Morgunblaðið - 06.09.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
Sjálfseignarstofnunin EIR:
Hjúkrunarheimili fyrir 90
sjúklinga reist í Gufunesi
Hjúkrunarheimilið við Gagnveg. Teikning Teiknistofunnar hf..
REYKJAVÍKURBORG, Seltjarn-
arnesbær og nokkur félagasam-
tök hafa stofnað sjálfseignar-
stofnun, sem ber nafnið EIR, og
á hún að annast byggingu og
rekstur hjúkrunarheimila fyrir
aidraða. Stofnunin undirbýr nú
byggingu heimilis fyrir 90 sjúkl-
inga við Gagnveg í Gufunesi og
er áformað að fyrsti áfangi þess
verði tekinn í notkun haustið
1992. Alls er gert ráð fyrir að
kostnaður vegna byggingar heim-
ilisins verði 750 milljónir króna,
auk 100 milljóna vegna innrétt-
inga.
Á hjúkrunarheimilinu við Gagn-
veg verða sérdeildir fyrir blinda og
alzheimersjúklinga, auk tveggja al-
mennra deilda. Heimilið á alls að
hýsa 90 sjúklinga og verða þar af
24 rými fyrir blinda og 20 fyrir
alzheimersjúklinga. Fyrirhugað er
að hluti þessara sjúklinga verði vist-
aðir í orlofsvistun, auk þess sem
þar verður dagdeild fyrir 20
manns. Áætlað er að á heimilinu
verði um 130 slöðugildi.
Páll Gíslason, formaður stjórnar
sjálfseignarstofnuninnar, segir að
áætlað sé að hún standi fyrir bygg-
ingu annars hjúkrunarheimilis inn-
an fárra ára og hafí Seltjarnarnes-
bær lýst vilja sínum til að útvega
lóð undir það. Á næstu 6 til 7 árum
verði því byggð heimili með rými
fyrir um 200 sjúklinga. Páll segir
að á undanförnum árum hafí átt
sér stað átak í Reykjavík í byggingu
þjónustuíbúða fyrir aldraða, en nú
sé fyrir hendi þörf fyrir Ijölgun
hjúkrunarrýma.
Að sögn Páls hafa teikningar að
heimilinu í Gufunesi verið sam-
VEÐUR
VEÐURHORFi YFIRLIT í GÆR: Um 994 mb. lægð sem þc vaxandi 995 mb. lægð norð-austur. JR í DAi 200 km suð- ikast suð-auí og munu þæ Q fí QPDTPMRPP Jjr w* wCf / UVItStZK /estur af Vestmannaeyjum er tur en vestur af Skotlandi er r sameinast og hreyfast aust-
SPÁ: Hæg breytileg á e.t.v. dálitil súld á Aus tt og skýjað tfjörðum. Hit! með köflum um allt land. Þó 7-11 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg suölæg átt. Skýjaö og dálítíl rígning
á Suðvestur- og Vesturlandí, en þurrt og víða léttskýjað é Norður-
og Austurlandi.
HORFUR Á LAUGARÐAG: Austlæg átt. Viða rigning austanlands
en þurrt um landtð vestanvert.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r / Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA ki. 12:00 í gær htli Akureyri 9 Reykjavik 10 UM HEIM að ísl. tím veflur skýjað alskýjað
Bergen Helslnki 12 13 rigning skýjað
Kaupmannahöfn 18 hálfskýjað
Narssarssuaq 4 alskýjað
Nuuk 6 skýjað
Óstó 15 skýjað
Stokkholmur 13 skýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Algarve 28 skúr
Amsterdam 17 skór
Barcelona 29 skýjað
Berlln 12 sktír
Chlcago 82 þokumóða
Fenenar vantar
Franklurt 16 skýjað
Qlasgow 13 súld
Hamborg 18 léttskýjað
LasPalmas 26 skýjað
London 18 rlgnlng
Los Angeles iQ 17 lóttskýjað
Madríd ÉÉÉ léttskýjað
Malaga 29 helðskirt
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 17 skúr
NewYork §Éɧ hálfskýjaö
Orlando 24 þokumóða
Parts t* alskýjað
Róm 27 hálfskýjað
Vin 16 þrumuveður
Washington vantar
Wlnnipeg 12 léttskýjað
Morgunblaðið/Bjami
Sjálfseignarstofnunin EIR undirbýr nú byggingu hjúkrunarheimilis
fyrir aldraða við Gagnveg í Gufunesi. Þær framkvæmdir voru kynnt-
ar fyrir fjölmiðlum á fundi í gær og sést hér Páll Gíslason, stjórnar-
formaður stofnunarinnar, í ræðustól.
þykktar og verður jarðvinna við það
boðin út á næstunni. Heimilið verði
byggt í fjórum áföngum og verði
sá fyrsti tekinn í notkun haustið
1992. Áætlaður kostnaður við
byggingu heimilisins sé um 750
milljónir króna, auk þess sem kosta
muni um 100 milljónir að innrétta
það. Gert sé ráð fyrir, að undirbún-
ingur vegna byggingar hins heimil-
isins geti hafíst árið 1993.
Sjálfseignarstofnunin var stofn-
uð síðastliðinn föstudag. Að henni
standa, auk Reykjavíkurborgar og
Seltjarnarnesbæjar, samtök blindra
og blindravina, Sjómannadagsráð í
Reykjavík og Hafnarfirði, Sjálfs-
eignarstofnunin Skjól, Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur og Félag
aðstandenda Alzheimersjúklinga.
í stjórn stofnunarinnar sitja Páll
Gíslason, formaður, sr. Sigurður
H. Guðmundsson, varaformaður,
Pétur H. Maack, gjaldkeri, Guð-
mundur Hallvarðsson, Pétur Sig-
urðsson, Halldór Rafnar og Helga
Einarsdóttir. Jáfnframt hefur verið
kjörin byggingamefnd vegna fram-
kvæmdanna við heimilið í Gufunesi
og í henni sitja þeir sr. Sigurður
H. Guðmundsson, Guðmundur Hall-
varðsson og Magnús Margeirsson.
Stofnunin mun fjármagna fram-
kvæmdir sínar og rekstur með því
að leita eftir framlögum frá ein-
staklingum, fyrirtækjum, samtök-
um og stofnunum, auk þess sem
leitað verður eftir framlögum frá
stjómvöldum. Henni hafa þegar
borist framlög að upphæð kr.
750.000 frá Blindrafélaginu og kr.
750.000 frá Blindravinafélaginu,
auk einnar milljónar króna fram-
lags frá Styrktarsjóði Skjóls.
Forseti Islands:
Þriggja daga heim-
sókn th Lúxemborgar
FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heldur í næstu viku
í þriggja daga opinbera heimsókn til Lúxemborgar. Dagskrá heim-
sóknarinnar hefst strax þegar forsetinn lendir á Findel-flugvelli í
Lúxemborg um hádegi á mánudag, og munu gestgjafar Vigdísar,
stórhertogahjónin af Lúxemborg, taka á móti henni þar ásamt
öðru fyrirfólki stórhertogadæmisins.
Að lokinni móttökuathöfn aka
þjóðhöfðingjarnir til hallar stórher-
togahjónanna, þar sem snæddur
-verður hádegisverður. Þá mun Jac-
ques F. Poos, utanríkisráðherra
Lúxemborgar, halda Jóni Baldvini
Hannibalssyni, utanríkisráðherra
íslands, hádegisverð, og þeir ræða
utanríkismálefni landa sinna.
Seinna um daginn mun forseti ís-
lands leggja blómsveig að minnis-
varða um fallna hermenn, koma
til móttöku í ráðhúsi Lúxemborg-
ar, og hitta ráðamenn Lúxemborg-
ar að máli. Um kvöldið halda stór-
hertogahjónin kvöldverðarboð
henni til heiðurs.
Á þriðjudeginum heimsækir for-
setinn borgina Clervaux, og skoðar
meðal annars klaustur borgarinn-
ar, þar sem Halldór Laxness dvaldi
í eina tíð. Að því loknu verður
haldið til Echternach, og dómkirkj-
an þar skoðuð. Seinna þennan dag
mun Vigdís heimsækja höfuðstöðv-
ar gervihnattafyrirtækisins Société
Europeénne des Satellites. Síðdeg-
is verður síðan móttaka fyrir Is-
lendinga sem búsettir eru í Lúxem-
borg. Um kvöldið heldur forsetinn
síðan kvöldverðarboð til heiðurs
stórhertogahjónunum.
Á síðasta degi heimsóknarinnar,
miðvikudegi, mun forsetinn meðal
annars skoða glerverksmiðju í
bænum Bascharage, lista- og þjóð-
minjasafn Lúxemborgar og ganga
um borgarmúra Lúxemborgar. Síð-
degis verður síðan haldið til íslands
á ný.
Endurbætt Útrás hefur
útsendingar á föstudag
ÚTRÁS, útvarpsstöð framhaldsskólanna á höfuðborgarsvæðinu, hef-
ur útsendingar á ný eftir sumarfrí föstudaginn 7. september. Að
sögn Stefáns Sigurðssonar verður stöðin betri en áður og dagskráin
endurbætt, meðal annars verða meiri kröfur gerðar til dagskrárgerð-
armanna en verið hefur.
Útsending hefst klukkan 16 á
föstudag og sent verður út látlaust
fram á sunnudag, „með mikilli
gleði og fjörí,“ segir Stefán. Fyrstu
tvær vikurnar verða vanir dag-
skrárgerðarmenn við stjórnvölinn
og þjálfa þeir nýtt fólk, sem síðan
tekur við af þeim. Öll vinna við
útvarp Útrás er sjálfboðavinna
nemenda skólanna, sem að
stöðinni standa.
Reglubundinn útsendingartími
Útrásar, eftir tvo fyrstu sólarhring-
ana, verður frá klukkari 16 til
klukkan 01 virka daga. Föstudaga
og laugardaga verður sent út frá
klukkan 12 á hádegi tif klukkan
04 og á sunnudögum verður sent
út frá klukkan 12 á hádegi til klukk-
an 01. Útsendingartíðni Útrásar er
FM 104,8.
Að Útrás standa Fjölbrautaskól-
arnir í Garðabæ, Breiðholti og Árm-
úla, Menntaskólinn í Reykjavík,
Menntaskólinn í Hamrahlíð, Mennt-
askólinn í Kópavogi, Menntaskólinn
við Sund, Kvennaskólinn og Iðn-
skólinn í Reykjavík.