyggð - Oddagötu. Hressandi morguntrimm, sem borgar sig. fUtrjgíwbltebib Hafnarstræti 85, sími 23905. Starfsfólk vantar hjá ÚA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.