Morgunblaðið - 19.10.1990, Qupperneq 51
MORGUNBLÁÐIÐ
aiGAjavruoíiOM
IÞROl IIR FÖSTUDAGUR 19. OKTÖBER 1990
51
KORFUBOLTI / URVALSDEILD
ÍBK -Tindastóll 98:115
íþróttahúsið í Keflavík, íslandsmótið í körfuknattleik, fimmtudaginn 18. október 1990.
Gangur leiksins: 4:0, 10:6, 16:16, 21:20, 21:27, 28:39, 34:48, 37:52,42:56, 46:64, 52:69,
58:73, 64:75, 66:85, 75:96, 82:100, 98:115.
Stig IBK: Tom Lyte 23, Sigurður Ingimundarson 22, Jón Kr. Gíslason 19, Falur Harðar-
son 17, Albert Óskarsson 12, Egill Viðarsson 2, Hjörtur Harðarson 2, Hjörtur Ámason 1.
Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 36, Pétur Guðmundsson 26, Ivan Jónas 24, Einar
Einarsson 13, Pétur V. Sigurðsson 6, Sverrir Sverrisson 6, Karl Jónsson 4.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristján Möller.
Áhorfendur: Um 500.
Sigurganga Tindastóls hélt áfram
Sigurganga Tindastóls hélt áfram í Keflavík í gærkvöldi þegar liðið
sigraði heimamenn á sannfærandi hátt með 17 stiga mun, 115:98.
Keflvíkingar áttu ekkert svar við stórleik þremenninganna, Vals Ingimund-
arsonar, Péturs Guðmundssonar og Tékkans Ivan Jónas, en saman skor-
uðu þeir 86 stig í leiknum. Valur Ingimudarson var af
Bjöm öðrum ólöstuðum besti maður vallarins að þessu sinni,
Blöndal skoraði 36 stig og þar af voru 7 3ja stiga körfur. „Þetta
var erfíður leikur, því Keflvíkingar eru erfiðir heim að
sækja. Það var fyrst og fremst góð hittni hjá okkur utan
af velli sem réði úrslitum að þessu sinni,“ sagði Pétur Guðmundsson sem
einnig átti stóran þátt í sigri Sauðkrækinga sem skoruðu 13 3ja stiga
körfur gegn aðeins tveimur frá heimamönnum. Lið IBK er greinilega
ekki eins sterkt og í fyrra, enda margir af lykilmönnum liðsins farnir og
ungir og óreyndir leikmenn komnir í staðinn. Jón Kr. Gíslasnon, Sigurður
Ingimundarson, Falur Harðarson og Tom Lytle voru bestir í liði IBK.
skrifarfrá
Keflavik
ÍR - Snæfell 78:83
Stig ÍR: Douglas Shouse 26, Karl Guðlaugsson 23, Jóhannes Sveinsson 15, Björn Bolla-
son 12, Gunnar Þorsteinsson 2.
Stíg Snæfells: Gennadij Pereqeud 27, Brynjar Harðarson 22, Bárður Eyþórsson 14,
Ríkharður Hrafnkelsson 7, Sæþór Þorbergsson 6, Hreinn Þorkelsson 5, Eggert Halldórs-
son 2.
Áhorfendur: 106. *
Dómarar: Kristinn Albertsson og Guðmundur Stefán Maríasson.
Fyrsti sigur Snæfells
BBotnliðin í A-riðli mættust í Seljaskóla í gærkvöldi, en bæði höfðu
tapað fyrstu leikjum sínum. ÍR-ingar léku í fyrsta sinn með útlend-
ing, Douglas Shouse, og var hann besti maður liðsins. Leikurinn var jafn
í byrjun, en nokkuð um fum og fát á leikmönnum beggja liða, enda mikið
í húfi. Heimamenn voru yfir í hléi, 38:36. Bæði liðin byrj-
uðu seinni hálfleik af miklum krafti og skiptust á að skora.
Leikurinn var í járnum allan tímann og þegar 54 sek.
voru eftir var staðan jöfn, 78:78, en Snæfellingar gerðu
síðustu stigin úr vítum. Þegar staðan var 79:78 fékk Dou-
glas bónusvíti en hitti ekki. Snæfellingar náðu frákastinu, ÍR-ingar brutu
af sér og síðan var dæmd tæknivilla á þá. Bestir Hjá ÍR voru Douglas,
Björn Bollason og Karl Guðlaugsson. Jóhannes Sveinsson stóð fyrir sínu.
Sovétmaðurinn og Brynjar Harðarson voru bestir hjá Snæfelli. Bárður
Eyþórsson var frískur og Hreinn Þorkelsson stjórnaði liði sínu af yfirveg-
un, en fékk sína fimmtu villu, þegar átta mínútur voru eftir.
Vanda
Sigurgeirsdótlir
skrifar
FOTBOLTI / FIFA DOMARARAR
Sjö tilnefndir
Astjórnarfundi Knattspyrnu-
sambands íslands í gær-
kvöldi lagði dómaranefnd KSÍ
fram lista með nöfnum sjö dóm-
ara, sem hún óskar eftir að verði
tilnefndir til alþjóðaknattspymu-
sambandsins, FIFA, sem
milliríkjadómarar. Fjórir slíkir eru
nú starfandi; Guðmundur Har-
aldsson, Óli Óisen, Eyjólfur Ólafs-
son og Sveinn Sveinsson, en þetta
er síðasta ár Guðmundar. Auk
hinna þriggja tilnefndi nefndin
Braga Bergmann, Egil Má Mar-
kússon, Gylfa Orrason og Guð-
mund Stefán Maríasson. Stjórnin
frestaði ákvöi-ðun í málinu til
næsta ftmdar.
Á síðasta ári vorti tilnefndir sex
dómarar, en FIFA hélt sig við
óbreytta tölu. Að sögn Inga Jóns-
sonar, fonnanns dómaranefndar,
má tilnefna allt að 10 menn, en
nefndin gerir sér vonir um að fá
finun. Aðspurður um hvort ekki
hefði verið vænlegra til árangurs
að tilnefna þáfimtn með fyrri
í-eynslu í huga sagði Ingi að viss
uppbyggmg hefði átt sér stað og
með þessu væri verið að sýna fram
á aukna breidd í dómarastéttinni,
en það væri FIFA að velja. Auk
þess væri málið ekki afgreitt og
því vildi hanii ekki tjá sig nánar
um það.
HANDBOLTI / KVENNALANDSLIÐ
15 marka tap gegn Norðmönnum:
„Úthaldið brást“
- sagði Helga Magnúsdóttir, fararstjóri
ÍSLENSKA kvennalandsliðið
tapaði með 15 marka mun,
29:14, gegn Norðmönnum á
alþjóðlega mótinu í Hollandi í
gærkvöldi. Að sögn Helgu
Magnúsdóttur, fararstjóra,
léku íslensku stúlkurnar mjög
vel í fyrri hálfleik, höfðu undir-
tökin þar til staðan var 7:7, „en
úthaldið brást,“ sagði Helga.
Norðmenn hafa lengi átt eitt
besta kvennalandslið heims og
sagði Helga að þetta væri munurinn
á liðunum. „Þær eru með gífurlega
reynda leikmenn, en við stillum
nánast upp unglingaliði. Hins vegar
var allt annað að sjá til stúlknanna
en gegn þeim hollensku í fyrsta
leik. 6-0 vörnin kom mjög vel út
þrátt fyrir stuttan aðlögunartíma
og þetta kemur,“ sagði Helga.
GOLF
Hún sagði enn fremur að liðið
hefði verið jafnt. „Guðný Gunn-
steinsdóttir barðist eins og hetja
og var góð á línunni. Inga Lára
Þórisdóttir var einnig góð á miðj-
unni, þó hún hafi ekki skorað.“
Kolbrún Jóhannsdóttir lék í marki
í fyrri hálfleik og varði sex skot,
en Halla Geirsdóttir varði fimm
skot eftir hlé.
Mörk íslands: Halla Helgadóttir
5/2, Guðný Gunnsteinsdóttir 4,
Herdís Sigurbergsdóttir 3, Svava
Sigurðardóttir 1, Hulda Bjarnadótt-
ir 1.
Önnur úrslit urðu þau að Holland
vann Belgíu 25:10 og Rúmenía, sem
vann Belgíu 34:14 í fyrsta leik,
vann Póíland 23:20. „Það er besti
kvennaleikur, sem við höfum séð,"
sagði Helga.
íí
„Á mér draum um alvöru skógarvöll
- segir Steinar Guðmundsson sem hefur byggt níu holu golfvöll við Mosfellsbæ
ÞAÐ er ekki lítið verk að byggja
golfvöll og fæstir láta sig
dreyma um slíkt án þess að
hafa stóran klúbb að baki sér
og/eða sand af seðlum. Steinar
Guðmundsson segist hafa
hvorugt en engu að síður hefur
hann ásamt syni sjnum byggt
níu holu golfvöll við Laxnes í
Mosfellsbæ. „Mér er sagt að
völlurinn sé mjög góður og það
skemmtilega við hann er hve
fjölbreytt landslagið er á svæð-
inu. En ég á mér draum um
alvöru skógarvöll og er byrjað-
ur að rækta fyrir f ramtíðina,"
segir Steinar.
Steinar á land við bæinn
Minnamosfell og þar er völlur-
inn. Hann heitir Bakkakotsvöllur
en nafnið fann Steinar í Jarðabók
Páls Vídalíns og Árna Magnússonar
frá 1704. „Það eru tóftir við völlinn
en enginn vissi hvað þær hétu. En
eftir að hafa grúskað í gömlum
bókum fann ég nafnið Bakkakot
°g það er skemmtilegt að geta haft
teiginn á annarri holu í baðstof-
unni,“ segir Steinar.
Þrátt fyrir allt segist Steinar
ekki hafa ýkja mikið vit á golfí. „Ég
átti landið og vissi satt að segja
ekki hvað ég ætti að gera við það.
Ég hef verið að reyna að rækta tré
á landinu og langaði til að prófa
að búa til golfvöll. Það hefur geng-
ið vonum framar og völlurinn er
ótrúlega góður miðað við hve
Keppendur á fyrsta mótinu á Bakkakotsvelli við Laxnes í Mosfellsbæ.
skamman tíma við höfum unnið við
hann,“ segir Steinar.
Sonur hans, Magnús, á stóran
þátt í byggingu vallarins. „Við höf-
um að mestu verið tveir í þessu og
hann ætlar að sjá um klúbbinn sem
við ætlum að stofna. Hann á að
heita Golfklúbbur Bakkakots og við
gerum ráð fyrir hundrað félögum
og líklega einhverjum aukafélögum.
Árgjaldið verður um fimmtán þús-
und krónur og mér er sagt að það
sé ekki mikið fyrir svo skemmtileg-
an völl.“
Geir Svansson hannaði völlinn
en ekki þurfti að gera miklar breyt-
ingar. „Við höfum allt, tjarnir,
glompur, hæðir og lægðir. Lands-
lagið er fallegt og lítið sem við
þurftum að gera,“ segir Steinar.
toém
FOLK
ÍSRAELSKI landsliðamaður-
inn Eli Ohana á margt sameigin-
legt með Arnóri Guðjohnsen.
Hann var einn af bestu leikrhönnum
Mechelen í Belgíu en neitaði að
skrifa undir samning í haust og
hefur því ekki leikið með liðinu.
Leeds United sýndi honum áhuga,
eins og Arnóri en ekkért varð úr
kaupum. Það var loks í vikunni að
Ohana fékk samning; hjá Braga
sem leikur í 1. deild í Portúgal.
BRETIN' Nick Faldo hefur
verið valinn kylfingur ársins af fé-
lagi bandarískra atvinnukylfmga
(US PGA). Hann er fyrsti útlend-
ingurinn hlýtur þennan titil.
Frammistaða hans á árinu heJur
verið einstök og hann sigraði á
bandaríska meistaramótinu og opna
breska meistaramótinu. Faldo fékk
110 stig en Hale Irwin, sem varð
í 2. sæti fékk 70 stig og Greg
Norman 60 stig.
FALDO á uppáhaldsholu, þá
11. á National Augusta, vellinum
þar sem bandaríska meistaramótið
[Masters] fer fram. Hún er nú svo
gott sem ónýt eftir mikla rigningu
þar síðustu vikur. „Flötinni skolaði
burt,“ sagði Jim Armstrong, fram-
kvæmdastjóri golfklúbbsins. „Nú
er þar bara stór hola.“ Faldo
tryggði sér sigur á þessari holu í
fýrra með níu metra pútti í bráða-
bana gegn Scott Hoch og sigraði
einnig Ray Floyd á þessari holu í
vor. Tólfta flötin er einnig illa farin
og glompurnar nær horfnar. „Það
er mikil vinna framundan en við
erum byijaðir og vonumst til að
koma þessu í lag,“ sagði Arm-
strong.
— LUIS Femandez, maðurinn á
bakvið sigur Frakka á Tékkum í
EM í knattspyrnu um helgina, seg-
ist ekki gefa kost á sér í næsta
landsleik nema hann hafi öruggt
sæti í liðinu. Fernendez kom inná
á 52. mínútu og þá var marka-
laust. Hann blés lífi í lið Frakka
átti stóran þátt í mörkunum. „Ég
hef engan áhuga á að sitja á bekkn-
um og vil fá fast sæti eða ekkert,"
sagði Fernandez. Hann ætlar að
hitta Michel Platini, þjálfara liðs-
ins, í vikunni og reyna að ganga
frá þessu máli en Platini segist
engu geta lofað.
ÍRAR sigruðu Englendinga
um helgina í Dunhill-bikarnum í
golfi á St Andrewsvellinum í
Skotlandi. í undanúrslitum sigruðu
írar N-Sjálendinga og Englend-
ingar unriu Japani í umdeildum
leik. Japanir unnu einn leik gegn
Englendingum og tveimur lauk
með jafntefli. Japnir töldu að þeir
hefðu sigrað í leiknum, með tveimur
vinningum gegn einum. Samkvæmt
reglunum þarf lið að vinna tvo leiki
en jafntefli verði útkljáð með bráða-
bana nema það hafi ekki áhrif á
leikinn. Japanir hafa mótmælt
reglunum en í gær var það tilkynnt
að þeim yrði ekki breytt en hugsan-
lega orðaðar öðruvísi svo ekki yrði
hægt að misskilja þær. Þess ,má
geta að þetta er aðeins í annað sinn
í sex ára sögu keppninar sem staða
sem þessi kemur upp.
■ GREG Norman er aftur kom-
inn í efsta sæti heimslistans í golfi.
Hann hefur hlotið að meðaltali
19,07 stig en Nick Faldo, sem
hefur ekkert leikið síðasta mánuð-
inn, er aftur í 2. sæti með 18,73
stig.
Hann segist hafa tekið bankalán
fyrir tækjum, sláttarvélum og drátt-
arvél en vonast til að geta borgað
það upp á tveimur árum.
„Ef ég á að segja alveg eins og
er þá er ég feginn því að veturinn
skuli vera að koma. Ég er búinn
að standa í þessu í allt sumar og
er feginn að fá svoltið frí,“ segir
Steinar.
Ikvöld
HANDBOLTI
KA og Víkingur mætast í 1.
deild karla í íþróttahöllinni á
Akureyri í kvöld og hefst leik-
urinn kl. 20:30.
KÖRFUBOLTI
Einn leikur verður í úrvals-
deildinni í kvöld; UMFN og
KR leika i Njarðvík og byijar
viðureignin kl. 20.