Morgunblaðið - 27.09.1990, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
47
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
0"
Sjúkleiki eða heilbrigði?
Köttur í óskilum
Kannast einhver við þennan
hálfstálpaða kött, sem hefur verið
í óskilum í húsi við Háteigsveg síð-
an á miðvikudag. Upplýsingar í
síma 12125 og síma 16610.
Ritvillur
Til Velvakanda.
Eg er mjög óánægður með
(stafjsetninguna á Morgunblaðinu.
Mér finnst henni hafa farið snar
versnandi. Algengt er, til dæmis í
minningargreinum, að sjá tvær til
þrjár ritvillur (stafavíxl, brottfali, .
. . ) í 20 til 40 dálksentimetrum.
Velvakandi og innsíðurnar aftantil
eru engu skárri. Þetta eru kannski
þeir hlutar blaðsins sem fæstir hafa
áhuga á að lesa vandlega yfír fyrir
'prentun, að minnst kosti mætti
búast við að blaðamenn, sem semja
sínar greinar sjálfir inn í tölvu og
leggja nafn sitt við, lesi sínar grein-
ar vandlegar yfir.
Á dögum tölvusetningar er þetta
alger óþarfi því hægt er að fá ódýr
forrit sem gætu á sjálfvirkan hátt
fundið langflestar þessar ritvillur.
Eins er hægt að fá forrit sem gætu
lagað skiptingu milli lína, sem er
einnig í ólestri hjá Morgunblaðinu.
Er meira lagt upp úr magni texta
en merkingu?
Tryggvi Edwald
Til Velvakanda.
Ég hef verið að velta fyrir mér
ýmsu varðandi íþróttamál og stefnu
þeirra og hef spurt sjálfan mig, eru
íþróttir nútímans komnar út í öfg-
ar? íþróttir sem gera eingöngu út
á árangur örfárra útvaldra í örfáum
útvöldum greinum. Þessar sömu
íþróttir hafa svo með tímanum
skapað sjúklegt andrúmsloft múg-
æsingar og seijunar þar sem menn
eins og Maradonna og Carl Lewis
ganga guði næstir eins og íþrótta-
fréttamenn gefa oft í skyn. Niður-
staðan úr þessum vangaveltum
verður oftast sú að mér sýnist að
tilgangur íþrótta þjóni ekki lengur
markmiði þeirra.
Tökum sem dæmi handbolta-
landsliðið og umfang þess. Ef að
almenningsíþróttir fengju þó ekki
væri nema hluta af því fjármagni
sem rennur til landsliðs útgerðar-
innar þá væri hægt að gera hér
stóra hluti í heilbrigðisátaki lands-
manna og í leiðinni vil ég varpa
fram þeirri spurningu, til hvers eru
íþróttir? Eru þær til þess að styrkja
sál og líkama allra landsmanna eða
eru þær tæki til úrkynjaðrar sófa-
mötunar. Hér eru haldin almenn-
ingshlaup eins og Reykjalundar-
hlaupið, fólk hjólar í og úr vinnu
og svo ein fjölmennasta heilsurækt
og íþrótt Islendinga; sundiðkun.
Allt eru þetta hlutir sem spara okk-
ur skatta, auka vellíðan okkar og
virkni í okkar litla samfélagi. En
hvemig er svo stutt við þetta. Af
fenginni reynslu þá veit ég að al-
menningsíþróttir og keppnisgreinar
skyldar þeim hirða einungis brauð-
molana sem hrökkva af borðum
íþróttahreyfíngarinnar og heil-
brigðisyfirvalda. í stað þess að láta
Næla
Þú sem tókst næluna á lokahófí
Fyrstu deildarinnar á Hótel íslandi
sl. laugardagskvöld. Þetta er sér-
smíðuð næla, gefín mér af sam-
starfsfólki og er mér óskaplega
kær. Ég trú ekki að hún veiti þér
gleði og því bið ég þess að þú send-
ir mér hana.
Soffía Guðmundsdóttir,
Hagalandi 11.
270. Varmá, Mosfellsbæ.
BADMINTON!
Lausir tímar í vetur:
Mánud Þriðjud. Hús 1 (5 Miðvikud. valla hús): Fimmtud. Föstud. Laugard.
10.30 10.30 10.30 10.30 10.30 09.10
11.20 11.20 11.20 11.20 11.20 10.00
13.00 13.00 12.10 13.00 13.00 12.10 13.00 12.30
16.20 16.20 15.30 20.30 -
i 22.10 22.10 22.10 22.10 21.20 22.10
Hús 2 (12 valla hús):
Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud.
12.00 12.00
13.30 13.30
14.20
12.00
14.20
13.30
14.20
12.00
13.30
21.50
22.40
21.50
22.40
21.50
22.40 22.40
16.50
18.30
19.20
21.00
21.50
09.20
10.10
11.00
11.50
12.40
13.30
14.20
15.10
16.00
17.40
09.20
10.10
11.00
11.50
12.40
13.30
14.20
15.10
16.00
16.50
17.40
Unglingatimar:
Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud.
13.30 13.30 13.30 13.30
14.20 14.20 14.20 14.20 14.20
15.10 15.10 15.10
16.00 16.00 16.00
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur
Gnoðarvogi 1 - s. 82266.
uppákomur eins og fjöldahlaup og
fjallgöngur ganga fyrir í íþrótta-
fréttum þá mætir slíkt afgangi ef
að nokkur er. Hér er þörf á rót-
tækri breytingu. Ég segi, látum
almenningsíþróttir ganga fyrir og
svo komi keppnisíþróttirnar, því
hvort skiptir meira máli nýtt Is-
landsmet í spjótkasti eða fleiri
hundruð virkir heilsubótarkokkar-
ar.
Og við þurfum að gera okkur
grein fyrir því að aukið heilbrigði
minnkar skattana og að aukið heil-
brigði eykur vellíðan okkar sem ein-
staklinga og sem samfélags. Við
þurfum að gera okkur grein fyrir
því að það er okkar persónulegi
árangur sem skiptir máli en ekki
hvað Carl Lewis hljóp hundrað
metrana á í gær.
Óskar Dýrmundur Ólafsson
Islenskur
iðnaður
Kæri Velvakandi.
Ég get ekki orða bundist, svo
hissa varð ég í Hagkaup núna um
daginn. Ég var að versla og ætlaði
að kaupa gos. Ég tók af gömlum
vana eins og hálfs lítra flösku af
Coca Cola, sem kostaði 149 krón-
ur, en þegar ég ætlaði að leggja
hana í kerruna varð mér litið á
gosdrykkjastæðu rétt hjá með sömu
stærð af íscola — það kostaði 99
krónur. Aldrei þessu vant fór ég
að hugsa, jú íscólað var 50 krónum
ódýrara. Svo segja menn það rot-
högg fyrir íslenskan iðnað ef ísland
gengi í Efnahagsbandalagið. Aldeil-
is ekki eftir þessu að dæma, því
Iscólað er ekkert síðri drykkur en
kókið. íscólað þyrfti sem sagt að
hækka um 50% til þess að verða
jafn dýrt og kókið. Éf þetta dæmi
um verð á íslenskum iðnaðarvörum
gagnvart erlendum er marktækt
þá þurfum við engu að kvíða.
S.Ó.
ajungilak.
0
SÆNGUR OGKODDAR
í miklu úrvali
Umboðsmenn um land allt
CL
HEIMILISKAU P H F
• HEIMILISTÆKJADEILD FALKANS
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670.
iS)
BÆNDUR GETA NU KVATT
SKÝRSLUÞRÆLDÓMINN
BÓNDINN er viðskiplahugbúnaður sem er bæði einföld og ódýr lausn við
tölvuvæðingu i búrekstri og gerir skottframtolið að auki.
BÓNDINN breytir ekki því nvernig þú sinnir fjórmólunum, en hann léttir þér
vinnuna og gefur befra yfirlit yfir stöðu möla.
Pú getur byrjad að nota BÓNDANN strax í dag
ón nokkurra skuldbindinga.
Með einu símtali geturðu fengið sent eintak af
BÓNDANUM, ón endurgjalds til reynslu í 30 dngn.
ATHUGIÐ!
FJÖLBÆNDAKERFI EINNIG FÁANLEGT
II er svo auðveldur í notkun að þú ert ö augabragði kominn ö fulla
ferð með að nota búnaðinn.
IÓNMNN hjólpar þér við að hafa stöðuna ö hreinu, því þú þarft aðeins að
ýta ö einn hnapp til að kalla fram upplýsingar.
BÓNDINN KOSTAR AÐEINS 34.860 KR
HUGBUNAÐARGERÐIN
PÓRUFELLI 6 111 REYKJAVÍK SiMI 91-79743