Morgunblaðið - 16.11.1990, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 16. NOVEMBER 1990
Vinnudeilusjóður BSRB:
50 millj. kr. innistæða
flutt úr Islandsbanka
STJÓRN Vinnudeilusjóðs Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hefur
ákveðið að færa innistæðu Vinnudeilusjóðs úr íslandsbanka og ávaxta
hana annars staðar. Innistæðan er um 50 milljónir króna. Akvörðun
þessi var tekin til að undirstrika mótmæli BSRB við vaxtahækkun
Islandsbanka nýverið.
Eyþór Fannberg, sem á sæti í
Vinnudeilusjóðnum, sagði að
ákvörðun um hvar innistæðunni yrði
komið fyrir yrði tekin á fundi stjóm-
ar sjóðsins næstkomandi miðvik.u-
dag.
Eyþór sagði að þessi ákvörðun
hefði ekki verið tekin vegna
óánægju með ávöxtun- í íslands-
banka heldur til að undirstrika mót-
mæli BSRB við vaxtahækkun bank-
ans. „Næstkomandi miðvikudag er
ráðgert að fundur verði í stjóm
sjóðsins og þá verðum við væntan-
lega búnir að fá upplýsingar sem
við munum leita eftir hjá peninga-
stofnunum. í ljósi þess sem kemur
út úr því verður tekin ákvörðun um
ávöxtun þessara peninga," sagði
Eyþór.
VEÐUR
Tryggvi Pálsson bankastjóri ís-
landsbanka sagði að Vinnudeilu-
sjóðurinn hefði fyrir skömmu óskað
eftir tilboði banka í ávöxtun síns
fjár og íslandsbanki hefði sent til-
boð, sem bankinn hefði talið mjög
gott. „Þeir munu eflaust geta stað-
fest að það var ekki lakara en það
sem aðrir buðu. Að þeir skuli þrátt
fyrir það taka sína innistöðu hrygg-
ir okkur en hver er fijáls að sínu
fé. Margumtöluð vaxtahækkun ís-
landsbanka fólst í því að við höfðum
lækkað vexti í októbermánuði, en
síðan hækkuðum við þá til samræm-
is við það sem þeir voru frá 1. apríl
til 1. október. Það er okkar mat að
verðbólgan sé og verði á næstu'
mánuðum ekki lægri heldur en hún
var í sumar,“ sagði T ryggvi Pálsson.
Öxnadalsheiði:
Hart deilt um yfirráða-
rétt á rj úpnaveiðisvæði
DEILUR hafa risið milli skotveiði-
manna vegna veiðiréttinda á
Oxnadalsheiði. Skotveiðifélag
Akrahrepps hefur leigt veiðirétt
á svæðinu og ætlar að selja þar
veiðileyfi um helgina en því hafa
Skotveiðifélag íslands og Skot-
VEÐURHORFURIDAG, 16. NOVEMBER
YFIRLIT í GÆR: Við suðurströndina er 975 mb lægð á hreyfingu
norðaustur en á sunnanverðu Grænlandshafi er minnkandi 979
mb lægð.
SPÁ: Suðvestan gola eða kaldi suðaustanlands fram eftir nóttu
en annars heldur vaxandi norðanátt um land allt, kaldi eða stinnings-
kaldi. Rígning og súld víða um land en él um landið norðanvert á
morgun en léttir til sunnanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG:Fremur hæg suðvest-
læg eða breytileg átt. Dálítil él á víð og dreif, einkum vestanlands
og á annesjum norðaustanlands, en bjart veður suðaustanlands.
Vægt frost norðan- og vestanlands, en frostlaust á suðausturlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
r * / * Slydda
/ * /
* # *
* * * * Snjókoma
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
vn / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 1 skýjað Reykjavík 5 súld
Bergen 9 skýjað
Helsinki +4 skýjað
Kaupmannahöfn 9 þokumóða
Narssarssuaq 4-2 háifskýjað
Nuuk 4-2 skýjað
Osló 5 rigning
Stokkhólmur 5 súld ✓
Þórshöfn 8 rlgning
Algarve 22 heiðskírt
Amsterdam 12 léttskýjað
Barcelona 16 skýjað
Berlín 11 þokumóða
Chicago 12 heiðskírt
Feneyjar 11 þokumóða
Frankfurt 8 rigning á sl. klst.
Glasgow 9 rigning
Hamborg 10 þokumóða
Las Palmas 24 léttskýjað
London 11 skýjað
Los Angelos 13 þokumóða
Lúxemborg 8 skýjað
Madríd 15 mistur
Malaga 22 léttskýjað
Mallorca 19 skýjað
Montreal 5 léttskýjað
New York 7 léttskýjað
Orlando 18 skýjað
París 12 skýjað
Róm 16 þokumóða
Vín 7 rigning
Washíngton vantar
Winnipeg +2 alskýjað
veiðifélag Eyjafjarðar harðlega
mótmælt og ætla félagar áð fjöl-
menna til veiða um helgina. Er
útlit fyrir að kærumál rísi í kjöl-
far ágreiningsins. Skotveiðifélag
Eyjafjarðar hefur hvatt. félags-
menn sem hyggjast halda til veiða
að hafa byssur sínar óhlaðnar og
axlaðar meðan rætt er við fulltrúa
Skotveiðifélags Akrahrepps sem
verða á svæðinu til að innheimta
veiðigjald.
Skotveiðifél ag Eyj afj arðar hyggst
halda til veiða á Öxnadalsheiði næst-
komandi laugardag og láta reyna á
það hvort félagsmenn verði kærðir
neiti þeir að greiða veiðileyfí. Stjórn
Skotveiðifélagsins hefur lýst því yfir
að það telji sig vera í fullum rétti
samkvæmt landslögum að stunda
ijúpnaveiðar á þessu svæði án þess
að^greiða gjald fyrir.
í yfirlýsingu frá Skotveiðifélagi
íslands segir að „samkvæmt gildandi
lögum er öllum íslenskum ríkisborg-
unum heimilar fuglaveiðar á afrétt-
um og almervningum utan landar-
eigna lögbýla, enda geti enginn sann-
að- eignarrétt sinn til þeirra. Algeng-
ur sé sá misskilningur að í afréttar-
eign felist eignarréttur á svæðinu.
Afréttareign merki aðeins rétt til
beitarnytja á afrétti". Skotveiðifélag
íslands geti því ekki fallist á yfirráð
svokallaðs leigutaka á hluta Oxnar-
dalsheiðar og mun því ekki virða
veiðibann á svæðinu nema dómstólar
úrskurði á þann veg.
Kári Gunnarsson, formaður Skot-
veiðifélags Akrahrepps, sem er leigu-
taki umrædds svæðis, sagði að full-
trúar skotveiðifélaganna vitnuðu til
5. greinar laga um fuglaveiðar og
fuglafriðun en hún ætti alls ekki við
í þessu tilfelli þar sem um eignarland
væri að ræða. „Akrahreppur hefur
kaupsamning frá 1897 og skriflegt
afsal, þinglýst 1899, á afrétt Silfra-
staða frá Steingrími Jónssyni bónda
á Silfrastöðum. Meginhlutinn af af-
réttinni eru tvær hjáleigur Silfra-
staða, Hálfdánartungur og Krókár-
gerði. Við höfum gert samning við
hreppsnefndina um veiðiréttindi á
svæðinu," sagði Kári.
Kári sagði að ástæða þess að far-
ið ráðgert væri að selja veiðileyfi á
svæðinu nú væri að alltof mikið hefði
verið af skotveiðimönnum í einu að
veiðum. Tilgangurinn væri ekki ein-
vörðungu sá að innheimta fé. Ætlun-
in væri að selja ijúpnaveiðileyfi á
sama verði og aðrir bændur selja
veiðileyfin, þ.e. 650-700 kr. fyrir
hvern dag. Hann sagði að veiðileyfin
væru tilbúin og þeim fylgdi kort yfir
heiðina sem skipt væri upp í fimm
veiðisvæði.
Félagar í Skotveiðifélagi Eyja-
fjarðar hyggjast halda til veiða á
Öxnadalsheiði næstkomandi laugar-
dag og hefur stjórn félagsins hvatt
félagsmenn til að sýna fyllstu kurt-
eisi og veita þeim er kynnu að selja
veiðileyfi á staðnum þær upplýsingar
sem þeir kynnu að biðja um, svo sem
nafn, heimilisfang og skotvopnaleyfi.
Menn eru jafnframt eindregið hvattir
til þess að fara ekki einir síns liðs
til veiða á heiðinni. Þá er mönnum
bent á að hafa byssur sínar óhlaðnar
og axlaðar meðan rætt er við „áður-
greinda menn“ þannig að ljóst sé að
byssan sé ekki notuð sem ógnun.
Kári sagði að sala veiðileyfa hæf-
ist í dag, föstudag, og kvaðst hann
ekki eiga vona á mikilli sölu um þessa
helgi vegna yfirlýsinga frá Skotveiði-
félagi íslands og Eyja£jarðar um að
félagar ætli að fjölmeana á svæðið.
„Hins vegar get ég lofað þér því að
það munu koma fram kærumál. Fari
einhver þarna í óleyfi verður það
hiklaust kært til lögreglunnar. Verði
í einhveiju áfátt um samvinnuvilja
þessara manna neyðumst við til að
kalla til lögreglu."
Framsóknarf élögin:
Umfjöllun um
kröfu Guðmund-
ar frestað
STJÓRN fulltrúaráðs framsókn-
arfélaganna í Reykjavík mun á
mánudaginn fjalla um kröfu Guð-
mundar G. Þórarinssonar, al-
þingismanns, um að skoðana-
könnunun í fulltrúaráðinu verði-
lýst ómerk og efnt verði til opins
prófkjörs.
Til stóð að stjórn fulltrúaráðsins
fjallaði um mál Guðmundar í gær,
en að sögn Helga S. Guðmundsson-
ar, starfandi formanns fulltrúaráðs-
ins, náðist ekki í alla stjórnarmenn
í tæka tíð. Hann hafi því ákveðið
að fresta umfjölluninni til mánu-
dags, meðal annars vegna flokks-
þings Framsóknarflokksins, sem
hefst í dag og lýkur á sunnudaginn.
Samningaviðræður
við sjúkrahúslækna
JÓN Hilmar Friðriksson, formaður Félags ungra lækna, segir að félag-
ið fyrirhugi engar aðgerðir á næstunni, þar sem nú sé komin hreyfing
á samningaviðræður við sjúkrahúslækna. Félag ungra lækna hafði
áður bent á þann möguleika, að aðstoðarlæknar ynnu að meðaltali
90 yfirvinnustundir á mánuði, í stað 150 að meðaltali nú, en slíkar
aðgerðir hefðu mikil áhrif á sjúkrahúsunum.
„Við bentum á þennan möguleika ákveðið að menn hittist eftir helgina
þegar við mótmæltum miklu vinnuá-
lagi, en þetta er í biðstöðu nú, þar
sem stefnir í samningaviðræður við
sjúkrahúsIíFkna í næstu viku,“ sagði
Jón Hilmar. „Þar verður meðal ann-
ars rætt um vaktafyrirkomulag og
lengd vakta. Formlegur samninga-
fundur hefur ekki verið boðaður, en
og ræði málin."
Samningsaðilar eru Reykjavíkur-
borg, fyrir hönd Borgarspítalans,
fjármálaráðuneytið fyrir hönd
ríkisspítalanna og af hálfu lækna
eru það Læknafélag íslands og
Læknafélag Reykjavíkur.