Morgunblaðið - 19.10.1990, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 19.10.1990, Qupperneq 40
u 40 oeer aaaöTxo^er flúOAQUTáöa QidAJaviuoaoM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990 Minning: Haraldur Sæmunds son, rafvirki Fæddur 18. maí 1911 Dáinn 13. október 1990 Kallið er komið, komin er nú stundin vinaskilnaðar viðkvæm stund. (V. Briem) Já, alltaf er stundin viðkvæm þegar góður vinur og félagi er kvaddur hinstu kveðju. Og þetta kall kom varla fyrr en búist var við. Haraldur var búinn að vera sjúklingur á annað ár, oftast í sjúkrahúsi. Haraldur Sæmundsson fæddist 18. maí 1911, borinn og barnfædd- ur Reykvíkingur. Foreldrar hans voru Sæmundur Runólfsson kennd- ur við bæinn Selsund í Rangárvalla- sýslu og kona hans Guðríður Otta- dóttir ættuð frá Kúludalsá í Innra- Akraneshreppi. Sem ungur maður, nýkominn til Reykjavíkur, vann Sæmundur al- menna byggingarvinnu, m.a. vann hann við byggingu Laugarnesspít- alans (einnig nefndur Holdsveikra- spítali) en réðst brátt til Rafmagns- veitna Reykjavíkur til innheimtu- starfa. Var það hans ævistarf svo lengi sem heilsan leyfði. Hann var gleðimaður mikill, hafði fallega söngrödd og söng með Karlakór KFUM, síðar Fóstbræðrum. Haraldur var elstur fjögurra barna þeirra hjóna. Systkini hans eru: Runólfur forstjóri Blossa hf., Otti, þekktur sem blaðasali en rekur nú Hjólbarðavinnustofu Otta, Skip- holti 5, og Sigríður, ekkja eftir Árna Árnason sjómann, hann lést 1940. Öll eru þau búsett í Reykjavík. Haraldur kvæntist 4. nóvember 1933 Hólmfríði Jónu Ingvarsdóttur Benedjktssonar skipstjóra og konu hans Ásdísar G.S. Jónsdóttur Odds- sonar. Hólmfríður átti lengi við vanheilsu að stríða og andaðist á nýjársdag 1983. Tvær dætur eign- uðust þau Haraldur og Hólmfríður: Ásdísi, gifta Þorvaldi Ragnarssyni bifreiðastjóra hjá forsetaembætt- inu, og Asthildi Ingu, gifta Haf- steini J. Reykjalín forstjóra Ryð- varnarskálans. Barnabörn eru 6 og barnabarnabörn eru 4. Haraldur var rafvirki að mennt. Hann hóf störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur í byrjun árs 1926. Hann lauk námi með sveinsprófi 1934 og hlaut meistararéttindi 1939. Hann hafði lengi eftirlit með og yfirleit rafmagnsteikningar, sem húsbyggjendur lögðu inn til Raf- veitunnar til samþykktar. Einnig hafði hann á hendi tengingar skipa við rafmagn í landi þegar þau komu til hafnar í Reykjavík. Hann gerði og nokkuð af þvi að teikna raf- lagnateikningar fyrir nýbyggingar. Þótti hann góður fagmaður enda vann hann hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur til 1. júlí 1976 að hann lét af störfum eftir rúmlega 50 ára þjónustu. •Haraldur hafði ánægju af mann- fundum og 1941 gekk hann í Odd- fellowregluna, st. nr. 3, Hallveigu. Þegar st. nr. 11, Þorgeir, var stofn- uð 1964 gerðist hann einn af stofn- endum hennar og starfaði þar af kostgæfni meðan heilsan leyfði og mat stúkan það að verðleikum. Við Þorgeirsbræður söknum góðs félaga og ánægjulegra samfunda við hann og hans fólk. Hann var ávallt gamansamur, hnyttinn í svör- um og kom skemmtilega fyrir sig orði. Við sendum dætrum Haraldar, systkinum hans og öðrum aðstand- endum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hans. Erlingur Dagsson Halli á Karlagötunni var gleði- gjafinn í fjölskyldunni. Hann var mikill atgjörvismaður og potturinn og pannan í frægu sundknattleiks- liði sem fór á Ólympíuleikana í Berlín 1936. Halli fór þó hvergi því að hann var að byggja sér hús, á Karlagötu 1. Byijaði hússmíðina í maí og kláraði í október sama ár, hrært á bretti og híft upp í fötum. Nokkrum árum seinna fæddist svo undirritaður í húsinu. Sautján ára að aldri byijaði Halli rafvirkjanám og vann yfir fimmtíu ár hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur, hann teiknaði líka raflagnir { ótal hús í Reykjavík og einu sinni sagði hann mér að hann hefði verið svo blank- ur á hússmíðaárunum, að hann hefði farið landið á enda fyrir eina krónu. Pabbi Halla, Sæmundur Runólfs- son, vann líka hjá Rafmagnsveit- unni, alveg fram yfir sjötíu og fímm ára aldurinn og söng í karlakórnum Fóstbræðrum og í Dómkirkjukórn- um samfleytt í yfir hálfa öld. Halli var mikið snyrtimenni og ítrekaði það oft við mig að pabbi hefði aldr- ei farið í kolageymsluna nema með hvíta hanska. Halli var giftur yndis- legri konu, Hólmfríði Jónu, sem lést fyrir nokkrum árum, og áttu þau sumarbústað í Kópavogi. Varð sú staðsetning sumarbústaðarins til- efni ýmissa athugasemda í fjöl- skyldunni. Halli og Jóna eiga tvær dætur sem mjög þóttu bera af und- irrituðum. Ásdís dansaði svo vel á Röðli að allir strákar í Reykjavík voru skotnir í henni og Inga var ballettstjarna í Þjóðleikhúsinu. Eftir ítrekaðar tilraunir að fara í splitt á stofugólfinu á Karlagötunni, var mér bent á að snúa mér að ein- hveiju öðru. Ásdís starfar í forsæt- isráðuneytinu og er gift Þorvaldi Ragnarssyni forsetabílstjóra. Eiga þau þijár dætur. Ásthildur Inga er gift Hafsteini Jóhannessyni í Ryð- varnarskálanum og átti þijú börn frá fyrra hjónabandi, en missti son í hræðiiegu slysi í Kópavogi. Systkini Halla eru Runólfur í Blossa, kvæntur Nönnu Halldórs- dóttur, systur Sigfúsar tónskálds og eru þeirra synir Logi í Blossa, Daði hjá Mosfellsbæ, pabbi Rikka yngri knattspyrnusnillings, og Hall- dór Bjöm listfræðingur, forstoðu- maður Listasafnsins í Sveaborg. Annar bróðir er Otti forstjóri, Skip- holti 5, fyrrum kunnur blaðasali hér í bæ, kvæntur Ástu Sigríði Magnús- dóttur og eiga þau fjórar dætur. Yngst er Sigríður, giftist Árna Árnasyni sjómanni, en hann lést fyrir allmörgum árum og áttu þau fjögur börn. Við Vigdís vottum okkar dýpstu samúð. Heklublóð Lækjarbotnaætt- arinnar grætur sinn góða frænda. Guðlaugur Tryggvi Karlsson Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Haraldi sem tengdaföður fyrir um það bil tíu árum. Þá var hann kominn á eftirlaun hjá Rafmagns- veitu Reykjavíkur, en þó nokkuð hraustur, þrekmikill og fullur af eldmóði og hugmyndum, átti svo margt eftir ógert að hvergi hrökk dagurinn til. Endalaus verkefni og skipulagning hvað hann ætlaði að gera á morgun, ef Guð lofar, eins og hann sagði. Þar sem ég horfði á þennan sí- vinnandi mann hlúa að blómum, plöntum og tijám á landareign sinni frá Þinghólsbraut og niður að sjó, varð mér oft hugsað til þess sama manns er hann var á sínum betri árum og réðst í að kaupa þetta land, þá af Búnaðarfélagi Islands 1942. Hversu stórhuga hann var og fram- sýnn að festa kaup á landspildu, þá í órafjarlægð frá Reykjavík og byggja þar sumarbústað víðs fjarri mannabyggð þá, berandi allt .efni á bakinu frá Hafnarfjarðarvegi og hreinsa gijótið úr landareigninni með höndunum en það gijót skipti tugum tonna og ekki lét Haraldur þar við sitja. Hann fór að sá fyrir tijám af öllum tegundum sem hann náði til, gróðursetti græðlinga og hóf skógrækt á blettinum öllum alveg niður að sjó. Að sjá þetta vaxa og sjá hvað hægt er að gera, gefur mér kraft til að halda áfram, þetta eru allt börnin mín, sagði hann. Gefur mér skjól og augna- yndi. Haraldur hafði sterkan per- sónuleika, var snyrtimenni mikið, bar höfuðið hátt, skuldaði engum neitt, var hrókur alls fagnaðar og hafði skoðanir á öllum málum. Því spunnust oft fjörugar umræður og skoðanaskipti þar sem Haraldur var meðal vina í hóp, og fylgdi hann sinni sannfæringu svo langt sem fært var. Af manni eins og Haraldi verður bara til eitt eintak, sagði ég eitt sinn. Ekki get ég sagt að við höfum alltaf verið sammála en óskaplega fannst okkur gott að loknu dagsverki að ræða tíðindi líðandi stundar og stjórnmál. Þar voru báðir á heimavelli og gáfu sig hvergi. Haraldur byggði ijölskyldu sinni notalegt heimili á Karlagötu 1 sem og var hans vinnustaður í frístundum en hann teiknaði yfir 1.500 raflagnir í hús hér á höfuð- borgarsvæðinu. Nú, að loknu dags- verki Haraldar á ég margs að minn- ast frá okkar samskiptum sem voru allt í senn virðing, þolinmæði og traust. Ég er að kveðja mann sem hafði sterka réttlætiskennd og þoldi aldr- ei að vera upp á aðra kominn. Fyr- ir hans forsjá og bjartsýni nýt ég þess nú að fá að halda áfram að hlúa að tijám og plöntum hans á hans unaðsreit ásamt afkomendum sem munu halda merki hans á lofti um ókomin ár. Við eigum honum ómælt þakklæti að gjalda. Hafi hann þökk fyrir allt. Hafsteinn J. Reykjalín + Faðir okkar, RAGNAR KRISTJÁNSSON, andaðist á Landakotsspítala að kvöldi 17. október. Sigurður Ragnarsson, Jóhanna Ragnarsdóttir, Unnur Ragnarsdóttir. t JÓN MARTEINN STEFÁNSSON, Miðbraut 21, Seltjarnarnesi, lést á Landakotsspítala þann 17. október sl. Margrét Hansen, Stefán Bersi og Eria María, Anna Stefánsdóttir, Elín Stefánsdóttir Portas. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRU GUÐMUNDU BJARNADÓTTUR, H vanneyrarbraut 74, Siglufirði. Friðrik Friðriksson, Gerða Pálsdóttir, Björg Friðriksdóttir, Sveinn Sveinsson, Jóhannes Friðriksson, Kristin Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN BJÖRGVIN JÓNSSON frá Hafnarhólmi, Ásabraut 5, Keflavfk sem andaðist á Landspítalanum þann 12. október, veröur jarð- sunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 20. október kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnst hans, er vinsamlega bent á líknarstofnanir. Sigríður Ingimundardóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALUR GÍSLASON leikari, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 23. október kl. 13.30. Laufey Árnadóttir, Valgerður Valsdóttir, Ingimundur Sigfússon, Valur Valsson, Guðrún Sigurjónsdóttir, Valur Ingimundarson, Sigfús Ingimundarson, Ragnar Valsson. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ALBERTS ERLINGSSONAR kaupmanns, Grenimel 2. Auður Albertsdóttir, Jón R. Steindórsson, Kristín Erla Albertsdóttir, Gunnar Finnsson, Erna Albertsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, HALLDÓRU J. GUÐMUNDSDÓTTUR, Miðengi, Grímsnesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki sjúkrahússins á Selfossi. Helga Benediktsdóttir, Kristinn Guðmundsson, Guðmundur Benediktsson, Auðbjörg Björnsdóttir, Þórunn Sigurbergsdóttir, og barnabörn. + Þökkum af alhug öllum þeim ótal mörgu, sem vottuðu okkur sam- úð og styrk vegna fráfalls ástkærrar dóttur okkar og systur, EVU MARÍU SÆVARSDÓTTUR, Einarsnesi 44, Reykjavík, er lést af völdum slysfara 25. september. Sérstakar þakkir til séra Sigfinns Þorleifssonar. Guð blessi ykkur öll. Sævar Þór Guðmundsson, Auður Aðalmundardóttir, Aðalmundur M. Sævarsson, Guðmundur Þ. Sævarsson, Lilja S. Sævarsdóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og dótt- ur, INGIBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Hrísmóum 9, Garðabæ. Sérstakar þakkir skulu færðar fyrir einstaka umönnun á deild 11-E á Landspítalanum. Guðmundur H. Sigurðsson, Elín Bragadóttir, Ólafur Geir Óskarsson, Þórður Bragason, Haila Magnúsdóttir, Aðalsteinn Ingi Ragnarsson, Guðmundur Ingi GuðmundssonQskar Ólafsson, Þórdfs Gunnlaugsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.