Morgunblaðið - 06.09.1990, Page 52
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Héðinn eyk-
ur forskotið
HÉÐINN Steingrímsson vann
íTannes Hlífar Stefánsson í 8.
umferð Skákþings Islands í gær
og er nú efstur með 6 vinn-
inga.
Margeir Pétursson gerði jafntefli
við Tómas Björnsson og Björgvin
Jónsson við Sigurð Daða Sigfússon,
en Jón L. Arnason á biðskák við
Þröst Þórhallsson. Björgvin og Mar-
geir eru í 2.-3. sæti með 5 vinninga.
Sjá skákþátt á miðopnu.
Bridgesam-
bandiðvill
halda heims-
meistaramót
Bridgesamband íslands er nú
að kanna möguleika á að fá að
halda heimsmeistaramót í brids.
Er þá aðallega rætt um keppnina
um Bermudaskálina svokölluðu,
sem er á tveggja ára fresti milli
bestu landsliða heimsálfanna.
■*W Opinberir aðilar og fyrirtæki hafa
'•þegar gefið vilyrði um að styðja
mótshaidið, verði af því. Tveir fulltrú-
ar Bridgesambandsins, Helgi Jó-
hannsson og Björn Eysteinsson,
munu hitta forvígismenn Aiþjóða-
bridgesambandsins að máli í Sviss
um helgina, en þar stendur nú yfir
heimsmeistaramót í tvímenning.
Forseti Evrópubridgesambandsins
og stjórnarmaður í Alþjóðabridge-
sambandinu, _ Frakkinn Jose Dam-
iani, kom til íslands sl. vetur og tók
þá vel í þá hugmynd að ísland fengi
að halda stórmót í brids, á við Evr-
ópumót eða heimsmeistaramót. En
nú hafa komið upp deilur milli Dam-
iani og forseta Alþjóðasambandsins,
^_^tralans Denis Howard, og er jafn-
vel óttast að sambandið muni klofna.
Ekki er ljóst hvaða áhrif þetta hefur
á málaleitan Islendinga.
Keppt hefur verið um Bermuda-
skálina í brids síðan árið 1950. í
fyrstu keppninni, sem haldin var á
Bermudaeyjum, spiluðu tveir Islend-
ingar, Einar Þorfmnsson og Gunnar
Guðmundsson, í úrvalsliði Evrópu en
síðan hafa íslenskir bridsspilarar
ekki komist í þessa keppni. Gestgjaf-
ar fá að senda sveit í keppnina.
Undir hælinn lagt
Morgunblaðið/Einar Falur
íslendingar töpuðu fyrir Frökkum, 1:2, í gærkvöldi í viðureign þjóðanna
í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu á Laugardalsvellinum. Leikur-
inn var jafn lengst af og Frakkarnir þóttu heppnir að ná báðum stigun-
um. Á myndinni skorar Atli Eðvaldsson, fyrirliði, eina mark íslands und-
ir lok leiksins, sendir boltann með hælspyrnu í franska markið._„Eg vissi
af boltanum fyrir aftan mig og rak hælinn vinalega í hann, Ég miðaði
á vinkilinn en náði ekki að stýra honum þangað,“ sagði Atii.
Sjá íþróttir bls. 49-51.
Tilmæli stjórnar SH til framleiðenda:
Samdráttur í framleiðslu fyrir
Baiidarílviii ekki meiri en 20%
STJÓRN Sölumiðstöðvar lirað-
frystihúsanna hefur beint þeim
tilmælum til þeirra frystihúsa,
sem aðild eiga að SH, að þorsk-
flakaframleiðsla þeirra fyrir
Bandaríkjamarkað í liaust verði
ekki minni en 80% af framleiðslu
þeirra fyrir þann markað í fyrra-
haust. Stjórn SH ákvað á fundi
sínum, sem haldinn var á Ísafírði
í síðuslu viku, að b'eina þessum
tilmælum til frystihúsanna.
Aflamiðlun:
-900 tonn af ísfíski flutt út án leyfis
Útflutningsheimildir fimm aðila skornar verulega niður og eftirlit hert
UM 900 tonn af ísfíski voru flutt út án leyfis Aflamiðlunar í júlí síðast-
liðnum og þrjár fyrstu vikurnar í ágúst, að sögn Sigurbjörns Svavars-
sonar stjórnarformanns Aflamiðlunar. Á þessu tímabili voru því að
jafnaði flutt út um 130 tonn af ísfiski á viku umfram heimildir og
þeir, sem stóðu að þessum útflutningi, voru, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, Gámavinir í Vestmannaeyjum, Skipaafgreiðsla Vest-
mannaeyja, Skipaafgreiðsla Suðurlands, Hrellir á Höfn í Hornafírði
og Jón Asbjörnsson í Reykjavík.
„Þetta eru nánast sömu aðilar og
fjuttu út ísfisk umfram heimildir í
vor,“ segir Sigurbjörn Svavarsson.
^Við munum skera niður úthlutanir
til þessara aðila strax á föstudaginn
og það er alveg ljóst að þær verða
skornar niður allverulega," fuilyrðir
Sigurbjörn.
Hann segir að Aflamiðlun hafi
fyrst úthlutað leyfum til ísfisk-
útflutnings í mars síðastliðnum en
jjitt þúsund tonn hafi verið flutt út
umfram heimildir í apríl og maí.
Aftur á móti hafi ekkert verið flutt
út af ísfiski án leyfis í júní.
„Það er. tilgangslaust að stai'f-
rækja Aflamiðlun ef hægt er að flytja
út ísfisk án hennar leyfís og við höf-
um ritað ríkistollstjóra og sjávarút-
vegsráðuneytinu bréf, þar sem við
förum fram á að eftirlit með ísfiskút-
flutningi verði hert,“ segir Sigur-
björn. Hann upplýsir að stjórn Afla-
miðlunar muni fjalla um þetta rriál
næstkomandi mánudag þegar hún
hafi fengið svar við bt'éfum sínum
til ráðuneytisins og ríkistollstjóra.
„Menn virðast ekki útfylla t.oll-
skýrslur rétt og það er náttúrulega
alvarlegur hlutur ef menn eru að
falsa tollskjöl. Við viljum að menn
verði sviptir leyfum til að tollafgreiða
ísfiskinn eftirá og að fiskurinn verði
tollafgreiddur áður en hann fer úr
landi,“ segir Sigurbjörn. Hann upp-
lýsir að Aflamiðlun fylgist með end-
anlegum tölum yfír sölu á ísfiski
erlendis og beri þæt saman við út-
flutningsleyfin, som hun veitir. Hann
segir að umboðsmennirnir úti sendi
sjávarútvegsráðuneytinu og Fiskifé-
laginu upplýsir.gar urn hversu mikið
er selt erlend - iveiju sinni.
„Útflytjencuvnir gefa veiðieftirliti
sjávarútvegsráðuneytisins trúlega
vísvitandi rangar uppiýsingar um
ísfiskútflutninginn. Það er brot á
reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins
og hægt er að svipta menn veiðileyfi
vegna þess. „Sjávarútvegsráðuneytið
hefur ráðið tvo Breta til að fyigjast
með því hversu mikið er selt úr
íslenskum fiskiskipum og gámum á
fiskmörkuðunum í Hull og Grimsby.
Þeir eru hins vegar einungis í hálfu
starfí og komast ekki yfir að fylgj-
ast almennilega með sölunni."
Sigurbjörn segír að svipað magn
af óunnum þorski, ýsu, karfa og ufsa
verði flutt út á þessu ári og í fyrra.
Á innlendu fiskmörkuðunum hafi
hins vegar verið selt 56% meira
magn fyrstu sjö mánuðina í ár en á
sama tíma í fyrra, eða 45 þúsund
tonn. Hann segir að flutt hafi verið
út 2 þúsund tonnum meira af þorski
og ýsu til Bretlands fyrstu sjö'mán-
uðina í ár en á sama tíma í fyrra
og verðhækkunin hafi verið 40% í
erlendri mynt. Hins vegar hafi verið
flutt út samsvarandi minna magn
af óunnum þorski og ýsu til annarra
landa, til dæmis Danmerkur, þar sem
íslenski þorskurinn hafi verið saltað-
ur.
Ástæðan fyrir þessum tilmælum
stjórnarinnar er sú að þrátt fyrir
um 22% verðhækkun á þorskflökum
í Bandaríkjunum frá því í maí
síðastliðnum hefur lítið verið fram-
leitt af þorskflökum fyrir Banda-
ríkjamarkað undanfarið vegna falls
Bandaríkjadals og því er talið nauð-
synlegt að auka framleiðsluna til
að halda markaðinum.
Bandaríkjadalur hafði í gær fall-
ið um rúm 7% á þessu ári gagnvart
íslensku krónunni en sterlingspund-
ið hækkaði um 9,6% á sama tíma
og fiskverð hefur hækkað mikið í
Evrópu í ár. Til dæmis hefur verð
á þorskblokk hækkað um 50% í
Frakklandi frá því í fyrra og er nú
21,4% hærra en í Bandaríkjunum.
Framleiðendur hafa því aukið fram-
leiðslu fyrir Evrópumarkað undan-
farið og stjórn SH óttast því að
framboðið verði ekki nægilegt á
Bandaríkjamarkaði í haust.
„Við erum ekki tilbúnir að slá
striki yfir Bandaríkjamarkað og
flestir eru sammála um að það séu
verðmæti í þessum markaði," sagði
framkvæmdastjóri hjá SH og einn
af framleiðendunum sagði í samtali
við Morgunblaðið að flestir hljóti
að taka vel þessum tilmælum
stjórnar SH, þar sem þeir sjái að
ekki megi tapa markaði, sem tekið
hafi fjörutíu' ár að byggja upp.