Morgunblaðið - 06.09.1990, Page 49

Morgunblaðið - 06.09.1990, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 49 KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA „Nú getum við andað léttar..." Frönsku leikmennimir mjög ánægðir með að fara með tvö stig frá Reykjavík Morgunblaöið/Einar Falur MARK! Atli Eðvaldsson rak hælinn „vinalega" í knöttinn, einsog hann orðaði það sjálfur, er hann skoraði mark íslands í leiknum í gærkvöldi. Atli hörfir hér á eftir knettinum í netið; Frakkarnir Perez og markvörðurinn Bruno Martini fá ekkert að gert. Baráttuleysið kemur okkur alltaf í koll - sagði Ólafur Þórðarson! Boltinn átti ekki að fara gegnum þvöguna, sagði hann um seinna markið „ÉG er mjög ánægður með leik- inn og úrslitin en þetta var virkilega erfitt í seinni hálf- leiknum," sagði Manuel Amo- ros, fyrir Frakklands. að kóm mér á óvart hve slakir Islendingarnir voru í fyrri hálf- leiknum. Þeir komust aldrei í gang. Ógnuðu aldrei. En í seinni hálfleik gekk leikaðferð þeirra upp. Þá kom í ljós hve sterkt liðið er — sjálfs- traustið jókst eftir að þeir náðu að sækja á okkur, en markið kom of seint til að þeir ættu möguleika á að jafna.“ Amoros sagðist vissulega hafa orðið skelkaður þegar Pétur Péturs- son skaut í stöngina í upphafi síðari hálfleiks. „Það má auðvitað reikna með að andstæðingurinn fái einhver færi á að skora — en sem betur fer nýttist þetta ekki. Svona er knatt- spyrnan..." sagði franski fyrirliðinn og brosti ánægjulega. Bruno Martini, markvörður „Þetta var ákaflega erfitt í síðari hálfleik. Þá voru Islendingamir mjög hættulegir. Við vomm heppn- ir í byijun hálfleiksins þegar þeir áttu skot í stöng — það færi kom eftir mjög laglega sókn íslenska liðsins," sagði markvörðurinn, sem hrósaði haþpi þegar Pétur skaut í stöngina. Um mark Atla sagði Martini: „Eg átti ekki möguleika á að verja. Hann var skyndilega aleinn fyrir framan markið og skaut snöggt með hælnum." Franck Sauzee, miðvörður „Maður getur vissulega andað léttar eftir að hafa náð tveimur stig- um hér. Þetta var mjög mikilvægur leikur fyrir okkur, það er erfitt að sækja Islendinga heim og ánægju- legt að ná að sigra. Þeir eru líkam- lega sterkir, berjast af miklum krafti og það var alls ekki óraun- hæft að þeir skyldu ná að skora. Það var oft erfitt að átta sig á því hvemig knötturinn myndi skoppa — völlurinn var blautur og frekar ósléttur. Hann er ekki stór; og þeg- ar svo er verður oft þröngt á þingi og þá getur allt gerst.“ Olafur Þórðarson var svekktur yfír baráttuleysi íslenska liðs- ins í fyrri hálfleik. „Menn högguð- ust ekki fyrir hlé og það er eins og að við þurfum alltaf að fá á okkur mark til að vakna til lífsins og byija að beijast — þetta kemur okkur alltaf í koll. Við verðum að spila frá byijun — þessar kýlingar ganga ekki og það er ekki endalaust hægt að hlaupa á eftir þessum boltum út í bláinn." Ólafur var nálægt því að forða seinna marki Frakka. „Ég gat ekk- ert gert. Maðurinn var rétt við marklínuna og mér fannst hann taka boltann með hendi. En þetta gerðist snöggt og það versta er að boltinn átti aldrei að jíomast í gegn- um þvöguna." Þorgrímur Þráinsson: Þorgrímur Þráinsson lék 15. landsleik sinn, var fyrst með fyrir níu árum og lék síðasta „alvöru“ landsleikinn á Spáni 1985, en var með gegn Færeyjum í ágúst og aftur nú. „Það er gaman að koma aftur inn í landsliðið, en verst var að við spiluðum ekki í fyrri hálfleik. Við hugsuðum fyrst og fremst um öryggið, að koma boltanum frá sér, en það var ekkert vit í þessu og framheijarnir fengu enga aðstoð. Hugrekkið kom eftir hlé, en við vorum óheppnir að fá þessi mörk á sig. í fyrra skiptið sigldi boltinn í gegnum marga menn án þes að nokkur næði að pota í hann og Cantona sló boltann inn í seinna skiptið. Við lékum þokkalega f seinni hálfleik og Frakkar fengu ekki verðskulduð færi.“ HANDKNATTLEIKUR Stjarnan fékk ekki hótel fyrir leikmenn Helsingör Stjarnan leikur gegn Helsingör IF í IHF-keppninni 16. september STJARNAN leikur gegn Helsin- gör IF í IHF-keppninni í hand- -'i knattleik sunnudaginn 16. september í Garðabæ, en ekki 23. september eins og fyrir- hugað var. Stjörnumenn fengu leiknum flýtt eftir að Ijóst var að ekkert hótel var að fá fyrir Helsingör um þessa helgi vegna Sjávarútvegssýningar í Reykjavík. Eina hótelið sem hægt var að fá inni fyrir leikménn danska liðs- Flugleiðamótið hefst í kvöld: Júlíus og félag- ar mæta FH-ingum Fyrstu tveir leikirnir í Flug- kl. 20.30. leiðamótinu í handknattleiks Á morgun verður leikið í fara fram í Kaplakrika í Hafnar- Garðabæ. Þá leika FH - Margret- firði í kvöld. Stjarnan leikur gegn en kl. 19 og Stjarnan - Asnieres Margareten frá Austurríki kl. 19 kl. 20.45. Mótinu líkur á Iaugar- og Islandsmeistarar FH leika daginn í Kaplakrika. Þá leika gegn Júlíusi Jónassyni og félögum Asnieres - Margareten kl. 15 og hans hjá Parísarliðinu Asnieres FH - Stjarnan kl. 16.30. ins var í Borgernesi, eða um 120 km frá keppnisstað. Stjörnumenn óskuðu eftir því við forráðamenn Stjörnunnar að leikið yrði fyrst í Danmörku, en þeir höfnuðu því. Vildu leika fyrst í Garðabæ og það 23. september. Danirnir samþykktu síðan að leika 16. september eftir að búið var að segja þeim frá að ekkert hótelpláss væri að hafa fyrir þá 23. september. Stjarnan mun því ekki leika gegn ÍR í fyrstu umferð 1. deildarkeppn- innar 15. september, heldur helgina eftir, 22. september. Selfoss leikur gegn Fram í fyrstu umferð laugardaginn 15. september kl. 16.30 og á sama leika Haukar - Víkingur í Hafnarfirði. Sunnudag- inn 16. september leika FH - KA kl. 16.30 og kl. 20 leika Grótta - Valur og ÍBV fær KR í heimsókn. Leikurinn far færður til Eyja vegna Sjávarútvegssýningarinnar í Laug- ardalshöllinni. iíÉMmw/ mims SrinMiir verður haldið laugardaginn 8. sept. og hefst kl. 8.00. Punktakeppni 7/8 for- gjöf, þó aldrei meira en 1 í forgjöf á holu. Mjög góð verðlaun. Fyrstu verðlaun golfsett, ásamt 7 öðr- um verðlaunum. Þátttökugjald aðeins 1.500,- kr. Skráning fer fram í síma 92-68720 milli kl. 17.00-21.00 föstudaginn 7. sept. Mótanefnd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.