Morgunblaðið - 19.10.1990, Side 21

Morgunblaðið - 19.10.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990 21 Kaffistofustemmning: „Kaffistofan tvímælalaust besti staðurinn í skólanum“ Kaffistofur skóla og fyrirtækja hafa í gegnum tíðina verið ákaf- lega vinsælir samkomustaðir. Staðir þar sem fólk hefur hist til skrafs og ráðagerða eða einfaldlega bara til að drekka kaffið sitt. Staðir sem eiga örugglega ekki eftir að tapa vinsældum eftir nýj- ustu niðurstöður rannsókna sem leitt hafa í ljós að kaffið geta menn nú drukkið með góðri samvisku. Morgunblaðsmenn brugðu sér á kaffistofurölt í gær til að kanna þessa stemningu nánar. „Kaffistofan er tvímælaiaust besti staðurinn í skólanum, sagði hress háskólamær, þar sem hún sat og sötraði kaffið sitt á kaffi- stofu í Háskólanum. Það voru greinilega fleiri henni sammála, því kaffistofan í Odda, hugvísindahúsi Háskólans, var full af fólki sem ýmist sat og spjallaði um bíómyndir og bamaafmæli, sál- arfræðitilraunir eða stjómmála- fræðikenningar. Við borð, fullt af bókum, sátu sálarfræðinemarnir Erlendur As- geir Júlíusson og Guðbrandur Árni Isberg og bjuggu sig undir að gera tilraun í félagssálarfræði á því hve vel fólk myndi upplýsingar sem það fengi frá mismunandi aðilum. Þeir félagar voru sammála um mikilvægi kaffistofunnar til undir- búnings slíkra verkefna þar sem oft væri erfitt að spjalla á lestrar- sölum skólans án þess að trufla þá sem niðursokknir væm í bækur. Sálarfræðina sögðu þeir skemmtilega fræðigrein, en vom sammála um að vinnuálagið í fag- inu væri nokkuð mikið. Þeir sögðu skort vera á sálfræðingum í þjóðfé- laginu og nefndu sem dæmi að ein- ungís hefðu 10 manns útskrifast með B.A. próf í sálarfræði frá 1985, þrátt fyrir að margir tugir hefji nám þar á hveiju hausti. A kaffistofunni í Árnagarði, þar sem heimspekideild Haáskólans hefur aðsetur ásamt öðrum, var Ragnheiður Hinriksdóttir að selja stúdentum kaffi, en það hefur hún gert í þrettán ár. „Þetta er góður staður og hingað kemur gott fólk,“ sagði Ragnheið- úr, sem sér yfir hundrað háskóla- nemum fyrir kaffi í hveijum frímínútum. Hún sagðist hafa orðið vör við töluverða fjölgun á kaffi- stofunni undanfarin ár samfara auknum fjölda fólks í Háskólanum. í lítilli notalegri kaffistofu eða klúbb öllu heldur, í flugturninum á Reykjvíkurflugvelli sátu þeir Krist- inn Eggertsson, Lárus Jónsson og Finnur Þór Friðriksson, drukku kaffi og spjölluðu saman. Turninn, sem nokkuð er farinn að láta á sjá, var byggður á stríðsárunum og hefur að geyma félagsaðstöðu Fiugklúbbs Reykj- víkur og af umræðum þeirra félaga mátti dæma að þarna hittast menn sem áhuga hafa á flugi. Áðspurðir sögðu þeir að í turninn kæmu þó ekki eingöngu flugmenn, heldur allir sem áhuga hefðu á að spjalla um flug, sögu þess, vélarnar sjálfar eða flug um loftin blá. I mötuneyti prentsmiðjunnar Odda sátu þeir Elís E. Stefánsson verkstjóri í bókbandi og Jóhann Ragnheiður Hinriksdóttir á kaffistofunni í Árnagarði tilbú- in að afgreiða yfir hundrað nemendur í næstu frímínútum. Freyr Ásgeirsson verkstjóri í prent- sal og báru saman bækur sínar. Þeir voru sammála um nauðsyn slíkra staða í svo stóru fyrirtæki, þar sem fólk hefði tækifæri á að hittast til spjalls og ráðagerða, en starfsmenn Odda eru 270 talsins. Þrátt fyrir mikinn fjölda sögðu þeir Elís og Jóhann Freyr að auð- velt væri að ná fólkinu saman og mjög góður andi ríkti í fyrirtækinu. Því til stuðnings nefndu þeir að fyrirhuguð væri ferð til Þýskalands þar sem ætlunin væri að halda upp á 25 ára afmæli starfsmannafélags Odda, en þangað færu yfir 240 af þeim 270 sem hjá fyrirtækinu ynnu. Texti: Inga Dóra Sigfúsdóttir Myndir: Kristján G. Arngríms- son Elís E. Stefánsson og Jóhann Freyr Ásgeirsson leggja á ráðin í mötuneyti prentsmiðjunnar Odda. Erlendur Ásgeir Júlíusson og Guðbrandur Árni ísberg leggja á ráðin um tilraun í sálarfræði á kaffistofunni í Odda. Kristinn Eggertsson, Lárus Jónsson og Finnur Þór Friðriksson ræða flug. Jón Óskar við eitt verka sinna, Sýnir í Slunkaríki JÓN ÓSKAR opnar sýningu í Slunkaríki á ísafirði laugardag- inn 20. október kl. 16.00. Jón Óskar fæddist í Reykjavík 1954 og stundaði myndlistarnám í Reykjavík á árunum 1974-1977 og í New York 1980-83. Hann hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga síðan hann lauk námi, bæði á Norð- ulöndunum og víðar í Evrópu auk sýninga í Japan og New York. Verk eftir hann eru í eigu safna bæði hér heima og erlendis. Á sýningunni í Slunkaríki verða 30 smámyndir unnar á pappír með blandaðri tækni. Sýningin sem stendur til sunnu- dagsins 11. nóvember er opin fimmtudaga-sunnudaga kl. 16.00- 18.00. Sýning á myndvefn- aði í Hlaðvarpanum SÝNING verður í Hlaðvarpan- um á myndvefnaði eftir Elísabet H. Harðardóttur, og hefst hún laugardaginn 20. október og lýkur þriðjudaginn 30. október. Elísabet stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands veturna 1977-1981. Þetta er 9. einkasýning hennar en hún hefur haldið sýningar bæði norðan og austan heiðar, í Reykjavík og víðar. Einnig hefur hún tekið þátt í nokkrum samsýningum. Nokkur verka Elísabetar eru í eigu opin- berra aðila. Eitt verka Elísabetar. HAGKAUP TIIB00 VIKUNNi Ritz saltkex 69 Verð áðurffé 200 qr. Fylltu plastfötu af nýjum hollenskum Jonagold eplum ca. 3 kg i fotu 'cuíficb aóðcu v&lu/ ó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.