Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
É) t> ® % É>
NEYTENDAMAL
Morgunverður skóla
fólks er ínikilvæg’iir
HRINGDU OG FAÐU
SENT EINTAK.
BÆJARHRAUNI 14, 220 HAFNARFJÖRÐUR
PÖNTUNARLÍNA
91-653900
NÚ Á haustdögum undirbýr ungt
fólk sig undir skólastarfið og það '
hefur miklar væntingar í sam-
bandi við árangur í námi. Þegar
rætt er um námsárangur hér er
sjaldan nefnt mikilvægi mata-
ræðis. Á undanförnum árum
hafa áhrif kjarngóðs morgun-
verðar á námshæfni víða verið
rannsökuð og eru niðurstöður
mjög athyglisverðar.
Áhrif morgunverðar
Rannsóknir á áhrifum morgun-
verðar á börn sem haldin eru of-
virkni (hyperactive) voru gerðar í
Bandaríkjunum fyrir nokkrum
árum. Rannsóknirnar leiddu í ljós,
að kolvetnaríkur morgunverður
með sykurefnum getur haft mjög
slæm áhrif á ofvirka einstaklinga.
Könnunin var gerð við Georg Wash-
ington læknaskólann í Washington
DC, á 39 einstaklingum á aldrinum
8—13 ára sem greindir höfðu verið
ofvirkir og á viðmiðunarhópi sem í
voru 44 börn á sama aldri, en ekki
áttu við nein hegðunarvandamál að
stríða. Sykurmagn í blóði var mælt
rétt fyrir málsverð og allt að 4
tímum eftir máltíð og fólst könnun-
in m.a. í því að viðkomandi börn
áttu að greina tvo hluti, pör, og var
það gert 30 mínútum, 2 klukku-
stundum og 4 klst. eftir málsverð.
Prótein og einbeiting
Börnunum voru gefnar tvær teg-
undir morgunverðar til skiptis: kol-
vetnaríkur, með tveim sneiðum af
ristuðu brauði og smjöri, prótein-
auðugur, með tveim hrærðum eggj-
um léttsteiktum í smjöri eða að
morgunverði var sleppt. Annan
hvern dag fengu þau börn, sem
borðað höfðu kolvetnaauðuga
morgunverðinn, sætan appelsínu-
drykk með aspartami eða sykri og
kom í ijós að ofvirk börn sem fengu
þennan morgunverð áttu í mun
meiri erfiðleikum með að bera
kennsl á hluti sem voru paraðir
saman en samanburðarhópurinn.
Aftur á móti stóðu ofvirkir sig mun
betur þegar þeir fengu próteinauð-
ugan morgunverð, en viðmiðunar-
EKKI PRÍLA!
NOTAÐU BELDRAY
Álstigarnir og tröppumar frá
Beldray eru viðurkennd bresk
gæðavara - öryggisprófuð og
samþykkt af þarlendum yfir-
völdum.
Beldray er rétta svarið við vinnuna,
í sumarbústaðnum og á beimilinu.
Verðið er ótrúlega hagstætt -
gerðu hiklaust samanburð.
;.-J, - f • |
ii r rr o (i
V ! i \ l i ■
\ lT'H i I i h£ "1
vr> l ím j. j...i
t k {A 1 \ \ \ í
A * J * i* ‘
Beldray fæst i byggingavöruverslunum og kaupfélögum um land allt.
EINKAUMBOÐ I.GUÐMUNDSSON & CO HF. SI'MI 24020
64,5cm 87,Ocm 109.5cm 132,Ocm 154,5cm 177,Ocm
óskum eftir
fleiri söluaöílum.
K.E.W HOBBY
Þessar litlu en kraftmiklu háþrýstidælur fást nú hjá
söluaöilum okkar um land allt á ótrúlega
hagstæðu verði.
Þekking - Úrval - Þjónusta
REKSTRARVÖRUR
Réttarháls;2 - 110R.vik - Simar31956-685554
Reykjavík:
RV-Markaöur Réttarhálsi 2,
sími: 685554.
Gripiö og Greitt
Skútuvogi 4.
Feröamarkaðurinn
Skeifunni 8.
Bæjarnesti
v/Vesturlandsveg.
Kópavogur:
BYKÓ Breiddinni
Akranes:
Trésmiöjan Akur
sími: 12666.
Borgarnes:
B.T.B.
sími: 71000.
(safjöröur:
Hafsteinn Vilhjálmsson
sími: 3207.
Sauöárkrókur:
Röst
sími: 36700.
Akureyri:
Þ. Björgúlfsson hf.
Hafnarstræti 19
sími: 25411.
Húsavlk:
Á. G. Guömundsson sf.
slmi: 41580.
Egilsstaöir:
M. Snædal
sími: 11415.
Neskaupstabur:
Varahlutaverslunin Vík
sími: 71776.
Höfn:
Tindur
Dalbraut 6
sími: 81517.
Hella
Hjólbaröaverkstæöi
Björns Jóhannssonar
sírni: 75960.
Selfoss:
Vörubásinn
Gagnheiöi 31
sími: 22590.
Vestmannaeyjar:
Skipaafgreiðsla Vestmannaeyja
sími: 12004.
hópurinn sem fékk kolvetnaríkan
morgunverð eða hafði sleppt morg-
unverði. Hjá ofvirkum reyndist syk-
urmagn í blóði hafa hækkað mun
meira þegar þeir fengu kolvetnarík-
an og sætan morgunverð, en hjá
hinum.
Áhrif kolvetna og sykurs á
boðefni í heila
Ofvirkir höfðu einnig hærra syk-
urmagn í blóði áður en þeir nejdtu
morguriverðar. Talið er að ofvirk
börn geti verið viðkvæmari fyrir
aukningu á serotoníni, sem eru boð-
efni í heila, við neyslu á sætri kol-
vetnaríkri fæðu. Skyndihækkun á
serotoníni er einnig talin geta trufl-
að efni eins og dopamín og nor-
epínehrín sem eru taugaboðberar.
Prótínið geti á móti ijölgað aminó-
sýrum sem dregið geti úr áhrifum
sætuefna á serotonín í heila. Fjöl-
skyldum ofvirkra barna hefur verið
ráðlagt að sjá til þess að börnin
borði morgunmat og þess sé gætt
að í honum sé alltaf eitthvað af
prótíni.
Morgunverður og
námsárangur
Fyrir nokkrum árum var gerð
könnun í Gavle í Svíþjóð á áhrif
morgunverðar á námsárangur
10-11 ára barna. Kanna átti hvort
morgunveður hefði mælanleg áhrif
á vinnu og hegðun barna í skóla.
Ef svo væri, hvort þau tengdust
ákveðnum viðfangsefnum. 1 ljós
kom að börn sem fengu lélegan
morgunverð áttu mjög erfitt með
að einbeita sér við námið. Rann-
sóknin náði til 100 barna í fjórum
bekkjardeildum. Þeim var skipt í tvo
hópa innan hverrar bekkjardeildar
og skiptust hóparnir á að fá kjarn-
góðan morgunverð og annan veiga-
minni, viku í senn, og var könnunin
unnin í samvinnu við foreldra.
Kjarngóður morgunverður saman-
stóð af mjólk, morgunkorni og
tveim brauðsneiðum með áleggi. I
léttum morgunverði var aftur á
móti ristað brauð með marmeðlaði
og te.
Kjarngóður morgunveður —
betri námsárangur
Einbeiting var könnuð og kom í
ljós að þau börn sem fengu kjarn-
góðan morgunverð, unnu hraðar og
höfðu færri villur en hin og reynd-
ist munurinn vera 40% í samlagn-
ingu, 30% í margföldun og 10% þar
sem krafist var rökrænnar hugsun-
ar. Börnin reyndust vera hug-
myndaríkari, hugsunin var fijórri
og þau fylgdust betur með, voru
líflegri og höfðu meira úthald t.d.
í leikfimi á meðan þau sem fengu
léttan morgunverð voru oft fölari
og þreytulegri og létu höfuð hvíla
oftar á höndum sér og sátu slyttis-
legri í stólunum en hin. Líkamlega
leið þeim ekki illa, en þau virtust
ekki geta’einbeitt sér að náminu
þegar svengdin sótti að. Frumkvæði
var minna.
Ekki sama hvað borðað er
Niðurstöður voru þær, að undir-
stöðugóður morgunverður heldur
sykurmagni í blóði í jafnvægi.
Frumur heila og annarra hluta lík-
amans, sem starfa eðlilega, þurfa
orku og næringu. Taugafrumur fá
næringu eingöngu úr þrúgusykri
(glúkósa). Þessvegna er mikilvægt
að jafnvægi sé á blóðsykrinum. Ef
morgunverður er eingöngu ristað
brauð með marmelaði og te, þá
stígur sykur hratt í blóði til að bytja
með en fellur svo hratt niður aftur,
eftir stuttan tíma. Hjá þeim sem
borðuðu próteinauðugan morgun-
verð reyndist blóðsykurinn hærri
þrem tímum eftir neyslu en þegar
borðaður var málsverður með sama
hitaeiningamagn en minna prótín.
Ljóst er því að það er ekki hitaein-
ingamagnið sem skiptir máli, heldur
hvað borðað er.
Ókeypis morgunverðir
Bandaríkjamenn hafa í auknum
mæli farið út í að bjóða börnum
úr fátækum þjóðfélagshópum
kjarngóðan morgunverð í skólunum
áður en kennslan hefst á morgn-
ana. Árangurinn er sagður vera
ótvíræður og raunar hafi hann í
mörgum tilfellum ráðið úrslitum um
færni og möguleika nemanda til að
ná ár'angri í skóla.
í skólann án morgunverðar
Kennari við framhaldsskóla einn
(menntaskóla) hér í borg sagði eitt
sinn að það mætti eins vel afskrifa
fyrstu kennslustundina á morgn-
ana, nemendur fylgdust svo illa
með. Lausleg könnun leiddi í ljós
að sérstaklega unglingsstúlkur
færu í skólann án þess að hafa
borðað morgunverð. Hér á landi er
minni áhersla lögð á neyslu stað-
góðs morgunverðar en áður var.
Þar að auki eru sælgætis- og gos-
drykkjasölur í skólum sjálfum eða
við skólana opnar í fyrstu frímínút-
um, sem óvíða annarsstaðar væri