Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 47
Er ekki tími til kominn að farir að hreyfa þig? Ath.: Tíinar kl. 13.30 - 17.10-18.10-19.10-20.10 Yió bjóómn upp á tíma 2\ i viku eða STUDÍÓKORT til áramóta. Innifalið í því er frjáls mæting, 2 tímar í veggtennis + 20% afsláttur. Innritun hafin i sínnim 687801 og687701 eftirkl. 17.00. javík • Símar 687801 & 687701 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 Þessir hringdu . . Illa farið með þorskhaus Lára hringdi: „Hvers konar lýður er hér á ferð? Er það þetta háskólamenntaða fólk sem þjóðin styrkir til náms með fé sem tekið er af skattborg- urum. Skólarnir settir og hátíð í skólum og heimahúsum. Svor er sest fyrir framan skjáinn og blas- ir þá við þessi ósmekklega sýn. Hver er mesti þorskhausinn?" Ekki viðlátinn Eldri kona hringdi: „BHM-menn verða að skilja það að núverandi forsætisráðherra má ekki vera að tala við þá meðan á laxveiðunum stendur. Vonandi verður næsti forsætisráðherra ekki eins ákafur laxveiðimaður." Köttur Grábröndóttur köttur með hvítan kvið og hvítar hosur fór að heiman frá Barmahlíð 15 að- faranót laugardags. Hann er merktur Ammon Ra, H. Henders- son. Vinsamlegast hringið í heim- asíma 624718 eða vinnusíma 31335 OG 31975. Köttur Kötturinn Molli, sem er þriggja mánaða, leitar að nýju heimili vegna flutninga. Upplýsingar í síma 681274. Þakkir Ómar Friðberts hringdi: „Eg vil koma á framfæri sérstöku' þakklæti til læknavaktarinnar í Reykjavík, sérstaklega þó til Guð- mundar Olafssonar læknis sem hefur reynst okkur einstaklega vel. Hann hefur allt það til að bera sem góður læknir þarf að hafa.“ Ó1 Ó1 af svartri leðurtösku tapað- ist í leigubíl, rauðum Benz, fyrir utan veitingastaðinn 22. Er bílstjórinn vinsamlegast beðinn að hafa samband við Vilborgu í síma 28783 ef ólin hefur komið í leitim- ar. Hringur Giftingarhringur tapaðist 9. ágúst. Finnandi er yinsamlegast beðinn að hringja í síma 685925 e. h. Fundarlaunum heitið. Hjartans þakkirfœri égöllum þeim, sem glöddu mig með gjöfum ogskeytum á sjötugsafmæli mínuþann25. ágústsl. Lifið heil. Guðfinnur G. Ottósson, Brekkholti, Stokkseyri. Svíar ekki til? Til Velvakanda. Um daginn heyrði ég í morgunút- varpi Rásar 2 viðtal við vininn Hann- es Hólmstein Gissurarson, lektor. Þar sagði Hannes frá því, að hann væri á förum í sumarleyfi sínu í austurveg og hyggðist fiytja fyrirlestur yfir Sovétmönnum. Hannes var að vanda bæði snjall og sprenghlægilegur svo ég vaknaði fljótt til fulls. Sérstaka athygli mína vöktu fyrirætlanir hans um efni þess fyrirlesturs er flytja skyldi austur þar í Garðaríki, en það kvað Hannes vera um millileiðina í skipan þjóðmála, þ.e. þá leið sem er mitt á milli kapítalisma og sósíalisma og ýmist er nefnd sænska leiðin, vel- ferðarríkið eða blandaða hagkerfið. Sagðist Hannes ætla að segja Sov- étmönum að sænska leiðin sé ekki til. Mig rak í rogastans við þessi tíðindi. Ég þykist þó vita að ekki verið vandalaust fyrir Hannes að komast að þessari niðurstöðu, þvi þegar talað er um sænsku leiðina er yfirleitt átt við það, hvernig Svíar haga skipan mála sinna. Sænska leið- in er það sem Svíar eru sagðir gera. Mér sýnist Hannes verði að sýna fram á að Svíar séu ekki til, ef honum á að takast að sanna að sænska leiðin sé ekki til. Það er auðvitað ekki útilokað að honum takist þetta. Ef svo fer mun það örugglega hafa miklar afleiðing- ar á íslandi sem og í öðrum löndum. Flestir hafa hingað til gengið út frá því, að Svíar séu til og framleiði m.a. Volvo-bíla úr mölinni í Kiruna á Skandínavíuskaganum. Ég hef orðið var við að margir íslendingar telja sig eiga slíkar bifreiðar og sumir þykjast meira að segja hafa komið til Svíþjóðar. Aðrir hafa ítrekað verið að agnúast út í' Svía á liðnum árum, eins og t.d. drengurinn Svarthöfði sem um árabil var blaðamaður á DV. Skyldi þett allt vera á misskilningi byggt? Það eru því án efa margir sem bíða spenntir eftir fréttuhi af fyrir- lestri Hannesar Hólmsteins í austur- vegi. Ef honum tekst að sýna Rússum fram á að Svíar séu ekki til, þá mun mönnum opnast ný sýn á veruleikann sem við lifum í. Kannski allar leiðin- legu kvikmyndirnar hans Ingmars Bergmanns og rónarnir í sænska velferðarríkinu hafi aldrei verið til í raun og veru, heldur aðeins birst okkur sem dimmar sýnir í draumum veturnáttanna hér á hjara veraldar? Vonandi láta fjölmiðlar ekki sitt eftir liggja og flytja okkur frekari fréttir af uppgötvun Hannesar. Stefán Ólafsson Byrstir á brún Hákon Aðalsteinsson sendi þessa vísu í tilefni af fréttum um níðstöng BHMR-manna: Þeir eru í kjörunum kræfir, og kærleikann örbirgðin slævir. Byrstir á brún þeir bera við hún, andlit sem hópnum hæfir. Bestu þakkir til þeirra, sem glöddu mig með gjöfum og kveðjum á sjötugs afmœlinu 25. ágúst sl. Lifið heil. Rósa Sigurðardóttir, Jaðarshraut 29, Akranesi. VEITINGASALA Við auglýsum eftir rekstraraðilum til að annast veitingasölu í Kolaportinu á laugardögum. Samningstímabil: Eitt ár frá 1. okt. að telja. Með núverandi fyrirkomulagi er annars vegar um kaffisölu og hins vegar pylsusölu að ræða en annað kæmi vel til greina. Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við skrifstofu Kolaportsins í síma 687063 (kl. 16-18). KOIAPORTIÐ NUmKaÐStOZL fltofgttnfclftfcifc ■ JAZZBALLET NÚTÍMABALLET KLASSÍSKURBALLET STREET DANCING :rum nu emnig i Hafnarfirði og Kópavogi Kennsla hefst 10. sept. Innritun hafin í símum 687801 og 687701 Engjateigi 1 • Reykjavík • Símar 687801 & 687701 \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.