Morgunblaðið - 19.10.1990, Side 19

Morgunblaðið - 19.10.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBBR 1990 19 ur í stjórn Iðnþróunarfélags Eyja- fjarðar um nokkurra ára bil. Enda þótt Valur Arnþórsson hafi aðeins verið 55 ára þegar hann lést, átti hann mikið starf að baki. Mest voru störf hans innan Samvinnu- hreyfingarinnar þar sem hann starfaði um 36 ára skeið. Segja má að henni hafi hann helgað krafta sína. Þar var hann lengi í fylkingarbijósti, bæði með því að stýra stærsta kaupfélagi landsins og síðar með þátttöku í stjórn Sam- bandsins og stjórnarformennsku þar í 11 ár. Það er ljóst í mínum huga, að Samvinnuhreyfmgin á stóran hlut í uppbyggingu velferðarþjóðfélags á íslandi. Mikil alhliða uppbygging hefur orðið á undanförnum áratug- um, ekki síst í sjávarplássunum víðsvegar um landið, þar sem stór hluti útflutningsframleiðslunnar fer fram. Þéttbýlið í Reykjavík hefur notið góðs af þessari uppbyggingu, þar sem æði stór hluti íbúanna þar starfar við ýmsa þjónustu og við- skipti sem snerta landsbyggðina alla. Á Akureyri hefur KEA verið leiðandi afl í verslun og viðskiptum og einnig úrvinnslu landbúnaðaraf- urða. Félagið hefur og verið virkur þátttakandi í sjávarútvegi og vinnslu sjávarafurða á ýmsum stöð- um við Eyjafjörð, og átt eignaraðild að Útgerðarfélagi Akureyringa hf. Margar aðrar greinar þjónustu hafði kaupfélagið með höndum. Á meðan Valur Arnþórsson starf- aði í KEA, átti sér þar stað mikil uppbygging á vegum kaupfélagsins og vegna þess, hve verðbólgan og skilgetin afkvæmi hennar ollu óstöðugum rekstrarskilyrðum frá ári til árs, þá reyndi meira á þá sem stóðu fyrir atvinnurekstrinum. KEA var ijárhagslega traust og betur í stakk búið til að mæta hinum erfiðu rekstrarskilyrðum síðustu ára en mörg önnur fyrirtæki. Vegna hins margþætta starfs Vals, þurfti hann oft áð sitja fundi utan Ákureyrar. Starfíð í Samband- inu sem stjórnarformaður gerði kröfur til setu á mörgum fundum syðra. Sama gilti um fundi í öðrum félögum þar. Ég undraðist oft þrek Vals í að mæta á alla þessa fundi og vera þar virkur aðili. Sjálfur hafði hann mikið starfsþrek. Hann var skarp- greindur og reyndi jafnan að setja sig vel inn í mál. Hann var mælsk- ur og átti gott með að skynja kjarna hvers verkefnis. Fyrir utan með- fædda eiginleika þá komu félags- málastörfin innan Samvinnuhreyf- ingarinnar að góðu liði við málflutn- ing og ræðumennsku. Við Valur áttum langt samstarf, fýrst í Samvinnutryggingum og síðan þegar hann kom í stjórn Sam- bandsins og þó mest eftir að hann varð þar stjórnarformaður. Enda þótt okkur greindi stundum á um leiðir, þá vorum við alltaf sammála um það markmið, að samvinnu- starfið í landinu ætti að skila sem bestum árangri fyrir samvinnu- menn og þjóðina alla. Á vettvangi stjórnmálanna fylgdi Valur Framsóknarflokknum að málum. Sjálfur sagðist hann á unga aldri hafa hrifist af Eysteini Jóns- syni, er hann kom á framboðsfundi á Eskifirði og flutti þar sitt mál af rökvísi og mikilli mælsku. Átti Val- ur meðal annars lengi sæti í mið- stjórn Framsóknarflokksins og allt til dauðadags. Síðastliðin sex ár átti hann sæti í framkvæmdastjóm flokksins. Ýmsum öðrum trúnaðar- störfum hefur hann gegnt fyrir flokkinn í gegnum árin. Þegar Valur hóf störf í Lands- bankanum sem bankastjóri 1. febr- úar 1989, var hann vel undir það búinn að taka að sér þetta ábyrgð- armikla starf, og þá sérstaklega vegna þeirrar reynslu sem hann hafði af rekstri fyrirtækja bæði smáum og stórum. Slík reynsla er ómetanleg. Við Valur snæddum hádegisverð saman fyrir stuttu. Var hann þá m.a. að skýra mér frá störfum sínum í bankanum. Lét hann mjög vel af sér og horfði björtum augum fram á veginn. Hann fór þó ekki dult með það, að hann bæri sterkar taugar til Samvinnuhreyfingarinnar og áréttaði hve mikið væri í húfi, að samvinnustarfið í landinu gæti sigrast á þeim vandamálum sem samvinnufélögin hafa búið við und- anfarið. Þegar Valur var við nám í Sam- vinnuskólanum kynntist hann skólasystur sinni, Sigríði Ólafsdótt- ur. Þessi kynni urðu til þess að þau Sigríður og Valur gengu í hjóna- band árið 1955. Þau eignuðust 5 börn og þau eru: Brynja Dís sagn- fræðingur, sonur hennar og Kristins Dagssonar er Valur. Ólafur dýra- læknir, kvæntur Jóhönnu Baldvins- dóttur lyfjafræðingi. Eru þau bú- sett í Danmörku. Sonur þeirra er Baldvin. Arna Guðný myndlistar- maður búsett í Belgíu. Unnusti hennar er André Miku, nemi í við- skiptafræði. Ólöf Sigríður stúdent, nú við söngnám, og Arnbjörg Hlíf nemi í grunnskóla. Það kom í hlut Sigríðar að stjórna heimili, gæta bús og barna. Reynd- ist hún sérlega umhyggjusöm móð- ir og mikil húsmóðir. Heimilisfaðir- inn var lengst af störfum hlaðinn og þess vegna reyndi mjög á hús- móðurina. Ekki er ofsagt, að hún hafi verið hinn styrki bakhjallur heimilisins. Hún fylgdist vel með börnunum í skóla, þar á meðal að koma þeim í tónlistarnám. Fjöl- skyldan dáði tónlist og Valur var góður söngmaður. Var hann um skeið virkur félagi í Karlakórnum Fóstbræðrum. Það mun hafa verið fyrir tilstilli Vals, að Kaupfélag Eyfirðinga styrkti Kristján Jó- hannsson til söngnáms á Ítalíu, þegar hann hleypti heimdraganum á hina erfíðu braut sönglistarinnar. En þrátt fyrir hinn langa og oft stranga vinnudag, var Valur mikill heimilismaður, enda dáður af fjöl- skyldu sinni. Þau hjónin voru bæði félagslynd og þótt þau væru í annríki daganna ávallt reiðubúin að gleðjast með öðrum, þá voru þau ekki síður tilbúin til að veita þeim hjálp sem um sárt áttu að binda. Það eru grimm örlög fyrir Sigríði og fjölskyldu hennar að missa Val svo snögglega. Stutt er síðan fjöl- skyldan tók sig upp frá Akureyri og flutti suður. I rúmt ár höfðu þau búið f húsi sínu við Mávanes í Garðabæ. Þau hafa því rétt verið búin að koma sér vel fyrir, þegar ósköpin dundu yfir. Heimilisfaðirinn hrifinn burt á augabragði, aðeins 55 ára að aldri. Þegar Valur er nú kvaddur hinstu kveðju eru mér efstar í huga góðar minningar um starf undanfarinna áratuga og ég þakka það af heilum hug, jafnframt því sem ég met mjög hið mikla starf sem hann innti af höndum fyrir Samvinnuhreyfing- una. Guð blessi minningu hans. Við Margrét vottum Sigríði, börnunum og öðrum aðstandendum innilega samúð. Við vitum hve ást- vinamissirinn er sár. Megi guð gefa ykkur styrk til að bera sorg og söknuð. Erlendur Einarsson Laugardaginn 13. október barst okkur sú harmafregn að vinur okk- ar, Valur Amþórsson, væri látinn. - Okkur setti hljóð. Það er erfitt að skilja á þessari stundu að þessi at- orkumikli maður, svo fullur af lífsorku, skyldi hafa verið kallaður í burtu langt fyrir aldur fram. Valur var kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á árunum 1971-1989 og það var á þeim vett- vangi sem kynni okkar hófust. Val- ur var ráðinn kaupfélagsstjóri KEA aðeins þijátíu og sex ára að aldri. Það kom fljótt í Ijós eftir að Valur tók við starfi kaupfélagsstjóra að hann stýrði félaginu af ákveðni og festu og leiddi Kaupfélag Eyfírð- inga farsællega í gegnum ólgusjó erfiðs efnahagsumhverfís. Undir forystu hans réðst félagið í hvert stórvirkið á fætur öðru og hélt vel sinni stöðu sem eitt af stærstu fyrir- tækjum landsins. Valur líkti stjórnun KEA eitt sinn við „sinfóníuhljómsveit sem þarf á hveijum degi að spila mikið og vandasamt verk án þess að falskur tónn heyrist. Hlutverk kaupfélags- stjórans hlýtur að vera að halda hljómsveitinni hreinni og tærri og stilla hana þannig saman að allt gangi eins og vera ber“. Þessi skýr- ing Vals á stjórnunarhlutverki kaupfélagsstjóra KEA kemur vel heim við reynslu þeirra manna sem með honum unnu. Hann var næmur á falska tóna og brá skjótt við þeg- ar þurfti að stilla strengi. Starf hans, jafnt innan KEA, bæjarstjórnar Akureyrar og Sam- bandsins, mótaðist mjög af þeim vilja að efla grundvallaratvinnuveg- ina og halda eðlilegu jafnvægi á milli þéttbýlis og stijálbýlis. Stund- um var við ramman reip að draga en Valur var ekki einn þeirra manna sem gefast upp við hálfnað verk og með þrautseigju tókst honum margt sem hefði orðið öðrum ofviða. Valur var mjög sterkur persónu- leiki og kom það glögglega fram þegar ráðast þurfti í erfið verkefni eða taka erfiðar ákvarðanir. Þetta kom ekki síður fram á fundum því hann var áberandi fljótur að átta sig á hlutunum og óhræddur við að halda fram sínum skoðunum og fylgja þeim eftir. Þessir eiginleikar ásamt miklum dugnaði og ósérhlífni urðu til þess að hann var kjörinn til fjölmargra trúnaðarstarfa á hin- um ýmsu sviðum þjóðlífsins. Með honum er horfínn dugmikill og óþreytandi talsmaður samvinnu- hreyfingarinnar, þeirrar hreyfingar sem átt hefur hvað mestan þátt í að byggja upp atvinnu- og menn- ingarlíf í byggðum landsins. En þessi sterki persónuleiki hans og mikla lífsorka kom einnig vel fram á mannamótum því þar var hann hrókur alls fagnaðar og ekki sakaði þegar hann dró fram harm- onikkuna til að skemmta gestum sínum. Valur var fjölhæfur maður. Hann var ræðumaður hinn besti, góður málamaður, söngmaður góður og hafði unun af tónlist. Áhugamál hans voru íjölmörg og hann var vel að sér á ótal sviðum. Valur var mjög góður heim að sækja og hlýja hans og umhyggja fyrir öðrum voru sterkur þáttur í persónuleika hans. Er við hjónin komum heim frá námi erlendis hófum við bæði störf hjá Kaupfélagi Eyfirðinga. Konan á skrifstofu sláturhúss KEA um skamma hríð en ég átti því láni að fagna að fá að starfa við hlið Vals Arnþórssonar í fímmtán ár. Allan þann tíma kom ekkert upp sem skyggði á það samstarf. En Valur var ekki einungis yfírmaður heldur líka leiðbeinandi og vinur sem var ætíð boðinn og búinn að miðla mér af þekkingu sinni og reynslu. Það veganesti sem ég hlaut hjá Val Amþórssyni var og er ómetanlegt. Með fjölskyldum okkar tókst góð- ur vinskapur og þessi vináttubönd hafa orðið traustari með hveiju árinu og reyndust ekki síður traust þegar Valur lét af störfum sem kaupfélagsstjóri KEA og flutti ásamt fjölskyldu sinni suður til að taka við stöðu bankastjóra hjá Landsbanka íslands. Það er vandfundinn maður sem var meiri vinur vina sinna en Valur var. Við fundum það glöggt þegar við þurftum á að halda hversu gott var að leita til Vals og hversu mikla umhyggju hann bar fyrir vinum sínum. Hlýjan og elskulegheitin ein- kenndu viðmót hans allt. Missir fjölskyldunnar er mikill. Fjölskyldan var Val ákaflega mikils virði og í faðmi hennar endurnærð- ist hann eftir erfiðan vinnudag. Ef til vill urðu stundirnar að heiman oft langar en þeim mun dýrmætari var tíminn sem hann átti með konu sinni og börnum. Valur fylgdist vel með námi og störfum barnanna sinna fimm og lét sér annt um þau á allan hátt. Þá var eiginkona hans, Sigríður Ólafsdóttir, honum stoð og stytta í erfíðu og margþættu starfi og raunar sagði Valur að án henn- ar hefði hann ekki getað sinnt öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. í dag kveðjum við í hinsta sinn góðan vin með miklum söknuði og trega. Sú vissa að við munum hitta hann á ný handan móðunnar miklu gerir sorgina léttbærari. Guð blessi fjölskyldu hans og veiti þeim styrk í sinni miklu sorg. Magnús Gauti og Hrefna. Valur Arnþórsson er mér minnis- stæður maður þótt fundum okkar bæri ekki oft saman. Við kynnt- umst við sérkennilegar aðstæður þegar við horfðum saman á kvik- mynd mína, Óðal feðranna. Ástæða þessarar bíóferðar var sú, að sá söguburður var á kreiki, að Valur væri fyrirmyndin að kaup- félagsstjóranum í myndinni. Ég vildi eyða þeim söguburði og bauð Val á myndina. Valur þáði boðið. Eftir sýninguna sátum við lengi nætur og ræddum heima og geima. Á þeirri kvöldstund kynntist ég manni með ríka tilfínningu fyrir flestum greinum lista. Við hlustuð- um bæði á Mahler og Megas og ræddum íslendingasögurnar og yngstu rithöfundana. Valur var alls staðar jafn vel heima, hvort sem leiklist, tónlist eða bókmenntir bar á góma. Valur var höfðingi í orðsins fýllstu merkingu. Yfírbragð aðals- mannsins var honum meðfætt þótt hann væri jafnframt gæddur bestu kostum ramíslensks alþýðumanns. Þessum eiginleikum hans kynntist ég strax kvöldið góða. Löngu seinna endurgalt Valur mér þetta bíóboð rausnarlega. Þannig veit ég að hann reyndist einnig fleiri listamönnum. Hann var drengur góður. Ég færi fjölskyldu hans mínar dýpstu samúðarkveðjur. Hrafn Gunnlaugsson í fámenninu eru það mikil tíðindi, þegar athafnamaður á besta aldri ákveður að söðla um, leggja niður fyrri störf og hasla sér völl á nýjum vettvangi. Þannig var það, þegar Valur Arnþórsson tók fyrir fáeinum misserunl við starfi bankastjóra í Landsbankanum eftir langa og merka starfssögu innan Samvinnu- hreyfíngarinnar. í Landsbankanum kom Valur með dýrmæta reynslu úr atvinnulífinu, þar sem hann hafði gegnt forystuhlutverki um árabil. Þrátt fyrir samkeppni bankanna um viðskiptavini, þá eiga þeir með sér hið margvíslegásta samstarf. Með því móti næst fram ýmiskonar hagræðing, þjóðfélaginu til hags- bóta. Einnig þurfa bankarnir að fjalla sameiginlega um mörg mál sem snúa að starfsskilyrðum og samskiptum við opinbera aðila. Frá því Valur hóf störf í Lands- bankanum tók hann, fyrir hönd bankans, mjög virkan þátt í sam- starfi bankanna með setu í stjórn Sambands íslenskra viðskipta- banka. Hann var varaformaður sambandsins og hafði um þessar mundir forystu í tveimur veigamikl- um samstarfsverkefnum banka og sparisjóða. Reynsla Vals og forystuhæfileik- ar gerðu hann öðrum fremri til að takast á við hin flóknustu viðfangs- efni. í hans skaut féllu ekki auð- veldu málin, enda sóttist hann ekki eftir þeim. Glíman við hin erfíðari mál var honum tamari. Hið sviplega fráfall Vals Arn- þórssonar skilur eftir stórt, vand- fyllt skarð í forystu bankamála á íslandi. Það munar um mann eins og Val. Sá sem þessar línur ritar átti því láni að fagna að eiga hið ágætasta samstarf við Val Arnþórsson og fyrir það og störf hans fyrir við- skiptabanka á íslandi eru þakkir færðar. En áhugamál Vals voru mörg og á öðrum vettvangi áttum við einnig hina ánægjulegustu samfylgd. Inn- an Frímúrarareglunnar störfuðum við saman og ég minnist með gleði og þakklæti samverustunda á Akur- eyri. Eiginkonu Vals, Sigríði, og ijöl- skyldu sendum við Guðrún hjartan- legar samúðarkveðjur og biðjum algóðan Guð að gefa þeirn styrk. Valur Valsson, formaður Sambands ísl. viðskiptabanka. Enn er okkur sýnt liversu bilið er stutt milli lífs og dauða. ímynd lífs, orku og bjartsýni er á svip- stundu frá okkur horfin á annað tilverustig. Það er mikill missir lítilli þjóð að sjá á bak manni eins og Val Arnþórssyni. Fáum er í upphafi gefíð það vega- nesti, sem hann hlaut, og enn færri tekst að rækta þær gáfur með líkum hætti og honum tókst. Góðar gáfur nýtast ekki neiha margir fleiri eig- inleikar fylgi og þeim var hann sannarlega gæddur í ríkum mæli. Lífsþróttur og athafnaþrá, víðsýni, skilningur og velvild til samferðamanna, ekki síst hinna lítils megandi, einkenndi allt starf Vals. Hann lét sér ekki nægja hug- myndafræðina eina. Hann var mað- ur framkvæmda og sér þeirra víða stað enda var honum sýnt um að laða fólk til samstarfs um hugðar- efni sín. Ungur helgaði Valur Sam- vinnuhreyfingunni starfskrafta sína og var þar í forystusveit um langt árabil. Hann haslaði sér völl á nýj- um vettvangi er hann var ráðinn bankastjóri Landsbanka íslands í upphafi síðasta árs. Enginn, sem til hans þekkti, efaðist um að í því ábyrgðarstarfí myndi hann enn skila hlutverki sínu með sóma, þjóð sinni til framfara og heilla. Valur stóð ekki einn í margþætt- um störfum sínum. Hann var mik- ill gæfumaður í einkalífi. Ungur að árum gekk hann að eiga skólasyst- ur sína úr Samvinnuskólanum, Sigríði Olafsdóttur. Þau eignuðust fimm mannvænleg börn, sem öll eru upp komin og standa nú við hlið móður sinnar. Sigga og Valur höfðu nýlega búið sér fagurt heimili á yndislegum stað í Mávanesi 17 í Garðabæ. Við glöddumst innilega yfír því að fá þau í nágrennið. Heimsóknunum fjölgaði og mannmargt var til dæm- is á fermingardegi Arnbjargar litlu, yngsta barnsins, á liðnu vori. Það var fagur og hamingjuríkur dagur. Samfundirnir í áranna rás höfðu jafnan verið sem hátíð, hvort sem var á Akureyri, á Hólum eða hér syðra. Sama frábæra gestrisnin og einlæg hlýja einkenndi samfundina og þeirra er gott að minnast. Elsku Sigga. Við vottum þér, börnunum og fjölskyldunni allri dýpstu samúð og biðjum þess að guð styrki ykkur í sorg ykkar. En lífið heldur áfram og minningin um góðan dreng verður þeim sem hon- um kynntust hvatning til starfa í anda hans. Hólmfríður Friðbjörnsdóttir, Hörður Vilhjálmsson. Þær stundir geta komið í lífí manns að hann eigi erfitt og það taki langan tíma að kyngja stað- reyndum. Svo ómögulega geta þær sýnst. Eina þessara stunda er ég að upplifa núna, þegar ég sé á eft- ir góðum vini, í fullu starfi á mikils- verðum tímamótum, þegar þjóðin þarf svo mikið á slíkum að halda. Fregnina um andlát vinar míns, Vals Arnþórssonar, sem kom öllum að óvörum, þarf langan tíma til að átta sig á. Þessa góða drengs sem ekki brást og á erfiðum stundum gat staðið með bros á vör og leyst úr málum þjóðfélaginu til blessun- ar. Hann var ekki gamall þegar hendur okkar mættust og fyrsta handtakið leiddi fleiri og fleiri af sér. En það var kannski ekki það. Heldur hitt hvað var ætíð bak við hans orð og handtök. Það var 21 árs munur á aldri okkar. En hvað hafði það að segja? Það er ekki ald- urinn sem skiptir máli, heldur sam- skiptin á akri hins mannlega lifs. Ég man hann best 4 ára þegar samskipti okkar hófust og hann kom í heimsókn. Þá strax var ánægjan svo mikil. Spurningar sem liðu af vörum þessa prúða og fal- lega drengs, geymast. Auðvitað oft þannig að úr var ekki leyst, en það var ekki nóg. Gátur lífsins, tilvera heimsins voru strax undrunarefni og efni í margar spurningar. Hver getur ráðið þær rúnir sem mæta í daglegri önn? Og nú er ég í sömu sporum og hann var þá, að mér er ómögulegt að ráða þá gátu hvers vegna hann flytur frá okkur í miðjum klíðum, þegar mest liggur við. Og þó. Ég trúi því að þetta sé ráðstöfun Drott- ins sem ætli honum meira að starfa guðs um geim. Ég leita til Biblíunn- ar minnar. Dreg, fletti upp og þessi orð koma: Nú er hagkvæm tíð. Nú er hjálpræðis dagur. Þökk sé Drottni að við megum trúa þessu og að hann hjálpar alltaf þegar okkur finnst ótrúlegir hlutir ske. Um leið og minn þakkláti hugur SJÁ BLS. 34

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.