Morgunblaðið - 06.09.1990, Qupperneq 27
h
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
27
num sínum Magnúsi Bergssyni og Þóreyju Bergsdóttur að Vesturvegi
idsson fengu viðurkenningu fyrir frumlegan garð að Kirkjuvegi 13.
Geysispennandi íslandsþing:
Héðinn efstur þrátt fyrir
tap gegn Jóni L. Arnasyni
__________Skák_______________
Bragi Kristjánsson
YNGSTI keppandinn, Héðinn
Steingrímsson, heldur enn
forystunni á Skákþingi ís-
lands, þótt hann hafi tapað
illa fyrir Jóiii L. Árnasyni í
sjöundu umferð í fyrrakvöld.
Stórmeistarinn náði snemma
undirtökunum og mátti Héð-
inn rétta fram höndina, þegar
Jón L. mátaði hann í 33 leik.
Halldór Grétar sá til þess, að
Héðinn missti ekki efsta sæt-
ið. Hann tefldi af mikilli hörku
gegn Margeiri. Sá síðarnefndi
braut allar brýr að baki sér í
vinningstilraunum og mátti
játa sig sigraðan eftir æsi-
spennandi skák, þar sem báðir
léku ónákvæmt.
Önnur úrslit: Þröstur Þ. —
Björgvin, '/■>-, Snorri — Hannes
Hlífar, 'A; Sigurður Daði —
Þröstur Á., ‘A; Árni Ármann —
Tómas, 0-1. Staðan, þegar íjórar
umferðir eru eftir, er eins jöfn
og hugsast getur:
1. Héðinn Steingrímsson, 5
v. 2.-3. Margeir Pétursson og
Björgvin Jónsson, 4'A v. 4.-5.
Jón L. Árnason og Hannes Hlífar
Stefánsson, 4 v. 6.-7. Þrestirnir
Þórhallsson og Árnason, 3 'A v.
8.-10. Halldór Grétar Einarsson,
Snorri Bergsson og Tómas
Björnsson, 3 v. 11. Sigurður
Daði Sigfusson, 2'A v. 12. Árni
Ármann Árnason, 1 'Av.
Hvítt: Halldór Grétar Einars-
son.
Svart: Margeir Pétursson.
Drottningarindversk-vörn.
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- b6, 4. a3 - Bb7, 5. Rc3 -
d5, 6. cxd5 - Rxd5, 7. e3 -
g6, 8. Bb5+ - c6, 9. Bd3 -
Rxc3, 10. bxc3 — Bg7, 11. a4
- c5,12. Ba3 - Rd7,13. 0-0 -
I skákinni Karl Þorsteins,
Margeir Pétursson, Akureyri
1988, náði svartur betra tafli
eftir 13. a5 — 0-0, 14. a6 —
Bd5, 15. C4 - Bxf3, 16. Dxf3
- cxd4!, 17. Bxf8 - Re5, 18.
De2 — d3!!, 19. Bxg7 — dxe2,
20. Be5 - Dd3!, 21. Bf6 - e5!?,
o.s.frv.
13. - 0-0, 14. Bb5 - Hc8, 15.
a5 - Hc7, 16. Da4 - Rf6, 17.
axb6 — axb6, 18. Db3 — Re4,
19. Be2 - Hd7, 20. Hfcl -
Bc6, 21. Bb5 - Hd6, 22. Bxc6
- Hxc6, 23. Db5 - Dc7, 24.
Re5!? - Bxe5, 25. dxe5 - f5,
26. exf6 -
Til greina kemur 26. f3 -
Rg5, 27. Hdl o.s.frv.
26. - Rxf6
27. f3?! -
Líklega hefði verið betra að
leika 27. h3 - Re4, 28. Ha2
o.s.frv.
32. Bcl - Rf7, 33. Bf4 - e5,
34. Be3 - Hfd8, 35. Ha6 -
Hd3
Margeir hefur ágæta stöðu,
en í framhaldinu leggur hann
allt undir í vinningstilraunum.
36. Hel - H8d6, 37. f4! -
Hvítur opnar taflið til að
reyna að koma biskupi sínum í
skotfæri við kóng andstæðings-
ins.
37. - Hxc3, 38. De8+ - Kg7,
39. fxe5 - Dc6
Staðan er orðin mjög flókin
og spennandi. Ef svartur t.d.
leikur 39. — Hd8, 40. De6 —
Db7, 41. Df6+ - Kg8, 42. Bh6!
og hvítur vinnur.
40. Ha8? -
Halldór Grétar missir af bestu
leiðinni: 40. Bh6+! - Rxh6 (40.
— Kxh6, 41. Df8+ ásamt 42.
exd6 o.s.frv.) 41. De7+ — Kg8,
42. exd6 og hvítur ætti að vinna,
þótt svartur eigi einhver sóknar- ^
færi.
40. - Dxe8, 41. Hxe8 - Hdd3,
42. Bcl - Hc2+, 43. Kh3 -
Hf3,44. e6 - Re5,45. Bg5? -
Eftir 45. Bf4 kemur upp svip-
uð staða og í skákinni.
45. - h6?
Svartur bjargar sér með 45.
- Hff2, 46. Hhl - H6! (46. -
Rf3, 47. He7+ - Kg8 (47. -
Kf8, 48. Hf7+ - Ke8, 49.
Hxf3!, Hxf3, 50. Hal og hvítur
vinnur) 48. Bh6 og hvítur vinn-
ur) 47. Bf4 - Rf3, 48. Hal -
Ha2, 49. Hxa2 - Hxa2, 50. Bd6 9
- Rg5+, 51. Kg4 — Rxe4, 52.
Be5i— Rf6+ o.s.frv.
46. Bf4 - Rd3, 47. Bd6 -
Hff2, 48. e7 - Hxh2+, 49. Kg4
- RÍ2+, 50. Kf3 - Hc3+
Margeiri eru allar bjargir
bannaðar.
51. He3 — Hxe3+, 52. Kxe3 —
Rg4+, 53. Kd3 - c4+, 54.
Kxc4 - Rf6, 55. Hf8 - Rxe4,
56. Be5+
og svartur gafst upp.
ii á upp í vitann.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Tröppurnar 57 upp í eyjuna.
Framtak Dansk-íslenska félagsins á N-Jótlandi:
Island kynnt í mánað-
ardagskrá í Álaborg
ALLAN septembermánuð gefst
íbúum á Jótlandi kostur á að
kynna sér íslenska menningu,
náttúru og þjóð og fer átakið fram
í Álaborg. Fjöldi Islendinga tekur
þátt í kynningunni með einum og
öðrum hætti, þ. á m. listamcnn.
Það var dansk-íslenska félagið á
Norður-Jótlandi sem hratt hug-
myndinni, er nefnist „Focus pá
Island,“ úr vör og naut stuðnings
ýmissa fyrirtækja og stofnana, á
Islandi jafnt sem í Danmörku.
Gefið var út myndarlegt blað til"
að kynna átakið.
Átakið hófst 1. september með
mikilli skemmtidagskrá á Gl. Torv í
Álaborg og setti Frank Iversen vara-
borgarstjóri dagskrána. Valgeir Guð-
jónsson spilaði og söng, dansflokkur
sýndi listir sínar, einnig sýndu íslend-
ingar þjóðdansa. Reiðfélagið Tvistur
kynnti íslenska hesta og eiginleika
þeirra. Listasafn Norður-Jótlands
sýnir m.a. verk Jóhannesar Kjarvals
og aðrar stofnanir sýna verk
Tryggva Ólafssonar og fleiri mynd-
listarmanna. Kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur,
og Atómstöðin eftir Þorstein Jónsson
verða sýndar í samkomumiðstöðinni
Huset, Blásarakvintett Reykjavíkur
heldur hljómleika, fluttir verða fyrir-
lestrar um bókmenntir og sögu,
handboltalið frá Húsavik, vinabæ
Álaborgar, kemur í heimsókn og
.HfilgLOlafssqn, stórmeistari j.skák,
Forsíða kynningarblaðs ísland-
skynningarinnar í Álaborg.
teflir fjöltefli við 30 manns í Huset
Fjölmargt annað verður á dag-
skránni sem lýkur 30. september.
Sett var á laggirnar nefnd Danc
og íslendinga til að hafa yfiramsjór
með framkvæmdum og er ræðismað-
ur íslands á Norður-Jótlandi, K,- E
Bengtsen, forstjóri Skipasmíðastöðv-
ar Álaborgar, formaður hennar. Lars
Áke Engblom, forstjóri Norræna
hússins í Reykjavík, er í nefndinni
og meðal íslenskra nefndarmanna
eru Kristinn Kristinsson, formaðui
dansk-íslenska félagsins, og Guðrúr
Helgadóttir, forseti sameinaðs Al-
þingis;