Morgunblaðið - 27.09.1990, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
Ósennilegt að nýtt
bensínverð verði
ákveðið í vikunni
ÓSENNILEGT er talið að nýtt verð á blýlausu bensíni verði ákveðið
á fundi verðlagsráðs í lok vikunnar, þar sem ekki eru taldar líkur á
því að þá liggi fyrir svar ríkisstjórnarinnar við þeim tilmælum ASÍ
og VSÍ, að dregið verði úr skattheimtu á bensíni til að mæta hækkun-
um á innkaupsverði.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hafa olíufélögin lagt
fram beiðni til verðlagsráðs um að
gasolía ækki um 40%, svartolía um
17% og 92 oktana bensín um 13%,
en frjáls verðlagning er á 98 oktana
bensíni. Fundur í verðlagsráði verð-
ur væntanlega haldinn á föstudag,
og miðað við þróun bensínverðs er
ekki ólíklegt að olíufélögin óski eft-
ir enn frekari hækkun á bensíni.
Aðilar vinnumarkaðarins hafa
beint þeim tilmælum til ríkisstjórn-
arinnar, að dregið verði úr skatt-
heimtu á bensíni til að mæta hækk-
unum á bensínverði, en þar sem
forsætisráðherra, Ijármálaráðherra
og viðskiptaráðherra eru allir stadd-
ir erlendis, þá er talið ólíklegt að
svar hafi borist frá ríkisstjórninni
fyrir fund verðlagsráðs. Hafi svar
ekki borist fyrir fundinn er talið lík-
legt að þar verði farið fram á frest-
un ákvörðunar um nýtt bensínverð,
og er því ósennilegt að það verði
ákveðið í þessari viku.
Snæfellsnes:
Útnesvegrir öruggari
vetrarleið eftir úrbætur
Laugarbrekku, Breiðuvík.
ÚTNESVEGUR hefur verið stór-
bættur. Nýi vegarkaflinn við
Djúpudali var yfírkeyrður og er
nú fullfrágenginn og er vegurinn
miklu öruggari vetrarleið en áð-
ur.
Sjávarútvegsráðuneytið:
Rætt við
Dögun um
kaup á Haf-
þóri RE
Sjávarútvegsráðuneytið ætlar
að ræða við rækjuvinnsluna Dög-
un hf. á Sauðárkróki um kaup á
Hafþóri RE, skipi Hafrannsókna-
stofnunar, þar sem Ljósavík hf. í
Þorlákshöfn gat ekki lagt fram
viðunandi tryggingar, að sögn
Jóns B. Jónassonar skrifstofu-
sfjóra í sjávarútvegsráðuneytinu.
Ljósavík hf. var með næsthæsta
tilboð í Hafþór, 233 milljónir. Dögun
hf. var með þriðja hæsta tilboðið,
212 milljónir og býður 48 milljóna
króna útborgun. Miðað við raunvirði
tilboðanna voru Ingimundur hf. á
Siglufirði og Gjögur hf. í Grindavík
með fjórða hæsta tilboðið í skipið,
eða 200 milljónir og buðu 50 milljóna
króna útborgun. Hafþór RE er með
660 tonna rækjukvóta og 165 tonna
þorskkvóta og samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins verður rækjan unnin
á Siglufirði og þorskurinn í Grinda-
vík ef þessi fyrirtæki kaupa skipið.
Þá var svokallaður Saxhólsvegur,
sem er vegarkaflinn frá Djúpudölum
suður í Bervík, yfírkeyrður og hækk-
aður, svo að hann er nú mjög
góður. Eftir þessar ágætu vegarbæt-
ur verður Útnesvegur miklu örugg-
ari vetrarleið en áður. Menn tala nú
mikið um að leggja þurfi áherslu á
að halda áfram að byggja upp Út-
nesveg með vetrarumferð fyrir aug-
. um.
Sæmilega vel smalaðist í fyrri leit-
um, sem voru dagana 20-22. sept-
ember. Veður var sæmilegt, nema á
föstudag, 21. september, þá var
norðanrok og mjög slæmt smalaveð-
ur. Á laugardagskvöld var réttarball
í félagsheimilinu á Arnarstapa. Það
var vel sótt og fór vel fram.
F.G.L.
Staðarkirkja í Steingrímsfirði
að endurbyggingu lokinni. Á
litlu myndinni má sjá í hvernig
ástandi kirkjan var um það
leyti, sem stofnaður var sjóður
henni til endurreisnar.
Steingríms íj örður:
Staðarkirkja aftur í notkun
að lokinni endurbyggingu
HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA
verður í Staðarkirkju sunnu-
daginn 30. september nk. i
tilefni af því að lokið er
endurbyggingu kirlqunnaar.
Biskup Islands, herra Ólafur
Skúlason, mun predika við
guðsþjónustuna og Guðni
Þór Ólafsson prófastur þjón-
ar fyrir altari ásamt séra
Ágústi Sigurðssyni prófasti á
Prestsbakka.
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, sem átti frumkvæði að end-
urreisn kirkjunnar í heimsókn sinni
á Strandir árið 1981, verður við-
stödd athöfnina.
Staðarkirkja er þriðja elsta hús
á Ströndum, en hún var vígð árið
1855. Samtökin Minjavemd hafa
annast viðgerðirnar og hefur kirkj-
an nú verið endurbyggð í upphaf-
legum stíl, nema hvað turninn, sem
er seinni tíma viðbót, hefur verið
látinn halda sér. Þá hefur kirkju-
garðurinn verið stækkaður og girt-
ur vandaðri girðingu.
Við guðsþjónustuna á sunnudag
syngur kór Hólmavíkurkirkju. Org-
anisti er Ólafía Jónsdóttir.
Að guðsþjónustu lokinni er gest-
um boðið til kaffisamsætis í Grunn-
skólanum í Hólmavík, þar verða
flutt ávörp og ræður.
Steingrímur J. Sigfússon hefur miklar efasemdir um nýtt álver:
Telur flesta þætti í samn-
ingagerðinni orka tvímælis
STEINGRIMUR J. Sigfússon
samgönguráðherra og varafor-
maður Alþýðubandalagsins, seg-
ir að ekki sé hægt að ætlast til
þess að ráðherrar og þingmenn
geti tekið afstöðu til nýs álvers
á nokkrum dögum eða vikum,
og telur flesta þætti í samninga-
gerðinni við Atlantsálshópinn
orka tvímælis. Iðnaðarráðherra
hefur lýst því markmiði sínu, að
ganga frá bráðabirgðasamkomu-
lagi við Atlantsálshópinn í lok
þessa mánaðar.
Umferðarráð:
Okumenn sýni sérstaka aðgát þar
sem búast má við bömum á ferð
UMFERÐARRÁÐ hefur í framhaldi af fréttum um slys á börnum í
umferðinni, en i september hefur eitt barn látist og fimm slasast,
beint þeim tilmælum til ökumanna, að þeir sýni sérstaka aðgát þar
sem búast má við börnum á ferð.
I frétt frá Umferðarráði segir, að
fyrstu sjö mánuði ársins hafí slysum
á bömum í umferðinni í Reykjavík
fækkað miðað við sama tímabil í
fyrra. I septembermánuði hafí hins
vegar sigið á ógæfuhliðina og það
sem af sé mánuðinum hafí 6 böm
slasast í umferðarslysum í borginni,
þar af tvö alvarlega. í september
árið 1989 hafi hins vegar tvö böm
slasast lítilsháttar í umferðinni í
Reykjavík.
Umferðarráð bendir á, að hluti
þessara slysa tengist ferðum barna
með strætisvögnum og minnir á að
í umferðarlögum standi, að sérstök
skylda hvíli. á ökumönnum að aka
nægilega hægt miðað við aðstæður,
meðal annars þegar ökutæki nálgist
hópbifreið eða merkta skólabifreið,
sem numið hafí staðar til þess að
hleypa farþegum inn og út. Beinir
Umferðarráð þeim eindregnu til-
mælum til ökumanna, að þeir sýni
sérstaka aðgát, þar sem búast megi
við börnum á ferð; sérstaklega við
biðstöðvar strætisvagna og skóla-
bfla, við gangbrautir, á gatnamótum
og í nágrenni við skóla.
Umferðarráð hvetur foreldra jafn-
framt til að leiðbeina börnum sínum
hvernig þau eigi að hegða sér í
umferðinni, til dæmis gildi nokkrar
einfaldar reglur þegar farið sé yfir
götu. Þá beri að stoppa, líta vel til
þeggja hliða og hlusta eftir því
hvort bíll nálgist. Ef allt virðist í
Iagi að ganga ákveðið en með gát
yfir akbrautina og þegar ferðast sé
með strætisvagni sé öruggast að
fara úr vagninum að aftan og bíða
síðan eftir að hann aki af stað áður
en haldið er yfir götuna.
„Mér fínnst margt í þessu máli
algerlega óþroskað. Ég nefni þar í
fyrsta Iagi orkumálin, í öðru lagi
umhverfísmálin, og í þriðja lagi
staðsetningarmálin, sem hafa ekki
á nokkurn hátt verið unnin þannig
að boðlegt sé. Og síðast en ekki
síst tel ég að mat á heildarþjóðhags-
legu samhengi landsins sé á alger-
um brauðfótum, því það er svo
margt sem þarf að taka þar inn
fleira en þröngt afmarkaða útkomu
í efnahagslífinu út frá sjónarhóli
Suð-vesturhornsins. Það þarf að
taka heildarþjóðfélagsleg áhrif inn
í myndina, hættuna á verðbólgu og
þenslu á þessu svæði, byggðarösk-
un og kostnað vegna hennar og svo
framvegis. Ég vil sjá menn gera
tilraun til að taka utan um málið í
heild, en ekki slengja fram lítt rök-
studdum fullyrðingum um áhrifin
af einstökum þáttum,“ sagði Stein-
grimur J. Sigfússon við Morg-
unblaðið.
Hann sagði að óbreyttir ráðherr-
ar, eins og hann orðaði það, hefðu
ekki fengið fyrstu upplýsingar, sem
eitthvað hald var í um orkuverð og
skatta og aðra slíka þætti, fyrr en
um síðustu mánaðamót. „Það er því
til nokkuð mikils mælst að menn
stökkvi á eftir skipinu eftir að hafa
aðeins skoðað málið í nokkra daga.
Mér finnast menn þá vera svaka-
lega kaldir gagnvart þeirri áhættu
og óvissuþáttum sem þarna eru svo
augljósir. Við erum að reikna þarna
jöfnu með nánast öllum stærðum
óþekktum og það vita allir sem eitt-
hvað kunna í stærðfræði að þá
flækjast málin,“ sagði Steingrímur.
Steingrímur sat um helgina fundi
með stuðningsmönnum sínum á
Norðurlandi eystra, og sagði, að
verulega þungt væri í mönnum
vegna staðsetningarleikritsins. Þó
hefði aldrei verið ætlast til þess að
menn tækju afstöðu í þessu máli
út frá staðsetningu fyrirtækisins
einni saman og menn hefðu því
undanfarið rætt raforkusamninginn
og hve naumur hann væri, og einn-
ig þá gríðarlegu áhættu, sem fælist
í því að miða orkuverð alfarið við
álverð.
„Það hefur að vísu einn og einn
maður smitast af því, sem ég kalla
ölmusupólitíkina, en þeir eru ekki
margir sem betur fer. Ég má illa
til þess hugsa, að menn fari að reka
hagsmunamál á næstu árum, á
grundvelli samviskubits stjórnvalda
gagnvart landsbyggðinni út af ein-
hverju brottflognu álveri. Ég frábið
mér að minnsta kosti að þurfa að
vinna undir slíkum formerkjum,"
sagði Steingrímur J. Sigfússon.