Morgunblaðið - 06.09.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
23
Búist við mikilli þátt-
töku í Esjuþolgöngu
Á SUNNUDAG verður efnt til
þolgöngu upp Esjuhlíðar, nánar
tiltekið frá landi Mógilsár að
fremstu brúnum á Þverfells-
horni. Það er Flugbjörgunar-
sveitin sem stendur að þessari
göngukeppni, ásamt Radíóbúð-
inni hf. og Apple-umboðinu, og
er búist við mikilli þátttöku. I
gærmorgun hafði þegar vel á
annað hundrað manns á aldrin-
um 9-52 ára skráð sig í gönguna.
Að sögn Sighvats Blöndal, eins
aðstandenda keppninnar, var fyrir-
fram búist við að 50-100 manns
tækju þátt í göngunni. „Við höfum
fullan hug á því að gera Esjuþol-
gönguna að árlegum viðburði,"
sagði Sighvatur. Hann sagði, að
leiðin sem ganga ætti væri um 2
kílómetrar að lengd, og hæðarmun-
urinn um 760 metrar. Göngfólkið
mun hittast í landi Mógilsár um
klukkan 13.30 á sunnudag, og verð-
ur hópurinn ræstur klukkan 14.00.
„Þessi leið er ekki erfið yfirferðar,
en öll á fótinn. Félagar úr Flug-'
björgunarsveitinni verða göngufólki
til halds og trausts, og auk þess
verður sjúkralið til taks komi eitt-
hvað upp á,“ sagði Sighvatur enn-
fremur.
Sá sem fyrstur nær áfangastað
fær Apple-SE einkatölvu að laun-
um. í önnur verðlaun er svo Nord-
mende myndsegulbandstæki, og í
þau þriðju sambyggt ferðatæki af
tegundinni Goldstar. Að auki fá
allir keppendur 10% afslátt í Radíó-
búðinni og hjá Apple-umboðinu í
septembermánuði.
Þverfellshorn
I Kollaf iðrOurl
Sú leið sem gengin verður í Esjuþolgöngunni á sunnudag.
iKerhólakambur
Landsmarka-
skrá 1989
er komin út
ÚT er komin fyrsta landsmarka-
skráin. I henni eru öll búíjár-
mörk í landinu sem birtust í
markaskrám 1988 auk þeirra
marka sem auglýst voru í Lög-
birtingablaðinu frá útgáfu
skránna til ársloka 1989.
Þetta er fyrsta rit sinnar tegund-
ar hér á landi og ætti að nýtast
öllum þeim sem hafa með skepnu-
hald að gera.
í ritinu kemur fram auk lands-
markaskrárinnar, yfirlit yfir sam-
ræmd markaheiti, markaskrár og
markaverði, helstu skammstafanir,
sveitarfélagaskrá, bæja- og staða-
skrá, markvarðamörk, lög um af-
réttamálefni, fjallskil o.fl. nr.
6/1986 og reglugerð um búfjár-
mörk, markaskrár og takmörkun á
sammerkingum húfjár nr.
579/1989.
Landsmarkaskrá 1989 er 432
blaðsíður, prentuð í litlu upplagi á
vandaðan pappír og er í góðu bandi.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson hafði
umsjón með útgáfunni. Hún fæst á
skrifstofu Búnaðarfélags íslands,
Bændahöllinni við Hagatorg, 3.
hæð og kostar eintakið 4.000 krón-
ur.
(Frcttatilkynnmg)
Dagur læs-
is á laug-
ardaginn
DAGUR læsis verður næstkom-
andi laugardag, 8. september,
segir í fréttatilkynningu frá
menntamálaráðuneytinu.
í Iðnó hefst maraþonlestur
klukkan 10 að morgni laugardags-
ins og stendur lesturinn til kvölds.
Leikarar Þjóðleikhússins sjá um
þennan þátt og aðgangur er ókeyp-
is. Hátíðahöld verða á Lækjartorgi
og í miðbænum verður lúðraþytur
og skrúðgöngur barna og fullorð-
inna. Einnig verður opnuð sýning á
stafrófskverum í Landsbókasafninu
á laugardaginn.
&HZ*
JttffrjgifttMftfrifr
ALVORU FJALLAHJOL
í tilefni 65 ára afmælis okkar bjóóum vió MUDDY FOX ADVENTURER, alvöru fjallahjól
með alvöru búnaði:
21 gíra SUNTOUR-XGT - smelligírar (index), POWERING sveifasett, SUNTOUR- EXPRESS
takkagírskiptar, ACCU-PLUS FREEHJÓL, sérhertar ARAYA álfelgur, krómolý stell (sterkara
en venjulegt hjólastál), Karbotek gaffall, öflugar DIACOMBE gaffalbremsur.
OG ALLT ÞETTA Á EINSTÖKU
AFMÆLISTILBOÐI
Áóur kr. 39.740,-
Nú kr. 28.950,- staógr.
1925 OG MEÐ 20 ÁRA ÁBYRGÐ!
_ . Reidhjólaverslunin
ORNINNl
65 AR
1990
OPIfl
LAUGARDA6A
EUhOCARD
instorg simar 14661 26888
VISA
Stofnsett 1925