Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 2
 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 Taflfélag Reykjavíkur 90 ára: Hyggjast halda stærsta skákmót sem farið hefur fram hérlendis Reiknað með um tvö þúsund þátttakendum Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Whitesnake ílaxveiði oglandskoðun Bresk/bandaríska þungarokksveitin Whitesnake er nú stödd hér á landi og heldur hljómsveitin tvenna tónleika í Reiðhöllinni nk. föstudag og laugardag. Hljómsveitarmenn sögðu eftir komuna til !and_sins í gær, að tónleikarnir legðust afar vel í þá. í dag halda sveitarmeðlimir í laxveiði uppí Kjós og hyggj- ast reyna að kynna sér ísland að svo miklu leyti sem þeir hafa til þess tíma. Þegar er uppselt á tón- leikana á föstudagskvöld og telja aðstandendur tón- leikanna að miðar á seinni tónleikana á laugardag seljist upp í dag eða á morgun. TAFLFÉLAG Reykjavíkur hyggst í tengslum við 90 ára af- mælishátíð sína dagana 6. og 7. október halda stærsta skákmót sem haldið hefur verið hérlendis, og er reiknað með um tvö þúsund þátttakendum. Mótið verður að mestu skipað grunnskólanem- endum, og á að fara fram á u.þ.b. fjórum klukkustundum. Mótið verður aðalatburður af- mælishátíðarinnar, en auk þess hyggst Taflfélagið gangast fyrir ráðstefnu um skákmálefni. Þá verð- ur þann 23. september haldið svo- kallað „frægðarmót," þar sem þekkt fólk úr þjóðlífmu mun takast á á taflborðinu. Til að standa straum af kostnaði við afmælismótið, sem og efla fjár- hag Taflfélagsins, verður fyrirtækj- um gefínn kostur á að greiða þátt- tökugjald, 5 þúsund krónur, fyrir keppendur á mótinu. Að sögn for- svarsmanna félagsins hefur þessu verið mjög vel tekið, og munu þess dæmi að fyrirtæki ætli að styðja heilu skólana til þátttöku. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir efstu sætin á mótinu, og einnig verður smærri vinningum dreift á meðal þátttakenda. Ætlunin er að tefla sjöfalda umferð eftir einföld- uðu Monrad-kerfi. Talsverð bóksala í kjölfar aftiáms virðisaukaskatts Iðnaðarráðherra: Ákveðnar tillögnr liggja um orkuverð til álvers fyru* RÍKISSTJÓRNIN hélt í gær sérstakan fund um samninga um nýtt álver. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir að ákveðnar hugmyndir liggp fyrir um orkuverð og skattamál. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra lýsti yfír efasemdum um fyrirliggjandi orkuverðshug- myndir í fjölmiðlum í gærkvöldi og sagðist myndu láta kanna þær nánar. Jón Sigurðsson sagði við Morgun- blaðið, að hann hefði á fuiidinum lagt fram viðbótarefni og skýrt mál- ið frá ýmsum hliðum og svarað fyrir- spurnum. Þegar hann var spurður um orkuverð og skattamál, sagði hann að engum einstökum þætti væri lokið fyrr en öllu málinu væri lokið, en hann sagðist telja að sam- komulagsgrundvöllurinn væri óðum að taka á sig mynd, og málið að komast á það þroskastig að hægt væri að taka um það ákvarðanir. Því hefur víða verið haldið fram, að fyrirtækin þijú sem mynda Atl- antsálshópinn, vilji að álver verði byggt á Keilisnesi, og hafi tilkynnt ríkisstjóminni þetta. Iðnaðarráð- herra sagði að fyrirtækin ákvæðu ekki staðsetninguna, en ráðgjafar þeirra hefðu lagt fram mat sitt á þessum þremur stöðum, og margt væri komið fram sem sýndi hvemig mál horfðu. Þegar Jón var spurður hvort ríkis- stjórnin myndi koma fram með ákveðna ósk um stað fyrir álver inn í viðræðurnar, sagði hann að þær væru á á forræði iðnaðarráðherra og hann leitaði samráðs sinna með- ráðherra í því. Síðan mæti hann hvernig hann héldi á málinu í sam- tölum við forsvarsmenn Atlantsáls- hópsins. „En í þessum mánuði era ijöldamörg samtöl og athuganir i gangi, og ég reikna með að hitta forsvarsmennina í lok mánaðarins," sagði ráðherra. Á ríkisstjómarfundinum var lagt fram minnisblað frá Byggðastofnun áhrif stóriðju á vinnumarkað, með greinargerð raforkuverafram- varpsins á Alþingi í vor, og síðar ítar- legri í ríkisstjóminni fyrr í sumar. HÆTT VAR að innheimta virðis- aukaskatt af íslenskum bókum 1. september og lækkaði útsölu- verð þeirra um tæp 20% í kjölfar þess. í tilefni af þessari verð- lækkun buðu bókaforlög upp á ýmis sértilboð á laugardaginn og standa þau víða enn. Starfsfólk forlaga og bókaverslana segir að talsverð bóksala hafí verið á laugardaginn og að margir hafí greinilega geymt bókakaup fram yfír mánaðamótin. Hjá bókaverslunum og forlögum fengust þær upplýsingar, að bók- sala hefði verið talsverð á laugar- daginn. Víða var boðið upp á bækur á tilboðskjörum og var nokkuð um að fólk nýtti sér þau. Víðast hvar munu sértilboðin standa næstu daga. Afgreiðslufólk taldi þó erfið- ara að meta áhrif afnáms virðis- aukaskattsins á bóksöluna vegna þess að þessa breytingu bæri upp á um mánaðamót ágúst og septem- ber, en þá væri alltaf mikil sala á námsbókum. Guðmundur Sigurðsson, yfírvið- skiptafræðingur Verðlagsstofnun- ar, segir að fyrir mánaðamótin hafí stofnunin kannað verðlista bókafor- laga og útsöluverð í verslunum og nú verði fylgst með því hvort verð- breytingar verði í samræmi við af- nám virðisaukaskattsins. Reykjavíkurborg: Gert ráð fyrir 93,9 milljóna kr. hagnaði af bílastæðum um Heimsmeistaramótið í brids: •• Önnur íslenska sveit- in enn í keppninni og kom þar fram að verði álver reist á Keilisnesi muni allt að 90% starfs- manna koma af höfuðborgarsvæð- inu. Jón Sigurðsson sagði um þetta, að þessi skýrsla hefði í aðalatriðum verið lögð fram fyrr í málinu, bæði Fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar gerir ráð fyrir að gjöld fyrir bílastæði skili 93,9 milljóna króna tekjum umfram gjöld á þessu ári. Gert er ráð fyrir að tekjur borgar- innar af bflastæðum verði 172,7 milljónir króna en gjöld 78,8 millj- ónir króna. Að sögn Inga Ú. Magn- ússonar gatnamálastjóra var í for- Genf. Frá Jóni Baldurssyni, fréttaritara Morgunblaðsins á heimsmeistaramótinu í brids. SVEIT Sigurðar Vilhjálmssonar komst áfram í 64 liða úrslit í útsláttarkeppni sveita í gær. Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar féll hins vegar úr keppni. Báðar sveitirnar voru í erfiðum riðlum. í gær kepptu 128 sveitir í 8 sveita riðlum og komust fjórar efstu sveitir í hveijum riðli áfram. Sveit Sigurðar varð í 4. sæti í sínum riðli, á eftir sveitum Pertti Ukkonen frá Finnlandi, Söndru Landy frá Bretlandi og Kathy Wey frá Banda- ríkjunum. Með Sigurði spila Valur Sigurðsson, Aðalsteinn Jörgensen og Jón Baldursson. Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar varð í 6-7. sæti í sínum riðli, sem var sennilega sá sterkasti í gær. Þar komust áfram sveitir Anders Wirgrens frá Svíþjóð, Gabriels Chagas frá Brasilíu, Klukowskis frá Póllandi og Tammens frá Hollandi, sem allar eru skipaðar spilurum í fremstu röð; Chagas og félagar hans eru núverandi heimsmeistarar í sveitakeppni. Ýmsar sterkar sveitir féllu úr keppninni í gær, og má þar nefna sveitir Stig Werdelins frá Dan- mörku og Anders Briinzells frá Svíþjóð. Sveitakeppnin heldur áfram í dag. Þá er sveitunum 64 raðað í 8 riðla og komast fjórar efstu sveitir í hverjum riðli áfram. Þær 32 sveit- ir sem þá verða eftir munu spila hreina útsláttarleiki þar til ein stendur uppi sem sigurvegari. Spil- arar sem falla úr sveitakeppninni eiga þess kost að taka þátt í tvímenningsmóti sem haldið er samhliða. Fjölgun erlendra ferðamanna 7,1% fyrstu 8 mánuði ársins V-Þjóðveijar flestir utan Norðurlandabúa FYRSTU átta mánuði þessa árs komu 112.886 erlendir ferðamenn hingað til lands, sem er meiri fjöldi en nokkru sinni fyrr. Á sama tíma í fyrra komu rúmlega 105 þúsund erlendir ferðamenn hing- að til Iands, og svarar fjölgunin til 7,1 af hundraði. Sé litið á ágústmánuð einan var aukningin 20%. Sú breyting hefur orðið á að í ár hafa v-þýskir ferðamenn verið flestir erlendra ferða- manna hérlendis að Norðurlandabúum undanskildum, og slá þar með við bandarískum ferðamönnum sem undanfarin ár hafa kom- ið næstir ibúum Norðurlanda. í frétt frá Ferðamálaráði segir, að veruleg breyting hafí orðið á því hvaðan erlendir ferðamenn sem heimsækja Island koma. Mik- il aukning er á ferðalöngum frá Bretlandi og meginlandi Evrópu, á sama tíma og þeim bandarísku fækkar lítillega, eða um 2,2%. Hlutfallslega fjölgar svissneskum ferðamönnum mest, um 18,8%, og frönskum, um 17,4%. Hins vegar vegur 11,5% fjölgun V- Þjóðveija mest, þar sem þeim fjölgar um tæp tvö þúsund. Norð- urlandabúum fjölgaði einnig lítil- lega, um 2,4%. Alls komu 36.318 Norðurlandabúar hingað á fyrstu 8 mánuðunum, 18.011 V-Þjóð- vetjar, og 16.688 Bandaríkja- menn. Svo virðist sem fjölgun ferða- manna frá meginlandi Evrópu og Bretlandi komi fyrst og fremst fram yfir sumarmánuðina. Þetta sést best á því, að fjölgun er- lendra ferðamanna í ágúst var mjög mikil, eða 20% miðað við ágúst í fyrra, og voru V-Þjóðveij- ar flestir ferðamanna er hingað komu í ágúst, 4.153, og er það rúmlega 37% aukning frá því í fyrra. sendum þessarar áætlunar ekki gert ráð fyrir þeirri hækkun á verði þessarar þjónustu sem nýlega hefur tekið gildi. Á liðnu ári námu tekjur borgar- innar af þessari starfsemi 129,9 milljónum króna en útgjöldin voru 73,6 milljónir króna. Tekjuafgangur síðasta árs var því 56,3 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.