Morgunblaðið - 06.09.1990, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
39
jtfib
spor
í rétta
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
ÍSS.HELGASONHF
ISTEINSMIOJA
■ SKEMMUVEGI48. SIMI76677
KENNARAÍ. / VETÚR:
A UÐVJuny
Samkvæmlsdansar: standard og suður-amerískir
Barnadansar - Gömlu dansarnir
Byrjendur - Framhald - Hóptímar - Einkatímar
Allir aldurshópar velkomnir:
Barnahópar - Unglingahópar - Einstaklingar
Pör og hjón - Starfsmannahópar - Félagasamtök
Gestakennarar skólans í vetur:
Julie Tomkins og Martin Cawston frá Englandi
Kennslustaðir: Bolholt 6 í Reykjavík
og Garðalundur í Garðabæ
Kennum einnig úti á landi.
Bolholti 6, Reykjavík s. 36645
Innritun í símum:
36645
&
685045
alla daiga.
kl. 12 - 20
2.-11. september
Skírteini afhent
í Bolholti 6
þriðjudaginn 11. sept.
kl. 16-22
Það er ávallt erfitt að skilja og
skýra rök almættisins þegar fyrir-
varalaust er kallað á fólk í blóma
lífsins. Birna veiktist snögglega á
þessu vori þegar dagur er lengstur
og allt í umhverfinu minnir á mátt
lífsins.
Skjótt var ljóst að ekki var von
um bata,
Við töldum Birnu einmitt barn
vorsins, þar sem hún hafði til að
vera meðfædda athafnaþrá og hug-
myndaauðgi svo ríka að oft var
erfitt að fylgja þegar hún lýsti
framtíðaráformunum.
Leiðir okkar lágu fyrst saman
fyrir um tuttugu árum í söng og
félagsstarfi Fóstbræðra. Glæsileiki
og hrífandi framkoma Birnu, sem
bar með sér sérstaka umhyggju
fyrir starfi kórsins, voru þá og síðar
þau einkenni sem löðuðu til frekari
kynna. í gegnurn árin hafa sam-
verustundir fyrst og fremst tengst
kórstarfinu þar sem þau hjónin
hafa verið hinar styrkustu stoðir
og Birna starfaði fórnfúst að félags-
starfi kvennanna. Á kveðjustund
leita á hugann minningar þar sem
Birna var potturinn og pannan í
starfinu, gaf góð ráð og hvatti. Oft
heyrðust frá henni setningar eins
og þessi að loknum konsert: „Ég
kann ekki að syngja strákar en þið
syngið eins og englar.“ Eða að
henni fannst við ekki sína næga
sönggleði á söngpalli og sagði:
„Brosið þið strákar, þið verðið að
brosa.“ Einnig minningar frá ferða-
lögum utanlands og innan þar sem
Birna var hrókur alls fagnaðar því
það var hennar einkenni að geta
tekið forystu og hrifið fólk með
sér. Okkur er minnisstæðust síðasta
ferðin okkar til Kanada á liðnu ári,
en þar ferðuðumst við um í þrjár
vikur. Oft var glatt á hjalla eftir
ferðalag dagsins eða hljómleika og
það var eins og Birna vildi segja
að við skyldum njóta lífsins meðan
við gætum.
Birna fæddist á Isafirði og ólst
þar upp til 16 ára aldurs og þar
lauk hún skólagöngu. Þá heillaði
útþráin og Birna dvaldist m.a. um
eins árs skeið í Bretlandi. Nítján
ára stofna þau til hjúskapar hún
og eftirlifandi eiginmaður, Eiríkur
Tryggvasón múrarameistari, og
búa fyrstu árin í Reykjavík, en
1970 ákváðu þau að hleypa heim-
draganum og flytja til Svíþjóðar þar
sem Eiríkur starfaði að iðn sinni í
nokkur ár. Þar'var auðhéyrt að þau
varðveittu góðar minningar frá
þessum árum og að dvölin ytra
hafði aukið þeim víðsýni og skapað
tengsl við nýja vini en það var eigin-
leiki Birnu umfram. aðra að geta
skapað kynni og várðveitt.
Samlíf þeirra hjóna var heillandi
enda bæði eins og sköpuð fyrir
hvort annað, þar sem nægur þroski
var ávallt fyrir hendi til að mæta
vandamálum daganna. Birna lagði
áherslu á að eiga vináttu barnanná
og taka þátt í leik þeirra og starfi. ■
Það mun styrkja þau nú við móður-
missinn.
í fyllingu tímans, þegar börnin
þrjú voru orðin sjálfbjarga, leitaði
Birna sér leiða í sjálfstæðri atvinnu-
starfsemi því það var ekki hennar
eðli að láta aðra segja sér fyrir.
Hún vildi verða sjálfs sín herra þar
sem hún gætti nýtt hugmyndaauðgi
sína og skapað ný tækifæri.
Brautin var þyrnd og ekki var
allt uppskorið í launum að kvöldi,
en Birna hafði kjark, vilja og trú á
að þeir tímar kæmu að erfiðið skil-
aði árangri en tímann fékk hún
ekki. Við ræddum stundum málin,
og spurningum eins og hvernig
gengi var svarað og í vor ætluðum
við að hittast og hún að segja mér
meira um framtíðina og leita álits.
Af þeim fundi varð ekki því tíminn
gaf ekki grið.
Við hjónin kveðjum Birnu og
þökkum gefandi kynni og vináttu
og biðjum góðan Guð að veita þér,
Eiríkur, börnunum og allri fjöl-
skyldunni styrk í sorg ykkar.
Viðar og Guðrún
Tvær nýjar kennslu-
bækur í hljóðfæraleik
ÚT ERIJ komnar tvær
kennslubækur fyrir nemendur í
hljóðfæraleik eftir Björgvin Þ.
Valdimarsson. Þær heita
„Píanó-leikur 2. hefti“ og
„Trompet-leikur 2. hefti“.
Píanóbókin er framhald af
„Píanó-leik 1. he_fti“, sem kom út
síðastliðið haust. I bókinni eru bæði
innlend og erlend lög og ýmis verk-
efni sem tengjast lögunum. Einnig
fylgja íslenskir textar flestöllum
lögunum. Aftast í bókinni eru nokk-
ur jólalög í einföldum útsetningum.
Trompetbókin er framhald af
„Trompet-leik 1. hefti“, sem kom
út síðastliðið haust. í bókinni eru
lög af ýmsum toga bæði innlend
og erlend. Nokkur laganna eru út-
sett fyrir tvo trompeta (dúett) og
nokkur eru útsett með léttum píanó-
undirleik. Þau lög sem ekki eru
útsett sérstaklega eru flest hljóm-
sett. Eins og í píanóbókinni eru
nokkur þekkt jólalög aftast í bók-
inni. Útgefandi er höfundur bók-
anna.
(Fréttatilkyiming)
KX-T2365 E
Skjásími sem sýnir klukku, símanúmer sem valið er,
tímalengd símtals.
Handfrjáls notkun — 28 hraðvalsminni — Endurhringir
sjátfkrafa 4 sinnum — Hægt að setja símanúmer í skamnt-
tíma endurvalsminni — Hægt að geyma viðmælanda —
Tónval — Stillanieg hringing — Hægt að.setja símanúmer
í minni á meðan talað er — Veggfesting.
KX-T 2386 BE
Sími með símsvara — Ljós í takkaborði — Útfarandi skila-
boð upp í V2 mín. — Hvert móttekið skiiaboð getur verið
upp í 2'/2 mín. — Hátalari — Lesa má inn eigin minnis-
atriði — Gefur til kynna að 15 skilaboð hafa verið lesin
inn — Hægt að ákveða hvort símsvarinn svari á 3 eða 5
hringingu — Tónval/púlsval — 15 minni, þar af 3 númer
fyrir hraðval — Endurhringing — Hægt að geyma við-
mælanda — Stillanieg hringing — Hljóðstillir fyrir hátal-
ara — Veggfesling.
KX-T 2322 E / KX-T 2342 E
KX-T 2342 E handfrjáls notkun - KX-T 2322 E hálf-
handfrjáls notkun — 26 númera minni, þar af 6 númer
fyrir hraðval — Endurhringing — Hægt er að setja síðast
valda númer í geymslu til endurhringingar, einnig er hægt
að setja símanúmer í skammtíma minni á meðan talað er.
— Tónval/púisval — Hljóðstillir fyrir hátalara — 3 still-
ingar fyrir hringingu — Veggfesting.
0HEKLAHF
Laugavegi 170-174 Sími 695500
DANSSKOLI
FID - Félag íslenskra danskennara
Dl - Dansráð íslands