Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 35
J- MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 35 Leifur Ásgeirsson var lifandi dæmi þess hve stærðfræðin er fög- ur, og víðfeðmur sá andi er hún vekur. Leifur hugsaði stærðfræði- lega um flest efni, greindi hvert mál sem að höndum bar, beitti skarpri og frjálsri gagnrýni og leit- aði eftir lausnum og samtengingu allra efnisþátta innan sviðs röklegr- ar hugsunar. Gagnrýni hans á þjóð-. félagsháttum og háskólamálefnum var oft hvöss og leiddi fram veilurn- ar í háttum og siðum, en hann leit- aði ávallt að fögrum lausnum, rétt einsog í stærðfræðinni. Hvert mál krufði Leifur til mergjar með stærð- fræðilegu hugarflugi og nákvæmni, og má segja að hann hafi verið sífellt ósáttur við þá yfriborðslegu skammsýni og meðalmennsku sem oft ráða um gerðir manna í þjóðmál- um. Óþol um ríkjandi aðstæður og fránn vilji til úrbóta er undirstaða allra framfara, en þá hæfileika átti Leifur í ríkum mæli. Má segja að ekkert svið þjóðlegrar menningar hafi komist undan leysigeisla rýni hans. En vinsemdin og hlýjan voru hans aðalsmerki. Kannski hafði Leifur jafnmikil persónuleg áhrif og raun varð á vegna þess hve hann var fallegur maður og fögur öll hans framganga og vinfesti. Rætur Leifs Asgeirssonar stóðu víðar en í rannsóknastofunum í Göttingen og í akademísku starfi í Reykjavík. Hann var skilgetinn son- ur borgfirskrar bændamenningar ‘ og bar með sér andblæ baðstofules- endanna, sem rýndu ljóðin og sög- urnar, ræddu þær í fjósinu næsta dag og mynduðu sér sjálfstæðar skoðanir um atvik, sögupersónur, dyggðir og lesti. Þjóðlegar rætur hans hafa dýpkað enn er hann var skólastjóri að Laugum, S-Þing. Á fyrri árum var kennarastofa Háskólans (sem nú heitir „Gamla aðalbyggingin") samkomustaður kennara úr öllum deildum, að læknadeildinni einni undanskilinni. Þar urðu oft fjörugar umræður. Minnisstæð eru samtöl Leifs, sem ég hlýddi á sem ungur maður, við Þorkel Jóhannesson rektor, Jóhann Hannesson, Guðna Jónsson og fleiri. Hafði Leifur uppi frumleg sjónarmið byggð á eigin athugunum á flestum sviðum íslenskrar menn- ingar, bókmennta og sögu. Leifur Ásgeirsson er einn þeirra manna_ sem ber hæst í sögu Há- skóla íslands. í máli hans mátti ávallt fínna einarðlega ábendingu um hinn eina sannleika í aka- demísku starfí: Keppnina eftir full- komnun í vísindum og lífí. Hin æðstu markmið akademískrar stofnunar skyldu ávallt höfð fyrir augum í öllu sem sagt var og gert um framtíðarmótun Háskólans, án minnsta afsláttar eða sáttargjörðar við meðalmennskuna. Eitt sinn á kennarastofunni vitnaði hann í 127. Davíðssálm, „Ef Drottinn byggir ekki húsið erfiða smiðirnir til ónýt- is“. Hann lagði snarlega út af text- anum: Ef réttur skilningur og rétt- ur andi ríkir ekki við undirbúning verks og framkvæmd þess, er það dæmt til að mistakast. Það sem Leifur Ásgeirsson byggði um sína daga var unnið í réttum anda. Hrefna Kolbeinsdóttir, er Leifur gekk að eiga fyrir hálfum sjötta áratug, er mikil öndvegiskona, og eru þau sem einn maður í minning- unni. Blessi Guð henni og börnun- um, Kristínu og Ásgeiri og fjöl- skyldunni allri, minningarnar um gengið skeið, og ávaxti bamabörn- unum arfinn frá afa sínum. Requi- escat in pace. Þórir Kr. Þórðarson Minning: Jón Sigurðsson, Hrepphólum Fæddur 5. apríl 1899 Dáinn 31. ágúst 1990 í dag fer fram frá Hrepphóla- kirkju útför afa okkar, Jóns Sig- urðssonar bónda. Hann var fæddur hér í Hrepphólum 5. apríl 1899. Hér höfðu foreldrar hans búið frá því 1883 er þau fluttu frá Stóra- Núpi. Árið 1932 kvæntist hann ömmu okkar, Elísabetu Kristjáns- dóttur, og bjuggu þau allan sinn búskap hér í Hrepphólum. Eignuð- ust þau átta börn sem öll eru á lífi. Afkomendur þeirra eru nú orðnir 65. Svo margar ljúfar minningar hrannast upp í huga okkar þegar við minnumst hans. Við systkinin höfum alist upp á sama heimili alla okkar tíð. Þegar við vorum lítil fannst okkur hann besti læknir í heimi þegar eitthvað bjátaði á — afi gat alltaf læknað sárin. Oft sát- um við hjá honum og hlustuðum á skemmtilegar frásagnir frá því er hann var ungur, en hann sagði afar vel frá. Ljúfar minningar eigum við með honum héðan úr Hrepphóla- kirkju, þegar við fengum að sitja hjá honum á fremst bekk, en hann var meðhjálpari í kirkjunni í ára- tugi. Hann bar hag kirkjunnar mjög fyrir brjósti, lagði áherslu á að allt væri sem snyrtilegast, bæði úti og inni. Afi sat öllum stundum við skrif- borðið sitt eftir að hann hætti að geta unnið bústörfín úti. Hann gat alltaf stytt sér stundir við skriftir og lestur, en hann hafði listagóða rithönd allt fram til síðasta dags. Synir okkar voru svo lánsamir að fá að njóta samverustunda með honum. Fljótt var vitað við hvaða skúffu í skrifborðinu ætti að staldra því alltaf átti afí eitthvað gott í munninn og hlýlegt klapp á litla kolla. Við þetta skrifborð kenndi Löng hrísgjrón með ristuðu heilvheitiklíði, núðlumog bragðgóðu grænmeti. Ljúf- fengur fjölskylduréttur. Fyrir 4 - suóutími 8 min. Heildsölubirgðin KARL K. KARLSSONxCO. Skúlatúni 4, Rcykjavík, sími 62 32 32 hann okkur að lesa og skrifa auk þess sem hann miðlaði okkur af margvíslegum fróðleik. Við teljum það okkar gæfu að hafa fengið að alast upp með honum. Nú hefur hann afí okkar fengið hvíldina. Við viljum með þessum orðum þakka honum fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur. Við vottum ömmu okkar innilegustu samúð. Blessuð^ sé minning hans. Óli, Guðbjörg, Lalli og Hulda Hrönn. Vióskiptahugbúnaóurinn vinsæli, sem mörg hundruó fyrirtæki nota í öllum greinum atvinnulífsins. Samhæfð kerfi, sem notandinn á auðvelt með að læra á. STÓLPI fæst fyrir minni fyrirtæki á ótrúlega hagstæðu verði. Kynntu þér málið. gl KERFISÞRÓUN HF. 1 ' SKEIFUNNI 17, 108 REYKJAVÍK Sölu- og þjónustuaðilar um land allt. Símar 91-688055 / 687466 SÖLU- OG ÞJÖNUSTUAÐILAR ÚTI A LANDI: Borgames: Leó Kolbeinsson ...................................... 93-71720 Ólafsvík: Viöskiptaþjónustan st., Páll Ingólfsson............... 93-61490 isafjöröur: Reiknistofa Vestfjaröa, Ellas Oddsson................ 94-3854 Sauöárkrókur: Stuðull sf., Stefán Evertsson .................... 95-36676 Aukureyri: Tölvuvinnslan, Jóhann Jóhannsson..................... 96-22794 Húsavik: Radíóstota SBG, Steingrimur Gunnarsson ................ 96-41453 Egilsstaðir: Viöskiptaþjónustan Traust. Óskar Steingrimsson..... 97-11095 NYJASTA DANSKA ORÐABOKIN 887 blaðsíður - kr. 2.200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.