Morgunblaðið - 19.10.1990, Síða 4

Morgunblaðið - 19.10.1990, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ KÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990 Flugleiðir fá Amster- dam - leiguflug aukið SAMGÖNGURÁÐHERRA veitti í gær Flugleiðum heimild til að halda uppi reglubundnu áætlunarflugi með farþega, vörur og póst til Amst- erdám og Hamborgar frá og með 1. nóvember. Félagið hefur annast þetta flug frá 30. ágúst síðastliðnum er Arnarflug skilaði áætlunarleyf- um sínum inn til ráðuneytisins. Jafnframt ákvað samgönguráðherra að heimila islenskum flugfélögum að stunda leiguflug á öllum flugleið- um frá 1. maí til 30. september og að gefa leiguflug með vörur frjálst. Steingrímur J. Sigfússon, sam- gönguráðherra, sagði í gær þegar hann tilkynnti ákvörðun sína að hún væri tekin á grundvelli umsagnar Loftferðaeftirlits Flugmálastjórnar sem ekki gat mælt með umsókn ís- flugs hf. um leyfi til reksturs áætlun- arflugs og tillögu Flugráðs um að Flugleiðir fengju leyfi til að annast áætlunarflug til Amsterdam og Hamborgar. Ákvörðun um heimild til íslenskra flugfélaga að stunda leiguflug með farþega á öllum flugleiðum á sumrin og frelsi í leiguflugi með vörur var tekin í kjölfar þeirrar stefnumótunar að eitt fslenskt flugfélag héldi uppi áætlunarflugi til og frá landinu. Jafn- framt hefur samgönguráðherra beðið Flugeftirlitsnefnd um að fylgjast „mjög nákvæmlega með þjónustu Flugleiða hf., far- g farmgjöldum félagsins og hafa í störfum sínum náið samstarf við samtök aðila í ferðaþjónustu". í tengslum við út- hlutun Amsterdam-flugsins til Flug- leiða lagði ráðherra á það ríka áherslu við félagið að það veiti starfs- fólki því sem missir vinnu sína hjá Arnarflugi og fær væntanlega ekki vinnu hjá ísflugi í kjölfar þessarar ákvörðunar, forgang að vinnu. Sömuleiðis telur samgönguráðherra mikilvægt að viðhald á flugflotanum fari sem mest fram hér á landi. Vitn- ar hann í því sambandi í sambærileg tilmæli til Amarflugs þegar það félag fékk leyfi til áætlunarflugsins 1982 og bendir á erfitt atvinnuástand hjá flugvirkjum. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja það að hagur farþega og annarra viðskipta- vina flugfélaganna versni ekki,“ sagði Steingrímur í gær. Sagðist hann vona að það tækist með þeim hliðarráðstöfunum sem ákveðnar hefðu verið. „Auðvitað get ég tekið undir það að hagur neytenda er bet- ur tryggður eftir því sem samkeppni er meiri. En það verða að vera for- sendur fyrir þeirri samkeppni, rekstr- argrundvöllur og ekki síst fjármagn til að tryggja starfsemi fleiri en eins millilandaflugfélags." Sagðist hann ekki sjá að sá grundvöllur væri til. Samgönguráðherra sagði að það væri grundvallarbreyting að heimila leiguflug í samkeppni við áætlunar- flug. í því fælist beinni samkeppni en að skipta fiugleiðum á milli flugfé- laga. Sagði hann að minni kröfur væru gerðar til þeirra sem stunda leiguflug, hvort sem það er óreglu- bundið eða reglubundið, en þeirra VEÐURHORFUR í DAG, 19. OKTÓBER YFIRLIT í GÆR: Milli (slands og Noregs er 1.025 mb hæð sem þokast norðaustur, en 979 mb lægð um 1.000 km suðvestur í hafi hreyfist noröur og verður é Grænlandshafi I nótt. SPÁ: Suðaustanátt, allhvöss suðvestantil á landinu en kaldi eða stinningskaldi víðast annars staðar. Um sunnan- og vestanvert landið verður dálftil rigrting eða súld en þurrt að mestu norðaustan- lands. Veður fer hlýnandi, einkum norðanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Suðaustlæg eða breyti- leg átt, viðast fremur hæg. Skýjað um sunnan- og vestanvert landið og dálítil rigning öðru hverju en þurrt og nokkuð bjart veður norð- austaniands. Fremur hlýtt, þó ef til vill næturfrost á Norður- og Austurlandi. TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 0 Hrtastig: 10 gráður á Celsíus Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. y Skúrir * ▼ V E' ' g Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka T/zk, Hálfskýjað / / / * / * = Þokumóða ’ , ’ Súld ZÆk Skýjað mmm r * r * Slydda r * / OO Mistur —Skafrenningur Mtk Alskýjað * * * * Snjókoma * * * |~<^ Þrumuveður * 1 IV > VEÐUR Vi kl. 12:00 f 'ÐA gær Mti UM HEIM að ($1. tíma veaur Akureyrl e alskýjað Reykjavík s rign.ogsúld Bergen 11 skýjað Helsinki 8 Þokumóða Kaupmannahöfn 13 þokumóða Narssarssuaq ♦6 léttskýjað Nuuk 2 hálfskýjað Ósló 10 skýjað Stokkhólmur 11 skýjað Þórshöfn iiÉ skýjað Algarve 19 rigning Amsterdam .'1.8 súW Barcelona 21 léttskýjað Beríín 18 mistur Chicago 4 snjókoma Feneyjar 17 skýjað Frankfurt 17 skýjað Qtasgow 12 reykur Hamborg 16 þokumóða LasPalmas 26 þokumóða London 18 rígnlny á síð.klat. LosAngeles 18 alskýjað Lúxemborg 12 rígn, og súld Madríd 16 alskýjað Malaga 22 skýjað Mallorca 22 skýjað Montreal 13 þokumóða NewYork 20 alskýjað Orlando 22 þokumóða París 14 rignlng ftóm 23 skýjað Vin 17 skýjað Washington 20 alskýjað Winnipeg *t alskýjað Morgunblaðið/Júlíus Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra og Halldór J. Kristjáns- son skrifstofustjóri á blaðamannafundi þar sem ákvörðun um úthlut- un áætlunarleyfis til Amsterdam og Hamborgar var kynnt. sem stunda áætlunarfiug. Þess vegna væru líkur á að íslenskir aðil- ar sem ekki væru nægilega öflugir til að taka að sér millilandaflug gætu farið í leiguflugið. Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, sagðist í gær líta á þessa ákvörðun sem stefnubreytingu í flug- málum, þannig að hér eftir verði eitt sterkt íslenskt millilandaflugfélag. „Þetta er sú stefna sem við teljum að sé hagkvæmust fyrir íslenska þjóðarbúið og við erum ánægðir með það traust sem samgönguráðherra sýnir okkur.“ Sigurður sagði að þessi ákvörðun kæmi í framhaldi af því að Flugleiðir tóku tilmælum ráðherra í lok ágúst um að taka við þessum leyfum. „Síðan höfum við annast þetta flug og vorum búnir að setja upp áætlun fyrir veturinn og næsta sumar. Við getum gert þetta í vetur án þess að bæta við flugvél og mann- skap og fáum með þessu góða nýt- ingu á okkar tækjum yfir veturinn," sagði Sigurður. Forstjóri Flugleiða sagðist ekki óttast aukna samkeppni leiguflugfé- laga enda hefði félagið alltaf starfað í samkeppni. „Það hefur alltaf verið töluvert leiguflug á sumrin eins og eðlilegt er til að taka toppa sem þá koma í eftirspum sem erfítt er fyrir okkur að eltast við. Þessi samkeppni heldur áfram. Okkur finnst hins veg- ar óeðlilegt að heimilað sé leiguflug til okkar helstu áætlunarstaða, staða sem við sinnum allt árið,“ sagði Sig- urður. Víglundur Þorsteinsson: Flugleiðum veitt ein- okun á áætlunarflugi Formaður Flugráðs vanhæfur VÍGLUNDUR Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri BM Vallár, sem ver- ið hefur í forsvari fyrir flugfélag- ið Isflug, segir að Leifur Magnús- son, formaður Flugráðs, sé van- hæfur til að stjórna umfjöllun ráðsins um umsókn ísflugs um flu- gleyfi, þar sem hann sé jafnframt framkvæmdastjóri flugrekstrar- sviðs Flugleiða. Víglundur segir að samgönguráðherra hafi tjáð sér að Leifur hafi ekki greitt at- kvæði um umsóknina, en stjórnað fundum þar sem hún var tekin fyrir. Víglundur segir hugsanlegt að fara með þetta mál fyrir dóm- stóla vegna þess að um grundvall- aratriði sé að ræða, en niðurstaða úr slíkum málarekstri fáist þó ekki á næstunni. „í mínum huga er þetta skólabók- ardæmi um vanhæfan formann Flug- ráðs. Þetta er meðal annars ástæðan fyrir því að ég tjáði samgönguráð- herra á sínum tíma að ég myndi ekki leggja flugráði til lista yfír hlut- afjárloforð ísflugs, en ég væri reiðu- búinn að leggja honum til listann sem trúnaðarskjal. í rauninni er þetta ástand með þeim hætti að það er ekki hægt að vinna trúnaðarmál um flugmál íslendinga með flugráði," sagði Víglundur á blaðamannafundi í gær. „Þetta er álfka og ég væri formaður nefndar, sem gæti ákveðið hvort menn fengju að setja upp steypustöð." Víglundur sagði að niðurstaða flugráðs, sem jafnframt væri niður- staða samgönguráðherra, þýddi í sínum huga að það væri búið að leggja áætlunarflug á íslandi í einok- un. „Því verður ekki hnikað á næstu árum. Svona leyfi eru ekki afturköll- uð, þegar einu sinni er búið að veita þau, svo lengi sem leyfishafi fullyrð- ir öll skilyrði 'fyrir leyfínu. Að óbreyttum lögum er því alveg ljóst að Flugleiðir ráða yfír öllu áætlunar- flugi íslenzkra félaga til og frá landinu." Víglundur segir að frumathugun ísflugsmanna á möguleikum til að nýta sér rýmkaðar heimildir til leigu- flugs 1. maí til 30. september sýni að slíkt leiguflug sé ekki rekstrar- grundvöllur fyrir flugfélag, sem starfa eigi allt árið. Eigi félagið til dæmis að geta rekið Boeing 737- 200-þotu, verði hún að fljúga um 2.400 tíma á ári tij að standa undir sér, og það náist ekki með leiguflugi yfír sumarmánuðina, jafnvel ekki þótt einnig komi til sólarlandaflug á vetuma. „Eini möguleikinn sam- kvæmt þessari ákvörðun til að stunda leiguflug á sumrin er að stofna flug- félag, sem gerist einhvers konar leppur fyrir erlenda flugrekstrarað- ila,“ sagði Víglundur. Hann sagði að ísflug ætlaði að láta á það reyna hvort ekki yrði unnt að fá víðtækari heimild til leigu- flugs, þ.e. að leyft yrði að fljúga í leiguflugi 9-10 mánuði á ári. „Við teljum okkur geta sýnt fram á það með rökum að slíkt væri skynsamleg- ast fyrir flugmálastefnu landsins yfirleitt," sagði 'hann. Víglundur sagði að þegar hann hefði lagt inn umsókn ísflugs um leyfí til áætlunarflugs til Amsterdam og Hamborgar hefðu staðfest hlutaf- járloforð numið 106 milljónum króna, og loforð fyrir 113 milljónum í félag- ið hefðu nú verið staðfest. Að auki hefði *félagið staðfestar yfírlýsingar um viðskiptakjör með greiðslufresti, sem jafngiltu 12 milljónum í rekstr- arfé. „Samkvæmt rekstraráætlun ísflugs fyrir áætlunarflug til Amst- erdam og Hamborgar er meðal- rekstrarkostnaður, fastur og breyti- legur kostnaður í vetraráætlun, um 900.000 Bandaríkjadalir á mánuði. Það innifelur kostnað við leigu flug- vélar, þjálfun flugmanna og fleira," sagði Víglundur. Hann sagðist meta stöðuna svo að ísflug hefði verið með um 45% eiginfjárhlutfall, sem væri mjög gott. Hann sagði að sér virtist að ef Flugleiðum yrði gert að gangast undir sömu reglur og ísflugi væri ætlað, yrðu Flugleiðir að fjár- magna rekstur sinn með á annan tug milljarða í eigin fé, sem væri alger- lega óraunsætt. Víglundur sagði að í rekstrardæmi Flugráðs og fjárþarfarmati loftferða- eftirlitsins væri taja um 50 milljóna stofnkostnað óskilgreind og óút- skýrð, og kostnaðardæmið um leigu- kostnað Boeing 737-200 flugvél gerði ráð fyrir talsvert hærri leigu en það tilboð, sem ísflug hefði í hönd- um. „Mér sýnist að þetta fjárþarfar- dæmi sé metið á einhvetjum gei’vi- tölum, sem eru bara tilbúnar þarna inni í ráðinu," sagði Víglundur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.