Morgunblaðið - 19.10.1990, Page 24
MOKU UNHCAÐ'IÐ FOSTODAGUR 19. •OhTODBU 199q
Natal-hérað í Suður-Afríku:
Verkfall spænskra vörubílstjóra, sem nú hefur staðið í rúma viku, hefur valdið miklu öngþveiti. Hér sést
spænsk óeirðalögregla handtaka verkfallsverði úr röðum vörubílstjóra. Þeir höfðu reynt að stöðva umferð
vörubíla um Granada. >
Mammútar grafnir upp
Flokkur fornleifafræðinga vinnur að því í Mexíkóborg að grafa upp
bein tveggja mammúta. Risafílar þessir dóu út í lok ísaldar fyrir
10.000 árum.
Persaflóadeilan:
Neyðarlögiim afiétt
Pretoriu. Reuter.
Verkfallsverðir handteknir
Reuter
Arababandalagið
fordæmir samhljóða
manndráp Israela
Irakar bjóða olíu á útsöluverði —
„Vonlaust,“ segja sérfræðingar
Bagdad. Túnis. Reuter.
ARABABANDALAGIÐ samþykkti í gær með öllum greiddum at-
kvæðum að fordæma dráp ísraelskra öryggissveita á 21 Palestínu-
manni 8. október og gagnrýndi viðbrögð Bandaríkjamanna við
þeim. írakar buðust til þess í gær að selja hveijum sem hafa vill
olíu á 21 dollara fatið en sérfræðingar í olíuviðskiptum telja tilboð-
ið dauðadæmt. Er Iitið á það sem örvæntingarfulla tilraun íraka
til þess að rjúfa skörð í viðskiptabann sem Sameinuðu þjóðirnar
settu á þá vegna innrásarinnar í Kúvæt.
F.W. DE KLERK, forseti
Suður-Afríku, aflétti í gær
neyðarlögum sem gilt hafa í
fjögur ár í héraðinu Natal og
sagði að nú væri greið leið til
að sætta hvíta og svarta menn
í landinu. Með þessu hefur for-
setinn uppfyllt eitt helsta skil-
yrði blökkumannaleiðtogans
Nelsons Mandcla fyrir því að
hefja samningaviðræður um
framtíðarskipan mála í landinu.
Um 4.000 manns hafa fallið í
átökum í Natal síðustu fjögur
árin.
í júní var aflétt neyðarlögum í
héruðunum Orange, Transvaal og
Höfðanýlendu. Átökin í Natal hafa
einkum verið milli stuðnings-
manna Afríska þjóðarráðsins
(ANC), samtaka Mandela, sem að
mestu eru skipuð fólki af xhosa-
ættbálki, og zúlumanna sem flest-
ir styðja Inkatha-heyfingu höfð-
ingja síns, Mangosuthus But-
helezi.
Einn maður lést er lögregla skaut táragasi á mótmælendur í út-
hverfi Jóhannesarborgar í gær. Þeir voru ekki sáttir við að skrúfað
hafði verið fyrir rafmagn og vatn til Toekomsrus-bæjarfélagsins.
ANC sendi frá sér yfírlýsingu í
gær þar sem sagði að samtökin
vonuðu að stjórnvöld slepptu einn-
ig öllum pólitískum föngum úr
haldi og afléttu sérstökum lögum
um öryggi ríkisins sem notuð hafa
verið gegn blökkumönnum. But-
helezi fagnaði afléttingu neyðar-
laganna en varaði ANC við því
að nota tækifærið til að hrifsa til
sín frumkvæðið í stjórnmálabarát-
tunni með ofbeldi.
Ágreiningur var uppi á ráðherra-
fundi Arababandalagsins, sem
stendur yfír i Túnis, um hvernig
bregðast skyldi við atburðunum á
Musterishæðinni í Jerúsalem þar
sem 21 Palestínumaður féll fyrir
hendi ísraelskra her- og lögreglu-
manna. Samkomulag náðist þó að
lokum um ályktunartillögu þar sem
Bandaríkjastjóm er fordæmd fyrir
afstöðu sína til atburðanna og und-
anlátssemi gagnvart ofbeldisstefnu
Israela, eins og að orði var komist.
Sendinefndir PLO, íraks, Súdans
og Jemens höfðu áður gengið af
fundi er útlit var fyrir að tillagan
yrði ekki samþykkt.
Issam Abadul Rahim al-Chalahi,
olíurðaherra Iraks, tilkynnti í gær
að Irakar væru tilbúnir til að selja
hveijum sem væri olíu fyrir 21 doll-
ara fatið, en það er það viðmiðunar-
verð sem samtök olíuframleiðslu-
ríkja (OPEC) ákváðu skömmu fyrir
innrásina í Kúvæt. Sagði ráðher-
rann að tilboðið væri gert að frum-
kvæði Saddams Husseins forseta.
írakar hafa ekki getað komið
olíu sinni í verð frá því viðskipta-
bann SÞ var sett 6. ágúst sl. og
nemur gjaldeyristap þeirra 80 millj-
ónum dollara á dag miðað við nú-
verandi olíuverð. Utilokað er talið
að þeir fínni kaupanda þrátt fyrir
hið örvæntingarfulla tilboð þar sem
engar líkur munu vera á að koma
olíu á áfangastað vegna hins mikla
eftirlits sem haft er með skipaferð-
um á Persfalóa. Þar hafa um 100
herskip eftirlit með skipaferðum og
kanna farm hvers einasta skips sem
á þar leið um.
*
Innflutningur a-evrópskra gyðinga til Israels:
*
Israelski utanríkisráðherrann tekur aftur loforð um að sovéskum gyðingum
verði ekki fengin búseta á hernumdu svæðunum
Damaskus, Jerúsalem. Reuter.
STOFNUN á vegum Araba-
bandalagsins sagði í gær að lokn-
um stjórnarfundi hennar í Sýr-
landi að hún myndi setja öll flug-
félög og skipafélög, sem flyttu
innflytjendur af gyðingaættum
til ísraels, á bannlista. Sama
myndi einnig gilda um þijú júgó-
slavnesk byggingafyrirtæki sem
unnið hefðu að húsbyggingum
fyrir innflytjendurna í ísrael.
Þarlend yfirvöld hafa neitað að
skýra frá því hvemig gyðingarn-
ir, sem flestir eru frá Sovétríkj-
unum, hafa komist til landsins
en alls hafa 100.000 manns kom-
ið frá Austur-Evrópu á árinu og
búist við 50.000 að auki fyrir
árslok. Til harðra átaka kom á
Gazasvæðinu í gær er palestín-
skir unglingar köstuðu gijóti að
ísraelskum hermönnum og sögðu
sjónarvottar að 55 Palestínu-
menn hefðu særst, þar af hefðu
26 verið með skotsár.
David Levy, utanríkisráðherra
ísraels, hefur sent bandarískum
starfsbróður sínum, James Baker,
bréf þar sem að sögn heimildar-
manna er tekið aftur loforð frá því
í byijun mánaðarins um að innflytj-
endum af gyðingaættum verði ekki
leyft að búsetja sig á hernumdu
svæðunum. Levy var fyrir skömmu
í Bandaríkjunum og var talið að
með þessu loforði hefði hann viljað
tryggja að ísraelar fengju banda-
ríska ábyrgð á 400 milljón dollara
láni til að byggja yfir innflytjend-
uma. Harðlínumenn í ísrael gagn-
rýndu hann og sögðu að með þessu
hefði hann m.a. dregið úr þungan-
um í þeirri kröfu Israela að öll
Jerúsalemborg tilheyri þeim. Þeir
hertóku austurhluta borgarinnar
1967 en þar búa um 150.000 ara-
bar; gyðingar, sem byggja önnur
hverfi, eru nú álíka margir og
stjórnvöld eru að láta reisa ný
íbúðahverfí handa gyðingum. Talið
er að allt að ein milljón gyðinga
flytjist til ísraels á næstu fímm
árum og óttast arabar að gyðingun-
um verði í auknum mæli fengin
búseta á hemumdu svæðunum,
einkum vesturbakka Jórdanár, sem
ísrael lagði undir sig í sex daga
stríðinu fyrir 23 ámm.
Áðurnefndri stofnun Araba-
bandalagsins var komið á laggirnar
árið 1951 til að reyna að einangra
ísrael með því að hundsa fyrirtæki
og einstaklinga er áttu viðskipti við
landið. Árangurinn hefur verið mis-
jafn — m.a. hafa sum lönd við
Persaflóa látið viðskiptabann á
Coca Cola-fyrirtækið sem vind um
eyru þjóta. Talsmaður stofnunar-
innar sagði í gær að verið væri að
kanna möguleikann á viðskipta-
banni gegn ýmsum vestrænum
stórfyrirtækjum og væru banda-
rísku Ford-verksmiðjurnar meðal
þeirra. Talsmaður hálfopinberrar
stofnunar í ísrael, er annast mál-
efni innflytjenda, sagði þessar hót-
anir Arababandalagsins ekki nýjar*
af nálinni og þær myndu ekki hafa
nein efnahagsleg áhrif.
Til harðra deilna kom milli full-
trúa Kúvæts og íraks á stjórnar-
fundi stofnunarinnar; hinir síðar-
nefndu vildu ekki samþykkja setu
kúvæsku fulltrúanna vegna innlim-
unar landsins í írak. Kúvætarnir
buðust til þess að halda næsta fund
stofnunarinnar, er verður eftir sex
mánuði, í Kúvæt.
Arabaríki hyggjast setja við-
skiptabann á flug- og skipafélög