Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 37 Varðan á Bláfellshálsi. Ljósm. K.M.B. Afmælisgangan: Reykjavík — Hvítárnes, 11. ferð: Sandá — Bláfellsháls í tíma og ótíma Jökulá allvæn kemur úr Haga- vatni. Er nafn hennar einkennilegt: Farið, rennur í Sandvatn, en úr vatninu falla tvær ár. Önnur er Asbrandsá, sem fyrr var nefnd. Hin er Sandá, rennur í suðaustur til Hvítár. Vatnsmagn í Sandá er mjög breytilegt. Um sumar er hún oftast svo lítil að hún er enginn farar- tálmi, en hún getur orðið flugmikil, jafnvel ófær hveiju farartæki. En nú skiptir það ferðamann litlu, áin var brúuð fyrir nokkrum árum, og má vera að sumir vegfarendur taki nú naumast eftir henni. Skammt fyrir innan Sandá eru vegamót. Liggur þar vegur þvert til vinstri. Er það leiðin upp að Hagavatni, talin um 13 km, all- greið, en nokkuð grýtt á köflum. Leiðin frá Sandá liggur um mela. Þetta er heldur auðnarlegt land. Öðruvísi var hér umhorfs fyn-um. Þess er getið í Fornbréfasafni að kirkjur í Tungum áttu skógarhögg allt inn í Bláfellsháls, og kolagrafir má sjá þar sem enn er óblásið. Nú er þar lítill gróður. Helzta prýðin eru Brunnalækir, renna þar austan undir hári melbrún, silfurtært berg- vatn, og sums staðar gróður. Mér hefur ætíð fundizt að í Brunnalækj- um sé vatn tærara en annars stað- ar, ef til vill vegna þess hvað nafn- ið er fagurt. Brátt er komið að Grjótá. Venju- lega er hún tær og lítill farartálmi, getur þó orðið mikil, jafnvel erfið yfirferðar. Er þá stundum jökull í henni, enda eru efstu drög hennar í litlum dal upp við jökul milli innstu Jarlhettu og vestasta hluta Skálpa- ness. Skammt innan við Grjótá er kom- ið að rótum Bláfells. Gróið land er framan við fellið austan vegar. Þar heitir Fremstaver, áningarstaður hestum og sauðfé. Er þá venjulega farið austan undir fellinu. Þar er minna gijót, en heldur lengri leið en yfir hálsinn. Allmikla brekku er upp að fara á þessari leið. Er meira en 300 m hæðarmunur á Sandá og Bláfells- hálsi. Lítt er gróið land þar sem vegurinn liggur upp hálsinn. Blá- fellsháls virðist lítt bjóða fram feg- urð, tilbreytingu né neitt annað sem vert er skoðunar. Göngumaður gæti þó lagt lykkju nokkra á leið sína til að fá að sjá annað og meira en það sem við augum blasir. Ganga mætti upp með Gijótá. Verður þá gil eftir nokkra göngu. Liggur það úr hálsinum ofanverðum og niður undir Gijótá. Heitir það Valagil. Það getur verið vatnslítið, og í þurrkatíð á sumrin er það með öllu þurrt. Það er ekki mjög djúpt ofan til, en er neðar kemur í hallann, víkkar það talsvert og dýpkar mjög, og eru þar háir hamrar. Niðri er fagurt graslendi á einum stað. Er þar kvos út úr aðalgilinu en háir hamraveggir mynda hálfhring eða Tlutuncv Heílsuvörur nútímafólks Á slóóum Ferdafélags íslands skeifu um grasblettinn. Þessi staður nefnist Kórinn. Hamraveggirnir og gi-asflötin minna nokkuð á Al- mannagjá. Sjá nánar Árb. FÍ 1961, 111. bls. Auðsætt er að þarna hefur fyrr- um runnið stjórfljót, sennilega af- rennsli jökuls, spm hefur legið fram á Bláfellsháls. Á einum stað má sjá brún, þar sem stór foss hefur fallið. Er bergið þar mjög vatnssnúið með miklum skessukötlum. Er merkilegt að sjá þennan mikla farveg þar hátt upp í Bláfellshálsi. Einnig má ganga að Kórnum af veginum ofarlega í hálsi. Er sú leið eigi löng. Skammt er upp á háhálsinn frá botni Valagils. Þaðan þykir hentug- ast að ganga á Bláfell. Er þar gott uppgöngu, þótt hæðarmunur sé um 600 m. Er frábært útsýni af fjali- inu. Einnig er ágætt útsýni af Blá- fellshálsi til Langjökuls, fjallaklas- ans utan byggðar svo og fram yfir byggðina sjálfa. 11. ferð afmælisgöngunnar verð- ur farin sunnudaginn 9. september kl. 9.00. Haraldur Matthíasson Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Tímaflakk (,,Millenium“). Sýnd í Regnboganum. Leikstjóri: Michael Anderson. Aðalhlut- verk: Kris Kristofferson, Cheryl Ladd, Daniel J. Tra- vanti. Tímaflakk er vísindaskáldskap- armynd gerð eftir smásögu John Varley „Air Raid“ sem setur upp nokkuð athyglisverða og sláandi framtíðarsýn þúsund ára iðnaðar- samfélagsins og leikur sér for- vitnilega að hugtakinu tímaferða- lag. En því miður tekst ekki að vinna nægilega vel úr efniv.iðnum, myndin koðnar niður í andlausa rómantík aðalpersónanna á stór- um köflum og furðulegri endur- tekningu, sem vel má vera að líti vel út á pappír en er óvíst að þjóni nokkrum tilgangi. Myndin er, eins og íslenska þýðingin bendir til, um tímaflakk, hvernig það er orðið eina lífsvon framtíðarríkisins í kringum árið 3000 og hættuna sem það hefur í för með sér og kölluð er þver- stæða í myndinni. Hugmyndin er sú að ef tímaferðalangur sem ferðast þúsund ár til samtímans úr framtíðinni breytir gangi sög- unnar að einhveiju ráði gengur breytingin yfir öll þúsund árin-og stigmagnast þar til hún leggur samfélagið í rúst í ógurlegum „þverstæðuskj álfta“. Inní þessa grunnhugmynd, sem ætti að kitla vísindaskáldskapar- fikla og hasarblaðaætur, er fléttað hliðarsögu um ástarsamband tímaferðalangsins Cheryl Ladd og rannsóknarmanns flugslysa í líki afar þreytulegs Kris Kristoffer- sonar en til að viðhalda fram- tíðarríkinu, sem er að deyja út, flytja tímaflakkararnir dauða- dæmda flugfarþega með sér inní framtíðina rétt áður en vélarnar skella til jarðar og setja í staðinn nákvæmar eftirlíkingar allra um borð. Það má sjá á Tímaflakki að hún hefur ekki þúsundmilljóna fjár- hagsáætlun sumarsmellanna sér til halds og trausts en leikmyndir og gervi hins næstum því útdauða mannkyns árið 3000, sem hefur hrörnað svo mjög að sálin er næstum ein eftir, er engu að síður ágætlega unnið. Það sem vantar er kraftur í frásögnina og spenna. Myndin dettur niður á löngum köflum og þegar heilu atriðin eru leikin aftur af ástæðum sem of langt mál er að útskýra finnst manni myndin aldrei ætla að koma sér að efninu. Cheryl Ladd er hin hressilegasta í hlutverki aðaltímaflakkarans, sem því mið- ur dregur enn meiri athygli að því hve Kristofferson er dauðyflis- legur. Leikstjórinn, Michael Ander- son, er nú orðinn sjötugur og hefur fengist við margt um ævina og gert ólíklegustu myndir. Hann leikstýrði Umhverfis jörðina á áttatíu dögum árið 1956 ogfékkst einnig við vísindskáldskap í „Log- an’s Run“ árið 1975 en gerði líka t.d. hallærið „Orca - Killer Whale“ með Richard Harris. Hann á enn sínar stundir. LAUGARDAGSRIS í Reiðhöllinm 8. september Tryggið ykkur miða á laugardagstón í tíma á meðan miðar eru til Pantanasími fyrir iandsbyggðina er MIÐAVERÐ kr. 3500,- lo Reykjavik: Skífan, Kringlunni og Laugavegi 33; Hljóðfærahús Reykjavíkur, Laugavegi 96; Steinar, Austurstræti, Álfabakka 14, Glæsibæ, Laugavegi 24, Rauðarárstíg 16 og Eiðistorgi; Myndbandaleigur Steina; Plötubúðin Laugavegi 20. Hafnarf|örður: Steinar, Strandgötu 37. Akranes: Bókaskemman. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga. isafjörður: Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfélag Skag- firðinga. Akureyri: KEA. Neskaupstaður: Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Selfoss: Ösp. Keflavík: Hljómval. Munlð: Flugleiðir veita 35% afslátt af verðí flugferða gegn framvísun aðgöngumiða að risarokktónleíkunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.