Morgunblaðið - 06.09.1990, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
MatthíasJohannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 90 kr. eintakið.
Fækkun fyrirtækja í
sjávarútvegi
Inýju sérblaði Morgun-
blaðsins um sjávarútveg,
Úr verinu, sem fylgdi blaðinu
í gær, birtist viðtal við Svein
Ingólfsson, framkvæmda-
stjóra Skagstrendings á
Skagaströnd, þar sem hann
fjallar um_ stöðu mála í sjáv-
arútvegi. í viðtali þessu segir
Sveinn Ingólfsson m.a.:
„Staðreyndin er sú, að við
erum með of marga sjávarút-
vegsstaði og fyrirtæki í sjáv-
arútvegi til þess að vinna
þann afla, sem við megum
veiða. Þess vegna hljóta ein-
hver þeirra að fara á hausinn
og því miður segi ég, er fyrir-
tækjunum alltaf „reddað“.
Þegar allt er að fara á haus-
inn koma pólitíkusarnir og
bjarga málunum undir
yfirskini byggðasjónarmiða.
Þeir vita þó, að eftir skamm-
an tíma þurfa þeir að koma
aftur og hjálpa sama fyrir-
tæki eða útgerðinni á næsta
firði vegna þess, að heildar-
aflinn dugir ekki fyrir okkur
alla. Ég tel réttara, að þegar
í mikla erfiðleika er komið í
einu byggðarlagi eigi stjórn-
völd að athuga, hvort ekki
væri réttara að gefa fólki
kost á að fá peninga í eigin
vasa til þess að koma sér
fyrir annars staðar. Þær út-
gerðir, sem eiga ekki kvóta
nema til hálfs árs fara yfir
um, en þó varla þannig, að
staðir detti út í heilu lagi.
Tekjurnar verða einfaldlega
ekki nægar, ef ekki er hægt
að gera út 10-12 mánuði á
ári. Mín skoðun er sú, að það
þurfi að fækka fyrirtækjum
í sjávarútvegi um að minnsta
kosti 10%“
Þetta eru athyglisverð
ummæli forystumanns í sjáv-
arútvegi, sem hefur byggt
upp eitt sérstæðasta fyrir-
tæki í sjávarútvegi á lands-
byggðinni. Sérstaða þess er
fólgin í því, að hlutabréf í
fyrirtækinu hafa gengið
kaupum og sölum á hluta-
bréfamarkaði undanfarin ár
eða eftir, að skráning hluta-
bréfa hófst fyrir nokkrum
árum.
Þegar Sveinn Ingólfsson
er spurður, hvort kvótakerf-
inu hafi fylgt sú hagræðing
í sjávarútvegi, sem að var
stefnt segir hann: „Að mörgu
leyti og auðvelt er að nefna
dæmi frá Granda og Útgerð-
arfélagi Akureyringa. Bæði
þessi fyrirtæki hafa lagt
skipum og fært kvóta á önn-
ur skip til að geta haldið
þeim að veiðum allt árið.
Þetta er ekki þægilegt nema
þú eigir mörg skip, en ég sé
fyrir mér samstarf ólíkra fyr-
irtækja um að nýta skipin
sem bezt og á sem hagkvæm-
astan hátt. Tökum sem
dæmi, að ef frystiskipin Ven-
us, Freri og Mánabergið hafa
ekki kvóta nema til átta
mánaða á hvert skip væri
ofur eðlilegt að leggja eða
selja eitt þessara skipa og
eftir væri heils árs kvóti á
hvort hinna skipanna. Hvað
ætti að vera á móti svona
samvinnu?“
Rík ástæða er til að taka
undir þessi ummæli Sveins
Ingólfssonar. Samvinna af
því tagi, sem hann nefnir til
þess að nýta fiskiskipin á sem
hagkvæmastan hátt er for-
senda fyrir því, að þjóðin
geti náð meiri hagnaði út úr
fiskveiðunum. Aðvaranir
hans gegn björgunaraðgerð-
um stjórnmálamanna, sem
eru í raun ekki bara frestun
á vanda heldur aukning á
vanda, eru tímabærar. Sú
skoðun hans, að nauðsynlegt
sé að fækka fyrirtækjum í
sjávarútvegi er áreiðanlega
rétt. Óneitanlega vekur það
nokkra bjartsýni um fram-
vindu mála á vettvangi fisk-
veiða og fiskvinnslu er einn
af forystumönnum í þessari
grein lýsir sjónarmiðum sem
þessum. Það verður aldrei
lögð nægilega mikil áherzla
á nauðsyn þess að fram-
kvæma róttækar breytingar
í sjávarútvegi.
Sú hætta er augljóslega
fyrir hendi, áð þessar breyt-
ingar taki of langan tíma og
að lífskjörin haldi áfram að
versna eða batni a.m.fe. ekki
vegna þess, að endurskipu-
lagning þessarar atvinnu-
greinar gangi' ekki nógu
hratt fyrir sig. Að þessu
þurfa forsvarsmenn sjávarút-
vegsins að huga.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson.
Boðaslóö 13. Eigendur Jórunn Einarsdóttir og Friðþjófur Másson.
V estmannaeyjar:
Viðurkenningar veittar
fyrir snyrtileg hús og garð
Vestmannaeyjum.
Garðyrkjufélag Vestmanna-
eyja veitti nýlega viðurkenn-
ingu fyrir snyrtileg hús og
garða.
Fyrir valinu urðu: Boðaslóð 13,
eigendur Jórunn Einarsdóttir og
Friðþjófur Másson og Vesturvegur
13B, eigandi Ragnhildur Magnús-
dóttir. Einnig var veitt viðurkenn-
ing fyrir frumlegan garð að
Kirkjuvegi 13. Eigandi Lára Em-
ilsdóttir og Viðar Guðmundsson.
- Sigurgeir
Ragnhildur Magnúsdóttir ásamt bör
13B.
Lára Emilsdóttir og Viðar Guðmur
Stykkishólmur:
Útivistarsvæði opn-
að í Súgindisey
Stykkishólmi.
SÚGINDISEY sem er fyrir framan höfnina í Stykkishólmi hefur verið
opnuð sem útivistarsvæði fyrir ferðamenn og íbúa staðarins. Við lagfær-
ingar á höfninni þar sem meðal annars er aðstaða fyrir nýja flóabátinn
Baldur var gerð uppfylling þannig að nú er hægt að komast á bílum
að uppgönguleiðinni í eyjuna en áður þurfti að fara á bátum.
Nafn eyjarinnar er þannig tilkom-
ið að súgur leikur þama um höfnina,
enda var höfnin opin báðum megin
og það hélt henni hreinni. Voru skipt-
ar skoðanir um þær framkvæmdir í
höfninni sem opnuðu Súgindisey.
Helsta mótbáran var að við þetta
myndi þessi súgur hætta og höfnin
jafnvel fyllast af óhreinindum. Einnig
að eyjan myndi spillast vegna mikils
ágangs fólks.
Súgindsey er skemmtileg og
margbrotin eyja. Fyrir utan klettana
sem blasa við höfninni em gróður-
vaxnar lendur og þar er hægt að
gera fagra áningarstaði. Búið er að
útbúa einn útsýnisstað með trébekkj-
um við hæfí. Tröppur hafa verið
gerðar upp í eyjuna. Þær eru 57.
I eyjunni er viti sem gengur fyrir
gasi. Stór gashylki eru notuð og hér
á árum áður var erfítt að koma þeim
upp í eyjuna. Var notað sérstakt
spil til þess en það er nú orðið ónot-
hæft. Spilið er þó enn í eyjunni sem
minnisvarði um vinnubrögð liðins
tíma.
að verða vinsælt útivistarsvæði. Von-
andi verður þessari perlu ekki spillt
því oft þarf lítið til að eyðileggja við-
kvæma staði.
Arni
Spilið sem gashylkin voru dregii
Lfklegt er að Súgindisey eigí eftir Bekk hefur verið komið fyrir úti-í Súgindisey.