Morgunblaðið - 06.09.1990, Page 50

Morgunblaðið - 06.09.1990, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI EM HEPPNIN varekki með íslend- ingum í gærkvöldi er þeir töp- uðu fyrir Frökkum, 1:2, í undan- keppni Evrópumóts landsliða í knattspyrnu. Eftir slæma byrj- un áttu Islendingar á brattann að sækja en unnu sig smám saman framar á völlinn og hefðu getað gert fleiri mörk. Færin vantaði ekki og í raun fengu þeir fleiri færi en Frakk- arnir og þegar flautað var til leiksloka í súldinni í Laugardal var það aðeins ódýrt sigurmark Eric Cantona sem skyldi liðin að. Frakkar réðu ferðinni framan af fyrri hálfleik, höfðu sterk tök á miðjunni, og léku framarlega. Sókn þeirra færði þeim mark á 12. mínútu. Jean-Pierre Logi Papin fékk boltann Bergmann aleinn nálægt víta- Eiðsson punkti, eftir laglega sendingu og .sendi boltann af öryggi í bláhornið. í kjöl- farið fylgdu nokkrar sóknir og Perez komst næst því að skora er hann komst einn í gegn en Bjarni lokaði markinu með góðu úthlaupi. Smám saman náðu íslendingar að losa tökin á miðjunni og unnu boltann oft vel með mikilli baráttu. Það gekk hinsvegar illa að finna samhetja og sóknirnar brotnuðu á sterkri vöm Frakka. Pétur Péturson og Arnór Guðjohnsen voru oftar en ekki einir gegn fjórum eða fimm varnarmönnum og höfðu lítið í þá að segja. Frakkar virtust draga sig heldur u.ftar eftir markið og að sama skapi þyngdist sókn íslendinga. Á 36. mínútu sendi Ólafur Þórðarson inná Arnór. Hann lék á Amoros og sendi boltann út í teiginn. Þar var Atli Eðvaldsson mættur en Bruno Mart- ini varði gott skot Atla í horn. Eft- ir þessa sókn virtust íslendingar hafa fengið sjálfstraust og sóttu af meiri hörku síðustu mínútur fyrri hálfleiks. Síðari hálfleikur byijaði vel hjá íslendingum. Arnór og Pétur voru grimmir í sókninni og gáfu Frökk- um lítinn frið. Miðjumennimir fylgdu mun betur með og það skap- aði hættu við franska markið. Á 54. mínútu kom besta færi íslands í leiknum. Sævar Jónsson skallaði fyrir þvert markið. Pétur Pétursson renndi sér að fjær stönginni og náði að reka mjöðmina í boltann en hann fór í stöngina. Pétur Ormslev átti skömmu síðar gott skot að marki en boltinn í varnar- mann. Auk þess áttu Islendingar nokkar góðar sóknir en yfirleitt komust franskir fætur fyrir send- ingarnar, þótt oft hafi ekki miklu munað. Bo Johansson skipti um tvo leik- menn á 65. mínútu. Rúnar Kristins- son kom inná í stað Péturs Ormslev og Ragnar Margeirsson leysti Þor- vald Orlygsson af hólmi. Þessi breyting færði liðinu aukinn sókn- arþunga og jöfnunarmarkið virtist liggja í loftinu. En í stað þess að 'íslendingar næðu að jafna, juku Frakkar forskotið og það með ákaf- lega ódýru marki. Blanc fékk bolt- ann við nærstöng eftir hornspyrnu og nikkaði honum yfir á stöngina fjær. Bjarni Sigurðsson náði ekki til hans og íslensku varnarmennirn- ir ekki heldur. Eric Cantona var hinsvegar tilbúinn og kastaði sér á boltann og ýtti yfir línuna. Staðan virtist heldur vonlaus en Islendingar sóttu áfram. Arnór fékk gott færi á 82. mínútu; stóð á mark- teig og sneri baki í markið er hann fékk boltann eftir innkast, en skot hans hitti ekki markið. „Hafði engin tök á að stjóma knettinum" Pétur Pétursson fékk skyndilega tækifæri til að jafna snemma í seinni háifleik, en boltinn fór í stöng og Frakkar sluppu með skrekkinn. „Þetta gerðist skyndilega. Sævar skallaði, boltinn í jörðina og allt í einu skaust hann til mín í mittishæð. Ég hafði engin tök á að stjórna knettinum, en reyndi að stýra honum með mjaðmar- sveiflu. Þetta hefur ef til vill litið út fyrir að vera opið, en en ég var ekki í neinni aðstöðu til að gera það sem til þurfti — stóð í báða fætur, en reyndi hvað ég gat.“ Hér á myndum Einars Fals má sjá atvikið sem Pétur segir frá. Það var svo fyrirliðinnn sjálfur, varnannaðurinn Atli Eðvaldsson, sem opnaði leikinn að nýju. Hann fékk boltann á markteig eftir horn- spyi-nu og var fljótur að átta sig og skoraði með skemmtilegri hæl- spyrnu. íslendingar náðu hinsvegar ekki að fylgja markinu eftir, áttu nokkar þokkalegur tilraunir án þess að komast verulega nálægt franska markinu og gestirnir tóku lífínu með ró það setn eftir var. Kaflaskipti Þessi leikur var nokkur svipaður viðureign íslendinga gegn Albön- um. í fyrri hálfleik voru ísiendingar heldur ragari, héldu boltanum illa og áttu fá hættuleg færi. Líkt og í Albaníuleiknum var mun meiri barátta í liðinu í síðari hálfleik; sjáifstraustið var komið og liðið lék sem ein heild. Seinna mark Frakka kom á versta tíma, rétt þegar ís- lendingar virtust líklegir til að jafna. Islenska liðið var lengi í gang, en í síðari hálfleik lék það vel. Miðjumennirnir unnu vel og vörnin var örugg, þrátt fyrir að hafa hiks- tað öðruhvoru. Olafur Þórðarson og Arnór voru á fullri ferð allan Ieikinn og Þorgrímur og Sævar voru ógnandi á vængjunum en hefðu stundum mátt vera fi: :.ui að senda boltann. Atli og Cuðni mynduðu sterka heild afta<i á miðjunni og Bjarni var öruggur í markinu. Skiptingin heppnaðist vel, Rúnar og Ragnar h'.r ptu lífi í íslenska liðið og hefð' ^afnvel mátt fara fyrr inná. Það er ekkert vafamál að Frakk- ar eru með eitt besta landslið Evr- ópu og samkvæmt bókinni ættu þeir að sigra. En í þessum leik áttu lslendingar góða möguleika á jafn- tefli — ef ekki sigri — og því er sárt að sætta sig við ósigur og töp- uð stig. í súldinni Svekkjandi tap gegn Frökkum. íslendingar mjög slakir ífyrri hálfleik en allt annað upp á teningnum eftir hlé

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.