Morgunblaðið - 19.10.1990, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990
41
Sigvaldi Kristins-
son - Minningarorð
Fæddur 2. ágúst 1917
Dáinn 9. október 1990
í dag verður jarðsettur frá
Keflavíkurkirkju frændi minn, Sig-
valdi Kristinsson, en hann lést
þriðjudaginn 9unda október sl.
Sigvaldi var fæddur að Syðra-
Ósi á Höfðaströnd í Skagafirði 2.
ágúst 1917, yngsta barn hjónanna
Kristins Rögnvaldar Egilssonar og
konu hans, Kristínar Rutar Jó-
hannsdóttur, eldri voru faðir minn
Johann Jakob, fæddur 5. júní 1904,
hans kona var Guðleif Jóhannsdótt-
ir en hún lést á síðasta ári. Sigríður
Ingibjörg, fædd 25. ágúst 1905, bjó
á Siglufirði, nú látin. Baldvin, fædd-
ur 5. september 1906, drukknaði
ungur í Vestmannaeyjum. Egill,
fæddur 5. maí 1908, bjó á Siglu-
firði, síðar í Reykjavík, nú látinn.
Sigvaidi heitinn ólst upp hjá for-
eldrum sínum á Syðra-Ósi, en ung-
ur að aldri missir hann föður sinn
og flyst þá með móður sinni til
Siglufjarðar og bjuggu þau þar þar
til móðir hans lést.
Síðan bjó Sigvaldi um allmörg
ár í Ytri-Njarðvík þar til árið 1964
að hann flyst á heimili mitt í
Kefiavík, þar sem hann dvaldi síðan
til æviloka.
Það var hamingjudagur fyrir
heimili okkar Lárusar og drengj-
anna okkar þegar Sigvaldi föður-
bróðir minn flutti til okkar. Á þeim
26 árum sem liðin eru hefur aldrei
fallið skuggi á samveru okkar.
Sigvaldi var þeirrar gerðar að
allir sem honum kynntust hlutu að
bera til hans hlýjan hug, honum var
hógværð og tillitssemi við aðra í
blóð borin, hans mesta ánægja var
að gleðja aðra, þó einkum börn og
þá sem minnimáttar voru. Hann var
mjög barngóður og skapaðist mikil
vinátta með honum og drengjunum
okkar, einkum máttu þeir ekki hvor
af öðrum sjá hann, og yngri Sig-
valdi, þeir nafnarnir voru slíkir fé-
lagar að þar komst ekkert kynsióða-
bil nærri, samræður þeirra voru oft
eins og jafnaldrar væru að spjalla
saman, en ekki unglingur og sjötíu
ára gamall maður.
Sigvaldi giftist ekki og átti ekki
böm, þó var það hans mesta gleði
að umgangast börn og gleðja þau
eins og kostur var, honum var það
meira virði að stuðla að ánægju
annarra heldur en hugsa um eigin
hag.
Starfsævi Sigvalda heitins var
orðin löng, síðustu 33 árin starfaði
hann á Keflavíkurflugvelli, lengst
af hjá íslenskum aðalverktökum.
Hann var vinsæll á vinnustað og
hafði lilotið viðurkenningu frá
vinnuveitendum sínum fyrir langt
og gott starf. Þó Sigvaldi væri kom-
inn á áttræðisaldur. þá vann hann
fullan vinnudag, síðasta daginn í
lífí sínu sinnti hann störfum sínum
til loka vinnudagsins en var látinn
klukkan 22 um kvöldið. Þó hann
væri heilsuveili síðustu tólf árin þá
kom ekki annað til greina hjá hon-
um en sinna störfum sínum til
hinstu stundar.
Nú þegar Sigvaldi frændi minn
er kvaddur í hinsta sinn er mér og
fjölskyldunni efst í huga þakklæti
fyrir samveruna við hann á liðnum
árum, við söknum hans mikið og
geymum minningu um kæran vin.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Blessuð sé minning hans.
Kristín Rut Johanns-
dóttir og fjölskylda.
Með örfáum orðum vil ég minn-
ast elskulegs frænda míns, Sigvalda
Kristinssonar, sem lést 9. október
sl. 73 ára að aldri. Sigvaldi var
fæddur 2. ágúst 1917 og var hann
bróðir Jóhanns Kristinssonar, sem
er afi minn. Jóhann er nú einn eft-
ir af þeim systkinum og dvelur nú
á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki.
Frá því ég man eftir Sigvalda
hefur hann ávallt búið hjá Kristínu
Rut og Lárusi og hafa þau búið
honum gott heimili. Sigvaldi kom
alltaf í heimsókn þegar ég bjó í
foreldrahúsum _og þá aðallega á
laugardöguin. Ég man það að við
systkinin biðum alltaf eftir honum
með eftirvæntingu því alltaf færði
hann okkur nammi-og smá pening
í vasann. Hann fylgdist vel með
öllu og hafði áhuga á því að fylgj-
ast með öllum. Avallt þegar hann
kom í heimsókn spurði hann mig
hvernig'mér'vegnaði í skólanum og
í íþróttunum, því hann vissi að ég
var öllum stundum uppi í íþrótta-
húsi. Nú þegar ég er orðinn eldri
og vaxinn upp úr því að fá pening
í vasann og kominn með fjölskyldu,
þá var Sigvaldi ekki að hætta við
að færa smá pening því hann færði
Guðmundi syni mínum alltaf pening
í staðinn.
. Það var alltaf gaman að heim-
sækja Sigvalda í herbergið hjá Stínu
og Lalla og mun ég sakna þess
mikið að geta ekki kíkt inn til hans
í herbergið í Eyjavöllum því hann
var alltaf svo elskulegur og góður
við mig.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég minn elskulega frænda og
megi honum farnast vel yfir móð-
una miklu. Guð veri með honum.
Gísli Hlynur Jóhannsson
Vængi í hæð að hefjast,
sem háfleygt arnarkyn.
Vængi loks er leiftra,
við ljóssins hæsta skin.
Vængi er þjóta án þreytu,
en þiggja kyrrðar bið.
Þá bjartir saman sveifiast
í sælum himins frið.
(Stgr. Th.)
Enn er einn góðvinurinn lagður
upp í sinn himneska leiðangur. Sig-
valdi Kristinsson hefur kvatt okkur.
Kom hann til vinnu sinnar á
Keflavíkurflugvelli að morgni
Minning:
Anna Þ. Sveins-
dóttir, Kirkjubæ
Kveðja að norðan
Þegar aldraðir vinir og vanda-
menn kveðja þennan heim, erum
við þakklát fyrir, ef þeir fá að halda
sinni reisn, þar til þeir sofna hinum
hinsta svefni.
Skagfirðingurinn, Anna Þ.
Sveinsdóttir, fyrrum prestsfrú að
Kirkjubæ í Hróarstungu, varð
bráðkvödd á Hrafnistu í Reykjavík
4. október sl. 96 ára að aldri.
Anna fæddist að Skatastöðum í
Austurdal 28. apríl 1894. Foreldrar
hennar voru Sveinn Eiriksson og
Þorbjörg Bjarnadóttir. Þau hjón
eignuðust sex börn, Erling, f. 21.
desember 1887, bjó á Ytri-Víðivöll-
um í Fljótsdal, kvæntur Margréti
Þorsteinsdóttur frá Aðalbóli. Þor-
móð, f. 22. september 1889, skrif-
stofumaður á Akureyri, kvæntur
Björgu Stefánsdóttur frá Þórðar-
stöðum í Fnjóskadal. Aldísi, f. 13.
október 1890, lengi búsett á Akur-
eyri, gift Kristni Jóhannssyni frá
Miðsitju. Árna, f. 30. október 1892,
bjó á Kálfsstöðum í Hjaltadal,
kvæntur Sigurveigu Friðriksdóttur
frá Reykjum. Önnu, f. 28. apríl
1894, bjó að Kirkjubæ á Hróars-
tungu, og síðar í Reykjavík, gift
séra Sigurjóni Jónssyni frá Háreks-
stöðum á Jökuldal. Stefaníu Guð-
rúnu, f. 29. júlí 1895, bjó í Eyhildar-
holti í Hegranesi, gift Gísla Magn-
ússyni frá Frostastöðum.
ÓII voru þessi systkini miklum
gáfum gædd. Anna lifði systkini sín
öll, en þijú þeirra misti hún sama
árið, 1977, Aldísi, Erling og Guð-
rúnu. Þau tvö síðarnefndu dóu
bæði í sömu vikunni. Það var henni
þung raun, en hún var þá stödd hér
hjá frændfólki sínu fyrir norðan.
Anna missti móður sína er hún
var aðeins fimm ára gömul.
Skömmu áður var heimilið leyst
upp, vegna vanheilsu móður henn-
ar, og börnunum komið í fóstur.
Anna fór að Bústöðum, næsta bæ
við Skatastaði, til nöfnu sinnar
Önnu Jónsdóttur og sonar hennar
Tómasar Pálssonar. Þar leið henni
vel og átti hún sitt heimili þar fram
um tvítugt. Var hún ætíð talin sem
ein af fjölskyldunni á Bústöðum.
Sveinn faðir hennar lést árið 1939
og síðustu árin átti hann heimili
hjá Guðrúnu og Gísla í Eyhildar-
holti.
Anna var bæði virðuleg og falleg
kona og svo einstaklega sjálfstæð.
Hún hélt vel sinni reisn og virtist
í raun ekkert eldast. Frá henni staf-
aði eitthvað svo gott, sem orð ná
ekki að lýsa. Hún var stórgáfuð
kona og hafði sínar ákveðnu skoð-
anir. Það var bæði ánægjulegt og
lærdómsríkt að hlusta á frásagnir
hennar frá löngu liðnum tímum og
fræðast af henni um ættfræði, jafn-
framt því að ræða við hana um
eilífðarmálin. Hún bjó yfir mikilli
kímnigáfu og kom það glöggt fram
í frásögnum hennar og samræðum.
Við áttum því láni að fagna að
hafa Önnu á heimili okkar nokkra
daga á sumri hverju, mörg hin
síðari ár. Það var jafn sjálfsagt,
eins og að lóurnar koma á vorin,
að Anna frænka kæmi er líða tæki
á sumarið. Var það ætíð tilhlökkun-
arefni, er hennar var von. Ilún
dvaldi oft á Löngumýri en fram-
lengdi svo dvöl sína í Skagafirðinum
hjá vinum og vandamönnum. Var
þriðjudags 9. október, hress og
glaður eins og alltaf. Að vinnudegi
loknum sveif hann inn í eilífðina.
Hjartað hætti að slá. Sigvaldi var
einn af þessum fáu vönduðu mönn-
um sem skildu ekkert nema gott
eftir sig. Ég var búinn að þekkja
Sigvalda og vera honum samtímis
fjölda mörg ár. Sigvaldi var mikið
snyrtimenni og bauð af sér góðan
þokka, einu orði sagt fallegur mað-
ur.
Sigvaldi var Skagfirðingur.
Fæddur við Hofsós 2. ágúst 1917,
nýlega orðinn 73 ára.
Afkomandi Sigvalda skálds, sem
var landskunn fyrir skáldskap. Sig-
valdi bjó hjá ættingjum í Keflavík,
bróðurdóttur sinni og hennar fjöl-
skyldu. Sigvaldi var ókvæntur, en
einn ættingja held ég að honum
hafi þótt vænst um. Var það Sig-
valdi Lárusson sonur bróðurdóttur
hans, talaði hann oft um hann við
mig, var auðheyrt að þar varVænt-
umþykja.
Sigvaldi taldi gæfu að hafa feng-
ið að búa hjá jafnágætu fólki og
hann var hjá.
Sigvaldi var í vinnuflokki Kristins
Gunnarssonar. Félagar hans kveðja
hann með söknuði, en það er hugg-
un að vita að heimkomu hlýtur
hann góða.
Ættingjum votta ég samúð mína.
Þú guðs míns lífs,
ég loka auguin mínum,
í liknarmildum fóður öimum þínum.
Og hvíli sælt þótt hverfi sólin bjarta,
þig halla mér að þínu fóður hjarta. (M. Joch.)
Guð blessi minningu góðs vinar.
Jakob V. Þorsteinsson
Ég vil minnast frænda míns og
nafna með nokkrum orðum en hann
lést á Landspítalanum að kvöldi 9.
október sl.
Hann hét Sigvaldi Kristinsson og
fæddist að Syðri-Ósi á Höfðaströnd
2. ágúst 1917. Hann fluttist til
Njarðvíkur 1953 og hóf störf hjá.
Karvel Ögmundssyni og var þar
nokkrar vertíðir. Árið 1957 hóf
hann störf hjá íslenskum aðalverk-
tökum og starfaði hann þar til
síðasta dags lífs síns.
Hann kom á heimili foreldra
minna 14. september árið 1964 og
var frá þeim tíma búsettur hjá þeim
og höfum við þrír bræður alist upp
með honum og hefur það verið mik-
ilvægur þáttur í uppeldi okkar
bræðra að hafa haft hann á heimil-
inu. Alltaf var hann tilbúinn að
aðstoða og rétta hjálparhönd þegar
á þurfti að halda og var hann það ‘
einnig við öll börn frændfólks síns
og þótti börnunum gott að koma
til Dæda eins og við kölluðum hann
og alltaf var eitthvað gott í munni
eða vasa þegar heimsókn lauk og
haldið var heim.
Mér sem þessar línur rita reynd-
ist hann sérlega vel og ekki hefði
ég viljað vera án hans í uppeldi
mínu og oft á ég eftir að hugsa til
hans með. söknuði og trega, og um
leið og ég kveð hann með þakklæti
og bið honum guðs blessunar á
nýjum tilverustigum flyt ég honum
þakklæti og kveðju frá þeim bræðr-
um Lárusi Kristni og Helga Lars
sem nú sakna sárt vinar sem ávallt
var gott að vera hjá.
Guð blessi minningu Sigvalda
Kristinssonar.
Sigvaldi Lárusson
hún alls staðar aufúsugestur. Við
ferðuðumst ætíð með Önnu um
hennar æskuslóðir og var unaðslegt
að finna hve hún naut þessara
ferða. Það var sem hún lifði upp
sína æskudaga og ætíð var hún að
fræða okkur um liðna tíð og Stað-
hætti ýmsa. Minnisstæðastar verða
þó ferðirnar í Skatastaði. Óijúfan-
leg bönd bundu hana þessum stað
og vinátta var mikil við þau hjónin,
Sólborgu Bjarnadóttur og Kristján
heitinn Guðjónsson, er þar bjuggu.
Það er sérstakur ljómi yfir þessum
ferðum og móttökurnar væru bæði
höfðinglegar og innilegar í senn.
Þökk sé þeim hjónum. I hvert sinn
er hún hafði ferðast um fjörðinn
sinn, sagðist hún vera tilbúin að
deyja.
Ánægjulegast þótti henni að
dvelja hér síðari hluta sumars. Þá
þótti henni fegurð fjarðarins njóta
sín best. Ágústkvöldin með mildu
húmi og tungli í fyllingu voru henn-
ar paradís. Svo kvaddi hún fjörðinn
sinn og hvarf til síns heima umvaf-
iri ljóma minninganna, sem styttu .
henni stundirnar, þar til voraði á
ný og farfuglarnir vitjuðu heim-
kynna sinna. Hún var búin að
kveðja æskuslóðirnar í síðasta sinn.
Skagafjörðurinn sendir henni
kweðju sína og þakkár henni átt-
hagatiyggðina.
Fjölskylda mín kveður Önnu
frænku, sumargestinij sinn, og bið-
ur þess að milt síðsumarshúmið
umvefji hana á nýjum slóðum og
tunglið sendi henni geisla sína.
Astvinum hennar öllum sendum
við innilegar samúðarkveðjur.
Helga Bjarnadóttir frá
Frostastöðum.
Vegna útfarar VALS ARNÞÓRSSONAR bankastjóra, verður lokað í aðalbanka og höfuðstöðvum í dag, föstudaginn 19. október, milli kl. 1 3.00 og 15.00 síðdegis. Landsbanki íslands >■
+ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR JÓHANNESDÓTTUR. Jóhanna Helgadóttir, Haraldur Helgason, Magnea Helgadóttir, Sigurjón Guðjónsson, Magnús Helgason, Kolbrún Ástráðsdóttir, Dóra Stína Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og I Arni ragnar lúðvíksson
Þórdís Garðarsdóttir, Lúðvík Guðberg Björnsson, Elínborg Halldóra Lúðvíksdóttir, Björn Rúnar Lúðvíksson, Rósa Karlsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, - Guðmundur Magnússon, Björn Magnússon.