Morgunblaðið - 06.09.1990, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BERGÞÓR N. MAGNÚSSON,
Nökkvavogi 1,
andaðist að morgni 5. september í Borgarspítalnum.
Hulda Bergþórsdóttir,
Magnús Bergþórsson, Þórunn Jónsdóttir,
Björn Bergþórsson, Anný Bergþórsson,
Ragnhildur Bergþórsdóttir, Atli Elíasson,
Konráð Bergþórsson,
Gunnar Bergþórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
JÓNÍNA MAGNÚSDÓTTIR,
Fjólugötu 15,
Akureyri,
andaðist 27. ágúst.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hulda Guðmundsdóttir, Arnkell B. Guðmundsson,
Svanfriður Guðmundsdóttir, Tryggvi Sæmundsson,
Skarphéðinn Guðmundsson,Kristjana Jónsdóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ESTHER GUÐMUNDSDÓTTIR,
Suðurgarði 22,
Keflavfk,
verður jarðsungin frá Keflavfkurkirkju í dag fimmtudagínn 6. sept-
ember, kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir.
Zakarías Hjartarson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
FRIÐJÓN SVEINBJÖRNSSON
sparisjóðsstjóri,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugardaginn 8. septem-
ber kl. 14.00.
Þeir, sem vildu minnast hans, láti Hjartavernd njóta þess.
Björk Halldórsdóttir,
Sigrfður^Margrét
og Halldóra Björk Friðjónsdætur.
+
Eíginmaður minn, faðir okkar og afi,
KJARTAN JÓHANNESSON,
Karfavogi 34,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 7. september
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á styrktarsjóð Vífilsstaða-
spítala.
Valgerður Jónsdóttir,
Þorgeir Rúnar Kjartansson,
Kristrún Harpa Kjartansdóttir,
Guðjón Kjartan Viggósson,
Jerry Dwayne Willíams.
+
Ástkær eiginkona mín, fósturmóðir okk-
ar, tengdamóðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR ÞÓRÓLFSDÓTTIR,
Skipasundi 60,
Reykjavfk,
lést á Borgarspítalanum þriðjudaginn
4. september.
Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju
mánudaginn 10. september kl. 13.30.
Kristján J. Einarsson,
Erna M. Kristjánsdóttir, Sfmon Ágúst Sigurðsson,
Ómar Á. Kristjánsson, Anna Björg Kristbjörnsdóttir,
Sólveig Kristjánsdóttir, Sigþór Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KJARTAN GISSURARSON
fisksali
frá Byggðarholti f Flóa,
Sæviðarsundi 38,
Reykjavfk,
andaðist í Vífilsstaðaspítala þann 5. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Karen Gissurarson,
Inga Kjartansdóttir, Guðni J. Guðnason,
Gunnar Kjartansson, Ágústa Árnadóttir,
Anna Kjartansdóttir, Björn S. Lárusson,
Erla Kjartansdóttir, Sigurbjörn E. Kristjánsson,
Kristján Kjartansson, Stefanía K. Karladóttir,
Sonja Kjartansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Viggó Jessen vél-
fræðingur—Minning
Fæddur 30. september 1909
Dáinn 22. júní 1990
Viggó R. Jessen var fæddur á
ísafirði, sonur þeirra merkishjóna
Sigþrúðaj, dóttur Guðmundar Guð-
mundssonar bátasmiðs þar og J.H.
Jessen er var danskur vélsmiður frá
Esbjerg. J.H. Jessen kom til ísa-
fjarðar 1902 á vegum Molrubb
verksmiðjunnar dönsku enselt hafði
vél í nýsmíðaðan bát er verða mundi
fyrsti opni vélbáturinn á íslandi,
eign Árna Gíslasonar útgerðar-
manns og Sophus J. Nielsen versl-
unarstjóra. Báturinn hlaut nafnið
Stanley. Jessen setti vélina í bátinn.
Hún var reynd 11. nóvember 1902.
Svo vel reyndist vél og bátur að
menn þóttust strax sjá það er síðar
varð, að hér væri að hefjast úpphaf
vélaaldar. J.H. Jessen stofnaði
fyrstu fullkomnu vélsmiðju á íslandi
með 16 starfsmönnum. Fimmtán
útgerðarmenn gengu í ábyrgð fyrir
stofnláni. Vélsmiðjan var fyrst
starfrækt í húsi tengdaföður hans
en síðar keypti Jessen hús Ásmund-
ar Sigurðssonar og byggði vélsmiðj-
una út frá því. Vélsmiðja J.H. Jes-
sen varð fyrsta og elsta vélsmiðja
á íslandi og þar lærðu margir nafn-
kunnir menn vélsmíði svo sem
Gunnlaugur Fossberg, Gísli Jónsson
alþingismaður, Hallgrímur Jónsson
og Þorsteinn Árnason, J.H. Jessen
var talinn góður vélsmiður og hann
yar vinsæll og mjög virtur af öllum.
Með véltækninni hófst bylting í
útgerð ísfirðinga. Hinir þróttmiklu,
afburða duglegu sjómenn, skip-
stjórar og útgerðarmenn brugðu
hart við og létu smíða og keyptu
frá útlöndum hinn glæsilega vél-
skipaflota er vakti óskipta athygli
um ísland allt á fyrsta fjórðungi
þéssarar aldar. Utileguvélskipin frá
Isafirði báru alls staðar af og aflinn
var eftir því. ísfirðingar eiga að
njóta sannmælié, sem þeim ber, að
hafa verið brautryðjendur vélaaldar
á Islandi undir forustu J.H. Jessen.
Þegar þau- Sigþrúður og J.H.
Jessen giftust var Sigþrúður talin
ein af glæsilegustu dætrum ísa-
fjarðar. Þau eignuðust þijú börn.
Helga var elst, þá Jens og yngstur
var Viggó. En nú urðu snögg um-
skipti. Hins framkvæmdasama, vin-
sæla vélsmiðs naut ekki lengi. Hann
smitaðist af taugaveiki og dó eftir
stutta legu frá sinni glæsilegu konu
og þremur ungum börnum. Helga
ólst upp með móður sinni og síðar
seinni manni hennar, Þórði Þórðar-
syni vélsmið, er tók við rekstri vél-
smiðjunnar. Helga giftist þjóðkunn-
um athafnamanni, Ingólfi B. Guð-
mundssyni byggingameistara í
Reykjavík. Jens fluttist ungur til
Esbjerg, ólst þar upp og gerðist
kaupmaður þar. Viggó ólst upp hjá
móðurömmu sinni, Helgu Símonar-
dóttur hómopata og afa, Guðmundi
Guðmundssyni bátasmið. Með
seinni manni sínum, Þórði, eignað-
ist Sigþrúður þijá syni, afburða
duglega menn, sem allir urðu vél-
meistarar á okkar stærstu frakt-
skipum og síðar vélsmiðir í landi.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓNJÓNASSON
járnsmiður,
Eskihlíð 22,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 7. september
kl. 13.30.
Þóra Eiriksdóttir,
Kristín Jónsdóttir, Gylfi Guðjónsson,
Jón Torfi Gylfason,
Hjalti Gylfason.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SVAVA VALDIM ARSDÓTTIR
frá Súgandafirði,
Kleppsvegi 50,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. september
kl. 10.30.
Jóhannes Þ. Jónsson,
Aðalheiður Jóhannesdóttir,
Þórður Jóhannesson, Jóhanna Björk Bjarnadóttir,
Guðrún Kristfn Jóhannesdóttir,
María Þrúður Weinberg, Arthur Weinberg
og barnabörn.
+
Dóttir mín og systir okkar,
ERLA BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Suðurgötu 24,
Sauðárkróki,
verður jarðsungin frá Glaumbæjarkirkju laugardaginn 8. septem-
ber kl. 14.00. Jarðsett verður í Sauðárkrókskirkjugarði.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Sjálfsbjörgu, landssam-
'band fatlaðra.
Emilía Lárusdóttir,
Sveinn Brynjólfsson,
Stefanía Brynjólfsdóttir,
Jóhanna Brynjólfsdóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og iangamma,
ODDNÝ INGVELDUR TÓMASDÓTTIR
frá Efri-Presthúsum,
Mýrdal,
sem andaðist 3. september, verður jarðsungin frá Reyniskirkju í
Mýrdal laugardaginn 8. september kl. 15.00.
Elin Sólveig Guðjónsdóttir, Kristján Ólason,
Ólafur Tómas Guðjónsson,
Brynjar Kristjánsson,
Ingólfur Kristjánsson,
Helgi Kristjánsson,
Þorsteinn Óli Brynjarsson.
Þeir heita Siguijón, Þór Birgir og
Jens.
Þótt dvöl J.H. Jessen vélsmiðs
væri ekki löng hér á landi, hefur
hann mótað djúp hamingjuspor fyr-
ir land og þjóð með brautryðjenda-
starfi til vélaaldar er lyft hefur þjóð-
inni frá örbirgð til þeirrar velmeg-
unar er við nú njótum.
Það fór að líkum að Viggó fetaði
í fótspor föður síns og gerði vél-
fræðina að sínu lífsstarfi. Hann hóf
undirbúning vélsmíðalærdóms í vél-
smiðju þeirri er faðir hans hafði
stofnað og stjúpfaðir hans stjóm-
aði. Við þau undirbúningsstörf
dvaldist Viggó í fjögur ár þar til
skólaganga hófst. Áð lokinni skóla-
göngu stúndaði hann siglingar sem
vélstjóri á skipum Eimskipafélags
íslands, fyrst á Brúarfossi og síðar
á Lagarfossi. Að lokinni vélfræð-
ingsmenntun hætti hann siglingum
og fór í land.
Hann hafði kynnst eftirlifandi
konu sinni Huldu, dóttur Kristjáns
Sigurðssonar kaupmanns á Akur-
eyri og konu hans Sigurlaugar Jak-
obsdóttur. Hulda er hin ágætasta
kona, greind og vel menntuð. Þau
giftust 20. september 1936. Eftir
giftinguna bjuggu þau á Hjalteyri.
Þar tók Viggó við vélstjórn Síldar-
bræðslu Kveldúlfs hf. Árið 1945
fluttust þau til Reykjavíkur, að
Grenimel 6, og hafa búið þar síðan.
Þau Viggó og fiulda eignuðust tvö
böm, Inger og Kristján. Inger er
líffræðingur, gift Jóhanni Axelssyni
prófessor, þeirra sonur er Viggó
Karl. Kristján er háskólakennari og
vísindamaður í London, kvæntur
enskri konu, Rónu, sem er háskóla-
kennari þar.
í Reykjavík starfaði Viggó sem
umboðs- og skoðunarmaður trygg-
ingaféiags Loyds og Nörska Verit-
as. Allir bera honum sama orð og
föður hans, J.H. Jessen, sökum ein-
lægni, trúmennsku og drengskapar
á öllum sviðum. Nú em liðin 63 ár
síðan ég kynntist Viggó, hinum
sterktrúaða unga manni, er þá vann
í vélsmiðju á ísafirði. Þá tengdumst
við vináttuböndum og hélst sú vin-
átta til hans hinsta dags. Viggó var
ávallt glaður og orðvar svo af bar.
Aldrei kom blótsyrði yfir hans varir
og aldrei heyrði ég hann hallmæla
neinum þótt tilefni gæfist. Hann
var eitt mesta drengskapar og ljúf-
menni sem ég hef kynnst. Ungur
gekk hann í skátahreyfinguna og í
KFUM. Það hlóðust á hann trúnað-
arstörf og í öllum félögum var hann
hinn virki aðili. Hann starfaði í
Gideonfélaginu og var ritari þess
félags í 11 ár. Hann var í safnaðar-
stjórn Nessafnaðar og Rotaryfé-
lagi. Við hlið hans stóð Hulda, eigin-
kona hans, bæði í félags- og dagleg-
um störfum, í einlægri trú og kær-
leika.
Orð féllu niður
í GREIN Ragnheiðar Ríkharðs-
dóttur, Svona gerum við, sem
birtist í Morgunblaðinu í gær,
féllu niður nokkur orð i setningu
í næst síðustu málsgreininni.
Rétt er setningin þannig:
„Ég tel læsi ekki aðeins vera
fólgið í því að nemandi geti lesið
stafarunu, heldur að nemandi skilji
textann og geti endursagt . . .“
Höfundur og lesendur eru beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.